Dagblaðið Vísir - DV - 14.10.1998, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 14.10.1998, Blaðsíða 32
LtTT« ymi virutal FRETTASKOTIÐ SÍMINN SEM ALDREI SEFUR Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá t síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eöa er notað { DV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið I hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Viö tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. .ZBfifJsk jfcTMfr _ 550 5555 MIÐVIKUDAGUR 14. OKTOBER 1998 Flekastrákur í hættu: Atta ára dreng rak út áfjörð Atta ára dreng á Seyðisflrði var bjargað af fleka þegar hann hafði rekið um einn kílómetra út á fjörð í gærkvöldi. Að sögn lögreglunnar var það fólk í bænum sem tilkynnti um drenginn sem var orðinn mjög skelkaður þegar tveir menn komu á bát til að bjarga honum. Það voru eldri drengir sem höfðu smíðað flekann sem var við land skammt frá þeim stað sem ferjan Norræna leggur að. Ungi maðurinn var á ferð með jafnaldra sínum í gærkvöldi þegar þeir ákváðu að prófa flekann. Annar hélt í spotta á meðan hinn fór út á fleyið. Ekki vildi betur til en svo að sá sem hélt . í spottann missti endann með þeim ^afleiðingum að félaga hans tók að reka út á fjörð. Talsvert hvöss vest- anátt var í firðinum þegar drengur- inn „fór til sjós“. Að sögn lögreglunnar var dreng- urinn kominn um kílómetra frá landi þegar honum var bjargað, heldur skelkuðum. Lögreglan ákvað að brenna flekann svo ekki hlytust fleiri óhöpp af. Drengurinn hafði þá á orði að það skipti engu máli - hann ætlaði hvort sem er aldrei aft- ur út á fleka. -Ótt Alþingi: Þórunn lík- lega á þing Magnús Ámi Magnússon, fyrr- verandi formaður Félags ungra jafnaðarmanna, mun taka fast ■’Þórunn Svein- björnsdóttir. Magnús Arni Magnússon. sæti á Alþingi við fráfall Ástu B. Þorsteinsdótt- ur alþingis- manns sem lést á mánudag. Magn- ús Árni, sem er alinn upp í Kópa- vogi, mun þó ekki setjast á þing fyrir Al- þýðuflokkinn í Reykjavík fyrr en eftir hálfan annan mánuð þar sem hann er í námi í Banda- ríkjunum. Vara- þingmaður hans verður væntan- lega Þórunnn Sveinbjömsdótt- ir, formaður Starfsmannafé- Þetta er ekki full- lagsins Sóknar frágengið og sagði Þórunn í morg- un að hún væri að hugsa málið. I^Þetta er í skoðun," sagði Þórunn. -rt ER EKKI &ETRA A£> FARA í PUNGAPRÓF- \Ð FYRST? Guðrún Katrín Þorbergsdóttir. Ríkisstjórnin ræðir tilhögun útfarar Minningabók á Vísi.is Bænastund var í Háteigskirkju í Reykjavík í gær vegna fráfalls Guðrúnar Katrínar Þorbergsdóttur forsetafrúar. Bisk- up íslands, sr. Karl Sigurbjörnsson, leiddi bænastundina en gert var hlé á störfum kirkjuþings á meðan. Sr. Helga Soffía Konráðsdóttir og sr. Tómas Sveinsson, prestar í Háteigskirkju, lásu úr ritningunni og var fólk beðið að minn- ast forsetafrúarinnar í bæn. Meðal viðstaddra voru m.a. Davíð Oddsson forsætisráðherra, þingmenn og fulltrúar á kirkjuþingi. Þá var einnig bænastund i kaþólsku kirkjunni, auk þess sem fóik kom saman víða til að minnast forseta- frúarinnar. DV-mynd Hilmar Þór Ríkisstjómin ræddi í morgun á fundi sínum tilhögun útfarar frú Guðrúnar Katrínar Þorbergsdóttur forsetafrúar. Venjan mun sú að rík- isstjórnin annist útfarir þjóðhöfð- ingja og maka þeirra í virðingar- og þakklætisskyni við hinn látna. Lík forsetafrúarinnar mun koma til landsins á næstu dögum frá Seattle í Washingtonríki á vestur- strönd Bandaríkjanna. Komelíus Sigmundsson forsetaritari kom vestur í gærkvöld. Fjöldamargar samúðarkveðjm- hafa borist forseta íslands og fjöl- skyldu hans, meðal annars frá þjóð- höfðingjum Danmerkur og Svíþjóð- ar. Á Netinu hefur verið sett upp í samvinnu Hringiðunnar og netmiðilsins Vísis virðuleg minn- ingarbók um Guðrúnu Katrínu þar sem fólk getur sent kveðjur sínar. Strax á fyrsta degi skiptu þær hund- ruðum og bámst þær ekki síst frá ungu fólki víða af landinu. Slóðin er www.visir.is -JBP Drengurinn sem brenndist illa á Eskifiröi í lok ágúst er á batavegi: Gervihúð í fyrsta skipti - er haldið sofandi en meðferðin lofar góðu, segir yfirlæknir lýtalæknisdeildar 10 ára drengur sem brenndist illa á Eskifirði þann 28. ágúst er á batavegi á gjörgæsludeild Landspítalans. Rafn Ragnarsson, yfirlæknir lýtalækninga- deildar sjúkrahússins, sagði aðspurð- ur við DV í gær að gervihúð hafi ver- ið notuð við meðferð brunasára drengsins. Það sé í fyrsta skipti sem slíkt hafi verið framkvæmt hér á landi. Rafn sagði að meðferðin hafi gengið vel og gefi tilefni til ákveðinnar bjart- sýni fyrir framhald á hliðstæðum að- gerðum. Hins vegar sé of snemmt að tjá sig frekar um slíkt að svo stöddu. Hinum unga Eskfirðingi hefur verið haldið sofandi frá því að brunameðferð hans hófst í lok ágúst, í rúmar sex vikur. Slysið átti sér stað þegar eldur kviknaði í gömlum sumarbústað i vestanverð- um Eskifjarðarbæ. Drengurinn hlaut þriðja stigs brunasár á 35-40 prósent líkamans og var þegar í stað fluttur í sjúkraflugi til Reykjavíkur. „Þetta lofar góðu. Við meðferð drengsins var stuðst við nýjungar sem gefa tilefni til ákveðinnar bjart- sýni varðandi framtíðarhorfur í þessum efhum,“ sagði Rafn aðspurð- ur um hina nýju aðferð við notkun gervihúðar þegar um er að ræða lífshættuleg brunasár. Rafn sagði að brunasár drengsins hefðu vissulega verið alvarleg. Hon- um hafi því verið haldið sofandi á meðan meðhöndlun og lækninga- ferlinu hefði staðið. Læknirinn sagði jafnframt að það sé seinvirkt og vandasamt að vekja upp sjúk- linga við slíkar aðstæður þó slíkt sé á engan hátt óeðlilegt. Þorsteinn Svörfuður Stefánsson, yflrlæknir á gjörgæsludeild Land- spítalans, sagði við DV að drengn- um hafi verið haldið sofandi í önd- unarvél á deildinni. Árangurinn af læknismeðferðinni hefði orðið í samræmi við þær vonir sem bundn- ar voru við hana. Á Eskifirði og reyndar um land allt er í gangi söfnun til styrktar fjölskyldu drengsins sem hefur átt erfiðar vikur samfara flókinni læknismeðferð á höfúðborgarsvæð- inu. Þeir sem vilja styrkja drenginn og fólk hans geta lagt inn á opna bók Landsbankans á Eskifirði. Númerið er 61560. -Ótt Veðrið á morgun: Víöa bjartviðri Á morgun verður norðvestan stinningskaldi og él á annesjum norðaustanlands en annars hæg norðlæg eða breytileg átt. Dálítil él verða á vestanverðu landinu en annars víöa bjart veður. Hiti verður kringum frostmark norð- antil en 0 til 5 stig sunnanlands. Veörið í dag er á bls. 53. MERKILEGA MERKIVÉLIN brother pt 2c Islenskir stafir 5 leturstæröir 6 leturgerðir, 6, 9 og 12mm prentborðar Prentar í 2 línur Verð kr. 6.995 Nýbýlavegi 28 Sími 554 4443 Veffanq: www.if.is/rafport OUDVMnT / / / / / / / / / :

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.