Dagblaðið Vísir - DV - 14.10.1998, Qupperneq 17

Dagblaðið Vísir - DV - 14.10.1998, Qupperneq 17
16 MIÐVIKUDAGUR 14. OKTÓBER 1998 MIÐVIKUDAGUR 14. OKTÓBER 1998 Iþróttir _______£ íþróttir Blarad í poka Norski landsliósmaöurinn Sigurd Rushfeldt er á leið til Englands- og bikarmeistara Arsenal frá norsku meisturunum í Rosenborg. Arsenal greiöir tun 420 milljónir fyrir þennan 25 ára gamla framherja. Aston Villa, toppliðiö í ensku A- deildinni, ætlar að eyða tæpum 2 milljörðum króna í leikmannakaup á næstunni. John Gregory, stjóri Aston Villa, mun að öllum líkindum greiða tæpan 1 milljarð fyrir David Batty og Steve Watson, sem leika báðir með Newcastle, og hann hefur ekki gefist upp á að reyna að krækja i Chris Sutton, framherja Blackbum. Peter Schmeichel leikur örugglega ekki í marki Manchester United þeg- ar liöið tekur á móti Wimbledon í ensku A-deildinni á laugardaginn. Daninn snjalli er meiddur i maga og gekkst undir aðgerð af þeim sökum fyrir skömmu. Hann verður lengur að ná sér en haldið var í fyrstu og óvíst er hvort hann verði klár í slag- inn þegar United mætir gamla liðinu hans, Bröndby, í Evrópukeppninni í næstu viku. FH-ingar halda upp á 69 ára afmæli sitt á morgun, flmmtudag. FH-ingar ætla að vera með afmæliskaffl í Kaplakrika frá klukkan 16-18 og eru allir velkomnir. Ákveöiö hefur veriö að þeir Evander Holyfield og Lennox Lewis mætist í hringnum í bardaga um heimsmeist- aratitilinn í þungavigt hnefaleika. Umboðsmenn þeirra hafa náð sam- komulagi um að kappamir mætist í hringnum en ekki er vitaö hvenær það verður. Glenn Hoddle, landsliðsþjálfari Eng- lendinga, hefur sent Paul Gascoigne þau skilaboð að dymar að landsliði Englendinga séu enn opnar. Hoddle er mjög sáttur við þá ákvörðun Gassa að fara í meöferð. Forráöamenn Leeds United hafa enn áréttað að þeir banni Martin O’Neill, stjóra Leicester, að tala við forráða- menn Leeds. O’Neiil er mjög óánægö- ur með framkomu forráðamanna Leicester og segir O’Neill þá vera að brjóta heiðursmannasamkomulag þess efnis að hann megi tala við önn- ur félög. Benfica i Portúgal er reiöubúiö aö kaupa Eyal Berkovic frá West Ham fyrir 330 milljónir króna. Greame Souness þekkir leikmanninn síðan hann lék með Southampton en þá var Souness knattspymustjóri félagsins. Eftir uppákomuna frægu við John Hartson á dögunum sagði Berkovic að hann ætlaði aö vera áfram í her- búðum West Ham þrátt fyrir allt sam- an. Það á siöan eftir að koma í ljós. Holland og Ghana gerðu marka- laust jafntefli í vináttulandsleik í knattspymu sem fram fór í hollensku borginni Amhem í gærkvöld. -SK-GH-JKS Guðmundur verður kyrr David Moyes, framkvæmdastjóri knattspymufélagsins Preston, hefur ákveðið að framlengja reynslutíma Guðmundar Benediktssonar hjá fé- laginu. Moyes er í enskum fjölmiðl- um sagður tvístígandi vegna Guö- mundar. Hann viti af áhuga ann- arra liða á honum en sé hikandi vegna þess að Guðmundur hafi ver- ið með vafið hné á öllum æfingum síðan hann kom til félagsins. -VS íslendingar gera það gott í Taekwondoo: Mikið afrek hjá Birni - vann glæsilegan sigur á US Open Bjöm Þorleifsson, Ármanni, náði frábær- um árangri þegar hann gerði sér lítið fyrir og sigraði á opna bandaríska meistara- mótinu í Taekwondoo. Þetta er besti árang- ur sem íslenskur kepp- andi í Taekwondoo hefur náð og um mun meira afrek að ræða en þegar Björn varð Norðurlandameistari fyrir nokkrum ámm. Opna bandaríska meistaramótið er eitt sterkasta mótið sem haldið er í heiminum ár hvert. Með þessum glæsilega sigri hefur Björn styrkt stöðu sína verulega og lík- urnar á því að hann verði á meðal kepp- enda á næstu ólympíu- leikum hafa aukist stórlega. Glæsilegir sigrar í Bandaríkjunum Á dögunum tóku þrír landsliðsmenn í Taekwondoo þátt í fimasterku móti í Baltimore í Bandaríkj- unum. Þau Bjöm Þorleifs- son, Ármanni, Sigfrnn- ur Fannar Sigurðsson, Fjölni og Margrét Elín Amardóttir, Fjölni, gerðu sér lítið fyrir og unnu öll glæsilega sigra í sínum flokkum Auk þessa unnu þau Margrét Elín og Bjöm í opnum flokki þar sem þau unnu meðal annars landsliðsmenn frá Spáni í lokabardög- um. Spánverjar hafa á að skipa þriðja sterkasta landsliði í heiminum í dag þannig að hér er um mikið afrek að ræða. Að auki unnu þau Margrét Elín og Sig- finnur til bronsverð- lavma í einstaklingsæf- ingum gegn ímynduð- um andstæðingi. Ár- angurinn sýnir mik- inn uppgang íþróttar- innar hér á landi. Mótið var liður í undirbúningi lands- liðsins fyrir Norður- landamótið í Finn- landi í janúar. Stefnt er að því að senda 10 keppendur á mótið. Margrét Elín Arnardóttir, Fjölni, Sigfinnur Fannar Sigurðsson, Fjölni, fremst á myndinni, og Björn Þorleifsson, Ármanni, náðu öll frábærum árangri á mjög sterku móti i Taekwondoo f Bandaríkj- unum og sjást hér með verðlaun sín. -SK Stuðningsmenn enska liðsins Brentford: Fjölmenna til Parísar - til að fylgjast með Hermanni Hermann Hreiðarsson er þegar orðinn vinsæll hjá sínu nýja félagi í Englandi, Brentford. Á heimasíðu félagsins hefur að undanfórnu verið grannt fylgst með Hermanni og gengi íslenska landsliðsins. Úrslitin í Armeníu voru komin um leið og fljótlega kom önnur frétt þar sem sagt var aö Hermann heföi verið besti maður vallarins. Timarit stuðningsklúbbs Brentford hefúr nú ákveðið að gangast fyrir hópferð á leik Frakklands og íslands í Evrópukeppninni sem fram fer í París næsta haust. Þegar hafa 20 stuðningsmenn Brentford skráð sig í ferðina. „Það er ekki á hverjum degi sem leikmaöur Brentford spilar gegn heimsmeisturunum og við verðum á staönum og skörtum litum fé- lagsins," segir Dave Lane, ritstjóri tímaritsins. -VS Fótbolti 17. okt. '98 m mmmm Innritun fer fram í síma 555 3834 og 897 0517 laugardaginn 17. okt. í íþróttahúsinu Kaplakrika. Glæsileg verðlaun fyrirfyrsta og annað sætið í mótinu. Mótið fer fram í tveimur sölum í (þróttahúsinu f Kaplakrika [ Hafnarfirði. Leikið verður með 4 leikmenn inn á í einu og er leyfilegt að allt að 8 séu í leikmannahópi i hverju liði. Þátttökugjald (mótinu er 10 þús. krónur og verður leikið i riðlum, milliriðlum og síðan úrslitaleikur. Aðeins er leyfilegt að hafa einn leikmann úr úrvalsdeild eða 1. deíld karla í hverju liði. HM fatlaðra: Kristín með gull Kristín Rós Hákonardóttir sigraði í 100 metra bringusundi á heims- meistaramóti fatlaðra í sundi á Nýja-Sjálandi í gær. Hún synti vega- lengdina á 1:39,64 mínútu. Pálmar Guðmundsson hreppti silfurverðlaun í 50 metra skriðsundi á 56,47 sekúndum og Bára B. Er- lingsdóttir varð í 8. sæti, bæði í 100 m skriðsundi og i 50 m bringusundi, á mótinu í gær. -VS Rússar æfðu í nepjunni á Laugardalsveilinum í gærmorgun undir öruggri stjórn þjálfarans Anatoly Byshovets. Liðsmenn Rússa voru léttleikandi á æfingunni og greinilega tilbúnir fyrir átökin gegn íslendingum á Laugardalsvellinum í kvöld. DV-mynd ÞÖK Ásgeir Sigurvinsson, tæknilegur ráðgjafi hjá KSÍ: Fáum að sjá agaða og grimma íslendinga - sem mæta Rússum í Evrópukeppni landsliða á Laugardalsvelli í dag íslendingar mæta Rússum í forkeppni Evrópumóts landsliða á Laugardalsvelli í dag og hefst leikurinn klukkan 17.45. Þetta verður síðasti leikur liðsins á þessu ári en þráðurinn verður síðan tekinn upp aftur næsta vor. íslenska liðið hefur leikið tvo leiki í 4. riðli keppninnar. Frægt er jafntefli við heimsmeistara Frakka í fyrsta leiknum og um síðustu helgi gerðu íslendingar jafntefli við Armena ytra. Rússar eru aftur á móti stigalausir eftir tvo leiki og mæta því hungraðir til þessa leiks sem er fyrir þá upp á líf og dauða. Ásgeir Sigurvinsson, fyrrum lands- liösmaður og nú tæknilegur ráðgjafi KSÍ, segist bíða spenntur eftir leikn- um í kvöld og á von á skemmtilegum og spennandi leik. „Þetta verður allt öðruvísi leikur en gegn Frökkum. Það er öllum ljóst að Rússar verða að vinna leikinn ef þeir ætla að komast í loka- keppnina vorið 2000. Það er því mikil pressa á þeim í leiknum gegn okkur í kvöld. Samt sem áður tel ég okkur eiga ágætismöguleika í þess- ari viðureign. Rússar koma inn í leikinn af miklu meiri krafti en Frakkar gerðu. Rúss- Asgeir Sigurvinsson. ar fara út í pressubolta og eflaust meg- um við búast við að pressan veröi mikil á okkur fyrstu tuttugu mínútur leiksins. Ef íslenska liðið heldur haus eins lengi og mögulegt er í fyrri háifleik gæti leikurinn þróast okkur í hag. Rússar munu sækja með mörgum mönnum í upphafi og það gefur okkur vissa mögu- leika í stöðunni. Sá mögu- leiki er fyrir hendi, ef okkur á að takst að leggja Rússana verða okkar sóknarmenn að eiga toppleik. Meö smá- heppni er ýmislegt hægt en þessi leikur á eftir að þróast með allt öðrum hætti en leikurinn við Frakka. Fyrir Rússa er þessi leikur að duga eða drepast. Ég held að við græð- um svolítið á því. Með öguðum og skynsömum vamarleik tel ég okkar möguleika aukast til muna,“ sagði Ás- geir Sigurvinsson. - Hvemig metur þú andrúmsloftið í íslenska liðinu. Er mikill hugur í mannskapnum? „Það er geysigóður mórail í hópn- um. Menn eru að átta sig á alvörunni á bak við þetta. Menn eru sér þess meðvitandi að það er hægt að gera ýmsa hluti ef allir leggjast á eitt. Ég er viss um að við fáum að sjá alveg mjög agaða og grimma íslendinga í leiknum gegn Rússum í kvöld,“ sagði Ásgeir. -JKS Ekkert tap á 18 árum - gegn sovésku landsliði eða arftökum þess hér á landi Hafi Rússar rýnt í sögu landsleikja þeirra og Sovétríkjanna sálugu á ís- landi er ljóst að þeir kvíða leiknum á Laugardalsvellinum í dag. Landslið frá umráðasvæði Sovétríkjanna hefur nefnilega ekki unnið leik á íslandi í 18 ár. íslendingar hafa staðiö betur uppi í hárinu á stórveldinu úr austurvegi en aðrar „minni" þjóðir Evrópu. Sovétmenn fögnuðu naumum 2-1 sigri á Laugardalsvellinum árið 1980 í leik þar sem Þorsteinn Bjamason varði vítaspymu og Árni Sveinsson jafnaði fyrir ísland korteri fyrir leiks- lok. Þeir hafa ekki fagnað í Laugar- dalnum síðan. Áriö 1986 gerðu ísland og stór- stjörnulið Sovétrikjanna jafntefli, 1-1, í Evrópukeppninni. Amór Guðjohn- sen kom þá íslandi yfir í stór- skemmtilegum leik. Árið 1988 urðu sömu úrslit í und- ankeppni HM á Laugardalsvelli en það var fyrsti leikur Sovétmanna eft- ir að þeir fengu silfrið á EM þá um sumarið. Sigurður Grétarsson kom íslandi yfir og staöan hefði getað ver- ið 3-0 áður en Sovétmenn jöfnuðu. Árið 1989 náði ísland bestu úrslit- um sínum á útivelli frá upphafi, 1-1 jafntefli i Moskvu í sömu keppni. Þetta var fýrsta stig sem Sovétmenn töpuðu á heimavelli í alþjóðakeppni og fyrsta mark sem þeir fengu á sig í Moskvu í 24 ár. Halldór Áskelsson jafnaði þá metin undir lokin. Áriö 1993 gerðu ísland og Rússland jafntefli, 1—1, á Laugardalsvelli í und- ankeppni HM. Eyjólfur Sverrisson kom íslandi yfir í leiknum. Kremlverjar hafa á sama tíma átt í mesta basli með að knýja fram sigra á íslandi á eigin heimavelli. Auk jafnteflisins fræga í Moskvu unnu Sovétmenn, 2-0, i Simferopol 1987 og Rússland vann, 1-0, í Moskvu 1992. Að auki hafa þrjár þjóðir fyrrum Sovétrikjanna komið hingaö til lands á þessum tíma og ekki sótt sigur. ís- land sigraði Eistland, 4-0, árið 1994, gerði 0-0 jafntefli við Litháen 1997 og vann Lettland í sumar, 4-1. Er nokkur ástæða til að breyta út af venjunni á Laugardalsvellinum í dag? -VS Þórður Guðjónsson 25 ára í dag: Besta gjöfin yrði sigur „Það er finn hugur í okkur. Við gerum okkur alveg grein fyrir því að Rússamir koma hingað brjálaðir til leiks, staðráðnir í að endur- heimta stoltið sitt aftur. Ef þeir vinna ekki leikinn eru þeir orðnir ansi langt á eftir svo í þeirra huga kemur ekkert annað til geina en að sigra,“ sagði Þórður Guöjónsson, landsliðsmaður og afmælisbarn, við DV eftir fyrri æfingu landsliðsins í gær en þar var farið yfir sóknarleik- inn. Þolinmóðir og skipulagðir „Fyrir okkur skiptir öllu máli að spila okkar leik. Ég reikna alveg með því að leikurinn þróist svipað og i síðustu leikjum, það er að við liggjum til baka og reynum svo að spila vel úr þeim sóknum sem við munum fá. Því þolinmóðari og skipulagðari sem við verðum í leiknum því óþolinmóðari og óskipulagðari verða Rússamir. Þar held ég að okkar möguleikar felist fyrst og fremst. Ef þeir verða pirrað- ir fara þeir að gera hluti sem era erfiðir og flóknir og þá gera þeir jafhframt mistökin sem við getum refsað þeim fyrir," - Eruð þið búnir að fara yflr leikstíl Rússanna? „Maðin: veit svona nokkum veg- inn hvemig þeir spila. Þeir reyna að spila hratt og í fáum snertingum en þeir hafa átt í erfiðleikum með að skapa sér færi og skora mörk. Mörkin sem þeir hafa verið að skora hafa flest komið úr föstum leikatriðum og við verðum að gæta okkur að gefa þeim ekki aukaspym- ur á hættulegum stöðum. Við vitum nokkum veginn hvemig við eigum að loka þá og hvar veiku punktam- ir í leik þeirra eru.“ Þórður Guðjónsson heldur upp á 25 ára afmæli sitt i dag og er þá ekki besta gjöfin sem hann gæti fengið að vinna leikinn? „Það væri ágætt að fá góða afmæl- isgjöf með því að vinna Rússana. Ég var nú eiginlega búinn að ákveða að spila 25. landsleik minn á 25 ára af- mælisdeginum en það skeikar um einn leik,“ sagði Þórður. Betra að vera stór fiskur í lítilli tjörn en öfugt Þórður mun að öllum líkindum skrifa undir nýjan 5 ára samning við Genk þegar hann kemur út til Belgíu. „Ég gerði smávægilegar breyting- ar á tilboði þeirra og hef ekki trú á að þeir neiti því. Ef þeir samþykkja þessar breytingar skrifa ég undir samning sem gildir til ársins 2003. Ég sé enga ástæðu til þess að fara í einhverja minni klúbba í öðrum löndum og strögla þar. Það er oft betra að vera stór fiskur í lítiili tjöm heldur en öfugt,“ sagði Þórður að lokum. -GH Bræðurnir Þórður og Bjarni Guðjónssynir, sem hér eru á heimleið frá Armeníu á laugardag, verða báðir í eldlínunni í dag. Þórður, sem heldur upp á 25 ára afmæli sitt, leikur með A-liðinu gegn Rússum á Laugardalsvelli og Bjarni með 21-árs liðinu gegn Rússum á Kópavogsvelli. DV-mynd GH Er vel undirbúinn fyrir næsta verkefni Eins og fram hefur komið í fjöl- miðlum þá er Guðmundur Torfason hættur störfúm sínum sem þjálfari úrvalsdeildarliðs Grindvíkinga í knattspymu eftir 3ja ára farsælt starf. Milan Stefán Jankovic hefúr þegar verið ráðinn eftirmaður Guð- mundar en menn velta fyrir sér hvað tekur við hjá Guðmundi. „Þaö hafa átt sér stað þreifingar milli mín og nokkurra félaga og þessa dagana er ég bara að hugsa málið. Ég mun alla vega ekki taka neina skyndiákvörðun í þessu máli. Næst er á döfinni hjá mér að klára E-stigið í þjálfúninni sem ég mun gera í Þýskalandi og Hollandi á næstimni en ég var áður búinn að fullmennta mig í Skotlandi. Ég átti þrjú mjög góð ár í Grindayík og öðl- aðist mikla reynslu þar. Ég tel mig því vera vel undirbúinn fyrir næsta verkefhi, hvort sem það kemur nú eða síðar,“ sagði Guðmundur Torfa- son í saíhtali við DV. -GH Tómas líklega til AGF Tómas Ingi Tómasson, knatt- spymumaður úr Þrótti, stóð sig vel í reynsluleik með danska liðinu AGF í fyrrakvöld. AGF tapaði fyrir AaB, 2-0, en Tómas Ingi var mjög frískur og frammistaða hans varð til þess að Peter Rudbæk, þjálfari AGF, ákvað að bjóða honum að vera lengur hjá félaginu. Samkvæmt heimildum DV er nú talið mjög líklegt að Tómasi Inga verði boðinn samningur við AGF á næstu dögum. Tómas er í dönskum fjölmiðlum sagður mjög kröftugur sóknarmað- ur og minni helst á Norðmanninn Hávard Flo hvað leikstíl varðar. Peter Ogaba úr Leiftri spilaði líka með AGF í leiknum. Hann náði sér ekki á strik og ljóst er að ekki verð- ur af samningi hjá honum við danska félagið. -VS/GH íslaiubRússland Pétur Marteinsson getur ekki leikið gegn Rússum í kvöld og eins og i' leiknum gegn Armenum koma nára- meiðsli i veg fyrir það. íslenska liöiö verður því óbreytt frá þvi gegn Armenum. Liðið er þannig: Markvörður: Birkir Kristinsson Vamarmenn: Sigurður Jónsson Auðun Helgason Lárus Orri Sigurðsson Steinar Adolfsson Hermann Hreiðarsson Miðjumenn: Helgi Kolviösson Rúnar Kristinsson Vængmenn: Amar Gunnlaugsson Þórður Guðjónsson Framherji: Ríkharður Daðason Rúnar Kristinsson leikur i kvöld sinn 70. landsleik þegar Islendingar mæta Rússum. Þar með kemst hann upp fyrir Sœvar Jónsson sem lék 69 landsleiki og jafnar Atla Eövaldsson sem lék 70 landsleiki. Guöni Bergsson er leikjahæsti leik- maður íslenska landsliðsins frá upp- hafi. Guðni hefur leikið 77 landsleiki. Rúnar ætti að eiga góða möguleika á að komast upp fyrir Guðna því hann er 29 ára gamall en Guðni er 33 ára gamall og er um þessar mundir ekki í myndinni hjá Guöjóni Þóröarsyni landsliðsþjálfara. Næstir á eftir Guðna koma Arnór Guöjohnsen með 73 landsleiki og Ólafur Þóröarson með 72. Þóróur Guöjónsson, sem heldur upp á 25 ára afmæli sitt í dag, lék sinn 25. landsleik þegar íslendingar og Armenar geröu markalaust jafhtefli í Jerevan á laugardaginn. Þórður er markahæstur leikmannanna í is- lenska liðinu i dag en hann hefur skorað 6 mörk Rikharöur Daöason spilar sinn 20. landsleik í leiknum gegn Rússum í kvöld. í leikjunum 19 hefur Ríkharð- ur skoraö 4 mörk. Helgi Kolviösson fyllir tuginn í leiknum gegn Rússum en hann leikur þá sinn 10. landsleik. Guójón Þóróarson ætlar að nota tímann fram að áramótum til að fylgj- ast með leikmönnunum sem leika er- lendis. í febrúar er svo stefnt að því að taka þátt í móti erlendis. íslenska liðinu hefur verið boöið á mót á Kýp- ur sem er sama mótið og liðið tók þátt í í vetur og annað hvort tekur ís- lenska liðiö þátt í þvi móti eða öðru sem fram fer á Spáni. Úkrainumenn hafa greinilega mjög sterku 21-árs landsliði á að skipa. Þeir gjörsigruðu Armena í Kiev í gærkvöld með átta mörkum gegn engu. íslendingar í þessum aldurs- flokki töpuðu fyrir Armenum ytra, 3-1, um síðastu helgi. Úkraínumenn unnu áður Rússa, 1-0, og eru efstir í riðlinum. íslendingar hafa ekkert stig hlotið en þeir mæta Rússum á Kópa- vogsvelli klukkan 14 i dag -GH/JKS Hola í höggi hjá Þresti DV, Ólafsfirði: Þröstur Sigvaldason, golfleik- ari í GÓ, gerði sér lítið fyrir og fór holu í höggi á Norðurlands- mótinu sem haldið var á Dalvík- urvelli á dögunum. Þröstur náði draumahögginu á holu 3 sem er 89 metra par þrjú og notaði hann wegde-jám. „Þetta var náttúrlega alveg meiri háttar gaman. Kúlan skoppaöi einu sinni á gríninu og rúllaði svo beint ofan í og maður stökk hæð sína í loft upp af gleði,“ sagði Þröstur. Þröstur er þar með orðinn gjaldgengur félagi í Einherja- klúbbnum, félagi þeirra sem • slegið hafa holu í höggi, og svo skemmtilega vill til að í þeim klúbbi er einmitt bróðir Þrastar, Matthías Sigvaldason, sem sló holu í höggi á Ólafsfjarðarvelli, og eru þeir einu bræðumir á ís- landi sem náð hafa draumahögg- inu. -HJ _

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.