Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.1998, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.1998, Blaðsíða 6
6 MÁNUDAGUR 21. SEPTEMBER 1998 Fréttir Launamál Rússanna enn 1 uppnámi: Beöið eftir Moskvulínunni - verkalýðsfélög kreQast þess að launin verði greidd þegar í stað „Eftir því sem ég best veit bíða þeir hjá Technoprom Ex- port eftir línunni frá Mosku með hvað þeir eigi að gera,“ sagði Guð- mundur Gunn- arsson, formaður Rafiðnaðarsam- bandsins, við DV í gærkvöld. For- ystumenn Raf- iðnaðarsam- bandsins færðu á það sönnur í lok síðustu viku að rússneskir starfsmenn Technoprom Ex- port, sem leggur nýju Búrfellslín- una, hafi ekki fengið greidd þau laun sem þeim ber samkvæmt kjarasamningum. Rafiðnaðarsambandið og Félag járn- iðnaðarmanna, með ASÍ að bak- hjarli, hafa gert þá skýlausu körfu að rússnesku starfsmennimir fái greidd þau laun sem þeim ber sam- kvæmt gildandi kjarasamningum og sérsamningum við hið rússneska verktakafyrirtæki og farið fram á að Landsvirkjun haldi eftir greiðsl- um til verktakafyrirtækisins sem nemur vangreiddum launum rúss- neskra starfsmanna þess. Á fundi sem Guðmundur Gunn- arsson hélt með rússnesku starfs- mönnunum á Selfossi á fostudags- kvöldið kom í ljós að Rússarnir höfðu einungis fengið útborgaða 300 dollara frá þvi þeir hófu störf á íslandi í júlímánuði. Rúss- neskur yfirmað- ur þeirra hér á landi hafði sagt þeim að íslensk- ur kjarasamning- ur um laun þeirra væri bara kjaftæði en sjálf- ur treysti hann sér ekki til að svara því fyrir framan mennina að þessi samning- ur væri í gildi. Guðmundur full- vissaði Rússana um að þeir fengju greitt sam- kvæmt samningnum og að hann væri í fullu gildi og skýrði út fyrir þeim að íslensk stéttarfélög gætu ekki liðið það að menn væru að vinna hér í landinu á mun lægri launum en þeir ættu að gera. „Það þýddi að verið væri að eyðileggja margra áratuga kjarabaráttu okk- ar og þeir skildu það mjög vel,“ sagði Guðmundur. Eftir fundinn með Rússunum á föstudagskvöldið áttu forystu- menn Rafiðnaðarsambandsins, Fé- lags járniðnaðarmanna og ASÍ fund með fulltrúum Landsvirkjun- ar og fóru þeir fyrrnefndu fram á Guðmundur Gunnarsson, formaður Rafiðnaðarsambandsins. Lavamat W 80 Þvottavél á frábæru verði Tekur S kg • Vindingarhraði: 800/400 snúningar Ryðfrír belgur og tromla • Sjálfvirkt magnskynjunarkerfi - nýjasta tækni. „Fuzzy- Logic“ enginn 1/2 takki • „ÖKO“ kerfi (sparar sápu) • Öll þvottakerfi Ullar vagga • Pvottahæfni „B“ þeytivinduafköst „C“ kr. 49.900 stgr. BRÆÐURNIR IQRMSSONHF Lágmúla 8 • Sími 5332800 að Landsvirkjun héldi eftir greiðslum til rússneska verktaka- fyrirtækisins sem svaraði til van- greiddra launa rússnesku starfs- mannanna og er það mál til athug- unar hjá Landsvirkjun. Ákvæði er í verksamningnum milli Lands- virkjunar og Technoprom Export um að ef verktakinn stendur ekki við ákveðna þætti megi halda greiðslum eftir til tryggingar. Landsvirkjun kallaði fulltrúa Technoprom Export á sinn fund á laugardag og gerði þeim grein fyr- ir stöðunni. Þeir munu ekki hafa treyst sér til að ganga frá málinu nema að höfðu samráði við höfuð- stöðvarnar í Moskvu. Viðbragða þaðan er að vænta I dag. „Við höf- um gert bæði Landsvirkjun og fulltrúum Technoprom Export það ljóst að við sættum okkur ekki við það að aðeins séu sendir einhverj- ir pappírar til Vinnumálastofnun- ar. Við komumst að þvi í síðustu viku að slíka pappíra er ekkert að marka. Þetta fyrirtæki er með ís- lenskt rekstrarleyfi. Það er ekki í gildi tvísköttunarsamningur milli Islands og Rússlands. Það þýðir að þetta fyrirtæki verður að fara í einu og öllu eftir íslenskum lögum og kjarasamningum og gera upp öll laun á íslandi sem þýðir að þeir eiga að greiða öll laun inn á launa- reikning sérhvers starfs- manns.Við krefjumst þess að það verði gert,“ sagði Guðmundur Gunnarsson. -SÁ ; §m-; J £ W- ■ fcití i WÍ. $> - Halldór J. Kristjánsson, bankastjóri Landsbanka íslands, til vinstri, var á ferð um Suðurnesin nýverið. DV-mynd ÆMK Suðurnes: Landsbankinn í sókn DV, Suðurnesjum: Mikil aukning hefur verið á umsvifum Landsbankans á Suður- nesjum undanfarin misseri. Útlán jukust um 37,5% á síðasta ári. Fyrstu 6 mánuði þessa árs hafa innlán aukist um rúmlega 40%. Viðar Þorkelsson, svæðisstjóri Landsbanka íslands á Suðurnesj- um, hefur getið sér afar gott orð á Suðurnesjum en hann er lands- þekktur maður enda var Viðar í landsliði íslands i knattspyrnu og körfuknattleik á árum áður. Halldór J. Kristjánsson, banka- stjóri Landsbanka íslands hf., var nýverið á ferð um Suðumesin. Halldór heimsótti forráðamenn stærstu fyrirtækjanna sem eiga viðskipti við bankann og snæddi hádegisverð með fulltrúum sveit- arfélaganna á Suðurnesjum á Glóðinni í Keflavík. Þá heimsótti Halldór útibú bankans á svæðinu og kynnti sér starfsemi þeirra og ræddi við starfsfólk. í för með Halldóri voru Brynjólf- ur Helgason, framkvæmdastjóri fyrirtækja- og stofnanasviðs, og Viðar Þorkelsson ásamt öðrum stjórnendum á svæðinu. Fram kom í máli Halldórs að það skipu- lag sem byggt hefur verið upp í svæðisútibúi bankans í Keflavík, m.a. með ráðningu sérfræðinga í einstaklings- og fyrirtækjavið- skiptum, sé framtíðarskipulag það sem hann sjái í öllum svæðisútibú- um bankans. „Markmiðið með ferðinni var að kynna nýja stefnu bankans og efla tengsl við viðskiptavini og bæjar- félögin á Suðurnesjum. Hvarvetna þar sem við komum var vel tekið á móti okkur," sagði Viðar Þorkels- son. -ÆMK Mettúr hjá Arnari HU-1: Hásetahluturinn 1100 þúsund DV, Akureyri: Amar HU-1, frystitogari Skag- strendings hf. á Skagaströnd, kom til heimahafnar um helgina eftir mjög vel heppnaða veiðiferð. Afla- verðmæti er um 106 milljónir króna og telja forráðamenn út- gerðarinnar líklegt að um mesta aflaverðmæti flaka frystitogara af íslandsmiðum úr einni veiðiferð sé að ræða. Skipið var 30 daga í veiðiferð- inni en ef aðeins eru taldir þeir dagar sem skipið var að veiðum var aflaverðmæti um 3,5 milljónir á hverjum degi. Skipið var að veið- um á Vestfjarðamiðum og var um 60% aflans þorskur en afgangur- inn mest grálúða. Hásetahlutur úr veiðiferðinni er talinn vera um 1,1 milljón króna. Síðustu túrar Arnars hafa einnig verið mjög góðir þótt þeir jafnist ekki á við þennan. „Það virðist vera nóg af þorski í sjónum og grálúðuveiðin í ár hefur verið mun betri en áður. Fiskurinn er því nægur en síðan er það kvótinn sem skammtar mönnum hversu mikið þeir mega veiða,“ segir Gylfi Guðjónsson, útgerðarstjóri Skagstrendings. Kvótastaða Arn- ars er mjög sterk en samkvæmt út- hlutun í upphafi fiskveiðiárs er skipið með mestan heildarkvóta íslenskra skipa, eða 6321 þorskígildistonn sem er 1,38% heildarkvótans. -gk Chevrolet Camaro Z-28 '95, blæjubíll, sá flottasti á landinu, hvítur, leðursæti, allt rafdr., ABS, crus., loftpúði, ek. 58 þús. km. Verð 2.850.000, skipti ath. Ford Taurus GL stw '93 (einnig 1995), grænsans., vél V-6 3000, rafdr. rúður, samlæs., crus., loftpúði o.fl., ek. 62 þús. km. Verð 1.260.000, skipti ath. VW bjalla '98, hvít, snotur bjalla, ein með öllu, ek. 2 km, rafdr. rúður, þjófav., samlæs., 2000 vél, 16“ álfelgur, meiri háttar bíll. Verð 2.700.000, skipti ath. Toyota Rav-4 '98. snotur jeppi. dökkgrænsans.. ssk., álf., rafdr. rúður, fjarst. samlæs.. króm-siisabretti. ek. 750 km. nýr frá umboðinu. Verð með aukabtutum 2.380.000, ath. skipti. Funahöfða 1 Sími 587-7777 Fax 587-3433

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.