Dagblaðið Vísir - DV - 14.10.1998, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 14.10.1998, Blaðsíða 9
MIÐVIKUDAGUR 14. OKTÓBER 1998 9 i>v Stuttar fréttir \ í i i Tveir ákærðir Tveir ungir menn, sem flosn- uðu upp úr framhaldsskólanámi, hafa verið ákærðir fyrir að myrða samkynhneigðan háskóla- nema, Matthew Shepard, í há- skólabænum Laramie í Wyom- ing. Shepard var bókstaflega bar- inn í klessu. Karl hjá Skotum Karl Bretaprins ræddi í gær við Alex Aslmond, leiðtoga flokks skoskra þjóðemissinna, sem sækj- ast eftir sjálf- stæði Skotlands. Mennimir rædd- ust við í hálfan annan klukku- tíma og fræddist Karl um störf og markmið flokks- ins. Þetta voru einkaviðræður og því verður ekki nánar greint frá efni þeirra. Smáfall á Wall Street Dow Jones verðbréfavísitalan á Wall Street féll lítUlega í gær. Næstu tvo viðskiptadaga á und- an hafði hún hins vegar hækkað umtalsvert. Ólga breiöist út Ólga meðal franskra mennta- skólanema hefur breiðst út til um þrjátíu borga og bæja þrátt fyrir loforð stjómvalda um að bæta aðstöðuna í kennslustofum. Anwar í betrunarhús Dagblað í Malasiu sagði í morg- un að Anwar Ibrahim, fyrrum fjármálaráðherra landsins, yrði senn fluttur úr gæsluvarð- haldsvist í venjulegt fang- elsi. Saksóknar- ar búa sig undir að sakfella ráð- herrann fyrr- verandi fyrir samkynhneigð og spillingu. Svíar í haldi Tveir Svíar eru í haldi lög- reglu í heimalandinu grunaðir um morð á breskum bófafor- ingja. Breskur læknir stórtækur: Grunaður um morð á sjúklingum Læknir í Hyde, nálægt Manchester i Bretlandi, situr nú í gæsluvarðhaldi þar sem hann hef- ur verið kærður fyrir morð á fjór- um sjúklinga sinna. Óttast er að læknirinn, Harold Shipman, hafi myrt 28 sjúklinga í hagnaðar- skyni. Þegar hafa verið grafln upp sex lík vegna rannsóknar málsins. Shipman neitar öllum sakargiftum og grét er hann kom fyrir rétt ná- lægt Manchester í síðustu viku. Hafi lögreglan rétt fyrir sér er læknirinn í Manchester versti raðmorðingi Bretlands. Lögreglan rannsakar nú 3 þús- und lyfseðla sem Shipman hefur Læknirinn Harold Shipman. gefið út á undanfornum árum. Læknirinn er sakaður um að hafa falsað tvö bréf og erfðaskrá fyrr- verandi borgarstýru í Hyde, 81 árs ekkju sem lést í júni á þessu ári. Arfleiddi borgarstýran fyrr- verandi lækninn að sem svarar rúmlega 30 milljónum íslenskra króna. Lík hinnar öldnu konu var grafið upp eftir að dóttir hennar varð tortryggin og hafði samband við lögregluna. Shipman hefur rekið læknastofu í Hyde í yfir 20 ár. Lögregluna grunar að Shipman hafi tryggt sér fé fleiri sjúklinga og síðan myrt þá. ______________Útlönd Hyde þrengir kannski rann- sókn á Clinton Henry Hyde, formaður dóms- málanefndar Bandaríkjaþings, sagði í gær að hann kynni að þrengja svið rannsóknarinnar á hendur Bill Clinton forseta þar sem kanna á hvort ástæða sé til að höfða mál til embættismissis á hendur honum. Einhverjum hinna hugsanlegu 15 ákæruatriða sem aðalrannsóknarmaður nefnd- arinnar taldi upp í síðustu viku verður ef til vill slegið saman eða sleppt alveg. Þetta kemur fram í blaðinu Washington Post. Jeltsín í fríi Borís Jeltsín Rússlandsforseti verður í veikindafríi það sem eft- ir lifir vikunnar til að reyna að ná sér af lungkakvefi sem þjakar hann. Hann mun dvelja á sveita- setri sínu utan við Moskvu. Jeltsin þurfti að stytta heimsókn til útlanda vegna veikindanna. Steve Evans frá Wales lætur Svíann Jojo skreyta sig á alþjóðlegri tattóveringarhátíö í Varsjá. Evans hefur meira aö segja látið tattóvera eyrun aö innan. Símamynd Reuter Citroén XM turbo C.T. árg 1994. ek 76.000 km, 5 gíra, grár metalic, 141 hestafl, vökva/veltistýri útv- segulband, m/stillingu í stýri, aksturstölva, ECC-miðstöð, rafdr. rúður, speglar og læsingar, rafdr. stólar að framan, leðuráklæði. Toppviðhald alla tíð, nýyfirfarinn af Brimborg. Faxafeni 8 • Sími 516 7000 opið laugardag kl. 12-16 sunnudag kl. 13-16 Hsma 1.6 lítra, 100 hestöfl og 1.8 lítra CDI, 125 hestöfl tyggispúðar fyrir ökumann og farþega »abs hemlakerfi )rstýrðar samlæsingar •Rafdrifnar rúðuvindur með slysavörn týrðir upphitaðir útispeglar •Rafhitun í framsætum o.m.fi. MITSUBISHICARISMA kostarfrakr. 1.565.000 Calant 2.0 lítra, 136 hestöfl og 2.5 litra, I63hestöfl •Öryggispúðar fyrir ökumann og farpega *ABS hemlakerfí •Fjarstýrðar samlæsingar •Rafdrifnar rúðuvindur með slysavörn •Rafstýrðir upphitaðir útispeglar •Rafhituð sæti •15" álfelgur •Skriðstilli o.m.fl. MÍTSUBJSHIGALANT kostarfra kr. 2.055.000 MITSUBISHI -ímiklum metum !

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.