Dagblaðið Vísir - DV - 31.07.1998, Qupperneq 13
1 e i k h ú s
4-
ungur leikstjóri og var undir mjög
mikilli pressu á meðan á tökum á
þessari mynd stóð. Þetta var hans
fyrsta mynd. Hann var hægur og
spekúlerandi. Myndin fjallar um
uppgjör tveggja vina. Þeir hafa upp-
lifað margt vafasamt í fortíðinni en
annar þeirra hefur unnið sig út úr
ruglinu og komið sér fyrir á íslandi í
sambúð með íslenskri konu sem ég
leik. Síðan bankar þessi vinur allt í
einu upp á eftir að þeir hafa ekki hist
í fjögur ár. Þá kemur ýmislegt í Ijós í
fortíð þessa eiginmanns míns sem
verður til þess að við slítum sambúð-
inni um tíma í það minnsta."
En er Pálína kona sem myndi slíta
sambúð út af einhveiju sem hefur
gerst í fortíð eiginmannsins?
„Já,“ segir hún óhikað. „Það færi
að vísu eftir alvöru málsins, við eig-
um öll okkar fortíð og einhver leynd-
armál sem við viljum ekki deila með
öðrum. En líf í lygi er óhugsandi
þannig að svarið gæti verið afdrátt-
arlaust já.“
Hórdómsbrot
Vild spor verður frumsýnd eins og
áður sagði í ágúst. í september verð-
ur önnur mynd með Pálínu frum-
sýnd en það er Dansinn í leikstjórn
Ágústs Guðmrmdssonar. Myndin er
byggð á skáldsögu Williams
Heinesen og gerist á nokkrum dög-
um í Færeyjum árið 1913. Pálína leik-
ur sýslumannsdótturina Sirsu sem
er stödd á milli tveggja efnilegra
sveina og gengur að eiga annan
þeirra, vel stæðan landeiganda.
„Þetta var mjög spennandi hlut-
verk og ég fann mig mjög vel í því.
Kannski af því að persóna stúikunn-
ar er margræð og gaman að kafa
ofan i hana. Myndin gerist á miklum
tímamótum í hennar lífi, það er þeg-
ar hún er að ganga til altaris að eiga
mann sem hún virðist ekki vera viss
um að hún elski."
En hefur Pálína gengið til altaris?
„Nei.“ Hún ætlar að sleppa með
þetta svar en bætir við. „Ég fékk eitt
sinn boð um það og mig setti hljóða.
Ég hef fram að þessu ekki viljað taka
þá skuldbindingu á mínar herðar.
Sirsa hefði kannski ekki heldur átt
að gera það þvi hún svíkur hjúskap-
arheit sitt á innan við sólarhring."
En eru sterk bein í þessum mjóa
kroppi?
„Já, þau hafa í það minnsta ekki
brotnað enn,“ segir Pálína.
Átfakroppurinn mjói
Hún játar að það kitli hana stund-
um að reyna fyrir sér erlendis.
„Þetta er svo lítill heimur hér á Is-
landi. Það eru tvö leikhús sem geta
boðið leikurum fasta vinnu og þeir
sem eru stjórar þessara leikhúsa
ráða ansi miklu. Ef þú ert inn undir
hjá hvorugum þrengjast möguleik-
arnir mikið. Út úr þessu hafa síðan
sprottið óháð leikhús með sterku
leikhúslistafólki sem lyft hafa
Grettistaki. Aftur á móti eru mjög
margir leikarar um hituna þannig að
mér líður stundum eins og kanarí-
fugli á meðal margra annarra í mjög
litlu búri. Það væri gaman að athuga
hvort ég ætti möguleika i erlendum
leikhúsum. En tungumálið heftir
mig. Ég verð alltaf með hreim,
hversu mikið sem ég legg mig eftir
tungumálinu. Það getur reyndar
hentað vel í sumum tilvikum, stund-
um er einmitt verið að leita eftir
því.“
En á Pálína óskahlutverk?
„Já, eins og ég sagði þá lék ég Snæ-
fríði íslandssól unga í uppfærslu Brí-
etar í Borgarleikhúsinu árið 1996 og
mig langar að leika hana í fullri
lengd. Snæfríður er margræð per-
sóna og spennandi að reyna sig við
hana. Og ég hef í það minnsta álfa-
kroppinn mjóa.“
Veiðileyfi á leikara
í sumar hefur Pálína unnið við
ferðamannaþjónustu í Lónkoti í
Skagafirði ásamt fjölskyldu sinni. Og
þar nýtist leiklistin herrni.
„Ég bregð mér í ýmis hlutverk - er
þjónn, kokkur og barstúlku - og leik-
aranámið kemur þar að gagni.“
Er þaó ekki erfióara aó þjóna
drukknum íslendingum en leika?
„Það eru nú ekki allir íslensku
ferðamennirnir drukknir, ails ekki,
en þegar það kemur fyrir og þeir
skjóta einhverju ósmekklegu að þá
læt ég það bara fram hjá mér fara. Ég
ætti að vera orðin vön skotum úr
leikarabransanum því það er opin-
bert skotleyfi á þá stétt. Það hefur
hver sem er leyfi til að skjóta mann
niður eftir sýningu eða upphefja -
allt eftir smekk. En það er einmitt
mikilvægt í starfinu að missa ekki
móðinn út af lastinu eða verða
heimskur af hólinu. Maöur verður að
hafa sterk bein í kroppnum til að
þola hvorutveggja."
Ekki feit af leiklist
Pálína á erfitt með að ímynda sér
annað starf en leiklistina úr þessu.
Hún sótti að vísu einu sinni um pláss
á togara.
„Ég hugsa að ef mér væru allar
leiðir lokaðar í leiklist og dansi
myndi ég reyna að komast á togara.
Sjómennskan hefur yfir sér ævin-
týra- og hetjublæ. Það er þessi eilífa
barátta við náttúruna. Þó verð ég að
viðurkenna að það voru aðallega
peningarnir sem heilluðu mig þegar
ég sótti um. Þó leiklistin hafi fært
mér margt er ekki hægt að segja að
ég hafi orðið feit af henni. En mjór er
mikils visir.“
-BG
Þjónn í súpunni veröur í lönó, kemur úr fríi á
fimmtudaginn næsta - en því miður er uppselt
á sýninguna þaö kvöldiö. Næstu lausu miðar
eru á sýninguna á fimmtudeginum í vikunni á
þar á eftir, eöa 13. ágúst. Þessi sýning viröist
ætla aö slá í gegn, þó æöi misjöfnum sögum
fari af hvort hún er skemmtileg eöa hreint út
sagt óþolandi. Glöggir áhorfendur hafa taliö sig
sjá að jafnvel sumir leikaranna skemmti sér
ekki of vel og láti áhorfendur jafnvel skilja aö
þetta sé nú ekki aulahúmor aö þeirra skapi. En
maturinn er enginn aula-matur og það er fyrir
öliu.
Næsta sýning á Hellisbúanum er á fimmtudag-
inn kl. 21.00 og þar geta hjón fengið sína lexíu
um hitt kyniö og hjálp til aö skilja ýmislegt I fari
makans sem hingað til hefur verið torskiliö.
Fyndið stykki og dáindisgóður leikur.
Grease-æðið heldur áfram eftir verslunar-
mannahelgina. Á fimmtudagskvöldið er sýning
kl. 21.00. Þetta þykir ákaflega skemmtileg sýn-
ing, fínasti söngur og smart dans en þegar fólk
gengur út úr salnum skilur það ekki almenni-
lega hvernig þaö lét gabba sig að sitja undir
þessu.
Á morgun veröur sumarkvöld við orgeliö í Hall-
grímsklrkju þar sem Ulrlch Meldau, organisti
frá Sviss, spilar. Tónleikarnir hefjast klukkan
12. Á sunnudaginn spilar Meldau aftur, verk
eftir Bach, Wldor, Dupré. Demessleux og
Jongen. Tónleikarnir hefjast kl. 20.30.
Á fimmtudaginn, þann 6. ágúst, heidur síðan
Friörik Vlgnlr Stefánsson, organisti Grundar-
fjaröarkirkju, tónleika í Hallgrímskirkju og hefj-
ast þeir kl. 12.
Á morgun leika Stelnunn B. Ragnarsdóttlr og
Helga Þórarinsdóttlr á píanó og lágfiölu I Nor-
ræna húsinu. Aðgangseyrir er 700 krónur og “
hefjast tónleikarnir kl. 16.
Á morgun leika í Reykjahlíöarklrkju Egbert
Lewark (trompet), Wolfgang Portugali (orgel)
og Margrét Bóasdóttlr (sópran). Tónleikarnir
hefjast kl. 21.
Á morgun, klukkan 15, heldur sönghópurinn
The Clerk's Group tónleika í Skálholtsklrkju.
Flutt veröa verk eftir Pycard, John Dunstaple,
Leonel Power, Walter Frye, Wllllam Cornysh,
John Taverner og Thomas Tallls. Klukkan 17
hefjast tónleikar meö Jaap Schröder og Helgu
Ingólfsdóttur sem leika á barokkfiðlu og
sembal. Ruttar verða sónötur fyrir barokkfiölu
og sembal nr. I, II og III eftir J.S. Bach.
Á sunnudaginn veröa trúarleg söngverk frá
blómatíma endurreisnar á Englandi flutt i
Skálholtskirkju, kl. 15. Klukkan 16.40 verður
sónata fyrir barokkfiölu og sembal nr. IV eftir
J.S. Bach flutt.
13