Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.1998, Blaðsíða 11
Jiml Tenor: Andy Warhol
eftlr elnangrun ð Mars.
búnum tenor-klæðnaöi; fot sem ég
sneiö úr málverkum sem ég keypti á
flóamarkaði. Þetta var frekar öðru-
vísi!“
Þá er rétt að minnast á nýjasta
trompið hjá Warp, dúettinn Boards
of Canada sem nýlega gaf út eina
bestu plötu ársins, „Music Has the
Right to Children". Bandið kemur
frá Skotlandi, spilar hæga og
melódíska raftónlist sem það segir
að eigi að höfða til bama en hefur
verið líkt við tónlist úr dýralífsþátt-
um frá áttunda áratugnum eða jafn-
vel tónstef úr teiknimyndum; dreym-
in og aðlaðandi tónlist og mjög gef-
andi sé henni gefið tækifæri. „Við
viijum kveikja á einhverju sem fólk
er búið að gleyma en hljómar eins og
það hafi heyrt það áður,“ segja þeir.
;ið Warp ungar
út rafmögnuðu gæðastöffi:
Boards of Canada vilja kvelkja á elnhverju sem
fólk er búlð að gleyma.
Aphex Twln;
„Mozart dans-
tónlistarinnar".
skýringar:
„Við send-
um honum
tékka fyrir
plötusölu
og Stef-
gjöld en í
lok skatta-
á r s i n s
sendi endur-
skoðandinn
hans alla
tékkana til
baka því Tom hafði ekki skipt nein-
um þeirra, heldur geymt þá alla í
skókassa. Hann étur bara
pakkanúðlusúpur og slær vini sína
um 20 pund“ - hljómar eins og Gísli
á Uppsölum dansheimsins.
Finninn Jimi Tenor er líka fríkað
fyrirbæri og tónlistin sem hann fæst
við svöl skemmtisamsuða, fónkuð,
djössuð og stofupoppsleg. Hann litur
út eins og Andy Warhol - ef Andy
hefði verið í tveggja ára einangrun á
Mars - og hefur verið kallaður
„Liberace dansgeirans". Tónleikar
hans eru þekktir fyrir óvæntar upp-
ákomur. „Ég leigði stóran hvitan
hest sem ég kom ríðandi á inn á
sviðið klæddur pallíettuofnum
kufli," segir Jimi um tónleika á
Spáni nýlega. „Hrossið var skelfmgu
lostið út af hávaðanum en það leit
bara betur út; hesturinn var að
geggjast og áhorfendurnir voru í
panik. Á sviðinu voru lika fjórar
trönsur sem ég lét klæðast heimatil-
„Alvörumúsík"!
Þau tímamót urðu nýlega hjá
Warp að hundraðasta smáskífan kom
út, „WarplOO - We Are Reasonable
People", sem þó er engin smáskífa
heldur safnplata með nýju efni frá
flestum tónlistarmönnum útgáfunn-
ar; kjörinn byijunarreitur fyrir þá
sem vilja tékka á varpinu.
Útgáfan er í stöðugri þróun og gef-
ur skít í orðsporið, gerði t.d. nýlega
samning við hljómsveitina Broadcast
sem er „indie“ band með raftónlist í
bland. Trish, söngkona Broadcast,
segir þetta rökrétta þróun. „Það er
ekki hægt að ætlast til að fólk fili
sömu tónlistina það sem það á eftir
ólifað. Ástæðan fyrir því að Warp er
svona mikilvægt fyrirtæki er að það
tekur áhættu."
Rob Mitchell segir að framtíð
Warp sé óljós, allt geti gerst. „Við
setjumst alltaf niður og hugsum:
„Jæja, hvernig hafa önnur fyrirtæki
þróast og hvert er þá rétta skrefið
fyrir okkur að stíga næst?“ Warp
þróast sem sé á eigin forsemdum og
hlustendahópurinn fylgist fanatískur
með. „Við fáum bréf frá fóngum sem
segja að þeir séu á LSD að hlusta á
Autechre og það frelsi þá úr klefan-
um. Ung japönsk skáldkona dó úr
krabbameini og lét gi'afa sig með Ap-
hex Twin-diskunum sínum. Það sem
við gefum út kveikir ekki viðbrögð
eins og „Ó, mér fmnst þetta ágætt“.
Nei, þetta er alvörumúsík!"
-glh
Sheffield á Englandi var í kennslu-
bókunum sagt frægust fyrir hnífa-
pörin sín. Þeir sem aðhyllast framúr-
stefnulegri tölvumúsík tengja þó
borgina liklega frekar við útgáfufyr-
irtækið Warp sem hefur á undan-
fórnum níu árum ungað út hágæða
tölvutónlist sem er alltaf athyglis-
verð, framsækin og fersk og þar að
auki oftast skemmtileg, þ.e.a.s. laus
við heiladauðar endurtekningar og
tilbreytingarleysi.
Rob Mitchell og Steve Beckett
eru eigendur og höfuðpaurar Warp.
Árið 1989 unnu þeir í plötubúð og
uppveðruðust af þeim viðtökum sem
„White Label“ 12-tommur með her-
bergistölvudundurum fengu hjá mús-
íkpælurum. Með styrk frá breska
ríkinu upp á 2000 pund pressuöu þeir
500 eintök af fyrstu smáskífunni
„Track with No Name" meö For-
gemaster og síðan hefur boltinn
rúllað sleitulaust. Árið 1989 litu flest-
ir músíkspekingar á danstónlistina
sem innihaldslausa tískubylgju. Niu
árum síðar flnnst enn fólk sem þykir
popp án gítara ekki tónlist en þvílík-
um risaeðlum fer fækkandi. Warp
hefur þrifist á óskilgreindum landa-
mærum tónlistarinnar og verið iðið
við þann kola að kanna þanþol þess
hvað getur kallast popp og hvað ekki.
„Warp byrjaði á mjög móttækilegum
tímum," segir Steve. „House-bylgjan
hafði nýlega riðið yfir og fólk var að
reyna að átta sig á því hvað mætti og
hvað mætti ekki í tónlist. Tónlistar-
bransinn var spennandi."
Warp sló fljótlega í gegn þegar
LFO komst inn á vinsældalista með
tímamótaverkið „Frequencies".
Mínímalísk djúpbassahljóðgervlatón-
listin var nefnd „bleep“ af pressunni
og tónlistarheimurinn var gáttaður
yfir að þessi tónlist gæti notið ein-
hverra raunverulegra vinsælda.
„Það var fáránlegt að koma LFO á
vinsældalistana," segir Rob, „að
heyra þessa tónlist út um gluggann á
bílum sem keyrðu hjá.“
Eftir bleep-ið sneri Warp sér að
„Ambient“-tónlistinni, þ.e.a.s. músík-
öntum sem tóku upp hanskann þar
sem Brian Eno skildi hann við sig
eftir plötur eins „Ambient #1 -
Höfuðpaurarnir
Steve og Rob:
„Warp er gæba-
stlmplll, ekki
stlmplll á elna
ákveðna tónlist-
arstefnu."
Music for Airport". Ambientiö flaut
um á „Artificial Intelligence“-safn-
plöfimum; svo loft-
kennd tónlist að
það þarf ekki að
hlusta til að heyra
hana.
Tölvubland
í poka
En Warp hefur
aldrei sérhæft sig
og eigendumir sjá
merkið sem „gæða-
stimpil, ekki
stimpil á eina
ákveðna tónlistar-
stefnu. Við viljum
að Warp sé eins og
að eiga klikkaðan
vin sem bendir þér
á góðar plötur." Það er þvi mislitt
tölvutónlistarblandið í poka Warp og
mörgum stórpoppurum þykir eftir-
sóknarvert að sælast í þann poka,
t.d. til að fá tónlistarmenn á vegum
Warp til að rímixa fyrir sig.
Richard James, b.þ.s. Aphex
Twin, hefur verið kallaður „Mozart
danstónlistarinnar" enda friskur
gaur og óragur við framsæknar pæl-
ingar. Hann hefur m.a. rímixað fyrir
Smashing Pumpkins, Beck og
Madonnu. Þá hefur Björk oft grams-
að i Warp-pokanum, dró t.d. Aphex
Twin með sér hingað á Uxa-hátíðina.
Einnig hefur Mark Bell úr LFO
rímixað fyrir hana og teknódúóið
Plone (sem áður var hluti af Black
Dog) hefur rimixað og ferðast með
henni á tónleikum.
Furðufuglar
í dag má finna allra handa tölvu-
tónlist hjá Warp og lítið bindur
pakkann saman nema það sem eig-
endurnir kalla „frumherja-anda".
Ampex Twin, Autechre og Squ-
arepusher eru kannski þekktustu
nöfn Warp og á bak við nöfnin eru
menn sem hugsa um lítið annað en
tónlistina og hvemig megi fleyta
henni áfram inn í hið ókunna. Tom
Jenkinson, heilinn á bak við Squ-
arepusher, er dálítið ýkt dæmi en
Steve tekur hann sem dæmi til út-
Marilyn Manson
bannaður strax
Stlfmálaöi hryllingsrokkarinn Marllyn Manson
- sem hefur haft bein áhrif á útlit aðdáenda
sinna, m.a.s. hérna í Reykjavík - gefur út
fjóröu plötu slna, .Mechanical Animals", þann
15. september. Þó platan sé ekki komin út er
hún þegar farin að vekja mikla athygli og þeg-
ar hafa þrjár stærstu verslunarkeöjur í Banda-
ríkjunum (K-Mart, Wal-Mart og Target) ákveöið
að selja ekki „svona sora". Helst eru þaö text-
arnir (lög eins og „I Don't Like The Drugs (But
The Drugs Like Me)" og „The Speed of Pain")
sem fara fyrir brjöstiö á yfirmönnum keðjanna
og einnig plötuumslagiö, sem sýnir Manson
útlítandi eins og geimveru með brjöst. Þetta
er ekki I fýrsta skiptið sem verslunarkeðjurnar
eru með stæla þegargróft rokk á I hlut, en oft-
ast láta rokkararnir undan til aö laga sig að
guðhræddum hugsunarhættinum. Kannski
ekki að furða því 25% af plötusölu I Bandarikj-
unum fer fram I þessum þremur keöjum.
Bastar
í veser
Ol' Dirty Bastard
er I vondum mál-
um eftir að hafa
ítrekað skrópað t
rétt I Virginiu-fylki.
Honum er gefið að sök aö hafa stolið 50 dala
strigaskóm I sportvörubúð í júlí og þrisvar hef-
ur hann ekki mætt þegar rétta átti í málinu.
Þetta þykir löggæslumönnum f Virginu gífurleg
óvirðing við lögin og má sá gamli eiga von á
sekt og ársdvöl í fangelsi verði ekki gengið frá
málinu I snatri. ODB er hinn mesti vandræöa-
gemsi og hefur oft skrópað áður, t.d. þegar
hann átti að vera meö tónleika í Laugardals-
höll um síðustu jól. Hann komst í fréttir I febr-
úar þegar hann fór í fýlu á Grammy-verðlauna-
athöfninni því Puff Daddy fékk verðlaunin en
ekki Wu-Tang Clan. Þá þurftu öryggisveröir að
leiða hann út eftir að hann stökk upp á svið
og gaf frat I verölaunin. Þá slasaðist hann lít-
illega í júní I vopnuðu ráni í íbúö frænda síns I
Brooklyn. Strigaskónum stal hann aðeins
tveim dögum eftir það atvik svo kannski að
hann hafi bara veriö eitthvað eftir sig. Félagar
hans I Wu-Tang Clan eru annars sífellt að
breiða út rapp-veldi sitt og hafa opnaö skrif-
stofu I Paris. Nýjasta afurðin er „RZA Presents
Wu-Tang Killa Bees - The Swarm Volume 1“ og
er nýlega komin út.
Piónustuuer
^ allt sem þíi uilt tjita um lntemetid.
I nýja þjónustuverinu færðu alla tækniþjónustu, upplýsingar, ráðgjöf,
mótöld, síma, ISDN kort, GSM farsíma, ISDN síma, hugbúnað, tímarit
um Internetið og allt sem þarf á netinu!
Rjóddu töluunni (jinni med.
Þú kemur einfaldlega með tölvuna til okkar í nýja Þjónustuverið og
færð hana daginn eftir með öllum internetforritum uppsettum.
800 7575
Sbrádu jjlg í síma
9-19 uirH<J datja cxj 1Z-18 lauqardarja.
Ilradi. harjstætt uerd orj aldrei á tali.
SIMINN ínternet
21. ðgúst 1998 f ó k u s
!