Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.1998, Side 6
6
MIÐVIKUDAGUR 23. SEPTEMBER 1998
Fréttir___________________________________pv
Óvissa í framboðsmálum á Norðurlandi vestra:
Tvær Sauðárkrókskonur
áberandi í umræðunni
- leiðir Anna Kristín Gunnarsdóttir lista A-flokkanna og Kvennalista? - Herdís Sæmundardóttir talin líklegust í 2. sætið hjá Framsókn
DV, Akureyri:
Þótt undirbúningur vegna fram-
boðsmála á Norðurlandi vestra
vegna kosninganna til Alþingis á
næsta ári sé ekki langt kominn, fer
ekki hjá því að menn séu farnir að
velta fyrir sér hvaða framboðslistar
muni koma fram og hverjir muni
skipa efstu sæti þeirra. Vangavelt-
urnar snúast ekki hvað síst um
hverjir muni leiða sameiginlegt
framboð A-flokkanna og Kvenna-
lista en nokkur nöfn hafa verið
nefnd í því sambandi. Þá er einnig
mikið horft til þess hver muni taka
2. sætið á lista Framsóknarflokksins
þegar Stefán Guðmundsson dregur
sig í hlé, eins og hann hefur lýst yfir
að hann muni gera.
Norðurland vestra hefur lengi
verið sterkt vígi Framsóknarflokks-
ins. í kosningunum árið 1995 fékk
flokkurinn þó óvenjugóða niður-
stöðu, bætti við sig 6,4% atkvæða og
fékk 38,7% og tvo menn örugga á
þing eins og áður, Pál Pétursson
sem var í fyrsta sæti og Stefán Guð-
mundsson. Flokkurinn hlaut aðeins
betri útkomu í einu kjördæmi, á
Austurlandi.
Margir nefndir
Páll Pétursson og Stefán Guð-
mundsson tókust á um 1. sætið fyr-
ir kosningarnar 1995 og lauk þeirri
viðureign með sigri Páls. Talið er
borðleggjandi, sama hvaða aðferð
framsóknarmenn nota við að koma
saman lista sinum í kjördæminu
nú, að Páll félagsmálaráðherra skipi
efsta sæti listans, annað hvarflar
Fréttaljós
Gylfi Kristjánsson
ekki að neinum. Umræðan snýst þvi
um 2. sæti listans, sæti Stefáns, sem
að óbreyttu ætti að vera tryggt þing-
sæti.
Það er áberandi í þeirri umræðu
að Skagfirðingar „eigi“ það sæti þar
sem Páll Pétursson er Húnvetning-
ur. Augu manna beinast þvi fyrst og
fremst að hugsanlegum frambjóð-
endum í Skagafirði og þá kemur
nafn Herdísar Sæmundardóttur á
Sauðárkróki oftast upp á borðið.
Herdís skipaði 5. sætið í kosningun-
um 1995. Hún leiddi lista Framsókn-
arflokksins með mjög góðum ár-
angri i sveitarstjórnarkosningunum
i vor og þykir vegur hennar hafa
vaxið mikið við það.
Nafn Ómars Braga Stefánssonar,
sonar Stefáns Guðmundssonar, frá-
farandi þingmanns, er einnig nefnt
í sambandi við 2. sætið og töldu
sumir viðmælendur DV sem nefndu
hann að hugsanlegt væri að unnið
sé bak við tjöldin að því að tryggja
að hann „erfi“ sæti fóðurins. Á það
er þó einnig bent að hann sé ekki
með mikla reynslu í pólitík og þá
gæti hann goldið þess í þessari bar-
áttu að vera sonur Stefáns.
Þá er altalað að Ámi Gunnars-
son, formaður Sambands ungra
framsóknarmanna, hyggi gott til
glóðarinnar og vilji í 2. sætið. Árni
er hins vegar mjög umdeildur með-
al framsóknarmanna og það er held-
ur ekki talið honum til framdráttar
Herdís Sæmundardóttir á Sauðár-
króki. Tekur hún sæti Stefáns Guð-
mundssonar á lista Framsóknar-
flokksins?
að vera aðstoðarmaður Páls Péturs-
sonar félagsmálaráðherra. Margir
ganga reyndar svo langt að segja að
það útiloki hann frá 2. sætinu.
Þótt augu manna beinist aðallega
að Skagafirði, þegar rætt er um 2.
sæti framsóknarlistans, eru einnig
nefnd nöfn úr Húnavatnssýslunum
og þá oftast nafn Elinar R. Líndal úr
vestursýslunni sem skipaði 3. sætið
í kosningunum 1995 og er því vara-
þingmaður flokksins. Hún er einnig
oddviti framsóknarmanna í sameig-
inlegu sveitarfélagi í V-Húnavatns-
sýslu. Elín er sögð geta hugsað sér
2. sætið, en ekki er talið að eining
geti orðið um hana í því sæti, fyrst
og fremst vegna þess að hún er Hún-
vetningur en ekki Skagfirðingur. Þá
er nafn Magnúsar Jónssonar, sveit-
arstjóra á Skagaströnd, sem var í 4.
sætinu 1995, nefnt og talið hugsan-
legt að Skagfirðingar gætu sætt sig
við hann sem málamiðlun ef ekki
næst samstaða um frambjóðanda úr
þeirra röðum í 2. sæti listans, en
það yrði neyðarlending.
Óvissa hjá A-flokkunum
Ekki er minni óvissa þegar kem-
ur að því að huga að frambjóðend-
um í efstu sæti sameiginlegs fram-
boðslista A-flokkanna og Kvenna-
lista. Ragnar Arnalds, þingmaður
Anna Kristín Gunnarsdóttir. Hún er
af mörgum talin líklegust til að leiða
framboð A-flokkanna og Kvenna-
lista á Norðurlandi vestra.
Alþýðubandalagsins, dregur sig nú í
hlé eftir langan þingmannsferil. Al-
þýðubandalagið bætti við sig 3,6%
fylgi í kosningunum 1995 og fékk
15,5% og einn mann kjörinn eins og
áður. Alþýðuflokkurinn fékk hins
vegar slæma kosningu þá, tapaði
6,7% , fékk 5,0% og ekki mann kjör-
inn frekar en í kosningunum 1991.
Alþýðuflokkurinn fékk hvergi í
kosningunum 1995 lakari útkomu
en á Norðurlandi vestra.
Meginástæða þess er talin sú að
Þjóðvaki fékk þá 6,8% sem þó nægði
ekki til að koma Sveini Allan
Morthens, efsta manni listans, á
þing. Sveinn Allan er einn þeirra
sem eru orðaðir við lista sameigin-
legs framboðs A-flokka og Kvenna-
lista. Það er þó ekki gefið að hann
eigi þar greiða leið, hann yfirgaf Al-
þýðubandalagið 1995 til að ganga til
liðs við Jóhönnu Sigurðardóttur,
allaballar hafa ekki allir fyrirgefið
það hliðarspor, og kratar kenna
honum margir um slæma útkomu
sína í síðustu kosningum.
Anna Kristín tilbúin
Anna Kristín Gunnarsdóttir á
Sauðárkróki hefur „gefið sig upp“
og er tilbúin í slaginn fyrir sameig-
inlegt framboð. Hún kemur úr röð-
um Alþýðubandalagsins og er
Hjálmar Jónsson. Hann er talinn ör-
uggur með sæti sitt eins og Vil-
hjálmur Egilsson.
þrautreynd úr sveitarstjómarmál-
um sem bæjarfulltrúi á Króknum til
fjölda ára. Signý Jóhannesdóttir,
formaður Verkalýðsfélagsins Vöku
á Siglufirði, kemur einnig úr röðum
Alþýðubandalagsins og hefur lýst
því yfír að hún hafl áhuga á fram-
boði.
Kristján L. Möller, oddviti krata á
Sigluflrði, er einnig sterklega orðað-
ur við framboð og má telja nær ör-
uggt að hann slái til. Þá er nefndur
til sögunnar Jón Bjarnason, skóla-
stjóri Bændaskólans að Hólum.
Loks hefur nafn Jóns Sæmundar
Sigurjónssonar, fyrrum þingmanns
krata í kjördæminu, borið á góma,
en ekki era taldar líkur á að hann
hyggi á endurkomu í pólitíkina.
Það er athyglisvert, þegar rætt er
um hugsanlega frambjóðendur sam-
eiginlegs framboðs í kjördæminu,
að ekkert nafn kvennalistakonu
kemur upp á borðið. „Kvennalista-
konur finnast ekki hér í kjördæm-
inu,“ sagði einn viðmælandi DV.
Kvennalistinn fékk 3,2% á Norður-
landi vestra í kosningunum 1995.
Enginn stuðningur
Sömu sögu er að segja um stuðn-
ing við vinstri flokkinn hugsanlega
sem á Norðurlandi er fyrst og
fremst kenndur við Steingrím J.
Sigfússon. Svo virðist sem það fram-
boð hafi sáralítinn stuðning í kjör-
dæminu ef marka má samtöl við
fjölda manns þar og nákvæmlega
það sama virðist eiga við um Sverri
Hermannsson og hugsanlegt fram-
boð flokks hans þar.
Ef eitthvað virðist borðleggjandi i
pólitíkinni í kjördæminu annað en
að Páll Pétursson skipi efsta sætið
hjá Framsókn, þá virðist það vera
að Hjálmar Jónsson skipi 1. sætið
hjá sjálfstæðismönnum og Vilhjálm-
ur Egilsson 2. sætið. „Þeir hafa unn-
ið mjög vel hér í kjördæminu, verið
sjáanlegir og haldið vel utan um
hjörðina sína. Það hreyfir þá eng-
inn,“ sagði viðmælandi úr röðum
krata. Slíkur vitnisburður úr her-
búðum andstæðinganna segir ekki
nema eitt, að við þeim verði ekki
hróflað. Sjálfstæðismenn fengu
30,8% atkvæða 1995.
Mörgu ósvarað
Eins og fram kemur hér að fram-
an er ýmsum spurningum ósvarað
vegna framboðsmála A-flokkanna
og Kvennalista annars vegar og
Framsóknarflokksins hins vegar.
Það sem talið er líklegast í stöðunni
þarf ekki endilega að ganga eftir, en
það er að Herdís Sæmundardóttir á
Sauðárkróki fái 2. sætið hjá Fram-
sóknarflokknum, að Anna Kristín
Gunnarsdóttir á Sauðárkróki skipi
1. sætið á lista sameiginlega fram-
boðsins og Kristján L. Möller á
Siglufirði 2. sætið. En pólitík er
skrýtin tík eins og sagt hefur verið
og eitt og annað á eflaust eftir að
ganga á áður en þessar línur skýr-
ast endanlega. Það kann að ráða
miklu um skipun efstu sætanna á
sameiginlega listanum með hvaða
hætti verður gengið frá listanum.
„Það verður að fara fram einhvers
konar prófkjör, en það er líka ör-
uggt að einhverju verður að hand-
raða. Þetta verður erfitt svona í
fyrsta skipti," sagði einn viðmæl-
enda DV úr röðum krata.
Það virðist hins vegar alveg ljóst
að á Norðurlandi er sáralítill hljóm-
grunnur fyrir vinstra framboðinu
eða framboði á vegum Sverris Her-
mannssonar. Viðmælendur DV í
kjördæminu voru á einu máli um að
ekkert benti til þess að þessi fram-
boð, komi þau á annað borð fram,
muni fá fylgi sem neinu nemur.
-gk
IBHS9