Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.1998, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.1998, Blaðsíða 10
Að vanda verður úr mörgu að moða í jóla- plötuflóðinu sem er ekki svo langt undan. Allskonar plötur popp Kaffl Reykjavík. Hljómsveitin Sixtles leikur í kvöld og laugardagskvöld á staönum. Á sunnudags- og mánudagskvöld er það aftur á móti hinn óþreytandi dúett Grétar Örvarsson og Slgga Beintelns sem ætla að sjá gestum fyrir skemmtun. Jón Möller mun að sjálfsögðu leika róman- tíska píanótónlist á Fjörunni næstu daga. Catalín, Kópavogi. Ari Jónsson og Úlfar Sig- marsson á föstudags- og laugardagskvöld. Broadway. [ kvöld verður stórdansleikur með hinum einu sönnu Stuðmönnum til kl. 3. Á laugardagskvöldið verður svo sýning BJörg- vlns Halldórssonar, „I útvarpinu heyrði ég lag“. Þetta er sérstök aukasýning þessarar dagskrár sem fram fór fyrir fullu húsi á Broad- way sl. vetur. Bjöggi klikkar aldrei. Fógetlnn býður okkur upp á Dúettinn Blátt áfram í kvöld og á morgun. Sunnudagskvöld veröur það svo Halli Reynls sem sér um að skemmta. Svelnsen & Hallfunkel koma fram til kl. 3 á föstudags- og laugardagskvöld á Gullöldlnni. Víklngasveltln mun leika á Fjörukránnl fyrir Víkingaveislugesti um helgina. Hljómsveitin KOS verður svo með dansleik á eftir. Grand Hótel v/Sigtún. Gesbr staðarins munu hlýða á Gunnar Pál leika og syngja í kvöld og annað kvöld kl. 19-23.' Slr Ollver hefur veriö að vekja athygli aö und- anförnu fyrir frumleg uppátæki. Á föstudags- og laugardagskvöld spilar Pétur Öm Guð- mundsson en á sunnudagskvöldinu veröa ásamt Pétri Erni þeir Karl Olgelrs og Vllhjálm- ur Goðl skemmta fram eftir kvöldi. Gaukur á Stöng. Föstudags- og laugardags- kvöld skemmtir hjómsveitin írafár. Sunnu- dags- og mánudagskvöldið er það síðan dæg- urlagaþönksveitin Húfa. Það veröur lifandi tónlist á Mímlsbar á Hótel sögu í kvöld og á morgun. Þau MJöll Hólm og Skúll sjá til þess. Á Vegamótum verður lif- andi tónlist frá kl. 23 með Duff-bræðrum I kvöld. Þess má geta að Duff- bræður eru þeir Ottó Tynes og Stefán Mar. Á laugardagskvöldið er menningarnóttin og þá verður funk-gleöi hald- in á staönum í samvinnu viö Club FM og Fók- us. í boöi verða Absolout Funk, Funkmaster 2000 feat, Óskar Guðjónsson saxófónlelk- arl, D.J. Áml E. og Þossl. Café Romance. Næstu vikurnar mun píanó- leikarinn og söngvarinn Llz Gammon sjá um aö skemmta gestum staðarins. Hann mun einnig spila matartónlist fyrir gesti Café Óp- eru rétt eins og fyrirrennari hans, Glen VaF entlne, gerði svo vel. Café Amsterdam. Föstudags- og laugardags- kvöld mun Hunang leika listir sínar. Á Næturgalanum í kvöld og annað kvöld munu Stefán P. og Pétur leika. Gestasöngv- ari er Anna Vllhjálms. BJaml Tryggvason (ekki geimfarinn) mun leika á The Dubllner I kvöld og á morgun. James Clifford tekur síöan við og spilar á sunnudagskvöld. Á Felta dvergnum ætlar hljómsveitin Tvennlr tímar að spila I kvöld og annað kvöld. í kvöld, á morgun og á sunnudagskvöld leik- ur hljómsveitin siN á Kringlukránni. I Leikstof- unni mun hins vegar Vlðar Jónsson sjá um stemninguna á morgun og hinn. Skugga-Baldur mun skemmta á NaustkJalF aranum í kvöld og á morgun. Sveitaböll í kvöld og á morgun leikur hljómsveitin Þotu- liðlð í Búðarklettl i Borgarbyggö. SSSól meö brýninu Helga BJöms leikur í Hreðavatnsskála laugardagskvöldið 22. ágúst. Þarna eru konungar sveitaballanna á ferö. Hljómsveitin Land & Synlr er meö tvo dans- leiki um helgina. Föstudagskvöld á Langa- sandi á Akranesi og laugardagskvöld mun sveitin skemmta á Krlstjánl 9. í Grundarfirði. Sóldögg leikur í Sævangl viö Hólmavík og á laugardagskvöld í Egilsbúð á Neskauþstað. Á föstudagskvöldið leikur Sálln að Borg i Grímsnesi. Þetta verða fyrstu 16 ára tónleik- ar sem þessi þrautreynda hljómsveit heldur fyrir austan fjall. Á laugardagskvöldiö veröur sveitin hins vegar í Stapanum i Njarðvík. Reggea on lce spilar á föstudagskvöld á Hlöðufelll á Húsavík. Þeir munu svo læða sér til Þórshafnar og spila þar á laugardagskvöld. Grelfarnir verða í Ingólfskaffi á laugardags- kvöld og munu leika öll sín bestu lög. Skitamórall spilar í Tjarnarlundl í Dölum föstudagskvöld, kvöldið byijar með tónleikum kl. 20.30 en kl. 23 hefst hið eiginlega ball og stendur þaö til kl. 3. Á laugardag verður svo haldinn dansleikur í Úthlíð í Biskupstungum. Hljómsvelt Gelrmundar Valtýssonar leikur föstudags- og laugardagskvöld á Naustinu, Vesturgötu 6-8. Geirmundur á 40 ára starfs- afmæli um þessar mundir og mun spila 140 ár til viðbótar. meira á. www.visir.is Beck flippar Báðar .alvöru" plötur Becks, Mellow Gold og Od- elay, hafa haft mikil áhrif á rokkþróun síðustu ára. Bekkurinn hefur þó gert ýmsar flippaðar plötur í kringum alvöruplöturnar og nú er von á einni slíkri, Mutations, í október. Beck er á mjög frjálslegum samningi við Geffen-útgáfulyrirtækiö og getur gefið út efni annars staðar ef honum sýnist svo. Mutations átti upprunalega að koma út hjá K. Records, sem er smáfyrirtæki í Was- hington-ríki, en Beck samþykkti að lokum að láta Geffen fá útgáfuréttinn. Platan er hljóðunnin af Nlgel Godrich sem hljóðvann OK Computer-plötu Radiohead og verður tíu laga, með lögum eins og Cold Brains, Dead Melodies og Lazy Ries (lof- ar góðui). Beck hefur annars hreiðrað um sig aft- ur I stúdlói í Los Angeles og vinnur þessa dag- ana að alvöruplötu sem búast má við næsta sumar. Sem sé; nóg að hlakka til fyrir Beck-ara. Hljómplötuútgefendur eru rtú í óðaönn að gera sig klára í bátana fyrir jólaplötuflóðið og þegar Fókus fór á stúfana kom í ljós að ýmislegt góðmeti verður borið á borð landans á komandi mánuðum. Bubbi, Diddú og Hrekkjusvín Skífan býður upp á fjölbreytt úr- val og fleiri titla en undanfamar vertíðir. Þar verður Bubbi Morthens með nýja plötu sem hann snaraði, að sögn útgáfunnar, af á tveim dögum í hljóðveri. Platan er nánast læf, er ró- leg og einföld kassagítarplata, sem kemur kannski ekki á óvart eftir kassagitartónleikaröð Bubba á Kaffi Reykjavík í sumar. Stuðmenn verða með plötu, átta lögum verður bætt við þau fjögur sem komu út í júní á „EP+“ plötunni. Ný dönsk snýr aft- ur, án Daníels Ágústs sem hefur öðr- um hnöppum að hneppa með gusgus. Hann syngur þó eitt eða tvö lög á nýju plötunni, en Bjöm Jör- undur verður i aðalhlutverki og Jón Ólafsson spreytir sig líka við hljóð- nemann. Þá verður Diddú með plötu og syngur þar þekktar og óþekktar ópemaríur. Rokkbandiö Ensími, sem skipað er fyrrum meðlimum úr Jet Black Joe og Quicksand Jesus, verður með sína fyrstu plötu og dansbandið Súr- efni með sína þriðju. SSSól gera tvö- falda safnplötu með vinsælustu lög- unum á einum diski og nýjum og sjaldheyrðari lögum á öðnun. Upp- taka með tónleikum úr Borgarleik- húsinu þar sem sungin vom þekkt- ustu lög Jónasar heitins Ámasonar og Jóns Múla verður sett á disk og Skífan endurútgefur tvær vinsælar barnaplötur, vísnaplötuna „Einu sinni var“, sem seldist á sínum tíma í 20 þúsund eintökum og er enn sölu- hæsta plata á íslandi, og plötuna „Hrekkjusvín", þar sem Valgeir Guðjónsson og félagar gerðu sprell- fjöruga tónlist við texta eftir Pétur Gunnarsson fyrir nær tuttugu árum. Þá mun Skífan dreifa plötum fyr- ir sjálfstæða útgefendur og á margt eftir að skýrast í því sambandi. Lík- lega verður tvöfaldri plötu frá „Popp í Reykjavík" hátíðinni dreift af Skíf- unni og átta laga plötu með Bellatrix sem gefin verður út til kynningar á sveitinni í Bretlandi. Neistar, Móa og Papar Margar plötur koma á vegum Spors, þar af fjórar af hliöarmerkinu Sprota. Það era plötur Vinýls, Bang Gang og 200.000 naglbíta, en sú plata ber vinnuheitið „Leynibylgjur gyllta flóðhestsins". Fjórða Sprota-platan er safnplatan „Neistar" með nýrri rafdansónlist, sem Bjarki Jónsson, kenndur við Scope, safnar á. Nú styttist í að tónlist úr mynd- inni Sporlaust komi út. Hjálmar H. Ragnarsson sér um kvikmyndatón- listina en Selma Björnsdóttir og Þor- valdur Bjami gera íjögur lög, sem minna að sögn útgefenda á rafpopp Garbage. Platan „Universal" með Móu kemur í október, Friðrik Karls- son fylgir vinsældum „Lifsins fljót“ eftir með nýrri hugleiðsluplötu og Blúsmenn Andreu verða með rólega blúsplötu. Á henni verður allt efnið ófrumsamið líkt og á plötu Papa, sem koma með partíplötu. Sveita- ballabandið Land og synir kemur með stuðplötu og Sálin hans Jóns míns verður með svipaðan pakka og Sólin, tvöfalda „best of‘-piötu með nýju efni í bland. Þá verður tónlist Þorvalds Bjarna úr bamasöngleikn- um „Ávaxtakarfan" gefin út, en söngleikurinn verður frumsýndur i Óperunni í byrjun september. Grindverk, Aria og Rúnar Júi Fyrir utan útgáfur Skifunnar og Spor verða svo sjálfstæðar útgáfur vafalaust fjölmargar. Japis hefur á síðustu árum dreift þeim flestum, en þar á bæ er enn að mestu óráðið hverjir verða á ferðinni. Plata Möggu Stínu heitir „An album" og kemur út 21. september. Smekkleysa gefur út nýjar plötur með Sigur Rós og Unun og ljóðaplötu Diddu, „Strok- ið og slegið“. Grindverk nefnist sam- starfsverkefni Einars Arnar, Sig- tryggs Baldurssonar og Hilmars Amar og eru þeir að klára efni um þessar mundir. Aria (María Björk) er að klára plötu með Mr. Bix sem kemur líklega út hér fyrir jólin, Subterranean verða með EP-plötu á vinyl og Real Flavaz stelpurnar verða með 6-laga disk. Anna Hall- dórsdóttir vakti mikla athygli með fyrstu sólóplötu sinni fyrir jólin '96 og mun klára sína aðra plötu á kom- andi vikum í hljóðveri sem rekið er af íslendingum á Jótlandi. Error músik gefur út þriðju Botnleðju- plötuna nú í haust og sjölaga sóló- plötu frá hinum tólf ára Ragnari Sól- berg. Rúnar Júlíusson verður með nýja sólóplötu, þar sem hann fær ýmsa jaxla með sér í rokkið. Heilmargt á eflaust eftir að bætast við og það kemur til með að skýrast á næstu misserum hverjir taka þátt í jólaslagnum. íslenski i i u in ni NR. 286 vikuna 20.8-27.8. 1998 Sæti Vikur lag flytjandi 1 8 I DONTWANTTO MISS ATHING ...............AEROSMITH 2 5 INTERGALACTIC ........................BEASTIE BOYS 3 8 DRINKING IN LA.......................BRAN VAN 3000 4 8 C0MEWITHME..................PUFF DADDY & JIMMY PAGE 5 7 THEBOYISMINE......................BRANDY 8> MONICA 6 2 ANGEL ..............................MASSIVE ATTACK 7 3 SAINT JOE ON THE SCHOOL BUS....MARCY PLAYGROUND 8 5 LIFE ....................................DES'REE 9 3 VIVA FOREVER .........................SPICE GIRLS 10 6 DEEPER UNDERGROUND.....................JAMIROQUAI 11 5 IMMORTALITY...........................CELINE DION 12 2 TIME AFTER TIME .............................INOJ 13 3 ANOTHER ONE BITES THE DUST ... .QUEEN/WYCLEF FEAT P... 14 11 SPACE QUEEN ............................10 SPEED 15 6 I THINK l’M PARANOID......................GARBAGE 16 4 YOU’RE MY HEART, YOU’RE MY SOUL ...MODERN TALKING 17 7 REALGOODTIME ......................ALDA ÓLFSDÓTTIR 18 5 ÉG ER BARA EINS OG ÉG ER ................STUÐMENN 19 4 ABANIBI .........................PÁLLÓSKAR&CASINO 20 7 GET IT ON.............................REAL FLAVAZ 21 6 TERLÍN...............................LAND OG SYNIR 22 4 I DONTWANTTO KNOW..........................LHOOQ 23 5 HALTU MÉR.............................GREIFARNIR 24 6 BECAUSE WE WANTTO ........................BILLIE 25 6 CRUEL SUMMER .........................ACE OF BASE 26 4 LOVELY DAZE.............DJ JAZZY JEFF & FRESH PRINCE 27 5 CRUSH .............................JENNIFER PAIGE 28 5 ORGINAL.......................SÁLIN HANS JÓNS MÍNS 29 4 THE X-FILES THEME ..............THE DUST BROTHERS 30 3 LOST IN SPACE..................APOLLO FOUR FORTY 31 3 ALL'BOUTTHE MONEY............................MEJA 32 8 SO ALONE..............................BANG GANG 33 3 I BELONG TO YOU .....................LENNY KRAVITZ 34 2 STRIPPED...............................RAMMSTEIN 35 2 SÍLIKON .............................SKÍTAMÓRALL 36 2 ÉG AETLA AÐ NÆLA í ÞlG....................GREASE 37 7 LIFEAINTEASY ..........................CLEOPATRA 38 1 MY FAVOURITE MISTAKE................SHERYL CROW 39 1 STELPUR................................Á MÓTI SÓL 40 4 PERFECT.........................SMASHING PUMPKINS 14/8 6/8 1 2 5 3 18 5 - 15 33 6 11 4 16 20 - 21 40 10 18 3 17 7 9 17 8 28 24 10 13 19 22 14 25 30 32 27 26 29 29 24 23 26 31 37 35 32 28 39 38 38 - 35 - 40 - 34 30 36 23 Taktu þátt í vali listans í síma 550 0044 /hm íslenski llstinn er samvinnuverkefni Bylgjunnar og DV. Hringt er f 300 til 400 manns á aldrinum 14 til 35 ára. af öllu landinu. Einnig getur f<51k hringt f sfma 550 0044 og tekið þátt f vall listans. íslenskl listinn er frumfluttur á fimmtudagskvöldum á Bylgjunni kl. 20.00 og er birtur á hverjum föstudegi f DV. Ustinn er jafnframt endurfluttur á Bylgjunni á hverjum laugardegi kl. 16.00. Ustinn er birtur, að hluta, f textavarpi MTV sjdnvarps- stöðvarinnar. íslenski listlnn tekur þátt f vali „World Chart* sem framlelddur er af Radio Express f Los Angeles. Einnig hefur hann áhrif á Evröpulistann sem birtur er f tönlistarblaðinu Music & Media sem er rekið af bandarfska tónlistarblaðinu BiTlboard. Yhruimjén meS skoSanakðnnun: Kulldóra Hauksdóttir • Framkvdfmd könnunan MarkaSsdelld DV - TöKuvinnsla: Dódó • Handrit, heimlldaröflun og yflrumsjón meS framleiSslu: ívar GuSmundsson -T*knistjóm og framleiSsla: f’orsteinn Asgeirsson og Káinn Steinsson • Utsendingastjóm: Asgeir Kolbeinsson og Jóhann Jóhannsson • Kynnir f útvarpl: Ivar GuSmundsson 10 f Ó k U S 21. ágúst 1998

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.