Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.1998, Blaðsíða 9
MIÐVIKUDAGUR 23. SEPTEMBER 1998
9
DV
Útlönd
Forseti FIDE og Kalmikíu býöur til veislu:
Ól-skákmót í
skugga morðs
Minnst spilling
í Danmörku
Danmörk er minnst spillta land
í heimi samkvæmt niðurstöðum
rannsóknarstofnunarinnar Tran-
sparency Intemational sem
kynntar vom í gær. Rannsóknin
er byggð á mati fulltrúa viðskipta-
lífsins og almennings. ísland er í
fimmta sæti. Finnland, Svíþjóð og
Nýja-Sjáland em fyrir ofan ísland
auk Danmerkur.
Mesta spillingin er í Kamerún
og hefur landið tekið við sæti Ní-
geríu sem skipaði neðsta sætið í
fyrra. Spilltasta landið í Evrópu
er Rússland.
Kennarar í
Síberíu fá
vodka í laun
Kennarar í Altai í vesturhluta
Síberiu fá 15 vodkaflöskur á mán-
uði í laun í stað rúblna. Kennar-
arnir verða svo að reyna að selja
vodkað. „Við viljum heldur áfengi
en líkkistur og salernispappír
eins og starfsfélögum okkar í
Maima hefur verið boðið,“ segja
kennararnir i Altai.
Víða í Rússlandi hafa ekki ver-
ið greidd laun í marga mánuði.
Rússnesk mannréttindasamtök
hafa hvatt aðildarþjóðir Alþjóða-
skáksambandsins (FIDE) til að taka
ekki þátt í 33. ólympíumótinu í skák
sem hefst í rússneska sjálfstjórnar-
lýðveldinu Kalmykíu um helgina.
Ástæðan er morðið á blaðakonunni
Larisu Júdínu sem gekk hart fram í
að gagnrýna stjórnvöld. Hún var
myrt í júní síðastliðnum.
Sá sem helst varð fyrir barðinu á
gagnrýni Júdínu var forseti Kal-
mykíu, hinn 36 ára gamli kaup-
sýslumaður og auðkýfingur, Kirsan
Iljúmzhínov. Hann er jafnframt for-
seti FIDE og að sögn óður í skák.
Forsetinn hefur verið sakaður um
að eiga aðild að morðinu.
Iljúmzhínov á sér þann draum
æðstan að gera Elísta, höfuðborg
Kalmykíu, að skákhöfuðborg heims-
ins. Skólaböm verða að tefla tvisvar
í viku og opinberir embættismenn
skreyta yfirleitt skrifstofur sínar
með taflborði og taflmönnum.
Iljúmzhínov var bílasali áður en
hann gerðist forseti og hann er
sagður eiga stærsta flota glæsivagna
í öllum heiminum. Hann stofnaði
einnig banka í landi sínu.
Bílasalinn fyrrverandi var fyrst
kosinn í forsetaembættið árið 1993.1
kosningabaráttunni lofaði hann
landsmönnum, sem em 300 þúsund,
að bláfátækt landið yrði senn ámóta
ríkt og olíuríkið Kúveit og allir fjár-
hirðar gættu hjarða sinna með far-
síma að vopni.
Einhver bið hefur orðið á því að
staðið væri við þau loforð, svo og
loforðið um að Diego Maradona
mundi leika með knattspyrnuliði
höfuðborgarinnar.
Larisa Júdína var ein fárra sem
þorðu að gagnrýna forsetann. Hún
hafði skrifað fjölda greina um spill-
ingu í stjómkerfmu. Síðustu vik-
umar beindi hún spjótum sínum
einkum að „skákborginni", glæsi-
legu húsnæði fyrir keppenduma á
ólympíumótinu. Kostnaður við
bygginguna er varlega metinn á um
milljarð króna. Júdína sakaði
stjórnvöld um að hafa notað tO þess
fé frá sambandsstjóminni sem átti
að fara til að byggja upp í Kalmyk-
íu. Borís Jeltsín Rússlandsforseti
kallaði morðið á Júdínu pólitískt og
var rannsókn þess tekin frá heima-
mönnum.
Erfið byrjun hjá
Bondevik
Búist er við að þjarmað verði
að Kjell Magne Bondevik, forsæt-
isráðherra Noregs, þegar hann
snýr aftur til starfa á morgun eft-
ir rúmlega þriggja vikna veik-
indafrí. Á morgun setur Thor-
bjom Jagland landsfúnd Verka-
mannaflokksins. Er gert ráð fyrir
harðri gagnrýni á ríkisstjómina
frá fundarmönnum. Bondevik
mun halda fund með fréttamönn-
um að loknum ríkisstjómarfúndi
á morgun. Ekki þykir víst að far-
ið verði mjúkum höndum um for-
sætisráðherrann á fundinum.
Mannfall í
Lesotho
Hersveitir frá S-Afríku og
Botswana voru í gær sendar inn í
Lesotho til að reyna að stilla til
friðar. Um 30 manns féllu í átök-
um milli hersveitanna og and-
stæðinga stjómarinnar í Lesotho.
Stjómarandstæðingar í Lesotho
saka yfirvöld um svindl í kosning-
unum í maí síðastliðnum. Hafa
þeir efnt til mótmæla að
unanfömu. Forsætisráðherra
landsins, Pakalitha Mosisili, bað
grannríki um aðstoð.
-SMS.
íbúar bæjarins Maldonado á Puerto Rico vaða elginn á götunum eftir aö felli-
bylurinn Georges fór þar yfir.
Fellibylurinn Georges í ham:
Tólf manns týndu lífi í
Dóminíska lýðveldinu
Fellibylurinn Georges fór með
miklum látum yfir Karíbahafseyj-
una Hispanjólu í gær. Að minnsta
kosti tólf manns týndu lifi í
Dóminíska lýðveldinu og gífurleg
flóð urðu af völdum óveðursins. Ge-
orges, sem er versti fellibylurinn á
þessu svæði í mörg ár, tók síðan
stefnuna á Haítí.
íbúar Dóminíska lýðveldisins
sögðu þetta mestu hamfarimar síð-
an fellibylurinn Davíd fór þar yfir
árið 1979. Á Púertó Ríkó höfðu íbú-
amir ekki séð það svartara síðan
fellibylurinn Hortense varð 22 að
bana árið 1996.
Veðurfræðingar sögðu í gær að
Georges kynni að fara yfir suður-
hluta Flórída síðar í vikunni. Ferða-
mönnum var fyrirskipað að yfirgefa
Flórída Keys-eyjarnar undan suður-
odda skagans.
HAFNARFJÖRÐUR
KYNNINGARFUNDUR
Breytt deiliskipulag á „Rafhareit” ofan Lækjargötu
Boðið er til kynningarfundar á tillögu að breytingu á deiliskipulagi
á svæði ofan Rafha við Lækjargötu milli Hringbrautar og Oldugötu
í Hafharfirði.
Fundurinn verður haldinn í Alfafelli í Iþróttahúsinu við Strandgötu
í kvöld, miðvikudaginn 23. september kl. 20.30.
Tillaga þessi, uppdrættir og líkan, var samþykkt af bæjarráði Hafnar-
fjarðar þann 20. ágúst 1998 og er nú í auglýsingu samkvæmt lögum
tíl 9. október 1998 nk.
23. september 1998
B.ejarskipulag tíafnarjjarbar
Skipulagsncfnd Hafharfjarðar
Whirlpool gæða frystikistur
AFG053 134L Nettó H:88,5 B: 60 D: 68 Verð: 29.925 kr
AFG073 258L Nettó H:88,5 B: 95 D: 68 Verð: 36.955 kr
AFG093 320L Nettó H:88,5 B: 112 D: 68 Verð: 39.900 kr
AFG094 400L Nettó H:88,5 B: 134,5 D: 68 Whirlpool frystlklstur eru með læsingu á loki, Ijósi f loki og aðvörunarbúnaði. Whirlpool gæða frystiskápar Verð: 46.455 kr
AFG065 65L Nettó H:56,5 B: 52,5 D: 60 Verð: 36.000 kr
AFB427 130L Nettó H:85 B: 55 D: 60 Verð: 34.265 kr
AFB341 203L Nettó H:140 B: 59,2 D: 60 Verð: 49.875 kr
AFG343 283L Nettó H:180 B: 59,2 D: 60 Verð: 54.900 kr
Whirlpool frystiskápar eru með aðvörunarbúnaði. Öll verð eru stgr. verð
- Umboðsmenn um land allt
- Byggingavörudoild KEA
^ Einar Stefánsson
* Elís Guðnason
S Eyjaradíó
* Fossraf
l Guðni Hallgrímsson
1 Hljómsýn
* Kask - vöruhús
2 K/F Húnvetninga
u K/F Borgfirðinga
o K/F Héraðsbúa
- K/F Þingeyinga
z K/F V- Húnvetninga
° K/F Skagfirðinga
2 K/F Vopnfirðinga
Akureyrí Mosfell Hellu
Búðardal Póllinn ísafirði
Eskifirði Rafmagnsverkstæði KR Hvolsvelli
Vestmannaeyjum Radiónaust Akureyrí
Selfossi Rafborg Gríndavik
Grundarfirði Rafbær Siglufirði
Akranesi Rás Þorlákshöfn
Höfn Hornafirði Skipavík Stykkishólmi
Blönduósi Skúli Þórsson Hafnarfirði
Borgarnesi Turnbræður Seyðisfirði
Egilsstöðum Valberg Ólafsfirði
Húsavík Viðarsbúð Fáskrúðsfirði
Hvammstanga Samkaup - Njarðvík Reykjanesbæ
Sauðárkróki Blómsturvellir Hellissandi
Vopnafirði
Heimilistæki hf
SÆTÚNI S SÍMI 569 15 OO
http.//www.ht.i*
umboðsmenn um land allt