Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.1998, Blaðsíða 30
FIMMTUDAGUR 17. SEPTEMBER 1998
Fólk í fréttum
Tómas Árnason
Tómas Ámason, fyrrv. alþm. og
seðlabankastjóri, Efstaleiti 12,
Reykjavik, hefur lagt til að kannað
r erði til hlítar hve háa
(iinkareikninga ríkisendurskoðandi
liefur sent stofnunum sem
ííkisendurskoðun á að endurskoða,
lögum samkvæmt. Þetta kom fram í
DV-frétt í gær.
Starfsferill
Tómas fæddist á Hánefsstöðum í
Seyðisfjarðarhreppi 21.7.1923. Hann
lauk stúdentsprófl frá MA 1945, lög-
fræðiprófi frá HÍ 1949, stundaði
framhaldsnám i lögfræði við Har-
vard Law School í Bandaríkjunum
1951-52 og lauk prófi þaðan í al-
þjóðaverslunarrétti. Hann öðlaðist
hdl.-réttindi 1950 og hrl.-réttindi
1964.
Tómas rak eigin málflutnings-
stofu á Akureyri 1949-51 og 1952-53,
var stundakennari við Gagnfræða-
skóla Akureyrar samhliða erind-
rekstri fyrir framsókncufélögin á
Akureyri og blaðamennsku við Dag,
var ráðinn forstöðumaður vamar-
máladeildar utanríkisráðuneytisins
1953, var fulltrúi í ráðuneytinu og
síðan deildarstjóri til 1959, rak lög-
fræðistofu í Reykjavík ásamt Vil-
hjálmi bróður sínum 1960-72, var
framkvæmdastjóri Framkvæmda-
stofnunar rikisins
1972-84, sat á þingi sem
varaþm. 1956, 1958, 1959
og 1967-74 og þingmaður
Austurlandskjördæmis
1974-84. Hann var fjár-
málaráðherra 1978-79,
viðskiptaráðherra
1980-83 og var banka-
stjóri Seðlabanka íslands
frá ársbyrjun 1985-93.
Tómas var formaður
Orators 1947-48, formaður
vamarmálanefndar
1953-59, formaður samn-
inganefnda við verkfræðideild
Bandaríkjahers 1954, 1955 og 1957,
framkvæmdastjóri Tímans 1960-64,
í miðstjóm og framkvæmdastjóm
Framsóknarflokksins 1968-83, gjald-
keri hans 1968-78 og ritari hans
1978-83, i stjóm Framkvæmdasjóðs
íslands 1966-71 og frá 1985, í stjóm-
arskrámefnd 1976, varamaður í
stjóm Norræna fjárfestingarbank-
ans frá 1976, og í stjóm hans
1993-96, formaður ráðherraráðs
EFTA 1982, fulltrúi á Allsherjar-
þingi SÞ 1969, fulltrúi á þingmanna-
fundum NATO 1974-78 og 1983-84,
formaður utanríkismálanefndar Al-
þingis 1984, í stjóm Reiknistofu
bankanna frá 1985-93 og var aðal-
fúndarkjörinn endurskoðandi SÍS.
Fjölskylda
Tómas kvæntist 25.6.1949
Þóra Kristínu Eiríksdótt-
ur, f. 13.3. 1926, húsmóð-
ur. Hún er dóttir Eiríks
Ármannssonar, útgerðar-
manns í Dagsbrún í Nes-
kaupstað, og k.h., Guð-
nýjar Þórarinsdóttur hús-
móður.
Böm Tómasar og Þóra
Kristínar era Eiríkur, f.
8.6. 1950, hrl. og prófessor
við HÍ, kvæntur Þórhildi
Pálsdóttur Líndal deildarstjóra;
Ámi, f. 25.10. 1955, viðskiptafræð-
ingur og endurskoðandi í Reykja-
vík, kvæntur Margréti Bimu Skúla-
dóttur hjúkranarfræðingi; Tómas
Þór, f. 16.8. 1959, sagnfræðingur og
markaðsstjóri, kvæntur Helgu
Jónasdóttur kennara; Gunnar
Guðni, f. 18.2. 1963, dr. í verkfræði
frá MIT, kvæntur Sigríði Huldu
Njálsdóttur hjúkrunarfræðingi.
Bamaböm Tómasar og Þóra era nú
tólf talsins, sex drengir og sex
stúlkur.
Systkini Tómasar: Vilhjálmur, f.
15.9. 1917, hrl; Þorvarður, f. 17.11.
1920, d. 1.7. 1992, forstjóri; Margrét,
f. 1.10.1928, leiðbeinandi, móðir Val-
geirs Guðjónssonar tónlistarmanns.
Foreldrar Tómasar vora Ámi Vil-
hjálmsson, f. 9.4. 1893, d. 11.1. 1973,
útvegsb. á Hánefsstöðum, og kona
hans, Guðrún Þorvarðardóttir, f.
7.1. 1892, d. 26.10. 1957, húsfreyja.
Ætt
Ámi var bróðir Sigríðar, móður
Vilhjálms Einarssonar skólameist-
ara, foður Einars spjótkastara. Ámi
var sonur Vilhjálms, útvegsb. á Há-
nefsstöðum, Ámasonar, b. á Hofi í
Mjóaffrði, Vilhjálmssonar. Móðir
Áma á Hofi var Guðrún Konráðs-
dóttir, systir Ragnhildar, langömmu
Gísla, foður Ingvars, fyrrv. ráð-
herra. Móðir Áma á Hánefsstöðum
var Björg, systir Stefaníu, móður
Vilhjálms Hjálmarssonar, fyrrv.
ráðherra. Björg var dóttir Sigurðar,
b. á Hánefsstöðum, Stefánssonar,
bróður Gunnars, afa Gunnars
Gunnarssonar skálds. Móðir Bjarg-
ar var Þorbjörg Þórðardóttir, ætt-
foður Kjamaættarinnar, Pálssonar.
Guðrún var dóttir Þorvarðar, út-
vegsb. í Keflavík, Þorvarðarsonar,
beykis i Keflavík, Helgasonar, lang-
afa Þorvarðar Helgasonar leiklistar-
fræðings. Móðir Þorvarðar Helga-
sonar var Guðrún Finnbogadóttir,
verslunarmanns í Reykjavík,
Bjömssonar, foður Jakobs, langafa
Vigdísar Finnbogadóttm-.
Tómas Árnason.
Afmæli
Ölafur Þór Hallgrímsson
Ólafur Þór Hallgrimsson, sóknar-
prestur á Mælifelli í Skagafirði,
verður sextugur á morgun.
Starfsferill
Ólafur fæddist á Amheiðarstöð-
um í Fljótsdal en ólst upp á Drop-
laugarstöðum. Hann lauk gagn-
fræðaprófi frá Eiðum 1956, kennara-
prófi frá KÍ 1962 og embættisprófi í
guðfræði við HÍ1981. Auk þess var
hann í starfsþjálfun hjá sóknar-
prestum á Akureyri sumarið 1980.
Ólafur stundaði sumarstörf hjá
Skógrækt ríkisins á Hallormsstað
1962-64 og 1967-80. Hann var kenn-
ari í Fljótsdalsskólahverfi 1956-58,
stundakennari við Breiðagerðis-
skóla í Reykjavík 1963, kennari við
Bamaskóla Garðahrepps 1963-64,
Bamaskólann á Litlu-Laugum
1964-66 og við grannskólann á Hall-
ormsstað 1966-75. Hann var sóknar-
prestur í Bólstaðarhlíðarprestakalli
1981-83 og hefur verið sóknarprest-
ur Mælifellsprestakalls frá 1983.
Ólafur var ritstjóri Örvar-Odds,
skólablaðs KÍ, 1960-62, sat í stjóm
Bindindisfélags KÍ 1960-61, Sam-
bands bindindisfélaga í skólum
1960-62, SUS 1962-64, hefur gegnt
trúnaðarstörfum í Lionshreyfing-
unni frá 1965, er formaður MENOR
- menningarsamtaka Norðlendinga,
frá 1993 og hefur skrifað greina í
blöð og tímarit um ýmis mál.
Fjölskylda
Ólafúr kvæntist 29.7. 1962 Þórhildi
Sigurðardóttur, f. 27.4. 1944. Foreldr-
ar hennar: Sigurður Guttormsson,
bóndi á Hallormsstað, og k.h., Am-
þrúður Gunnlaugsdóttir húsfreyja.
Ólafur og Þórhildur skildu 1974.
Böm Ólafs og Þórhildar era Sig-
urður Öm, f. 30.3. 1961 (stjúpsonur),
vinnuvélastjóri, búsettur í Reykja-
hverfi, en börn hans eru Júlía og
Hermann; Páll, f. 1.6.1964, félagsráð-
gjafi, búsettur í Lundi í Svíþjóð, var
fyrst kvæntur Aldísi Garðarsdóttur
frá Grímsey og era dætur þeirra Þór-
hildur og Sonja, en seinni kona Páls
er Margrét Sigurðardóttir úr Hafnar-
firði og eru börn þeirra Hafdís og
Sigurður; Laufey, f. 7.3.1966, uppeld-
isfræðingur í Húsey í Hróarstungu,
en maður hennar er Öm Þorleifsson;
Egill, f. 21.4. 1967, búsettur í Reykja-
vík, en kona hans er Helga Hall-
bjömsdóttir.
Ólafúr kvæntist 30.6. 1981 Stein-
unni Ólafsdóttur, f. 27.5 1944, uppeld-
isfræðingi. Foreldrar hennar: Ólafúr
Einarsson, verslunarmaður í Reykja-
vík, og k.h., Guðrún Júlíusdóttir
húsmóðir.
Böm Ólafs og Steinunnar eru Guð-
finna Alda, f. 31.1. 1982, nemi við
Fjölbrautaskólann á Sauðárkróki;
Gunnhildur, f. 19.7.1984, grunnskóla-
nemi.
Systkini Ólafs eru Helgi, f. 11.6.
1935, náttúrufræðingur á
Egilsstöðum; Agnar, f.
20.6. 1940, íslenskufræð-
ingur á Egilsstöðum; Guð-
steinn, f. 7.3. 1945, bóndi á
Teigabóli í Fellahreppi;
Guðrún Margrét, f. 27.5.
1948, húsmóðir og starfs-
maður Byggðastofnunar á
Akureyri; Bergljót, f. 1.3.
1952, húsfreyja og ferða-
þjónustubóndi í Haga í
Aðaldal.
Foreldrar Ólafs: Hall-
grimur Helgason, f. 29.9.
1909, d. 30.12.1993, bóndi á Droplaug-
arstöðum í Fljótsdal, og k.h., Laufey
Ólafsdóttir, f. 31.5. 1912, húsfreyja,
nú búsett á Egilsstöðum.
Ætt
Hallgrímur var sonur Helga, b. á
Refsmýri í Fellum, Hallgrímssonar, b.
á Bimufelli, bróður Gísla, fóður Bene-
dikts frá Hofteigi og Sigurðar, pr. á
Söndum. Hallgrimur var sonur Helga,
b. á Geirúlfsstöðum, bróður Guðrún-
ar, ömmu Gunnars Gunnarssonar rit-
höfúndar. Helgi var sonur Hallgrims,
skálds á Stóra-Sandfelh, Ásmundsson-
ar, bróðm- Indriða, afa skáldanna
Jóns og Páls Ólafssona. Móðir Hall-
grims á Bimufelli var Margrét Sig-
urðardóttir, b. á Mýrum í Skriðdal,
Eiríkssonar, af Njarðvíkurættinni, og
Ólafar Sigurðardóttur, af Pamfílsætt-
inni.
Móðir Hallgríms á Drop-
laugarstöðmn var Agnes
Pálsdóttfr, b. á Fossi á
Síðu, Þorsteinssonar.
Móðir Páls var Agnes
Sveinsdóttir, b. á Fossi á
Síðu, Steingrímssonar og
Ragnhildar Oddsdóttur,
systur Guðríðar,
langömmu Jóhannesar
Kjarvals. Móðir Agnesar
var Margrét Ólafsdóttir,
systir Þuríðar, langömmu
Odds Bjömssonar leikrita-
höfundar.
Laufey er dóttir Ólafs, b. í Holti í
Fellahreppi, Jónssonar, b. á Skeggja-
stöðum, ðlafssonar, af Melaættinni.
Móðir Ólafs var Bergljót Sigurðardótt-
ir, b. í Geitagerði, Pálssonar og Þor-
bjargar Jónsdóttur, ættföður Vefara-
ættarinnar, Þorsteinssonar.
Móðir Laufeyjar var Guðlaug, syst-
ir Halldóra, langömmu Hrafns Gunn-
laugssonar. Guðlaug var dóttir Sig-
urðar, b. í Kolsstaðagerði, Guttorms-
sonar, stúdents á Amheiðarstöðum,
Vigfússonar, pr. á Valþjófsstað, Orms-
sonar, langafa Ingunnar, móður Þor-
steins Gíslasonar skálds. Móðir Guð-
laugar var Guðríður Eiríksdóttir, b. á
Hafursá, Arasonar og Þóra Ámadótt-
ur, b. á Kappeyri, Stefánssonar, ætt-
föður Sandfellsættarinnar, Magnús-
sonar. Móðir Áma var Guðrún Er-
lendsdóttir, ættföður Ásunnarstaða-
ættar, Bjamasonar.
Ólafur Þór
Hallgrímsson.
Torfi Ó. Sigurjónsson
Torfi Óldal Sigurjóns-
son, bóndi á Stórhóli í
Þorkelshólshreppi, verð-
ur áttræður á morgun.
Starfsferill
Torfi fæddist að Hörgs-
hóli í Þverárhreppi og
ólst þar upp í foreldra-
húsum.
Hann stundaði búskap
í félagsbúi að Hörgshóli
frá 1940. Hann festi kaup
á Stórhóli 1942 og hefur
ítundað þar búskap síöan.
Fjölskylda
Torfi Óldal
Sigurjónsson.
Kona Torfa er Sigríður
Konráðsdóttir, f. 12.3.
1920, húsfreyja. Hún er
dóttir Konráðs Sigurðs-
sonar, bónda að Böðvars-
hólum, og Ingveldar Pét-
ursdóttur.
Böm Torfa og Sigríðar
era: Sigurjón, f. 1.6. 1940,
fyrrum sölumaður hjá
Jötni í Reykjavík, kvænt-
ur Vilborgu Þórðardótt-
ur, þau eiga tvo syni;
Konráð Ingi, f. 25.9. 1944,
húsasmiður í Reykjavík, var kvænt-
ur Vilborgu Eddu Lárasdóttur en
þau eiga þrjár dætur; Bima, f. 4.2.
1951, kennari í Grannskólanum í
Hveragerði, en hún á einn son; Að-
alsteinn, f. 14.5. 1956, múrari í
Reykjavík, kvæntur Þuríði Hall-
dórsdóttur en þau eiga tvær dætur.
Bræður Torfa: Trausti, fyrrv.
bóndi á Hörgshóli, nú búsettur á
Laugabakka í Miðfirði; Björn, lést
ungur, kennari; Ámi, látinn, bóndi
og sjómaður; Sigurjón, pípulagn-
ingamaður í Reykjavík.
Foreldrar Torfa voru Sigurjón
Ámason, bóndi á Hörgshóli, og
kona hans, Guðbjörg Sigurðardótt-
Ætt
Foreldrar Sigurjóns voru Ámi
Ámason, b. á Hörgshóli, og Rósa
Guðmundsdóttir.
Bróðir Guðbjargar var Stefán frá
Hvítadal. Guðbjörg var dóttir Sig-
urðar, kirkjusmiðs á Hólmavík, Sig-
urðssonar, og Guðrúnar Jónsdóttur,
b. að Saurhóli Magnússonar, á
Hafnarhóli, Jónssonar, að Litla-
Holti, Skeggjasonar. Móðir Jóns var
Ingibjörg Jónsdóttir, glóa, galdra-
manns i Goðdal, Arnljótssonar.
Móðir Guðrúnar var Guðbjörg
Bjömsdóttir, hreppstj. í Litla-Holti
Jónssonar.
Torfi er að heiman.
DV
Til hamingju með afmælið 17. september
85 ára
Anna Sigurbjömsdóttir, Heiðarbraut 1, Blönduósi. Baldur Óli Jónsson, Boðahlein 11, Garðabæ. Guðmundur Ámundason, Ásum, Gnúpverjahreppi. Ólína Daníelsdóttir, Hringbraut 50, Reykjavik. Þuríöur Sigurjónsdóttir, Miðvangi 14, Hafnarfirði.
80 ára
Steingerður Kristjánsdóttir, Ægissíðu 10, Grenivík. Svala Sigurðardóttir, Nýlendu 1, Sandgerði. Þórhildur Þórarinsdóttir, Engihjalla 3, Kópavogi.
75 ára
Björgvin Alexandersson, Ljósheimum 20, Reykjavík. Freyja Jónsdóttir, Helgamagrastræti 53, Akureyri. Guðný Ásgeirsdóttir, Flétturima 6, Reykjavik. Jón Hermundsson, Birkigrand 64, Kópavogi. Kristín Hermundsdóttir, Hjaltabakka 28, Reykjavík. Sigríður Guðjónsdóttir, Bláhömrum 2, Reykjavík.
70 ára
Eiríkur Runólfsson, Eyrargötu 5, Eyrarbakka. Haukur Haraldsson, Reykjaheiðarvegi 4, Húsavík. Jakob Valdimarsson, Löngufit 18, Garðabæ. Lára Vilhelmsdóttir, Ægisgötu 14, Ólafsfirði. Magnea Garðarsdóttir, Skarðshlið 23 C, Akureyri.
60 ára
Bára Helgadóttir, Hólagötu 9, Njarðvík. Guðrún Ólína Valdimarsdóttir, Hafnarstræti 17, Akureyri. Þorsteinn Sörlason, Lækjartúni 7, MosfeÚsbæ.
50 ára
Bertha Ragnheiður Langedal, Háaleitisbraut 26, Reykjavík. Björgvin Halldórsson, Suðurgarði 5, Keflavik. Jóhann Þ. Bjamason, Æsufelli 4, Reykjavík. Kristján Páll Þórhallsson, Seiðakvísl 11, Reykjavík. Sigrún ívarsdóttir, Kárastíg 8, Hofsósi.
40 ára
Elín María Karlsdóttir, Holti 1, Selfossi. Kristinn Sigurður Gylfason, Túngötu 5, Ólafsfiröi. Linda Elíasdóttir, Melabraut 13, Seltjamamesi. Páll Sigurðsson, Langholtsvegi 95, Reykjavik. Rut Friðfinnsdóttir, Suðurgötu 31, Keflavík. Þór Þorláksson, Granaskjóli 29, Reykjavik.