Dagblaðið Vísir - DV - 14.10.1998, Síða 4
2. #ís og húsbúnaður
MIÐVIKUDAGUR 14. OKTÓBER 1998 JjV
Valhúsgögn í 38 ár:
Kántríhúsgögnin úr antikverkuðu
leJri þaJ nýjasta
Húsgagnaverslunin Valhúsgögn
hefur selt íslendingum húsgögn í 38
ár og töluverð reynsla hefur því
safnast saman þar á bæ. Einar
Ágústsson sölustjóri segir að Val-
húsgögn sé alhliða húsgagnaverslun
sem leggim mikla áherslu á sófasett,
bæði úr leðri og með áklæði. Að
undanfömu hefúr sala á borðstofu-
húsgögnum aukist í Valhúsgögnum.
„Kántrílínan sem hefur notið
geysilegra vinsælda í Evrópu er að
koma talsvert inn hér á landi. Við
höfum verið að kynna þessa línu og
það hefur gengið mjög vel. Þar höf-
um við séð skemmtilega breytingu á
sófasettum. Þessi sófasett eru úr
antikverkuðu leðri og líta út fyrir
að vera gömul. Við höfum í gegnum
tíðina haldið okkur við það að selja
húsgögn í klassískum stíl, það er að
segja eins og barrokk og rókókó og
skápa í stíl. Við höfum fram að
þessu selt eldra fólki þessi húsgögn
en núna er unga fólkið fariö að
kaupa þau í ríkari mæli. Það finnst
mér skemmtileg þróun. Auk þess
höfum við alltaf verið með nýtísku-
leg húsgögn. Að mínu mati er sala á
nýtískulegum húsgögnum að
aukast," segir Einar.
Að sögn Einars er nauðsynlegt að
bjóða viðskiptavinunum upp á sem
flesta stíla til þess að það gangi að
reka húsgagnaverslun á íslandi.
Fólk hefur misjafnan smekk og
hann sér auk þess mikinn mun á
smekk fólks frá ári til árs. Lita-
sveiflumar eru miklar frá ári til árs
í húsgögnum. Að sögn Einars eru
jarðlitimir allsráðandi í dag. Blái
liturinn hefur auk þess verið að
skjótast inn á milli. I áklæðinu er
vinsælast rautt, blátt og grænt en í
leðrinu koníaksbrúnt.
„Vinsældir viðarins eru að
aukast verulega. Ef við tökum til
dæmis sófaborðin sem dæmi þá em
vinsældir glerborðanna að minnka
en viðarborðin bæta við sig. Kirsu-
berjaviðurinn er að verða allsráð-
andi. Áður seldum við nálægt 90%
leðursófasett en nú em sófasett með
áklæði að bæta við sig. Leðrið er þó
ekki á undanhaldi þrátt fyrir þetta
heldur em sófasettin með áklæði
nokkurs konar viðbót við söluna,"
Valhúsgögn hafa í gegnum tíðina
verið talsvert með sérpantanir frá
dýrari og fínni fyrirtækjum í Sviss
og Danmörku. Vinsældir sérpant-
ana hafa aukist þar sem fjárhagur
Klassísk húsgögn hafa í gegnum tíðina verið nokkuð vinsæl í Valhúsgögn-
um, þ.e. barrokk og rókókó. Eldra fólkið keypti þessi húsgögn en unga fólk-
ið er nú farið að kaupa þau í rfkari mæli.
fólks er orðinn eitthvað betri. Að
sögn Einars er það augljóst því ekki
þýðir að bjóða fólki að kaupa ódýr
og óvönduð húsgögn. Fólk lítur ekki
við þeim húsgögnum lengur og
reynir ekki að spara í húsgagna-
kaupum eins og það gerði áður þeg-
ar áraði illa. Nú kaupir fólk dýr,
endingargóð húsgögn og lætur verð-
ið ekki lengur aftra sér. -em
Kántrílínan sem hefur notið geysilegra vinsælda í Evrópu er að koma tals-
vert inn hér á landi.
- gϚavara
Glæsilegar gjafavörur. Heimsfrægir hiinnuðir,
Allt til borðbúnaðar. m.a. Gianni Versace.
ftoðeÉ&A. VVXVXV., VERSLUNIN
Líiugavegi 52, s. 562 4244
NytjamarkaJurinn í Sjálfsbjargarhúsinu:
OpiJ fyrir Guð, álfa og tröll
„Hjá okkur er hægt að finna allt
til heimilisins. Hér em húsgögn,
glös, ljós, leikföng og jafnvel salerni
og vaskar," segir Ómar Sigurðsson,
verslunarstjóri Nytjamarkaðarins,
sem er til húsa í Sjálfsbjargarhús-
inu. Það er ekki nauðsynlegt að
kaupa alltaf nýja hluti til heimilis-
ins. Það er til dæmis upplagt fyrir
og allt þar á milli
ungt fólk sem er að byrja að búa að
kaupa notaða hluti. Það er mikið
sem þarf að kaupa þegar flutt er að
heiman i fyrsta sinn. Síðan er hægt
að endumýja hlutina smátt og
smátt. Á Nytjamarkaðnum er að
finna allt miÚi himins og jarðar sem
vantar til heimilisins.
Nytjamarkaðurinn hefur verið
Nú gefst viöskiptavinum okkar kostur á aö gera reyfarakaup í IBERNA kœliskápum,
þvottavélum, tauþurrkurum og uppþvottavélum.
Athugib:
Takmarkab magn. v' *
Nú er ab hrökkva eöa
stökkva, því fyrstur
kemur, fyrstur fœr.
Þvottavél LBI2610 T
Tekur 5 kg -18 þvottakerfi
Frjálst kerfisval - Frjálst hitaval
Vinda 1000-400 sn.
Rybfrí tromla - Ryðfrír belgur
HxBxD 85x60x52
Kr. 42.000 stgr.
Þvottavél 800-400 sn.
Tauþurrkari 4,5 kg m/barka
Tauþurrkari 4,5 kg barkalaus
Uppþvottavél 12 manna
Cerb ID-24
Kælir 181 I
Frystir 44 I
HxBxD142x54x56
Kr. 32.100 stgr.
Cerb ID-28
Kælir 213 I
Frystir 67 I
HxBxD 143x60x60
Kr. 37.400 stgr.
Cerb ID-33
Kælir 249 I
Frystir 74 I
HxBxD 163x60x60
Kr. 41.900 stgr.
kr. 38.200,-
kr. 24.700,-
kr. 42.400,-
kr. 41.200,-
fyrsta
ibemo /SQr»IX
ta flokks frá ## hflil IIæV
HATUNI6A REYKJAVIK SIMI 552 4420
A Nytjamarkaðnum er að finna allt
milli himins og jarðar.
starfræktur i þrjú og hálft ár og
gengið sæmilega. Að sögn Ómars er
markaðurinn rekinn þannig að
líknarfélögin hafa sérstakan aðgang
fyrir sína skjólstæðinga. Það ríkir
annað verðlagsviðhorf fyrir skjól-
stæðinga líknarfélaganna. Markað-
urinn er auk þess opinn, eins og
Ómar komst að orði, fyrir Guð, álfa
og tröll og allt þar á milli. Ef afgang-
ur verður af rekstri markaðarins
rennur það til líknarfélaganna. Von-
ast er til þess að afgangur verði í ár
þar sem markaðurinn þarf ekki
lengur að borga virðisaukaskatt af
þeim hlutum sem þeir fá gefins.
„Við erum i samstarfi við endur-
vinnslustöðvamar. Þaðan fáum við
gefins dót til þess að selja í mark-
aðnmn. Á öllum endurvinnslustöðv-
um er lokaður gámur sem fólk get-
ur sett hluti í. Þá fara þeir beint til
okkar. Ef hlutimir em settir í opnu
gámana koma þeir aldrei til okkar.
Auk þess er algengt að fólk komi
hlutum til okkar,“ segir Ómar.
-em