Dagblaðið Vísir - DV - 14.10.1998, Side 6
MIÐVIKUDAGUR 14. OKTÓBER 1998
22 jfcís og húsbúnaður
Ungar konur sauma
áklæði á rákáká-stóla
„Núna eru margar ungar konur
teknar upp á því að sauma út
áklæði á rókókó-stóla. Það er mjög
skemmtilegt. Fyrir nokkrum árum
voru eingöngu gráhærðar ömmur
sem höfðu áhuga á þvi að sauma sér
rókókó-stóla. Nú er það breytt og til
dæmis eru þritugar konur byrjaðar
á því, ég er meira að segja byrjuð.
Mér var gefinn strammi þegar ég
var fimmtán ára. Ég byrjaði á hon-
um í fyrravetur," segir Elínborg
Jónsdóttir bólstrari.
Elínborg hefur starfað sem bólstr-
ari frá því 1981 þegar hún byrjaði að
læra. Hún segir að mikill áhugi sé á
útsaumi og síðan komi konurnar til
hennar með útsauminn og velji sér
grind á stólana sína.
Nýtt líf í gömlu hús-
gögnin
Elínborg segist hafa meira en nóg
að gera við að bólstra bæði rókókó-
stóla og stóla og sófasett. Hún segir
mikið um að fólk komi með gömlu
húsgögnin til hennar og gæði þau
nýju lífi. Hún býður upp á mikið úr-
val áklæða og segir hún fólk velja
þau eftir þvi sem hæfi hverju hús-
gagni. Elínborg hefur unnið að því
að bólstra sitt eigið sófasett um tíma
en það gengur hægt eins og smíðin
hjá smiðunum. Hún segist minnsta
tímann hafa til þess að vinna fyrir
sjálfa sig.
„Fyrir nokkrum árum var mjög
mikill áhugi fyrir símabekkjunum.
Ég á enn þá nokkrar grindur sem ég
á eftir að klæða. Auk þess er hægt
að sérpanta sófa, stóla, borð og
fleira. Áklæði og viðarlitur á grind
er eftir vali. Ég hef haldið mig við
Gjafaöskjur með matar- og kaffistelli
fyrir fjóra ásamt fylgihlutum
í Old Luxemburg-mynstrlnu með
HL 5% afslætti.
Villeroy&Boch
á annarri bœð Kringlunnar / Sími 533 1919
Takið upp nálina stelpur því nú er í tísku að sauma áklæði á rókókó stólinn
eins og bara amma átti áður.
hnotulitinn sem lagerlit og hefur
hann verið vinsælastur," segir Elín-
borg.
Elínborg á mörg sýnishom af
vönduðum útskomum stólum fyrir
útsaum eða áklæði. Grindumar em
yfirleitt í hnotulit. Auk þess em
þær fáanlegar í öðmm litum eins og
mahóní, gylltu, antikhvítu og fleir-
um. Upp á síðkastið hefur ma-
honUiturinn verið að ryðja sér tU
rúms en hann er dökkrauður.
-em
Elínborg segir að hún sé
eins og smiðurinn sem aldrei
geri neitt heima hjá sér. Sófa-
settið með hörpudisklaginu
hefur hún átt lengi og vinnur
við að yfirdekkja það. Hún
hefur svo mikið að gera að
hún er ekki búin að klára allt
settið. Það er auðvelt að sjá
hvað sófasettið kemur til
með að verða fallegt og gam-
an að bera það saman við
myndina af því hvernig það
var upphaflega.
Það er ekki nóg að sauma
stólinn, það verður að vera Ift-
ill skemill í stíl.
Svona var sófasettið þegar
Elínborg fékk það.