Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.1998, Blaðsíða 31

Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.1998, Blaðsíða 31
39 r \ 1 1 9 J I I I I 1 i 1 i i I 9 ; I i ; i i j i í i MÁNUDAGUR 21. SEPTEMBER 1998 Minni fugla kemur á óvart Muna eins og mannfólkið Atferlisfræðingar hafa komist að þeirri niðurstöðu að fuglar séu alls ekki svo vitlausir. Þeir vilja meina að fuglar búi jafiivel yfir þeim eigin- leika að geta ekki bara munað eftir liðnum atburðum, heldur einnig hvenær þeir gerðust. Áður hafði verið talið að mannfólkið eitt lífvera byggi yfir þessum eiginleika. Fuglamir sem rannsakaöir voru kallast skrækskaðar (Scrub Jays). Rannsóknin fór fram þannig að fuglarnir voru látnir geyma uppá- haldsmatinn sinn, lirfur, öðrum megin á bakka sem fullur var af sandi. Á hinum enda bakkans geymdu fuglamir hins vegar hnet- ur. Fuglarnir voru síðan teknir í burtu í mismunandi langan tíma. Ef þeir fengu að koma aftur innan f]ög- urra tíma sóttu þeir alltaf lirfumar aftur. Ef lengri tími leið þá jukust hins vegar líkumar á því að fugl- arnir næðu sér frekar í hneturnar því þeir vissu sem veir að lirfurnar rotnuðu eftir þvi sem lengri tími „Hvar ætli ég hafi látið bfllyklana?“ Fuglar eru líkari mannfólkinu en við höldum. leið frá því þær vom grafnar. Ákvarðanataka sem þessi bendir til þess að fuglarnir búi yfir minni sem kallað hefúr verið „atburða- tengt minni“. Stundum nefna vís- indamenn það „huglægt tímaflakk“, vegna þess að það byggist á huglæg- um myndum fólks af liðnum atburð- um. Til að muna hvar þú settir bíllyklana get- ur þú „séð“ sjálfan þig ganga inn heima hjá þér kvöldið áður og henda lyklunum á forstofuborð- ið. Þessi teg- und minnis er hins vegar í grundvallarat- riðum mjög ólík því að muna stað- reyndir, eins og þá hvar bfUyklarnir séu. Þar sem leiðir fúgla og manna í þró- unarferlinu skildu fyrir 250 milljón árum geta vís- indamenn í kjölfar þessar- ar niðurstöðu leitt líkum að því að geymsla upplýsinga í heilum lífver- anna hafi líklega byrjað að þróast fyrir tima risaeðlanna. Meðal þess sem SeaWIFS-gervi- tunglið tekur myndir af eru fellibylir. Nýjar gervitunglamyndir: Púlsinn tekinn Fyrir um það bil ári fengu vís- indamenn hjá NASA fyrstu mynd- imar frá gervitunglinu SeaWIFS. Það er sérhannað til að fylgjast með gróðurríki allra heimsins hafa. Nú, eftir að hafa safnað myndum í heilt ár, hefur NASA sett saman „bíó- mynd“ sem sýnir allar breytingar á gróðri hafsins á einu ári. „Eins og allar lífverur hefur Jörð- in púls,“ segir Gene Feldman, sér- fræðingur hjá NASA. „Púlsinn er sólarupprás og sólsetur, árstíðir og aörar breytingar frá ári til árs. Það sem við erum að gera með þessari rannsókn er að taka púlsinn á Jörð- inni; fylgjast með lífsmarki hennar úr fjarlægð.“ Það sem vísindamönnum fannst athyglisverðast við rannsóknina er að þeir gátu fylgst með áhrifum veð- urfyrirbærisins E1 Nino. Sérstak- lega fylgdust þeir með Galapagos- eyjum í þessu samhandi, en þar gætti áhrifa E1 Nino mjög snemma. Þeir komust að því að plöntur við eyjamar næstum þurrkuðust út og sjórinn kringum eyjamar varð eins og eyðimörk um leið og kvikindið lét á sér kræla. En þeir komust síðan að því að ástandið er fljótt að batna. Þegar E1 Nino geispaði golunni og La Nina kom í staðinn var eins og gleði- sprenging hefði átt sér stað í lífríki hafsins við eyjamar. Á örfáum dög- um spratt allt sem spratt getur og gróðurinn blómstraði sem aldrei fyrr. Það er ætlun vísindamanna NASA að með hjálp SeaWIFS verði auðveldara að spá fyrir hvernig breytingar á veðri og hitastigi muni hafa áhrif á lífríki jarðar i framtíð- inni. General tlectric GENERAL ELECTRIC ÞVOTTAVEL, 1000 SNUNINGA MLKLA RAFTÆKJAVERSLUN lAUC.AVEGI 172 • 105 KEYKJAVIK • SIMI 569 5770 RETT VERÐ 55.900,- AÐRIR SOLUAÐILAR: HEIMSKRINGLAN K.KINCJIUNNI RAFMÆTTI lAi NARHRpi. HUOMSYN -NnRANES RAFSTOFAN 'RC'ARNtSÍ JOKO \K; YRI VÍK N: KKAU-'SSiAD KÁStllOSSÍ Mazda 626 GLX '93,4 d., ssk., ek. 69 þús. km, grár. Verð 1.310.000. MMC Galant GLSi '92,5 d., ssk., ek. 120 þús. km, rauður, álfelgur. Verð 1.080.000. VWGolfCL '97,3ja d.,5 g., ek. 31 þús. km, grænn. Verð 1.050.000. MMC Lancer station '93, 5 d., ssk., ek. 106 þús. km, hvítur. Verð 830.000. ( MMC Pajero '92,5 d., 5 g. ek. 165 þús. km, grænn/brúnn, topplúga. Verð 1.680.000. Subaru Impreza '96,5 d., 5 g., ek. 38 þús. km, vínrauður. Verð 1.420.000. MMC Colt GLi '92,3ja d. ’ 5 g., ek. 98 þús. km, blár. Verð 590.000. Borgartúni 26, símar 561 7510 & 561 7511 f I

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.