Dagblaðið Vísir - DV - 14.10.1998, Síða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 14.10.1998, Síða 14
14 MIÐYIKUDAGUR 14. OKTÓBER 1998 útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EVJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: EYJÓLFUR SVEINSSON Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ÖSSUR SKARPHÉÐINSSON Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON Auglýsingastjóri: PÁLL ÞORSTEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift: ÞVERHOLTI 11,105 RVÍK, SlMI: 550 5000 FAX: Auglýsingar: 550 5727 - RITSTJÓRN: 550 5020 - Aðrar deildir: 550 5999 GRÆN númer: Auglýsingar: 800 5550. Áskrift: 800 5777 Stafræn útgáfa: Heimasíða: http://www.skyrr.is/dv/ Vísir, netútgáfa Frjálsrar flölmiðlunar: http://www.visir.is Ritstjórn: dvritst@centrum.is - Auglýsingar: dvaugl@centrum.is. - Dreifing: dvdreif@centrum.is AKUREYRI: Strandgata 25, sími: 462 5013, blaðam.: 462 6613, fax: 461 1605 Setning og umbrot: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Filmu- og piötugerð: ÍSAFOLDARPRENTSMIÐJA HF. - Prentun: ÁRVAKUR HF. Áskriftarverð á mánuði 1800 kr. m. vsk. Lausasöluverð 160 kr. m. vsk., Helgarblað 220 kr. m. vsk. DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Guðrún Katrín Lát ástsællar forsetafrúar snertir þaninn streng í brjóstum allra landsmanna. Gervöll þjóðin fylgdist með erfiðu stríði hennar við illkynjaðan sjúkdóm, gladdist yfir góðum fregnum, bað af einlægni fyrir bata og var harmi lostin þegar dánarfregnin barst. Maki þjóðhöfðingjans hefur að sönnu enga sérstaka stöðu samkvæmt lögum eða stjómarskrá. En persónu- leiki Guðrúnar Katrinar gerði að verkum að í vitund þjóðarinnar öðlaðist hún sérstakan sess. Hún gæddi embættið því algerlega nýrri vídd. Glæsileiki hennar og fágaður þokki vakti hvarvetna eftirtekt fólks og fjölmiðla þegar hún fylgdi þjóðhöfðingj- anum á mannamót erlendis. íslendingar voru að vonum stoltir yfir því að eiga í stafni slíkan fulltrúa. Á alltof skömmum ferli varð hún því í vitund fólks meira en maki forsetans. Hún varð hluti af sterkri forystusveit lítillar þjóðar. Að sönnu er það erfitt að gegna embætti forseta íslands. Fyrir þá sem hafa staðið í orrahríð stjórnmála er enn erfiðara en ella að byggja einingu og samstöðu að baki sér meðal þjóðarinnar. Það tókst núverandi þjóð- höfðingja eigi að síður á undraskömmum tíma. Engum dylst að Guðrún Katrín átti afar ríkan þátt í hversu fljótt þjóðin, án tillits til pólitískra skoðana, fylkti sér um þjóðhöfðingjann. Hlýjan og virðuleikinn sem framkoma hennar gæddi embættið var framlag hennar til að skapa um það einlæga samstöðu. Embætti forseta íslands er meira en hálfrar aldar gamalt. Á þeirri vegferð hefur það eigi að síður skapað sér furðu fáar hefðir. Söknuður þjóðarinnar við fráfall Guðrúnar Katrínar staðfestir þó að alltof skammur ferill hennar á Bessastöðum skapaði nýja hefð. Forsetamaki, án nokkurrar stöðu í stjórnkerfi þjóðar- innar, er fyrir tilvist hennar orðinn að veigamiklum og þakklátum hluta af embætti forseta íslands. Hún sýndi hversu mikilvægu hlutverki hann hefur að gegna og fyrir það hlutverk þarf að skapa svigrúm. Hluti af varanlegri arfleifð Guðrúnar Katrínar forsetafrúar mun efalítið felast í að fyrr en seinna verður það hlutverk staðfest með viðeigandi og formlegum hætti í stjórnsýslunni. Þjóðin á margar fallegar minningar um Guðrúnu Katrínu frá sorglega skömmum ferli hennar sem eiginkonu þjóðhöfðingjans. Hún mun minnast hennar með hlýju af fundum forsetahjónanna með erlendum þjóðhöfðingjum þar sem glæsileiki hennar bar af. Hún mun minnast hennar frá fjölmörgum mann- fundum innanlands þar sem fólk þyrptist að til að hitta forsetahjónin, og ekki síst hana. Af mestri hlýju mun þó þjóðin minnast reisnar hennar þegar hún birtist í látlausum tíguleik með snoðinn koll eftir erfiða geisla- meðferð við hvítblæði sem að lokum dró hana til dauða. Það krafðist ekki aðeins æðruleysis heldur líka kjarks. Afstaða hennar til erfiðs sjúkleika var í senn fordæmi og styrkur öllum sem eiga í sömu glímu. Einsemdin er títt hlutskipti þeirra sem er falið mikið vald. Þeir hafa ekki alltaf sömu möguleika og aðrir til að svala harmi með því að syrgja. Þeir eiga ekki alltaf kost á sömu persónulegu hlýjunni sem er öðrum græðandi smyrsl á tíma hins djúpa harms. Líkt og allra sem lenda í sárum ástvinamissi bíður nú forsetans erfiður tími. Þjóðin þarf að sýna honum og fjölskyldu forsetahjónanna hlýju og tillitssemi í sorginni sem hefur kveðið dyra að Bessastöðum. Össur Skarphéðinsson „Afstaöa forsætisráöherra og dómsmálaráöherra skiptir miklu máli í þessum efnum,“ segir greinarhöfundur m.a. Réttarfarsdómstóll: Verða sam- þykkt ný lög? fengin úr dönsku réttar- farslögunum, en sam- kvæmt þeim starfar sér- stakur kvörtunardóm- stóll (á dönsku „den særlige klageret"). Einnig er stuðst mjög við núgildandi ákvæði laga um meðferð opin- berra mála um endur- upptöku mála í frum- varpstextanum. í frum- varpinu er gert ráð fyr- ir að í dómnum eigi sæti þrír menn, ráð- herra skipi dómara við dómstólinn til fimm ára í senn. Einn þeirra skal vera hæstaréttardómari og er hann jafnframt „Það mál sem hér um ræðir er hins vegar sérstakt; það er al- mennt mannréttindamál og eng- inn þingmaður vill láta það um sig spyrjast að hann hafni máli af því að það er flutt af tiltekn- um þingmanni.“ Kjallarinn Svavar Gestsson alþingismaður Frumvarpið um réttarfarsdómstól hefur vakið mikla athygli. Ummæli forsætisráðherra voru sterk og afger- andi og dómsmála- ráðherra styður efnisatriði frum- varpsins. Frum- varpið fjallar um mannréttindamál og það grundvallar- atriði að fólk geti treyst dómstólum og niðurstöðum þeirra. f frumvarpinu um réttarfarsdóm- stól er lagt til að settur verði á stofn sérstakur dómstóll sem hafi það hlut- verk að íjalla um endurupptöku op- inberra mála. Mál- ið er flutt að gefnu tilefni frá í fyrra- sumar er hæsti- réttur hafnaði beiðni Sævars Ciesielskis um endurupptöku máls hans. Með þessu frumvarpi er ekki verið að gagnrýna niðurstöðu hæstaréttar; tilgangur frumvarpsins er sá einn að hreyfa nauðsyn þess að hæsti- réttur þurfi ekki að fella úrskurði í eigin málum eins og nú háttar til. Fyrirmyndir erlendis Fyrirmyndin að frumvarpinu er forseti dómsins en hinir tveir hér- aðsdómarar. Aðeins má skipa sama dómara til setu í dómnum tvisvar í röð. Formaður Lögmannafélagsins hefur bent á að skipan dómsins mætti e.t.v. vera á annan hátt. Ég tel að önnur skipan málsins komi vel til greina og eðlilegast að alls- herjamefnd þingsins í samvinnu við dómsmálaráðuneytið komist að niðurstöðu um þá skipan máls- ins sem heppilegust er. Það er afar erfltt fyrir hæstarétt og hæstaréttardómarana að taka ákvarðanir með þeim hætti sem þeir hlutu að gera í svokölluðu Sævars Ciesielskis-máli. Ég hef ekki neina skoðun á því hvort þeir komust að réttri eða rangri niður- stöðu. En það skiptir miklu máli fyrir almenning í landinu að hann hafi það a.m.k. á tilfmningunni að ýtrustu sanngimi sé alltaf gætt í málum af þvi tagi sem hér eru uppi. Almennt mannréttindamál Afstaða forsætisráðherra og dómsmálaráðherra skiptir miklu máli í þessum efnum. Frumvarpið um réttarfarsdómstólinn er annað frumvarpið frá þingmanni sem tekið er fyrir á þessu þingi. Þess vegna er nægur tími til að taka af- stöðu til þess til að gera það að lögum í vetur. Grannt verður fylgst með því hvernig stjórnarflokkarnir taka á málinu eftir eindregna afstöðu for- ystumanna Sjálfstæðisflokksins. Það em nær aldrei afgreidd mál frá þingmönnum stjórnarandstöð- unnar. Það mál sem hér um ræðir er hins vegar sérstakt; það er al- mennt mannréttindamál og eng- inn þingmaður vill láta það um sig spyrjast að hann hafni máli af því að það er flutt af tilteknum þing- manni. Málið sjálft hlýtur að vera aðalatriðið. Og það á að geta tekist samstaða um það. Það er mikil- vægt fyrir traust almennings á Al- þingi og á dómstólunum. Svavar Gestsson Skoðanir annarra Clinton og fjölmiðlarnir „Fjölmiðlar setja jafnaðarmerki á milli mannsins og stjómmálamannsins, það sem maðurinn Clinton gerir er yfirfært á stjórnmálamanninn Clinton. Þetta virðist almenningur ekki gera. Flestum fmnst fram- ferði Clintons í einkalífinu fyrirlitlegt en embættis- færslur hans hinar ágætustu. Ástæða þess að fjöl- miðlar virðast hafa lent í hálfgerðum ógöngum með þennan þátt málsins kann að vera sú að greinar- munurinn á einkalífi og opinberu lífi er siðferðisleg- ur, og þær aðferðir sem fjölmiðlafólk geta beitt í starfl sínu virðast ekki duga til að taka á siðferðis- legum þáttum. Ber að gera þennan greinarmun þeg- ar forseti á í hlut? Fjölmiðlar virðast með engu móti geta tekist á við þessa spurningu." Kristján G. Arngrímsson í Mbl. 13. okt. Kona á kirkjuþingi „Samkvæmt nýlegum samningum fulltrúa ríkis- ins og þjóðkirkjunnar hefur kirkjan fengið sjálfstæði í innri málum þótt ríkisvaldið haldi áfram að greiða laun presta úr sameiginlegum sjóðum. Þessi nýju völd eru fyrst og fremst I höndum kirkjuþingsins sem fær nú mörg þau verkefni sem áður voru á veg- um ráðuneytis eða Alþingis...Enn sem komið er hef- ur það vakið mesta athygli við kirkjuþingið að þar situr aðeins ein kona en tuttugu karlar. Þetta er þeim mun furðulegra þar sem fulltrúar á þingið eru kjömir af söfnuðum vítt og breitt um landið þar sem konur eru yfirleitt mjög virkar. Þjóðkirkjan verður að gera mikið átak á næstu áram til að tryggja auk- in áhrif kvenna á stjórn kirkjunnar." Elías Snæland Jónsson í Degi 13. okt. Skrípaleikur áfengisauglýsinga „Ólíklegt má telja, að dómstólamir hafi sagt sitt síðasta orð um áfengisauglýsingar með dómi Héraðs- dóms Reykjavíkur fyrir helgina í máli Ölgerðarinn- ar. Hins vegar er augljóst, að eftir að sterkur bjór kom til sögunnar, sem ber sama vöruheiti og venju- legur pilsner, er nánast ómögulegt að koma í veg fyr- ir þá orðaleiki i auglýsingum, sem ölgerðarfyrirtæk- in hafa stundað. Þessi skrípaleikur er kominn í sama farveg og þegar ekki mátti auglýsa dansleiki fyrir nokkrum áratugum og samkomuhúsin höfðu uppi alls konar orðaleiki í auglýsingum." Víkverji Mbl. 13. okt.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.