Dagblaðið Vísir - DV - 14.10.1998, Blaðsíða 12
12
Spurningin
MIÐVIKUDAGUR 14. OKTÓBER 1998
Hvernig gerir þú þér
dagamun?
Ásta Bima Bjömsdóttir nemi: Ég
fer út að skemmta mér.
Hjördís Sigurðardóttir, er úti-
vinnandi: Ég fer út aö skemmta
mér.
Bjarki Steinarsson nemi: Ég ligg
og horfi á vídeóspólur.
Sandra Jónsdóttir: Ligg i leti.
Magnea Gunnarsdóttir nemi:
Ligg í leti og horfi á vídeóspólur.
Guðbrandur Jóhannsson mat-
reiðslumaður: Ég fer til útlanda.
Lesendur
„Já, Guðrún,
það tekur því“
Arndís Bjarnadóttir, Bryn-
dís F. Guðmundsdóttir, Ósk
Axelsdóttir, Svanhildur El-
entínusdóttir og Þórhildur
Ólafsdóttir, sjúkraþjálfarar
á Hrafnistuheimilunum í
Reykjavík og Hafnarfirði,
skrifa:
Tilefiii þessara skrifa er
kjallaragrein Guðrúnar Helga-
dóttur þann 15. september sl. í
DV. Guðrún fjallar um útveg-
un hjálpartækja til vistmanna
á öldrunarstofnunum. í grein-
inni kemur fram fullyrðing
sem er ekki rétt og ber að leið-
rétta.
Guðrún skrifar: „Það er
sorglegt að þurfa að segja það
en það er staðreynd aö mikið
vantar á að vistmenn elliheim-
ila fái þau hjálpartæki sem
þeir þmfa til að geta lifað
sæmilega þægilegu lífi.“ -
Þessi fullyrðing á ekki við um
Hrafnistuheimilin í Hafnar-
firði og Reykjavík en á þeim
búa 545 einstaklingar. Sjúkra-
þjálfarar heimilanna meta
þarfir heimilismanna fyrir
hjálpartæki, oft í samráði við aðra
fagaðila, s.s. lækna, hjúkrunarfræð-
inga, iðjuþjálfa og stoðtækjasmiði.
Af hjálpartækjum sem sjúkraþjálfar-
ar meta þarfir fyrir má nefna göngu-
hjálpartæki, hjólastóla, spelkur,
skófatnað o.m.fl. Þegar mat eða end-
urmat er gert á þörf fyrir hjálpar-
að hjálpartækið bæti líkam-
lega færni, dragi úr verkjum
eða efli almenna velliðan er
það fengið viðkomandi ein-
staklingi til notkunar.
í reglugerð um greiðslur
öldrunarstofnana fyrir heil-
brigðisþjónustu fi-á 25. nóv-
ember 1992 kveður á um að
öldrunarstofnunum beri að
greiða fyrir hjálpartæki vist-
manna, þó ekki gleraugu,
heyrnartæki eða hjólastóla.
Sjúkraþjálfarar á Hrafnistu-
heimilunum hafa metið þarfir
heimilisfólks fyrir hjálpar-
tæki með sama hugarfari og
fagmennsku bæði fyrir og eft-
ir að reglugerð þessi gekk í
gildi. Stjómendur Hrafnistu-
heimilanna hafa aldrei gert
athugasemdir við útgjöld
vegna hjálpartækjakaupa eða
hafnað beiðnum um kaup á
hjálpartækjum. Við getum
fullyrt að við höfum ekki til-
einkað okkur viðhorf skag-
firska bóndans sem Guðrún
talar um í kjallaragrein sinni,
í störfum okkar á Hrafnistu-
heimilunum. Þvl getum við svarað
Guðrúnu já, það tekur því að útvega
heimilismanni hjálpartæki þegar
þess er þörf. - Að lokum; sparnaður
er ekki löstur ef hann kemur ekki
niður á þeim sem síst skyldi og á
það við jafnt í opinberum rekstri
sem á heimilum.
Fullyrðing Guðrúnar um skort á hjálpartækjum á
ekki við um Hrafnistuheimilin, segja bréfritarar. -
Kona á Hrafnistu með göngugrind.
tæki verður það að byggjast á fagleg-
um forsendum og raunsæi. Stundum
getur mat fagfólks verið á þann veg
að hjálpartæki nýtist ekki viðkom-
andi af ýmsum heilsufarslegum
ástæðum og þá er ekki rétt að kaupa
hjálpartæki sem liggur ónotað. Á
hinn bóginn ef matið er á þann veg
Prófkjör úti á landi sem
og í Reykjavík
Birgir Jónsson skrifar:
Senn líður að því að prófkjör fyr-
ir alþingiskosningar fara af stað. Ég
vona að á sem flestum stöðum verið
prófkjör viðhöfð, það er hið lýðræð-
islega fyrirkomulag. Þegar Fram-
sóknarflokkur er farinn að stefna á
prófkjör eins og t.d. í Reykjanes-
kjördæmi, þá veröa nú varla aðrir
flokkar eftirbátar þess flokks. Ég las
um að ekki yrði prófkjör hjá sjálf-
stæðismönnum í Norðurlandskjör-
dæmi eystra. Ég tel það út í bláinn
að forsmá prófkjör og kjósendur
eiga ekki að sinna listum sem bjóða
upp á „handröðuð" þingsmannsefni.
í Reykjaneskjördæmi verður við-
haft prófkjör hjá bæði Sjálfstæðis-
flokki og Framsóknarflokki og varla
verður Reykjavík undanskilin.
Kjósendur treysta því að prófkjör
verði viðhöfð úti á landsbyggðinni
sem og í Reykjavík. Þaö væri ömur-
legt ef sjálfstæðismenn byðu ekki
upp á prófkjör í höfuðborginni.
Enda ekkert komið fram sem gefur
slíkt til kynna.
Sósíaltvíburarnir Hitler og Stalín
Ásmundur Ólafsson skrifar:
Árni Bergmann rithöf. skrifar
grein, að mörgu leyti fróðlega, um
þá Hitler og Stalín í DV 7. þ.m. er
gefur tilefni til upprifiunar á skyld-
leika kommúnisma og nasisma.
Flokkur Hitlers hét „Nationalsozi-
alistische Deutsche Arbeiterpartei“
- NSDAP (þ.e. Þýski þjóðemissósíal-
íski verkamannaflokkurinn) og var
stofnaður 1919 en helsti hugmynda-
fræðingur var Alfred Rosenberg.
Eins og nafnið bendir til var höfuð-
áhersla lögð á þjóðemishyggju (þ.e.
yfirburði Þjóðverja) og sósíalisma
(þ.e. hinar vinnandi stéttir). - Þessu
var líkt farið með kommúnistaflokk-
inn. Þjóðemishyggja Stalíns varðaði
þó trúboð og byltingu innan Sovét-
ríkjanna á meðan Trotsky og hans
fylgismenn hvöttu til alheimsbylt-
ingar. Bæði nasistar og kommúnist-
ar skírskotuöu þó fyrst og fremst til
Stefna beggja grundvallaðist á alræði
Stalín fyrrv. einræðisherrar.
hinna svokölluðu vinnandi stétta.
Báðar stefnumar vom svarnir and-
stæðingar frjálshyggju (liberalisma),
kapítalisma og lýðræðis (demokrat-
isma), einnig einstaklingsfrelsis í
hvaða mynd sem það birtist.
Stefha beggja grundvallaðist m.a.
á alræði foringjanna, ríkisrekstri í
iðnaði og skipulagðri trú á yfir-
burði sína umfram allar aörar
stjórnmálastefhur. Þrátt fyrir skyld-
leikann börðust nasistar hatramm-
lega gegn marxískum sósíalisma,
auk þess sem þeir börðust gegn kap-
foringjanna. - Adolf Hitler og Jósef
ítalisma Vestm-landa - og þess utan
ólu nasistar meira á gyðingahatri
en kommúnistar.
Ámi segir að alræðisherrcimir
tveir hafi sprottið af ólíkum rótum.
Það er ekki rétt því báöir áttu rót
sína undir sama trénu, sem upphaf-
lega var gróðursett í Þýskalandi.
Þetta urðu þó síðar tvær greinar af
sama meiðinum. Þetta tré hefur nú
verið fellt eins og kunnugt er en
e.t.v. felst ennþá eitthvert líf í rót-
inni sem liggur í dvala undir yfir-
borðinu.
Útvarpsréttar-
nefnd
- óhugnanleg auglýsing
Bjöm Jónsson skrifar:
Það fór ekki mikið fyrir auglýs-
ingu í dagblaði (eða dagblöðum) um
sl. helgi frá stofnun sem heitir „Út-
varpsréttarnefnd". Ekki heyrði ég
auglýsingu þessa lesna í ljósvaka-
miðlunum, en vera má að mér
skjátlist í því efhi. - Útvarpsréttar-
nefnd þessi er að vekja athygli al-
mennings á því að „öðmm aðilum
en þeim sem veitt hefur verið leyfi
Útvarpsréttarnefndar til útvarps-
reksturs er óheimilt að dreifa út-
varpsefni hvort heldur er um þráð
eða þráðlaust". - í þeim tilfellum
sem erlend dagskrá er send út við-
stöðulaust óstytt og óbreytt þurfa að
liggja fyrir samningar við erlendar
upphafsstöðvar varðandi dreifingu
efnis hér á landi áður en útvarps-
leyfi er gefið út, segir og í auglýsing-
unni. - Ja, hérna og sveitattan, segi
ég nú. Ég er þeirrar gæfu aðnjótandi
að nota móttökudisk fyrir sjónvarp
erlendra stöðva og horfi ekki á ann-
að sjónvarp. Bíð bara eftir því að
losað veröi um einokunarkrumlu
ríkisins í fiölmiðlarekstri. Þá fyrst
verðum við fullvalda og sjálfstæð
þjóð.
Hófsamur
vinnudagur og
ekkert Viagra
Vilhjálmur Alfreðsson skrifar:
Mér blöskraði að sjá fréttina í DV
7. þ.m. „VIAGRA kemur“. - Furðu-
legt að íslenskir karlmenn skuli
hafa áhuga á þessu lyfi, sem auk
þess er ekki hættulaust. Borði menn
nægan fisk er það lausnin fyrir karl-
menn. Af honum er blessunarlega
nóg í hafinu, og þeim besta í heimi.
Þá ætti hvaða karlmaður sem er að
þola svo sem tveggja tíma glímu í
bólinu með góðum árangri. En því
miður vinna margir karlar þetta 14
og 16 tíma á dag og þetta vinnuálag
drepur niður alla kynhvöt. Hóflegur
vinnudagur og nægur fiskur - og
kvenfólkið okkar mun hætta að
kvarta.
Misheppnuð
Ameríkutilboö
Flugleiða
Guðbjörg hringdi:
Flugleiðir hafa verið meö tilboð á
ferðum til nokkurra borga í Banda-
ríkjunum á allgóðu verði. Fyrir
nokkrum árum fórum við hjónin til
Baltimore/Washington og það var
hin besta ferð, ekki síst fyrir það að
höfuðborg Bandarikjanna er í
grenndinni og góðar og skjótar lest-
arsamgöngur á milli. í Washington
er margt að skoða og næg og góð
veitingahús svo og verslanir. Þetta
gildir hins vegar ekki um borgina
Minneapolis, þar var nánast allt
dautt um kl. 22 á kvöldin, lítið um
veitingahús og þetta eina „maO“
sem auglýst er svo stíft er ekki
þriggja daga virði að heimsækja.
Reikna ekki meö að Halifax sé mik-
ið burðugri sem ferðamannastaður.
Myndum fara aftur í Washington-
ferð ef hún stendur til boða.
Álver á Reyðar-
firöi og hálendis-
vegur um leiö
Austfirðingur skrifar:
Vonandi styttist nú i ákvarðana-
töku um að álver verði reist í Reyð-
arfiröi. Austurland hefur sannar-
lega orðið út undan í uppbyggingu
og þróun þeirri sem staðið hefur
yfir í landinu. Þingmenn kjördæm-
isins hafa heldur ekki verið til stór-
ræðanna og engan veginn staðist
þær væntingar sem menn gerðu til
þeirra. Um leið og álvershugmyndir
eru ræddar verður að huga að góð-
um vegi frá Austurlandskjördæmi
um hálendið tO höfuöborgarsvæöis-
ins. Vegasamgöngur hafa lika staðið
kjördæminu fyrir þrifum. Það er
mál tO komiö að snúa dæminu við
og það svo um munar.