Dagblaðið Vísir - DV - 31.07.1998, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 31.07.1998, Blaðsíða 7
r Hvar eru útihátíðir um heigina? Hvað er í boði? Hverjir skemmta? Og eru þeir nokkuð skemmtilegir? Hvers konar fólk fer hvert? Hvert á fólk alls ekki að fara? Hvernig verður stemningin? Hvar verður mesta fylliríið? Og hvar mest slegist, dópað og riðið? Á næstu síðum má fræðast um allt þetta — og meira til. |ír Snæfellsásmót ] Staöur: Brekkubær á Hellnum (heima hjá Gu6- rúnu og Gulla Bergmann). A&standendur: Snæ- fellsás-samfélagiö (Guðrún og Gulli Bergmann). Hvað er þaö: Þetta kallast mannræktarmót og er ætlaö fólki sem finnst engin skemmtun betri en að vinna í sjálfum sér. Fyrirlestrar: Þorsteinn Njálsson læknir um ábyrgð einstaklingsins á eigin heilbrigði, Guö- rún Hjörleifsdóttir miðill um jógann Sai Baba, aðrir um lista- meðferðarfræði, andlega tengt kynlíf (brain-fucking?), jógaheimspeki, stjörnuspeki, verndarvaetti Islands og visvænan hugsunarhátt. Námskelð: Námskeið um leiklist, líföndun og samskiptum. Elnkatímar: Spilalest- ur, talnaspeki, liföndun Önnur atri&i: Heilunar- vígslur, grasatínsla, svitahof, kvöldvökur með losunarathöfn (þá er átt við andlega losun, ekki líkamlega), helgistund viö Maríulindina sem Gulli Bergmann var svo heppinn að finna við túngarð- og friðarathafnir. Fyrir börn- In: Jóga, hugleiösluvinna með litum, ævintýraferöir og leiklist og annaö nýaldar- dútl sniöið að þörfum barna. Stemning: Þarna mun fólk vafra á milli tjalda örvæntingafullri leit að sjálfum sér eða tilgangi með lífinu. Það mun þó bera sig vel og láta sem það hafi oröið fýrir and- legri uppljómun f síöasta tjaldi - eftir sem áður lætur það sig strax gossa inn í næsta tjald f von um að öðlast dýpri skilning á sjálfum sér. Reyk- elsisilmur yfir svæðinu, eitthvert andlegt humm í loftinu og f aftureldingunni má heyra indíánalegt gól upp á hæð skammt frá þar sem bókhaldari úr Garðabænum kallast á við forfeður sina. Fyr- Ir hverja: Konur sem þrá að ná til gyðjunnar í sér eða konunnar sem hleypur með úlfum, karlar sem vilja láta greina sig sem kónga eða spá- menn, fólk sem las Venus og Mars og Sjö lögmál um velgengni og finnst Gunnar Dal nokkuð glúr- inn spekingur, fólk sem saknar þess að hafa ekki séö draug. Hverjlr elga ekkl a& mæta: Fóik sem er ekki i teljandi vandræðum með sjálft sig eða er haldiö meðferðarfælni - allt sem þú seg- ir og gerir á mótinu verður túlkað og metið sem andleg tjáning, fóik sem þekkir ekki muninn á heilun og reiki (það verður i álíka stöðu á mótinu og fólk á myndlistarsýningu sem ruglar saman Flúxus og fúturistum), menn sem sjá verslunar- mannahelgina fyrir sér sem mexikanahatt, gitar, stelpur og einn kassa af vodka. A&sta&a: Tjald- stæði og bændagisting I nágrenninu. Rútuferðlr: Sérleyfisbílar milli Reykjavikur og Hellna alla daga nema sunnudag. Aö- gangseyrlr: 3.000 krónur á manninn en fritt fyrir börn yngri en 14 ára. W yyYtfU r Mjólkurgleði Sta&ur: Staðarfell í Dölum. A&standendur: SÁÁ og Mjólkursamlagið í Búðardal. Svolitiö undar- legt samkrull en jújú, eitthvað verða þurrir alk- arnir að drekka. Tllefnl: Reynt að halda alkó- hólistum frá spilltum útihátiðum með því sem kallast heilbrigð skemmtun og útivist. Hljóm- sveitlr: Engin, bara diskó og harmónikur. Dag- skráratri&l: Bátsferöir, brenna, flugeldasýning, sund, hestaferöir og AA- og Alanon-fundir. Fyrir böm: Allir dagskrárliðir nema AA-fundirnir. Ef þátttaka verður næg gætu unglingarnir skellt upp Alateen-fundi. Stemning: Fjölskyldur og ein- stæðingar vafra um svæðið og þakka sjálfum sér, SÁÁ, AA og æðra mætti að mega vafra um ódrukknir. f raun þarf þetta fólk ekki mikið meir - sá sem hefur verið í helvíti gerir ekki miklar kröfur ef hann sleppur út. Á milli leikja og söngs bregður fólk sér á AA-fundi og ríflar upp hvernig þetta var í Saltvík '73, Atlavík '84 og Halló Akur- eyri í fýrra. Sem sagt; ekki mikið um að vera en langbestu sögurnar. Fyrlr hverja: Þá sem hefa drepist á öllum útihátíðum, hringinn í kringum landið, en hafa nú fengið löngun til að hætta að drekka. Hverjir eiga ekkl a& mæta: Þeir sem hafa enga löngun til að hætta að drekka. A&- staöa: Tjald- stæði. A&gangs- eyrlr: 3.000 liipijf krónur á mann en ókeypis fyrir 13 ára og yngri í fylgd með full- orönum. Kántrýhátíð Staður: Skagaströnd. A&standandi: Hallbjörn Hjartarson. Tllefnl: Nýr Kantrýbær risinn upp af brunarúst- um þess gamla. Kántrfið heldur ekki aðeins lífi á Skagaströnd held- ur getur það dáið og risið upp aftur. Það er komið til að vera. Hljóm- sveftir: Lukkulákarnir, Lausir og lið- ugir og Dalton-bræður. Einnig koma fram: Magnús Eiríksson, Pálmi Gunnarsson, Kjartan Valdimarsson, Viðar Jónsson og að sjálfsögðu - sá eini og sanni, sá sem við höfum öll verið að bíða eftir - má ég kynna: Haaall- bjööörn Hjartarson. Önn- ur dagskráratri&l: Mynd- listarsýning (kántrímyndir), kraftakeppni, flugeldasýning, útsýnisflug, línudanskeppni, danskennsla (grease- og kantridansar) og gospelmessa. Fyrlr böm: Kassabílarallí, marhnútaveiði og flest allt fyrrtalið. Hvers er sárt saknað: Johnny King. Hvar er hann? Er það rétt að honum og Hallbirni hafi orðið sundurorða af því að Johnny vildi bera plat- byssur í beltinu en Hallbjörn var á móti því? Getur ekki einhver reynt að ganga á milli og leita sátta? Stemnlng: Svolítiö eins og í öðr- um þema-görðum, fólk breytist í kúreka eina helgi. Þegar menn hittast toga þeir aðeins i hattbarðið en fýlgjast vel með hvort hinn sé að seilast til byssunnar. Kántrímúsfk í loftinu og kantritilfinningar í brjóstinu: konurn- ar standa með mönnum sínum og karlarnir komast að því að frelsi sé aðeins hugtak yfir það þegar maður hefur tapað öllu sem maður á. Ann- ars rfkir friður og gleði yfir Skaga- strönd og það mun ekkert raska henni - nema jóreykur við sjóndeildarhring- inn, illþýði á leið í bæinn. Annars getur fólk leigt Kúreka norðursins á næstu vídeóleigu ef það vill komast að þvi hvort kántrý-hátíð- in sé eitthvað fyrir það. Fyrlr hverja: Fólk sem missir aldrei af kántríþáttum Bjarna Dags, fólk sem fannst það veröa ungt f ann- að sinn þegar það fór á námskeið f línu- dansi, fólk sem vill gera eitthvað virkilega vírað þessa verslunarmannahelgi. Hverjlr elga ekki aö mæta: Hipp-hopparar, teknó- frík, rapparar - og alls engir indiánar. A&- staða: Tjaldstæði, Hótel Dagsbrún og Kán- ttýbær. Veitingar í Kántrýbæ og vfðar. Rútu- ferðlr: Norðurieið verður með ferðir frá Reykjavík alla dagana. Aðgangseyrlr: Aö- gangseyrir að dansleikjum en ókeypis á tjaldstæðið. Sæludagar í Vatnaskógi Sta&ur: Vatnaskógur. A&standendur: Skógar- menn KFUM (ætli þaö séu ekki nokkurs konar kristilegir skátar, meö hníf, snæri og biblfuna í vasanum). Tilefnl: Sumarbúðirnar f Vatna- skógi eru 75 ára og dagskráin á að sanna aö þær séu síungar. Dagskrá: Kvöldvökur, bryggjupartí, varöeldar, miðnætursund, bæna- stundir, kassabflarallí, fótboltamót, kodda- slagur og aörir gamlir standardar úr langri sögu sumarbúðanna. Fyrlr börnln: Öll dag- skráratriði miöa aö þvf að allir fjölskyldumeö- limir geti haft eitthvert gaman af. Stemnlng: Samheldnar fjölskyldur koma saman, sýna sig og sjá aörar samheldnar fjöl- skyldur f frisbf, feluleik og grilla þess á milli. Pabbinn lætur mana sig f koddaslag fyrir krakkana og mamman íhugar hvort þetta sé ekki toppurinn á tilverunni — aö sitja viö varðveldinn um- vafinn fjölskyldunni og syngja rútubíla- söngva. Fyrlr hverja: Sæludagar eru fyr- ir fjölskyldufólk sem trúir því aö enginn geti skemmt því betur en þaö sjálft. Ekki er verra ef fjölskyldan er svolftið svag fyrir Guöi. HverJ- Ir elga ekki aö mæta: Fólk sem kann ekki ging-gang-gúlf-gúlf-vassa-ging- gang-gó-söngva, fólk sem þolir ekki annarra manna börn og fólk sem treystir sér ekki til að bresta í bæn þeg- ar sföustu sólargeislarnir kyssa vatniö. A&staða: Hægt er aö panta gistingu í svefnskálum eða tjalda. Veitinga- og nestisaöstaöa. Rútufer&lr: Sérleyfisbfl- ar fara frá Reykjavfk f dag og aftur f bæinn á mánudaginn. A&gangseyrir: 2.700 krónur - ókeypis fyrir yngri en 13 ára og eldri en 67. Ef þú drekkur og keyrir ertu algjör # I II mm láttu ekki augnabliks kæruleysi eyðileggja líf þitt ISLANDSBANKI ®TOYOTA Tákn um gœði K'p“uun%, IUMFERÐAR ' Iráð 31. júlf 1998 f Ó k U S 7

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.