Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.1998, Qupperneq 25
MIÐVIKUDAGUR 29. JÚLÍ 1998
Myndasögur
i
c
(0
I E-
I
1 3
I >
I ffi
w
co
cö
—i
—i
S
•l-H
^cO
tr>
o
I <ö
co
I “'-I
B)
I .S
i w
i
i
i
S
ÞAP tHEFUfc QER6T HEILMIKIP
, 5IÐAN I SIÐUSTU VIKU.
e e hef srotið, Turrueu oe
ÞRJAR RUPUR I VERSLUNUM.
7 ÉG H.EF HALDIf? ÁFRAM ' '
KVENRETTINPABARATTUNNI
, OG BARIST VIP
FILAPENNSLANA. HVORT 1
TVEGGJA HEFUR SKILAP
<r
25
Veiðivon
Rennt fyrir fisk.
Urriðasvæðin í Þingeyjarsýslu:
Gengur frábærlega
Veiöin á urriðasvæðinu i Þingeyjar-
sýslu hefur verið feiknagóð í sumar
og eru komnir yfir 5000 fiskar á báð-
um svæðunum, hjá Hólmfríði og nið-
ur í Laxárdal, en þetta er með betri
sumrum í urriðanum fyrir norðan
sem elstu menn muna.
„Veiðiskapurinn gengur feiknavel
og eru komnir um 3500 fiskar hjá okk-.
ur hérna og fiskurinn er líka vænn en
sá stærsti er 9,6 pund,“ sagði Sólveig,
dóttir Hólmfríðar Jónsdóttir á Arnar-
vatni, er við spurðum frétta af urrið-
anum, sem virðist ekki ætla að svikja
þetta sumarið, í gærkveldi.
„Það stefnir í metsumar hjá okkur
og veiðin hefur verið fín síðustu daga.
Vanir veiðimenn veiða vel og svo er
komið gott veður líka,“ sagði Sólveig
ennfremur.
Urriðinn ætlar að koma skemmti-
lega á óvart þetta sumarið eins og
bleikjan. Og svo er laxinn allur að
koma til. Er hægt að biðja um það
betra?
Veiðieyrað
Auglýsing frá Umferðarráði, Vega-
gerðinni og lögreglunni sem er ætluð
veiðimönnum sem fá sér stundum að-
eins of mikið og reyna akstur hefur
vakið feikna athygli. Mörgum hefur
fundist þetta enn ein atlagan að veiði-
mönnum sem eru orðnir þeir svörtu
sem stunda sportmennsku hérlendis.
Enda hefur ekkert smávegis verið veg-
ið að veiðimönnum síðustu mánuði og
„sumir" eru hættir að láta sjá sig í
veiðiánum. Myndin sem um ræðir er
að öllum líkindum tekin í Laxá í Kjós
og sýnir tvo veiðimenn gera sig klára
fyrir veiðiskapinn. Auðvitað á enginn
að aka undir áhrifum áfengis, en er
ekki komið nóg í bili.
Veiðieyrað
Gunnar Bender
Flestallir brúarhyljir eru líka hvíld-
ir þessa dagana í veiði, ástæðan er sú
að enginn þorir að veiða í þeim. Það
gæti einhver spurt viðkomandi veiði-
mann hvort hann hefði keypt veiðileyf-
in sjálfur. Og svarið gæti verið á reiki. -.
Leigutaktarnir í Vatnsdalsá hafa
tekið upp þá nýbreytni að leyfa
krabbameinssjúkum börnum að renna
fyrir fisk í ánni og er þetta annað árið
sem það er gert. Hefur þetta mælst vel
fyrir meðal bamanna. Á laugardaginn
var þessi dagur og tókst hann vel.
Sumir veiddu og aðrir ekki, eins og
gengur og gerist i veiðiskapnum. Einn
litil fimm ára var mættur með veiði-
stöngina sína og Ingólfur Ásgeirsson
var að leiðbeina honum. Þeir voru við
brúna á þjóðveginum og þar voru lax-
ar eins og hefur verið í allt sumar. Vin-
imir renndu saman og viti menn,
skömmu seinna beit á lax og honum
var landað. Það er ekki leiðinlegt, að
veiða lax þegar maður er bara fimm
ára og hefur ekki veitt lax áður.
Eitt er það veiðivatn í nágrenni
Blönduóss sem hefur komið feiknalega
á óvart i sumar og það er Langavatn.
Sleppt hefur verið regnbogasilungi í
vatnið en fyrir var í því vænn urriði.
Veiðimenn hafa verið að fá mjög góða
veiði þar og stóra fiska. Einn var fyrir
skömmu með maðkinn og veiddi 8
fiska, sá stærsti var næstum fjögur
pund.
f IMTCHELL SC-60l
TATÆKNI
—AUÐVELD SPOLUSKIPTl
EINFALDA VEIÐISKAPINN
Nýtt spólukerfi - CONCEPT
3 spólur fylgja hverju hjóli
Stór línu-rúlla
Kúlulega í haus
Fellanleg sveif
Innspólun 0,85 metrar
Hagstætt verð
Mávahlíð 41, Rvík, sími 562 8383
^OG SÖLUAÐILAR UM ALLT LAND.
SPORTVORU
GERÐIN HF.