Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.1998, Side 28
M
^36
wk
Heimabíó
Hann Evan Mather er Seattle-
búi sem hefur áhuga á Star
Wars. Hann hefur gert sínar
eigin tölvubíómyndir sem
byggja á persónum úr Stjömu-
stríði. Þær er hægt að skoöa á
heimasíðu hans,
http://www.jedinet.com/
cinema/
Glasamottur
Margir eru haldnir söfnun-
aráráttu og til eru þeir sem
safna glasamottum sem ætlað-
ar eru fyrir bjórglös. Athvarf
þeirra á Netinu er
http://www.beercoasters.
com/
Rokkfréttir
Áhugafólk um tónlist og þá
sérstaklega í framsæknari
kantinum getur fundið fréttir,
-^plötudóma og margt fleira á
hinni stórgóðu heimasíðu
http://www2.rocktropol-
is.com/main/rt.asp
Trufluð tilvera
Teiknimyndaþættirnir
South Park eru gríðarlega vin-
sælir í Bandarikjunum. I
kvöld hefjast sýningar á þeim
í fyrsta sinn á íslandi á sjón-
varpsstöðinni Sýn undir heit-
inu Trufluð tilvera. Þeir sem
vilja fræðast nánar um þætt-
ina ættu að skoða
http://www.comedycentral.
com/southpark/
"Tónlistarmyndbönd
Víða er hægt að horfa á tón-
listarmyndbönd á Netinu. Ein
þeirra heimasiðna sem bjóða
upp á þessa þjónustu er
http://www.vidnetusa.com/
Oz á Netinu
íslensku tölvurisamir í Oz
eru að sjálfsögðu á Netinu en
heimasíða þeirra er
http://www.oz.com/
'
Daikatana
Þeir sem eru spenntir fyrir
leiknum Daikatana sem hefur
verið væntanlegur á markaðinn
í tvö ár geta fengið nýjustu
fréttir af honum á heimasíð-
unni
http://www.stormtroopers.
- »:om/daikatana/
Tarot á tölvuöld
Skemmtilega heimasíðu þar
sem tarotspil hafa verið færð til
nútímans er að flnna á slóðinni
http://www.sjgames.
com/svtarot/
jí vefur og iölvur
MÁNUDAGUR 21. SEPTEMBER 1998
Starr-skýrslan tvíeggjað vopn:
Tvöfalt siðgæði repúblikana
- vilja ritskoða Netið en standa sjálfir fyrir klámfengnum lýsingum
Skýrsla Kenneths Starr um Clinton Bandaríkjaforseta hefur víða valdið deilum og m.a. hefur hún orðið bitbein í
umræðunni um það hvort ritskoða eigi Netið.
Skýrsla Kenneths Starr saksókn-
ara sem fræg er orðin hefur ekki
bara opinberað kynhegðan Clint-
ons Bandaríkjaforseta eða nær-
fatasmekk Monicu Lewinsky. Hún
hefur einnig dregið fram í dagsljós-
ið hræsni margra þingmanna sem
vilja setja lög um ritskoðun Nets-
ins, að mati þeirra sem andsnúnir
eru slíkum lögum.
„Stór hluti þeirra þingmanna
sem standa fyrir frumvörpum um
ritskoðun á klámfengnu efni á
heimasíðum voru meðmæltir því
að dreifa skýrslu Starr óhindrað á
Netinu. Skýrslan inniheldur þó
efni sem fellur að öllu leyti undir
skilgreiningu sömu þingmanna á
klámi,“ segir Stanton McCandlish
hjá fyrirtækinu Electronic Frontier
Foundation, EFF, sem berst fyrir
ritfrelsi á Netinu.
McCandlish nefndi sem dæmi
þingmanninn Ernest Istook frá
Oklahoma, en hann er höfundur
frumvarps sem nokkur styrr hefur
staðið um að undanfornu. Frum-
varpið mun skylda cillar opinberar
skólastofnanir og bókasöfn til að
nota sérstakan síunarhugbúnað til
að sía út allt efni sem getur talist
klámfengið. Istook var meðmæltur
því að skýrslan yrði birt á Netinu,
en verði frumvarp hans að lögum
mun fólk ekki geta skoðað skýrsl-
una í opinberum skólum eða bóka-
söfnum.
Nauðsynlegar upplýs-
ingar ritskoðaðar
Istook neitar hins vegar að hér
sé um hræsni af hans hálfu að
ræða. „Klámvandinn á Netinu felst
einungis að litlum mæli í texta, það
eru myndimar sem valda mestum
skaða,“ vill hann meina. „Það eru
engar myndir í skýrslu Starrs. Að
auki er mikill munur á efni sem
ætlað er að tæla og því sem skil-
greina má óvefengjanlega sem
nauðsynlegar upplýsingar til handa
almenningi."
En sérfræðingar hjá EFF segja
að þarna liggi hundurinn grafinn.
Þessar „nauðsynlegu upplýsingar"
eru nefnilega samkvæmt rannsókn-
um þeirra ekki aðgengilegar á
nærri þvi öllum tölvum í Banda-
ríkjunum. Það er ýmiss konar síim-
arhugbúnaður i ætt við þann sem
Istook vill fá í alla skóla og bóka-
söfn sem gerir það að verkum að
skýrslan er óaðgengileg.
Skjóta sig í fótinn
Þar með hefur meðferð Banda-
ríkjaþings á skýrslu Starrs orðið
til þess að vefengja alla stefnu
stjórnvalda þar í landi hvað varð-
ar ritskoðun flölmiðla, að mati
McCandlish hjá EFF. „Þingið hef-
ur aldeilis skotið sig í fótinn í
þessu máli,“ að hans mati. „Við
höfum í raun fengið í hendurnar
rakið dæmi um það hversu vafa-
samt er að ritskoða Netið og setja
lög og reglugerðir þar að lútandi.
Að auki sýnir þetta okkur að sí-
unarhugbúnaður mun ekki bæta
úr skák hvað þetta varðar. Afleið-
ingar laga eins og þeirra sem
Istook vill setja munu einungis
verða til þess að gera Ameríku
heimskari."
Gas er einn orkugjafa alheimsins og hér er eitt skipanna f Homeworld á
leiðinni að virkja gasský.
Það nýjasta í herkænskuleikjum:
Heimkynnin endurheimt
Fyrir langalöngu var kynstofn
þinn í blóma, friðsæll og langt kom-
inn á þróunarbrautinni. Síðan kom
vondi kynstofninn, rændi plánetu
forfeðra þinna og sendi þá til vetrar-
brautar langt í burtu. í dag ertu orð-
inn leiðtogi afkomenda þeirra og
verkefni þitt er að endurheimta
heimkynnin.
Nokkurn veginn svona er sögu-
þráðurinn í leiknum Homeworld
sem er í framleiðslu um þessar
mundir hjá Relic-genginu. Talsvert
hefur verið talað um þennan leik að
undanfórnu og telja verður líklegt að
hann slái í gegn þegar hann kemur
út. Homeworld er af ætt herkænsku-
leikja (Real Time Strategy) en fræg-
astir þeirra eru líklega Command og
Conquer. Það sem gerir þennan nýja
leik hins vegar einstakan er að hann
gerist úti í geimnum og því bætist
þriðja víddin við, fólk þarf að stjóma
her sem hægt er að senda í bókstaf-
lega allar áttir.
Þeir sem fengið hafa að skoða leik-
inn í vinnslu segja að einstaklega vel
hafi tekist til. Að þess sögn er
Homeworld þannig úr garði gerður
að tilkoma þriðju víddarinnar mglar
menn ekki fullkomlega í ríminu. Sá
sem spilar leikinn getur fest sjónar-
hornið á hvaða skip úr flota sínum
sem er og þannig fært sig nær eða
flær bardögum án vandræða. Að
auki getur hann skipað hópum geim-
skipa að mynda ákveðin mynstur,
t.d. mynda vörn í kringum skip sem
geta ekki varið sig o.s.frv.
Aðdáendur herkænskuleikja ættu
að sefla sig í startholurnar, það er ný
vídd á leiðinni. -KJA
Hernaðar-
leyndarmál
á glámbekk
Verst geymda
hernaðarleyndar-
máli ísraels hef-
ur veriö Ijóstraö
upp á heimasíöu
sjálfs ísraelska hersins. Þar má nú
sjá þaö sem flestir Israelsbúar auk
allra þjóöa sem aögang hafa aö ijós-
myndum njósnagervihnatta hafa vit-
að um árabil: Staösetningu allra 12
herflugvalla Ísraelsríkis. Hingaö til
hafa hernaöaryfirvöld í ísrael skyld-
að fréttastofur til aö greina ekki frá
staösetningu vallanna heldur segja
aöeins aö þeir séu „einhvers staö-
ar í ísrael." Nú er hins vegar hægt
aö sjá nöfn og staösetningar flug-
vallanna á heimasíöunni
http://www.laf.org.il
Netglæpir valda ugg
Á alþjóölegri ráöstefnu löggæslu-
manna sem höndla meö glæpi
tengda efnahagslífinu var mikið fjall-
aö um tölvuvæöingu glæpamanna.
Á ráöstefnunni, sem haldin var í
Cambridge á Englandi, kom fram aö
lögregla um allan heim á í miklum
vandræöum meö aö halda í viö
glæpamennina hvaö tæknivæöingu
snertir. Alþjóölegir glæpahringir nýta
sértölvutæknina mikiö, sérstaklega
þegar kemur aö peningaþvætti, því
hægt er aö senda háar peningaupp-
hæöir milli heimshluta á örskots-
stundu meö hjálp Netsins. „Viö höf-
um búiö til upplýsingahraöbraut án
hraðatakmarka
og án umferöar-
reglna," varö
einum ráö-
stefnugesta aö
orði.
lime Warn-
er á Netið
Fjölmiölarisinn Time Warner tilkynnti
fyrir skömmu aö fyrirtækiö væri á
leiöinni inn á hinn sívaxandi heim
netviöskipta. Verslunin hefur ekki
enn hlotið nafn en hún mun aö öll-
um líkindum veröa opnuö innan árs.
Á boðstólum veröa myndbönd, bæk-
ur, fatnaöur auk annarra vara sem
fyrirtækiö framleiöir. Talsmenn Time
Warner segja aö meö þessu séu þeir
aö taka stórt stökk inn í nútímann
en fyrirtækiö hefur rekiö öfluga póst-
verslun undanfarin ár.
Tækifæri fyrir tónlistarfólk
Stjórnandi heimasíöunnar
http://www.mp3.com/, einnar vin-
sælustu MPEG-síðu á Netinu, hefur
nú gert heimasíöuna aö útgáfufýrir-
tæki fyrir efnilega tónlistarmenn. Út-
gáfan ber nafniö Digital Automatic
Music, DAM, og á hennar snærum
eru óþekktir tónlistarmenn. Allir sem
vilja geta skráö sig hjá útgáfunni og
veitt aögang aö tónlist sinni á MP3
hljóöskrám. Þeim serri líkar tónlist-
in er svo gert kleift aö panta geisla-
diska í gegnum heimasíöuna.