Dagblaðið Vísir - DV - 31.07.1998, Qupperneq 12

Dagblaðið Vísir - DV - 31.07.1998, Qupperneq 12
rsætur heimur Pálína Jónsdóttir leikur eitt aðalhlutverkanna í dönsku bíómyndinni Vild spor sem tekin var upp hérlendis. í haust verður síðan sýnd önnur mynd með Pálínu, Dansinn eftir Ágúst Guðmundsson. Og í vetur birtist Pálína í sjónvarps- myndinni Sjálfvirkinn eftir Júlíus Kemp. Þótt Pálína eigi aðra mynd að baki og nokkur hlutverk á sviði er Ijóst að næstu vikur og mánuðir verða hennar tími. „Leiklistin er súrsætur heimur, maður getur verið hafmn upp til skýj- anna og svo skotinn niður í næsta leikdómi," segir Pálína Jónsdóttir sem leikur hlutverk í dönsku mynd- inni Vild spor sem sýnd verður í Há- skólabíói eftir verslunarmannahelg- ina. Hún færir grannan líkama sinn fram á meðan hún segir skoðun sina. „Það er ekkert vit að fara út í leiklist nema maður vilji ekkert ann- að i lífinu. Ef þú tekur þá ákvörðun ertu að steypa þér út í versta dýra- garð sem um getur. Að verða leik- kona er enn erflðara. Það eru til mun færri hlutverk fyrir konur og oft ekki eins bitastæð. Það á sér svo sem eðlilegar skýringar. í gegnum söguna hafa flest leikrit verið skrifuð af karlmönnum og þeir skrifa út frá sinni sýn á veruleikann. Auk þess voru hlutverk kvenna í líflnu hér á öldum áður ekki eins margbreytileg og hlutverk karla, þetta eru mest at- hafnalitlar aðalskonur, vinnukonur og hórur. Þetta hefur að vísu batnað á þessari öld með breyttu samfélagi og eftir að konur fóru að láta meira að sér kveða á ritvellinum." Hún hallar sér aðeins aftur á með- an hún íhugar þessi vamaðarorð um leiklistina, eftir allt saman var það þetta lífsstarf sem hún valdi sér. „En á móti þessum erfiðleikum kemur hvað það er gefandi að vera leikkona. Leikhúsið er nakið form, þú ert alltaf að sýna sjálfan þig, miðla af þinni eigin reynslu. Þú get- ur aldrei orðið annar en þú ert og þó þú notir orð annarra verður þú að flnna persónuna í sjálfum þér. Allur tilfinningaskalinn býr í hverjum manni. Leikarinn þarf síðan að finna rétta tilfinningakokkteilinn fyrir þá persónu sem hann er að leika.“ Dans eða flug Þegar Pálína var tíu ára stelpa ætlaði hún sér að verða dansari eða flugmaður. Hún lagði sig svo sem aldrei mikið eftir flugnáminu. Hún segir að sá draumur hafi kannski verið sprottinn út frá löngun til að hafa yfirsýn yfir hlutina, markmið sem hún nær líklega betur í leiklist- inni þar sem hún setur sig 1 spor annarra persóna. Og með tímanum ætti hún að öðlast góöa yfirsýn yfir möguleika manneskjunnar. En Pálína lærði dans í langan tíma, fékk styrk til dansnáms þegar hún var 22 ára og dvaldi um eins árs skeið í Lyon í Frakklandi. Þar efldist henni styrkur og trú á að leiklistin ætti við hana. Þegar hún kom síðan heim frá Frakklandi fór hún í inn- tökupróf í Leiklistarskóla íslands og komst inn við fjórða mann. „Já, það voru aðeins valdir fimm þetta árið og það olli töluverðu írafári að dómnefndin skyldi ekki velja átta eins og fjárlög skólans gerðu ráð fyr- ir. En það var ekki eining í dóm- nefndinni um aðra en okkur fimm. Líkamleg meiðsli höfðu hrjáð mig á meðan á dansnáminu stóð og því var gott að komast í leiklistarskólann því þótt hann sé einnig á stundum kvöl og pína er hún meira andlegs eðlis. Dansnámið var samt ekki til einskis þvi ég náði ágætri stjóm á líkaman- um og tilfinningamar eiga greiðari aðgang í gegnum mjúkan líkama en harðan og stirðan. Að vísu fékk ég á tímabili gagnrýni á mig í leiklistar- skólanum fyrir að vera of mjúk og sveigjanleg. Þeim fannst ég vera svo- lítið loftkennd, það var kannski flug- þráin sem olli því,“ segir hún og hlær. „En ég er búin að vinna úr þeim ábendingum að ég held.“ Gísli fékk hlutverkið Pálína er á því að árin í Leiklistar- skólanum hafi verið góð þó hún hafi ekki alltaf verið sammála skólayfir- völdum. Þegar hún var á þriðja ári fékk hún boð um að leika eitt aðal- hlutverkið í Cold Fever í leikstjórn Friðriks Þórs Friðrikssonar en fékk ekki leyfi til þess að taka boðinu frá yfirstjórn skólans. Það olli henni vonbrigðum, sérstaklega með tilliti til þess að nú á síðustu tveimur árum hafa margir leikarar fengið leyfi til að leika meðfram skólanum. „Maður er bara undrandi á stefnu- leysi skólans. Ég átti að leika stórt hlutverk i Cold Fever en fékk ekki leyfi til að reyna mig við það þar sem framkomubann á nemendur var enn í gildi í skólanum og að mati yfir- stjórnar skólans hefði fjarvera mín valdið meiri vandræðum þar sem við vorum fá í árganginum. En það er undarlegt að sjá alla leikarana sem á eftir mér komu fá leyfi til að leika í myndum og sviðsverkum, jafnvel þó það kosti fjarveru. Þetta var svolitið svekkjandi með tilliti til þess að Cold Fever fékk mjög mikla dreifingu í heiminum og góða dóma. Það spaugi- lega í þessu var að Gísli Halldórsson fékk hlutverkið mitt. Það var náttúr- lega mikill heiður fyrir mig að skarð- ið skyldi vera fyllt af jafnhæfileika- ríkum leikara og Gísli var. En það var fyndið að sjá hlutverkinu breytt úr ungri konu í gamlan karlmann." Enginn leikstjóri eins Pálína útskrifaðist árið 1995 og hefur leikið bæði á sviði og í bíó- myndum síðan. Bríet Héðinsdóttir fékk hana til að leika hina ungu Snæfríði íslandssól í uppsetningu sinni á íslandsklukkunni í Borgar- leikhúsinu árið 1996. Pálína hafði mjög gaman af þeirri vinnu. „Við Bríet náðum mjög vel saman og það var mikill heiður að fá að leika í þessari síðustu uppfærslu hennar. Annars hef ég verið mjög heppin með samstarfsfólk. Ég hef unnið með góðum leikurum og feng- ið ágæta leikstjórn. Ég fann mig einnig mjög vel í hlutverki Hörpu Dísar í Hinu ljúfa lífi sem var sett upp í Borgarleikhúsinu og svo lék ég í Deleríum Búbonis. Ég hef fengið fleiri tækifæri við kvikmyndaleik en ég hafði gert ráð fyrir áður en ég út- skrifaðist. Ég lék Hveragerði í Djöfla- eyjunni undir leikstjórn Friðriks Þórs og Júliu í Sjálfvirkjanum eftir Július Kemp en sú mynd verður sýnd í sjónvarpinu í vetur. Svo var það hlutverk Sirsu í Dansinum und- ir leikstjórn Ágústs Guðmundsson- ar og hlutverk Önnu í dönsku mynd- inni Vild spor. Hlutverkið í dönsku myndinni kom þannig til að það var hringt í mig frá Kvikmyndasam- steypunni og ég beðin að senda þeim „show real“, það er sýnishorn af kvikmyndaleik mínum. Ég átti sýnis- horn af leik minum úr Djöflaeyjunni og Sjálfvirkjanum sem ég sendi um hæl. Eftir að danski leikstjórinn, Simon Staho, sá það tók hann mig í prufu og festi mér síðan hlutverkið." Pálína er á því að gaman hafi ver- ið að vinna með tveimur þekktustu leikurum Dana, Nikolaj Coster Waldau (Næturvörðurinn) og Mads Mikkelsen (Pusher), og Nukáka sem er grænlensk og lék hitt megin- kvenhlutverkið. Það má til gamans geta þess að nú í sumar gengu Niko- laj og Nukáka í það heilaga. Pálína er ekki á því að munur sé á dönskum leikstjóra og íslenskum. „Það er bara enginn leikstjóri eins, sama hvort hann er íslenskur eða útlenskur. Simon Staho er mjög „Ég var á leið til Amsterdam og þetta var alveg t leiöinni." „ísland er aldrei í leiðinni" létWÍí i s <iw . V i r\ a r f Ó k U S 31. júlí 1998 12

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.