Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.1998, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.1998, Blaðsíða 12
Fyrirsætur eru ekki með brjóst - í þaö minnsta ekkert til aó tala um í sömu andrá og kúluhúsin á Pamelu Anderson. Og tískan er mótuð á fyrir- sæturnar og okkur er ætlað að klæðast tískunni - og þá eru brjóst bara fyrir. Ef einhverri þykir þetta hart þá er það versta eftir. Hún þarf að koma sér upp freknum. Stelpur: Nú eigið þið að vera me lítil brjóst. Að minnsta kosti ef þið viljið tolla í tískunni. Burt með silíkonið, Pameiu Anderson-fílingur- inn er úti. Meira að segja víkur Cindy Crawford fyrir skrýtnum og mjóum fyrirsætum með freknur og útstæð eyru. Kynbomban verður hlussa - ef þannig árar í efnahagslífinu pvo,@G!30 mmmsmmm miklar blómarósir eins og Marilyn Monroe og Ursula Andrews þóttu alflottastar. Svo var Kennedy skot- inn og Bandaríkjamenn og heimur- inn allur urðu fyrir áfalli. Brjóstin minnkuðu. Og minnkuðu. Alveg þangað til Twiggy komst í tísku. Minni gátu þrjóstin ekki orðið. Brjóstahaldarar voru hinn mesti óþarfi. Skall þá á olíukreppa á átt- Hurley Á þessum skýringamyndum má glögglega sjá samband brjóstastærða sem eru í tísku hverju sinni við efnahagsástandið í veröldinni - eða öllu heldur væntingar fólks um efna- hagshorfur í framtíðinni. Það sem er einna athyglis- verðast við þessa fylgni er að brjóstin virðast minnka eða stækka áður en greina má önnur kennileiti um kreppu eða uppgang. Leggist yfir kortin og veltið þessu fyrir ykkur. Hvort sem kvenþjóðinni líkar bet- ur eða verr þá eru brjóstin á henni tískufyrirbæri og brjóstgóð kona sem þótt hefur vera með öfunds- verðan barm, getur allt í einu dottið úr tísku og jafnvel þótt algjör hlussa. Brjóstastærðin fer nefnilega eftir tíðarandanum og konur verða bara að kyngja því. Brjóst og Kennedy í þessu er samt einn ljós punktur. Tískan snýst í hringi og svo virðist sem það eigi einnig við þennan ágæta líkamspart. Stór bijóst þykja flott þegar fólki finnst gaman að vera til og fjárhagur þjóðanna er í jafnvægi. Rokktíminn á sjötta ára- tugnum er gott dæmi um það, barm- unda áratugnum og brjóst hættu hreinlega að skipta máli. Hurfu bara undir mussurnar. Það var ekki fyrr en Reagan og Thatcher komust til valda að konubrjóstin tóku að stækka á ný og skipta meira máli. Erfiðleikar olíukreppunnar voru að baki og fólk sá fram á betri tíma. Nú var gaman að vera til. Árin liðu og brjóstin stækkuðu og náðu hámarki í byijun þessa áratugar, alveg þang- að til Pamela Anderson kom, sá og sigraði. Silíkon var efnið. Skrýtnar fyrirsætur Nú er svo komið að tískufrömuð- imir hrópa á langar, mjóar konur með lítil bijóst. Burt með silíkonið, það er ógeðslegt. „Grannar stelpur þykja flottastar núna. Að minnsta kosti í hátísku- heiminum. Og grannar stelpur eru með lítil brjóst. Nú er þessi ómögu- lega fegurð ekki lengur í tísku og konur eru hættar að gera allt til að líkjast kynbombunni Cindy Craw- ford. Nema kannski í Bandaríkjun- um, þar er þessi Pamelu Anderson- fllingur enn í gangi. Editorial-tískan vill frekar venjulegar og grannvaxn- ar stelpur. Það þykir til dæmis flott að vera með freknur núna, aðeins útstæð eyru og fleiri útlitsgalla. Ómöguleg fegurð er ekki í tísku. Því skrýtnari sem fyrirsætan er frá nátt- úrunnar hendi þeim mun betri þyk- ir hún. Þess vegna er silíkon ekki inni i myndinni í fyrirsætubransan- um.“ Þetta er haft eftir Þóreyju Vil- hjálmsdóttur, öðrum eiganda fyrir- sætuskrifstofunnar Eskimo Models. í tískuvöruverslununum er verið að taka upp haust- og vetrarklæðn- aðinn. Upp úr kössunum koma þröngir bolir og litlir kjólar. „Þau fót sem við erum að taka upp núna eru flest þröng og lítil eins og verið hefur undanfarið. Það bendir til þess að brjóst eigi að vera lítil. Bolir og kjólar eru margir hverjir hannaðir þannig að ekki er gert ráð fyrir að konur séu í bijóst- haldara innan undir. Þrátt fyrir að lítil bijóst séu meira áberandi í tískuheiminum eru mjög margar ís- lenskar stelpur búnar að láta setja silíkon í bijóstin. í þessu er auðvit- að ákveðin þversögn en þær segjast hafa betra sjálfstraust eftir slíka að- gerð. Persónulega flnnst mér lítil brjóst fallegri og myndi alls ekki vilja hafa stór /brjóst sjálf,“ segir Inga Rut Jónsdóttir, verslunar- stjóri í Sautján. Berrassaðar og brjóstastórar Það hljóta þó að teljast góðar frétt- ir fyrir barmmiklar konur að enn eru til karlmenn sem láta tískuna ekki skemma fyrir sér ánægjuna sem hríslast um þá í návist stórra brjósta. Jón Gunnar Geirdal er sérlegur áhugamaður um fallegt kvenfólk og hann segir: „Konur eiga að vera náttúrulegar, ekki fullar af silíkoni. Almennilegar konur takk, með mjaðmir og bijóst, helst þrýstnar. Ekki kústsköft sem búið er að blása í.“ Erótíkin lætur heldur ekki að sér hæða. „Brjóstastórar stúlkur eru vin- sælli en þær sem eru með minna framan á sér. Með því að vera móð- urlegar vekja þær upp ákveðna þrá hjá mjög breiðum hópi manna. Ann- ars eru menn jafnmisjafnir og þeir eru margir og þess vegna ganga all- ar brjóstastærðir upp í þessum bransa,“ segir einn forsvarsmanna erótíska skemmtistaðarins Vegas. Einn þriðji af handbolta Það segir sig sjálft að þegar lítil brjóst komast í tísku, á silíkonið erf- iðara uppdráttar. Karlmenn kjósa heldur hið náttúrulega. Vilja ekkert plat. Jóhann Meunier piparsveinn segir til dæmis: „Ég held að silíkon í brjóstum sé að verða frekar þreytt fyrirbæri, að minnsta kosti þegar bijóstin eru gerð of stór. Það er bara merki um sýndarmennsku, er óaðl- aðandi og algjör óþarfi. Ungfrú Is- land er til dæmis með aðeins of mik- ið silíkon i brjóstunum. Ég merki það á því að það er ekki samræmi á milli þeirra og andlitsins. Hún er með frekar lítið og kringlótt andlit, ofsalega sæt, en hefði frekar átt að taka stærðina fyrir neðan. Náttúru- leg brjóst koma betur út - sjáið bara Elizabeth Hurley." Svo eru til menn sem eru bara alls ekki mikið fyrir brjóst og það ýtir undir vinsældir litlubijóstatísk- unnar. Oddur Þórisson, ritstjóri Mannlífs, er einn af þeim sem finnst bijóst ekki skipta svo miklu máli. „Fallegir leggir eru mun ofar á áhugasviðinu enda er ég mikið fyrir beinar línur. Brjóstin eru samt á topp tíu listanum yfir fallegustu lík- amspartana en þau eiga helst að vera lítil og stinn. Ef skorinn er einn þriðji hluti af handbolta, þá er besta stærðin komin. Þá á ég við þriðjunginn sem var skorinn af. Hitt er of stórt.“ Pyngjan að léttast Nú geta konur með lítil bijóst sem sagt glaðst. Þær eru að komast í tísku og geta afpantað rándýrar si- líkonaðgerðir. Hins vegar er ógn- vekjandi að horfa til þess að sam- kvæmt bijóstasögunni fer nú að harðna á dalnum. Það hefur sýnt sig að þegar brjóstin skreppa saman gerir pyngjan það líka. Þótt við grát- um krepputíma skulum við ekki gleyma því að einmitt þá getur ver- ið ofsalega gaman að vera til. Þegar illa gengur að rækta peninga fær sálin meiri áburð. Lífið má ekki vera of létt. -ilk 12 f Ó k U S 21. ágúst 1998

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.