Dagblaðið Vísir - DV - 31.07.1998, Blaðsíða 10
Hvar eru útihátíðir um helgina? Hvað er í boði? Hveijjir skemmta? Og eru þeir nokkuð
skemmtilegir? Hvers konar fólk fer hvert? Hvert á fóik alis ekki að fara? Hvemig verður
stemningin? Hvar verður mesta fyiliríið? Og hvar mest slegist, dópað og riðið? Á næstu síðum
má fræðast um allt þetta — og meira til. _____ ______
Þjóðhátíð í Eyjum
Staöur: Herjólfsdalur. Aðstandend-
ur: íþróttafélagið Þór (helmingurinn
af ÍBV). Tllefni: Þjóðhátlð í Eyjum er
áratugagamall misskilningur sem
spratt af hátlð sem
haldin var um allt
land. Síðan þá hafa
Eyjamenn haldið
hátíð árlega og
með miklum þjóð-
ernisbrag. Þar
borða þeir slna
þjóðrétti, syngja sín
þjóðlög, dansa slna þjóðdansa -
þótt þeir séu engin þjóð heldur að-
eins þorpsbúar. Hljómsveitlr: Stuð-
menn, 8-villt, Geirmundur Valtýsson,
Á móti sól, Páll Ósk-
ar og Casino, Land
og synir. Aðalatrlði:
Árni Johnsen stjórn-
ar brekkusöng (þótt
ýmsum þyki þetta
hápunktur þjóðhátíö-
ar þá skulu menn
varast að meta aðra
dagskrárliði út frá
því). Fyrlr börnin:
Barnaböll, leiktaeki, Hálft I hvoru (af
hverju er þeim sigað á börn frekar
en fullorðna?), Litlu lærisveinarnir,
Brúðubíllinn, Leikhúsið tíu fingur og
Rmleikafélagið Rán. Stemnlng: Inn-
fæddir halda til í ferhyrndu tjöldun-
um sinum hvítu og reyna að láta allt
líta út eins og heima en aðkomufólk
hírist í útilegu upp eftir hlíðunum. All-
ir eru nokkuö rosalegir í
allri framkomu og fasi,
þarna er mikið drukkið
og daðrað, mikið sungið
og slegist (allt að sjó-
manna siö), mikið étið af
reyktum lunda og oft
stofnað til skyndifunda
og rosalegt stuð á sum-
um mönnum. Fyrir
hverja: Eyjamenn, bæði
brottflutta og þá sem
sneru aftur áður en
hraunið kólnaði, fólk sem finnst
Eyjamenn vera skemmtilegir, sjar-
merandi eða fýndnir, fólk sem á
plötu eða plötur með Árna Johnsen,
fólk sem finnst
Stuðmenn æðis-
legir, fólk sem hef-
ur varla misst úr
þjóðhátíð undan-
farin fimmtán ár,
fólk sem á húfu
með áföstum
tveimur bjórdósum
með röri í og hefur ekki fundið tilefni
til að nota hana, fólk sem á
kassagítar en getur ekki sþilað á
hann nema drukkið, fólk sem
skemmtir sér betur
ef það sönglar sífellt
olé-olé-olé-óle, fólk
sem tárast þegar
þaö heyrir „Égveit þú
kemur í kvöld til m!n"
og fólk sem finnst
blindi bróðir úr Eyjum
vera góður flautuleik-
ari. Hverjlr eiga ekki
að mæta: Fólk sem
Árna Johnsen (honum
tekst einhvern veginn að vera
alltumlykjandi), fólk sem er ofurvið-
kvæmt tyrir að sér sé sýnd lítilsvirð-
ing eða það beitt misrétti (aðkomu-
menn eru negrar þjóðhátíðarinnar),
perrar (Stígamót verða á svæðinu)
og heitir fylgismenn liða í fyrstu deild
(Eyjamenn fara ekki leynt með stöðu
s!na í deildinni). Aöstaða:
Tjaldstæði, gistiheimili,
hótel, veitingahús, versl-
anir og sjoppur. Sæta-
ferðir: Herjólfur siglir til
Eyja og Flugfélag Islands
og Rugfélag Vestmanna-
eyja fljúga alla dagana.
Aðgangseyrir: 7.000
krónur fyrir fullorðna,
á 3.500 krónur fyrir 14-15
ára en frítt fyrir 13 ára og
yngri.
Bindindismótið í Galtalæk
Staður: Galtalækur Aðstandendur: Ungtemplarar
(fólk sem vill ekki drekka brennivín þótt það sé
ekki alkóhólistar). Tilefni: Langstærsta fjáröflunar-
leiö templara. Aðeins bingóin komast! hálfkvisti
við verslunarmannahelgina. Hljómsveltir: Á móti
sól, Saga Class og Spur. Aðrir sem koma fram: Dóra og
Benni, Magnús Scheving, Smaladrengirnir og séra Pálmi
Matthiasson sem messar á sunnudeginum. Skemmtiatriði:
Varðeldur, kvöldvökur, fjöldasöngur og
fiugeldasýning. Fyrir bömin: Barnadans-
leikur, leiktæki, söngvarakeppni barna
og tívolí. Stemning: Þetta er klassísk úti-
hátlð. Þrátt fýrir að stefnt sé að því að
allir verði allsgáðir þá hefur ekki enn tek-
ist að hindra það að glúrnir menn smygli
pitlu og pitlu inn á svæðið. Sum árin hef-
ur mesta sukkið meira að segia verið í
Galtalæk. En það verður ekki svo I ár.
Sukksamasta liðið ætlar norður til Akur-
eyrar eða út I Eyj-
ar. Eftir situr
Galtalækur með
eins konar miðju-
fólk; fólk sem er
ekki neitt rosalega smart, fólk sem er ekki neitt sérlega
drukkið, fólk sem er ekki neitt æðislega skemmtilegt (því
miður, það verður nú bara að segjast). Fyrir hverja: Fólk sem
langar! fjör en treystir sér ekki alveg í mesta fjörið, fólk sem
hefur trú á lífsstefnu templara en þó einkum á fjárhagsstöðu
þeirra og fólk sem finnst messa hjá séra Pálma innihaldsrlk-
ari skemmtan en nokkuð annað. Hverjir eiga ekki aö mæta:
Fjölskyldufólk sem veit ekki alveg hvort það langar til að fara
(það ætti að sitja heima og velta upp fleiri kostum) og ung-
lingar sem vilja örugglega vera þar sem flestir verða. Að-
staöa: Tjaldstæði, verslun, veitingahús. Einnig er hægt að
leigja hesta. Rútuferðir: Sætaferðir alla daga milli Reykjavík-
ur og Galtalækjar. Aðgangseyrir: 5.000 krónur fyrir 16 ára
og eldri, 4.000 fyrir 13-15 ára en frítt fyrir 12 ára og yngri.
ekki
Landsmót hvítasunnumanna
Staður: Kirkjulækjarkot, Fljótshlíð. Að-
standendur: Rladelfíusöfnuðurinn ! Reykja-
vík og Betei í Eyjum. Tllefni: Blessun drott-
ins. Dagskrá: Söngur að hætti hvitasunnu-
manna, fræðsla, fyrirbænir, kvöldvökur,
varðeldur og guðsorð. Fyrir börnin: Leikir,
föndur, fræðsla og brúðuleikhús. Gestur
mótsins: Daníel Karlsen (norskur predik-
ari). Stemning: Einn allsherjar fögnuöur
frelsaðra sem hrópa hallelúja, tala tungum
og biðja hver fyrir öðrum. Hvítasunnumenn
eru íslandsmeistarar í gospel-músík og hún
svífur yfir höföum hinna trúuðu. Það verður
allt kristilegt, meira að segja leikir barn-
anna. Fyrir hverja: Þá sem hafa tekið nið-
urdýfingarsklrn og þá sem eru að velta fyr-
ir sér hvort það sé ekki akkúrat þaö sem vantar upp á til að líf-
ið gangi upp, fólk sem ann gospel-múslk og fólk sem á bágt
(hvitasunnumenn hafa alltaf verið sérlega góðir við geðveika,
drykkjufólk og aöra þá sem aðrir vilja helst sem minnst af vita).
Hverjir eiga ekkl að mæta: Fólk haldiö illum anda og þeir sem
hata Krist og allt erindi hans við mennina. Þeir sem ætla að
blóta Bakkus þessa helgi ættu líka að halda sig frá Kirkjulækjar-
koti. Aðstaða: Næg tjaldstæöi, aðstaða fyrir tjaldvagna og hús-
bíla. Samkomutjöld og nýtt samkomuhús (gamla tívolí-húsið í
Hverageröi). Aðgangseyrir: Enginn en frjáls framlög vel þegin -
til dæmis t!und af heildartekjum ef menn vilja ganga! söfnuðinn.
Vík f Mýrdal
Staður: Vík í Mýrdal Aðstandendur:
Bærinn Tllefnl: Öll sveitarfélög
skána við það þegar haldin er hátíð.
Þá litur út fyrir að fólk geti glaðst yfir
að búa þar. Dagskrá: Varðeldur á
tjaldstæðinu, sundlaugin og golfvöll-
urinn opin. Ferðir: Trukkaferðir um
Mýrdalsafrétt, jeppa- og gönguferðir
með leiðsögn, hestaferðir, bátsferðir
á hjólabátum út í Dyrhólaey og að
Reynisdröngum, sjóstangaveiði og
útsýnisflug, Fyrir börnin: Allir dagskrárliöir (börnin verða
þó að láta sér lynda að sitja í trukkunum en keyra þá
ekki). Stemning: Aktív fjölskyldustemning. Allir lognast út
af fýrir miðnætti eftir djöfulganginn! trukkunum, hjólabát-
unum og golfinu. Fyrir hverja: Orkuríkar fjölskyldur með
snert af tækjadellu, fólk sem finnst grænn fallegasti lit-
urinn (það er allt grænt í Vík), miðaldra fólk sem á börn
á Halló Akureyri og fólk sem vill fara austur en tímir ekki
að eyðileggja lakkið á bílnum með því að keyra sandana
og kemst því ekki lengra. Hverjir eiga ekkl að mæta:
Unglingar í leit að villtu geimi fjarri eftirliti fullorðinna,
dansfífl og fólk sem vill láta skemmta sér en nennir ekki
að gera neitt sjálft. Aðstaða: Tjaldstæði og sumarhús.
Verslun og sjoppa. Rútuferðlr: Áætlun frá BSl. Aðgangs-
eyrir: Leiga á tjaldstæði og gjald fýrir ferðir. Annars er öll-
um frjálst að spóka sig í V!k.
Staður: Múlakot Aðstandend-
ur: Flugmálafélagið. Tilefni:
Fólk sem vill vera hátt uppi
um verslunarmannahelgina
sættir sig ekki lengur við
skemmtun ájörðu niðri. Dag-
skrá: Flugíþróttir (lendinga-
keþpni og hveitipokakast),
kvöldvaka, grillveisla. Feröir:
Útsýnisflug um nágrenni Múla-
kots, Dali, Þórsmörk og skrið-
jökla Eiríksjökuls og Mýrdals-
jökuls. Kennsla: Svifflugs-
menn miðla af reynslu sinni ef
veður leyfir. Fyrlr börnln:
Keppni í svifflugi, skrítnir leik-
ir. Stemning: Svolítið lókai
flugdellu-mórall. Fyrir hverja:
Flugdellumenn, flugdellukonur
og öll flugdellubörnin þeirra.
Hverjir eiga ekki að mæta:
Fólk sem er haldið flug-
hræðslu, fólk sem á ekki flug-
vél og fólk sem finnst flugvél-
ar vera álíka spennandi farar-
tæki og strætó. Aöstaða:
Tjaldstæði, svefnpokapláss
og bensín á flugvélarnar.
Rútuferðlr: Fólk kemur ekki í
rútu i Múlakot, það kemur á
flugvélum. Aðgangseyrir: Allt
ókeyþis nema gistingin.
sumarsins!
: IfSllllJ
■
. Wm
'?&Æ ■[) ';i i;
i I
^ÍÍ^Í&élllSS
. SX
Monica Potter
Joseph Fiennes
Rufus Sewell
Tom Hollander
★★★★ EMPIRE
má ég lcynna
Frank, Daniel & Laurence
HÁSKÓLABÍÓ
10
f Ó k U S 31. júlí 1998