Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.1998, Síða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.1998, Síða 13
FIMMTUDAGUR 17. SEPTEMBER 1998 13 Fréttir s Nýr þingflokkur Kristínar, Ögmundar, Hjörleifs og Steingríms J: Höfum talað einum rómi - ekki þörf á sérstökum málefnasamningi, segir Ögmundur Jónasson Ólafur G. Einarsson, forseti Al- þingis, sagði í samtali við DV i gær að það væri málefni stjórnar og stjórnarandstöðu hvaða menn fylk- ingarnar byðu fram í þingnefndir hvers þings. Þeir þingmenn sem nú hafa yfirgefið þingflokk Alþýðu- bandalagsins hafi þannig þegið um- boð sín til nefndarstarfa frá stjóm- arandstöðunni. Það umboð falli nið- ur í þinglok. Nýtt þing hefst síðan 1. október og þá ráðist hvort fylking- arnar endurnýi umboð nefndar- manna sinna eða tilnefni nýja menn. Hinn nýi þingflokkur þeirra Hjör- leifs Guttormssonar, Kristínar Ást- geirsdóttur, Steingríms J. Sigfússon- ar og Ögmundar Jónassonar mun ekki gera með sér málefnasamning, að því er þeir Ögmundur, Hjörleifur og Steingrímur sögðu í samtölum við DV í gær, heldur munu þing- mennirnir mynda þingflokk sinn til m.a. að standa betur að vígi gagn- vart kosningum í þingnefndir. Steingrímur sagði að ekki væri þörf á því að hinn nýi þingflokkur gerði með sér málefnasamning um sameiginlega stefnu í einstökum málaflokkum. Stofnun þing- flokksins væri sjálfstætt mál sem sneri aðallega að störfum í þinginu, verklegi og skipu- lagi. „Við komum úr þremur áttum, Kristín úr Kvennalistanum, við Hjörleifur úr Alþýðubandalaginu og Ögmundur var óháður á vinstri væng stjóm- málanna. Við eigum eftir að bera saman bækur okkar og ætli við verðum ekki að sjá hvað framtíðin ber í skauti sér á allra næstu dög- um,“ sagði Steingrímur J. Sigfús- son. Ögmundur Jónasson og Stein- grímur J. Sigfússon hafa ekki verið samstiga í skoðunum á fiskveiði- stjórnunarmálum. DV spurði hann hvort þeir myndu samræma stefnumið sín i þeim málum inn- byrðis og við skoðanir Kristínar og Hjörleifs. Ögmundur sagði að þau hefðu ekkert rætt þetta mál og um skoðanir þeirra Steingríms J. sagði Ögmundur: „Við höfum verið sam- an í þingflokki, starfað mjög vel saman án þess að um það væri gerð- ur sérstakur málefnasamningur. Hins vegar hefur það verið þannig að þegar á hólminn var komið höf- um við talað saman einum rómi í flestum málum,“ sagði Ögmundur Jónasson. -SÁ Ögmundur Jónasson. Ástæður Steingríms J. til útgöngu: Otímabær sameining A-flokkanna „Það liggur alveg ljóst fyrir að þessir flokkar, sem þarna eru að reyna að bræða saman stefnu sína, einkum þó Alþýðubandalagið og Alþýðuflokkurinn, hafa verið full- trúar endasjónarmiðanna í ís- lenskum stjómmálum í mörgum veigamiklum málum. Hvemig sem menn tala um að samfylkja til vinstri verða þeir auðvitað að hafa þessar staðreyndir í huga,“ sagði Steingrimur J. Sigfússon alþingis- maður um ástæður þess að hann hefur yfirgefið þingflokk Alþýðu- bandalagsins og óháðra. Steingrímur segir að flokkarnir tveir séu nánast endapólarnir í málum sem varða afstöðuna til Evrópusambandsins og fleiri þátta í utanríkismálum, í atvinnu- og byggðamálum, umhverfismálum o.fl. „Fyrir mér er vitneskjan um þennan djúp- stæða óbrúaða ágreining sem verður undirliggj- andi hvernig sem menn reyna að sópa honum und- ir teppið með ein- hverju málamiðlunarorðalagi, kannski stærsta einstaka ástæðan fyrir vantrú minni á því að reyna að sameina þessa flokka," sagði Steingrímur. Hann kveðst hafa verið stuðningsmaður þess að flokkarnir reyndu að vinna þéttar saman eftir því sem kostur væri en af sameiningu gæti vart orðið í bráð. Þátttaka sín í svokallaðri málefnavinnu sl. vor í utanríkis- málahópi flokkanna hefði fært sér heim sanninn um það sem hann vissi fyrir, að ágreiningur flokk- anna væri of djúpstæður og óbrú- aður i mörgum mikilvægum mál- um til að af sameiningu þeirra gæti orðið. -SÁ Steingrímur J. Sigfússon. Sveitarstjórnarmönnum á Suðurnesjum heitt í hamsi: Gengur ekki að Reykjavík kaupi land á orkusvæði Hitaveitu Suðurnesja Frá fundi sveitarstjórnarmanna í Vogum. DV-mynd ÆMK DV, Suðurnesjum: Á aðalfundi Sambands sveitarfé- laga á Suðumesjum, sem haldinn var í Vogum 11.-12. september, var fjallað um kaup Reykjavíkurborgar á landi Þórustaða í Vatnsleysu- strandarhreppi en landinu fylgja mikil jarðhitaréttindi. Sveitar- stjórnarmönnum á Suðumesjum var heitt í hamsi og samþykktu samhljóða ályktun um að bregðast verði við ásælni Reykjavíkurborgar í landsvæði á Suðumesjum. Eins og fram kom í DV fyrir skömmu ætlar Vatnsleysustrandarhreppur að gera allt sem í hans valdi stendur til að neyta forkaupsréttar og þá mun Hitaveita Suðumesja koma þar inn í kaupin. „Það er með öllu óásættanlegt þegar orkufyrirtæki í eigu borgar- innar reynir að kaupa land með jarðvarma á orkuveitusvæði Hita- veitu Suðurnesja sem er í nánum tengslum við núverandi orku- vinnslusvæði í Svartsengi. Athygli vekur að þetta gerist á sama tíma og ekki hefur fengist virkjunarleyfi fyrir nýrri 30 MW virkjun í Svarts- engi, sem sótt var um fyrir nokkrum árum. Þar stendur á gerð samrekstrar- samnings við Landsvirkjun, sem er að stórum hluta í eigu Reykjavikur- borgar, þeirrar sömu og ætlar sér nú stóra hluti í virkjunarfram- kvæmdum. Suðurnesjamenn hafa alla þá kunnáttu og afl sem þarf til að virkja þann háhita sem er í iðrum jarðar á Reykjanesskaga og munu á engan hátt sætta sig við að mögu- leikar þeirra á orkuvinnslu verði skertir til framtíðar. Aðalfúndurinn skorar á iðnaðarráðherra að veita Hitaveitu Suðurnesja nú þegar virkjunarleyfi sem leitað hefur ver- ið eftir og lýsir jafnframt þeirri skoðun sinni að Hitaveita Suður- nesja skoði alla möguleika til þess að auka orkuvinnslu sína enn frek- ar og haldi jafnframt áfram öflugu starfi sínu við nýsköpun s.s. magnesíumverksmiðju á Reykja- nesi,“ segir i ályktun aðalfundar SSS. -ÆMK Q g D co PLOTTUN af stafrœnuformi af disk eða afnetinu. FESTA PLASTHÚBIN teikninga LJÓSRITUN ehf Hamraborg 14a (2.hæð) Sími 554 5060 Netfang:festa@islandia.is Fullorðins fjallareiðhjól 18 gíra Þjánustusfml S50 5000 www.visir.is NVR HEIMUR A NETINU TRYGGINGASTOFNUN RÍKISINS ® Styrkir til bifreiðakaupa Tryggingastofnun ríkisins veitir viðtöku umsóknum vegna styrkja sem veittir eru hreyfihömluðum til bifreiðakaupa. Nauðsyn bifreiðar vegna hreyfihömlunar skal vera ótvíræð. Umsóknareyðublöð vegna úthlutunar 1999 fást hjá afgreiðsludeild og lífeyrisdeild Tryggingastofnunarríkisins, Laugavegi 114, og hjá umboðsmönnum hennar um land allt. Umsóknarfrestur er til 31. október. _____________Tryggingastofnun ríkisins Vinningshafar í Ratleiknum með Benna 09 Birtu 15 mi Benni og Birta í Alexander D. Hilmarsson Fríða B. Björgólfsdóttir Ingibjörg Jakobsdóttir Ingibjörg A. Bergþórsdóttir Brynja Ragnarsdóttir Hrafnhildur I. Guðjónsdóttir Ómar Jónsson Erna J. Rögnudóttir Jón F. Sigurðarson Kolbrún B. Bjamadóttir Arnar I. Traustason Thelma Ó. Amarsdóttir Birkir og Hlynur Sigurjónssynir Elva E. Grétarsdóttir Inga B. Gísladóttir nr. 8510 nr. 1337 nr. 12483 nr. 12283 nr. 13270 nr. 13422 nr. 11271 nr. 13604 nr. 12362 nr. 5936 nr. 12539 nr. 13034 nr. 11358 og 11359 nr. 10543 nr. 13763 úbbur DV og Sam-myndhönd þakka öllum sem fyrir og óska vinningshöfum til hamingju r fá vinninginn sendan í pósti næstu daga. SAM WYWPBÖ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.