Dagblaðið Vísir - DV - 14.10.1998, Page 12
28
MIÐVIKUDAGUR 14. OKTÓBER 1998
*9- os húsbúnaður
Bergþór Pálsson óperusöngvari:
Eftirlætishúsgögn-
in eru hæginda-
stóllinn og rúmið
Það mætti segja manni að önnum
kafinn og ástsæll söngvari eins og
Bergþór Pálsson væri ekki mikið
heima hjá sér til þess að sitja eða
liggja í húsgögnunum sínum. Það
kemur þó fyrir að hann er ekki að
æfa eða syngja og getur notið þess
að slappa af heima hjá sér. Blaða-
maður sló því á þráðinn til hans og
spurði hvort hann ætti sér eitthvert
eftirlætishúsgagn. Bergþór skellihló
að spumingunni en svaraði síðan
að bragði: „Auðvitað hægindastól-
inn minn,
„Lazy boy-stóllinn minn er alveg
geggjaður en hann er auðvitað eftir-
lætishúsgagnið mitt og stendur fyr-
ir framan sjónvarpið. Ég sit iðulega
í honum og læt mér líða vel. Það var
ótrúlegt að þegar ég kom í búðina
og var sestur í hann og búinn að
halla honum og draga fram skemil-
inn þá hrópaði hann á mig að kaupa
sig. Það var ekki aftur snúið eftir
það,“ segir Bergþór.
Öllu ægir saman
Bergþór segist annars hafa frekar
ruglingslegan húsgagnastil heima
hjá sér. Upp á síðkastið segist hann
farinn að blanda saman gömlu og
nýju. Það komi aðallega til af því að
hann hafi áður búið í gömlu hús-
næði þar sem gömul húsgögn hent-
uðu vel. Nú eigi hann aftur á móti
heima í nýlegu húsnæði þar sem
nýr stíll henti alveg jafn vel. Niður-
staðan sé að nú ægi öllu saman hjá
honum.
„Ég legg ekki lengur jafnmikið
upp úr útliti húsgagna eins og þæg-
indunum. Ég vill að það sé notalegt
í kringum mig. Það er reyndar svo
notalegt að gestir eiga yfirleitt erfitt
með að fara.“
Auk hægindastólsins er Bergþór
afar hrifinn af rúminu sínu. „Það er
geggjað amerískt rúm eins og rúm
eiga að vera. Rúmið mitt er mjög
þægilegt vægast sagt,“ segir Berg-
þór. -em
„Ég legg ekki lengur jafnmikið upp
úr útliti húsgagna eins og þægind-
unum. Ég vill að það sé notalegt í
kringum mig. Það er reyndar svo
notalegt að gestir eiga yfirleitt erfitt
með að fara,“ segir hinn ástsæli
söngvari Bergþór Pálsson.
Nýbýlavegur 30
(Dalbrekkumegin)
S. 554-6300
Ármúli 7 • S. 553-6540
www.mira.is
r-401
T-G00 Bclpt
a-soo bcíjc
Dæmi um skrautflísar sem hægt er
að setja með stærri flísunum til þess
að fá smá fjölbreytileika í gólfin.
Karólína Lórusdóttir.
...
ÍSLENSK LIST GERIR HEIMILIÐ HLÝLEGRA
HVERGI MEIRA ÚRVAL
Rauðarárstíg 14,
sími 551 0400,
og Kringlunni,
sími 568 0400.
Inga Elín.