Dagblaðið Vísir - DV - 14.10.1998, Síða 26
,J
50
MIÐVIKUDAGUR 14. OKTÓBER 1998
Fólk í fréttum
Smári Geirsson
Smári Geirsson, kennari og for-
seti bæjarstjómar hins nýja sameig-
inlega sveitarfélags á Austurlandi,
Sæbakka 4, Neskaupstað, var í frétt-
um DV í gær um fólksfækkun á
Austurlandi.
Starfsferill
Smári fæddist á Neskaupstað 17.1.
1951. Hann lauk stúdentsprófi frá
ML 1972, BA-prófi í þjóðfélagsfræði
frá HÍ 1975, cand. mag.-prófi í stjóm-
sýslufræði frá Háskólanum í Björg-
vin 1979 og prófi í uppeldis- og
kennslufræði frá HÍ 1980.
Smári var kennari við Gagn-
fræðaskólann í Neskaupstað
1975-78, við Iðnskóla Austurlands
1975-77, við Nesskóla í Neskaupstað
1977-78, við Gagnfræðaskólann í
Neskaupstað 1980-81, við Fram-
haldsskólann í Neskaupstað
1981- 83, var skólameistari við Fram-
haldsskólann í Neskaupstað 1983-86
og við Verkmenntaskóla Austur-
lands 1986-87 og kennari við Verk-
menntaskóla Austurlands frá 1987.
Smári var formaöur Nemendafé-
lags ML 1971-72, formaður Félags
þjóðfélagsfræðinema við HÍ 1974-75,
formaður Alþýðubandalagsins í
Neskaupstað 1977-78, í stjórn knatt-
spyrnudeildar íþróttafélagsins
Þróttar 1977-78, 1980-85 og 1986-89,
bæjarfulltrúi 1 Neskaupstað frá
1982- 98 og í sameiginlegu nýju
sveitarfélagi Neskaupstaðar, Reyð-
arfjarðar og Eskifjarðar frá 1998,
forseti bæjarstjómar Nes-
kaupstaðar frá 1990 og
hins nýja sveitarfélags frá
stofnun 1998, var formað-
ur Sögu- og safnanefndar
Neskaupstaðar, formaður
bygginga- og skipulags-
nefndar Neskaupstaðar,
formaður Félagsmálaráðs
Neskaupstaðar um skeið
og í ýmsum nefndum á
vegum sveitarfélagsins, í
stjórn Sambands sveitar-
félaga í Austurlandskjör-
dæmi 1984-87, varafor-
maður þar 1985-87 og formaður frá
1998, sat í ritstjórn vikublaðsins
Austurlands og var ritstjóri blaðs-
ins 1983 og frá 1990-91, ritstjóri Sjó-
mannablaðs Neskaupstaðar frá
1981-94 og í ritstjóm söguritsins
Múlaþing frá 1987.
Út hafa komið eftir Smára ritin
Norðfjörður, saga útgerðar og fisk-
vinnslu, 1983; Frá eldsmíði til elek-
sírs, iðnsaga Austurlands, fyrra
bindi, 1989; Frá skipasmíði til skó-
gerðar, iðnsaga Austurlands, síðara
bindi, 1995; Saga Sparisjóðs Norð-
fjarðar, 1992; Saga Norðfirðskrar
verkalýðshreyfingar, fyrra bindi,
1993.
Smári hefur leikið í fjölmörgum
hljómsveitum og í lúðrasveit.
Fjölskylda
Eiginkona Smára er María Jór-
unn Hafsteinsdóttir, f. 22.4. 1957,
bankastarfsmaður. Hún
er dóttir Hafsteins Daní-
elssonar, f. 15.3. 1935,
pípulagningamanns í
Mosfellsbæ, og k.h., Mar-
grétar Jónu Þorsteins-
dóttur, f. 11.11. 1935,
verkakonu.
Börn Smára og Maríu
Jórunnar era Orri, f.
11.3. 1980, framhalds-
skólanemi; Jóhanna, f.
29.9. 1985, nemi.
Systkini Smára eru
Birna Geirsdóttir, f. 8.4.
1946, starfsmaður hjá Reykjavíkur-
borg; Heimir Geirsson, f. 2.6. 1954,
háskólakennari í heimspeki í
Bandaríkjunum.
Foreldrar Smára eru Geir Bjami
Jónsson, f. 22.2. 1922, verkamaður,
og k.h., Jóhanna Björnsdóttir, f.
14.8.1921, húsmóðir.
Ætt
Bróðir Geirs Bjama: Óskar, fram-
kvæmdastjóra á Norðfirði. Geir
Bjami er sonur Jóns, sjómanns og
útgerðarmanns á Norðfirði, Bjama-
sonar, smiðs á Kálfatjörn, Hinriks-
sonar, vinnumanns, Guðmundsson-
ar. Móðir Bjama var Herdís Jóns-
dóttir. Móðir Jóns var Geirlaug
Jónsdóttir, sjómanns á Kálfatjöm,
ísakssonar, á Korpúlfsstöðum,
Gunnarssonar. Móðir Jóns var Guð-
rún Jafetsdóttir. Móðir Geirlaugar
var Þórdís Guðmundsdóttir, b. í
Hlöðnesi á Vatnsleysuströnd, Jóns-
sonar. Móðir Þórdísar var Guðrún
Pálsdóttir, hálfsystir, sammæðra,
Gísla Þorsteinssonar, langafa Krist-
ins, afa Össurar Skarphéðinssonar,
alþm. og ritstjóra DV. Móðir Guð-
rúnar Pálsdóttur var Rannveig,
systir Álfheiðar, langömmu Áma
Eiríkssonar, leikara og kaupmanns,
afa Styrmis Gunnarssonar, ritstjóra
Morgunblaðsins. Rannveig var dótt-
ir Alexíusar, b. á Fremra-Hálsi, Al-
exíussonar, og Helgu Jónsdóttur,
ættfóður Fremra-Háls-ættarinnar,
Ámasonar.
Móðir Geirs Bjarna var Guðný
Björnsdóttir, b. á Ýmastöðum í
Vöðlavík, Jónssonar, b. á Ýmastöð-
um, Þorgrímssonar. Móðir Bjöms
var Þuríður Jónsdóttir, b. í Stóru-
Breiðuvík, Ásmundssonar. Móðir
Guðnýjar var Svanhildur Magnús-
dóttir, b. á Reykjum í Mjóafirði,
Magnússonar, b. á Böðvarsstöðum,
Sigurðssonar. Móðir Svanhildar var
Valgerður Jónsdóttir, b. á Kirkju-
bóli, Vilhjálmssonar.
Jóhanna er systir Kristmundar,
föður Guðmundar Björns, íslensku-
fræðings við KHÍ. Jóhanna er dóttir
Bjöms, útvegsb. á Þengilbakka í
Grenivík, Kristjánssonar. Móðir Jó-
hönnu var Inga Vilfríður, dóttir
Gunnars i Þorgeirsfirði, og Guðnýj-
ar Baldvinsdóttur, systur Krist-
mundar, hreppstjóra i Grímsey.
Smári Geirsson.
Afmæli
Hannes Kristjánsson
Gunnar Hannes Kristjánsson,
vömbílstjóri og sjómaöur, Silfur-
götu 11, ísafirði, er fimmtugur í dag.
Starfsferill
Hannes fæddist í Hnífsdal en ólst
upp í Ármúla við Kaldalón í ísa-
fjarðardjúpi. Hann stundaði bama-
skólanám við Bamaskólann í
Reykjanesi við Djúp.
Hannes var í vegavinnu frá því á
unglingsárunum, starfaði síðan á
þungavinnuvélum hjá Vegagerð rík-
isins um árabil en festi svo kaup á
eigin vörabifreið 1978 og hefur síð-
an ekið eigin vörubifreið auk þess
sem hann hefur stundað sjó-
mennsku á bátum frá ísafirði.
Fjölskylda
Hannes kvæntist 2.8. 1980 Sigríði
Jakobínu Jóhannsdóttur, f. 15.7.
1954, húsmóður. Hún er dóttir Jó-
hanns Sigurðar Hinriks Guðmunds-
sonar, sem nú er látinn, sjómanns
og verkamanns á ísafirði, og k.h.,
Ásdísar Ásgeirsdóttur húsmóður.
Böm Hannesar og Sigríðar eru
Kristján Hannesson, f. 2.4. 1976,
nuddari í Reykjavík; Bjarki Þór, f.
9.2. 1980, verkamaður á Isafirði; Ás-
geir, f. 15.7. 1983, nemi á ísafirði.
Dætur Hannesar frá því áður em
Ingibjörg Ósk Hannesdóttir, f. 8.9.
1973, starfsmaður við leikskóla, bú-
sett í Hveragerði, gift Valgeiri Ás-
geirssyni bifreiðarstjóra og eiga þau
tvö böm; Jenný Guöbjörg Hannes-
dóttir, f. 3.2. 1975, dagmóðir í
Reykjavík, gift Guðna Þórissyni
versluneirmanni og eiga þau tvö
börn.
Dóttir Sigríðar og stjúpdóttir
Hannesar er Hólmfríður B. Hannes-
dóttir, f. 18.6. 1973, leikskólakennari
í Reykjavík, gift Benedikt G. Egils-
syni rafeindatækni og eiga þau tvö
böm.
Systkini Hannesar eru Guðjón
Amar Kristjánsson, f. 1.3. 1950, sjó-
maður á ísafirði; Guðrún Oddný
Kristjánsdóttir, f. 3.5. 1954, húsmóð-
ir á ísafirði; Gísli Jón Kristjánsson,
f. 18.7. 1962, sjómaður á ísafirði.
Foreldrar Hannesar
voru Kristján Jörgen
Hannesson, f. 21.1. 1916,
d. 13.5. 1985, bóndi á Ár-
múla og síðar verkamað-
ur á ísafirði, og k.h.,
Guðbjörg Guðlaug Jóns-
dóttir, f. 15.9.1924, d. 14.3.
1989, húsfreyja í Ármúla
og siðar á ísafirði.
Ætt
Kristján Jörgen var
sonur Hannesar, b. i Ár-
múla, Gíslasonar Sveins,
b. í Reykjarfirði við Djúp, Gíslason-
ar. Móðir Hannesar var Salome
Kristjánsdóttir.
Móðir Kristjáns Jörgens var Guð-
rún Sigurðardóttir, b. á Kjarlaks-
stöðum í Saurbæ í Dölum, Jónsson-
ar, b. í Knarrarhöfn, Jónssonar, b. í
Skálholtsvík í Bæjarhreppi, Hjálm-
arssonar, ættfóður Tröllatunguætt-
arinnar, Þorsteinssonar. Móðir Sig-
urðar var Guðrún Jónsdóttir. Móðir
Guðrúnar í Ármúla var Hólmfríður
Guðmundsdóttir, b. á
Hrappsstöðum í Laxárdal,
Ólafssonar, og Hólmfríðar
Bergþórsdóttur.
Guðbjörg Guðlaug var
dóttir Jóns Jóhanns,
verkamanns Katarínus-
sonar, b. í Amardal, Jóns-
sonar. Móðir Jóns Jó-
hanns var Solveig Hjalta-
lína Einarsdóttir.
Móðir Guðbjargar Guð-
laugar var Guðjóna Jó-
hannesdóttir, b. í Skálm-
ardal, Guðmundssonar, b.
á Illugastöðum, Arasonar. Móðir Jó-
hannescir var Ingibjörg Jóhannes-
dóttir. Móðir Guðjónu var Oddný
Guömundsdóttir, b. í Gröf í Fells-
hreppi, Ketilssonar. Móðir Oddnýj-
ar var Sigurlaug Jónsdóttir, b. á
Borgum, Andréssonar, b. á Kol-
beinsá Guðmundssonar. Móðir Jóns
var Guðrún Bjömsdóttir. Móðir Sig-
urlaugar var Oddhildur, systir Jóns
í Knarrarhöfn.
Hannes er að heiman.
Hannes
Kristjánsson.
Brúðkaup
Þann 15. ágúst voru gefin saman í
hjónaband í Kópavogskirkju af sr.
Sigurði Helgasyni Sigríður Anna
Ólafsdóttir og Sævar Þór Gylfason.
Heimili þeirra er í Höfn í Hornafirði.
Ljósm. Ljósmyndarinn - Jóhannes
Long
Þann 15. ágúst voru gefin saman í
hjónaband í Borgarneskirkju af sr.
Þorbirni Hiyn Árnasyni Unnur Heiða
Gylfadóttir og Þröstur Fríðberg.
Heimili þeirra er að Hrafnakletti 4,
Borgarnesi.
Ljósm. Ljósmyndarinn - Lára Long
Þann 15. ágúst voru gefin saman f
hjónaband í Grafarvogskirkju af sr.
Vigfúsi Þór Árnasyni Erna Kristín
Ágústsdóttir og Ólafur Már Magnús-
son. Heimili þeirra er í Reykjavík.
Ljósm. Ljósmyndarinn - Lára Long
Þann 8. ágúst voru gefin saman í
hjónaband í Bústaðakirkju af sr.
Pálma Matthíassyni Kolbrún Dröfn
Ragnarsdóttir og Gfsli Gunnarsson.
Heimili þeirra er í Reykjavfk.
Ljósm. Ljósmyndarinn - Lára Long
Tll hamingju með afmælið 14. októnber
95 ára
Sigurjón Jörundsson, Hrafnistu, Reykjavík.
90 ára
Stefán Stefánsson, Brennigerði, Sauðárkróki.
75 ára
Jóhanna Bogadóttir, Álfabyggð 5, Akureyri.
70 ára
Rósa Geirþrúður Halldórsdóttir, Rjúpufelli 31, Reykjavík. Hún tekur á móti ættingjum og vinum á heimili sínu í dag frá kl. 15.30. Aage Valtýr Michelsen, Hraunbæ, Hveragerði. Hulda Axelsdóttir, Nautabúi, Varmahlíð. Kristín Jóhannsdóttir, Hrisalundi 20 D, Akureyri. Svava Agnarsdóttir, Elliðavöllum 11, Keflavík.
60 ára
Guðni Benediktsson, Flétturima 2, Reykjavík.
50 ára
Björn Sigurðsson, Surtsstöðum, Egilsstöðum. Guðfinna Guðlaugsdóttir, Hörðalandi 2, Reykjavík. Indiana Jóhannsdóttir, Flatasíðu 1, Akureyri. Katrín Þorsteinsdóttir, Heiðarhrauni 16, Grindavík. Kristín Guðmundsdóttir, Útskálum 7, Rangárvallahreppi. Sigurður Páll Ásólfsson, Ásólfsstöðum 1 A, Gnúpverjahreppi.
40 ára
Anna Margrét Aðalsteinsdóttir, Hraunbæ 60, Reykjavík. Gunnar Öm Jónasson, Skaftahlíð 1, Reykjavík. Hörður Baldursson, Holtsgötu 6, Sandgerði. Ingileif Sigfúsdóttir, Logafold 129, Reykjavík. Jón Gunnar Snorrason, Sunnuhlíð 21 A, Akureyri. Sigmundur G. Sigurjónsson, Hraunbæ 28, Reykjavík. Þóra Geirsdóttir, Hlíðartúni 1, Mosfellsbæ. Þórunn Linda Beck, Hamarsgötu 25, Fáskrúðsfirði. Þuríður Einarsdóttir, Blómvangi 4, Hafnarfirði.
Þann 12. september voru gefin sam-
an í hjónaband f Háteigskirkju af sr.
Pálma Matthíassyni Ásta Björk
Árnadóttir og Sólberg S. Bjarnason.
Heimili þeirra er í Reykjavik.
Ljósm. Ljósmyndarinn - Lára Long.