Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.1998, Síða 29

Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.1998, Síða 29
DV MIÐVIKUDAGUR 28. OKTÓBER 1998 29 Örn Árnason er eini leikarinn í leikrit- inu. Gamansami harmleikurinn Á síðasta leikári var frumsýnd- ur á Litla sviði Þjóðleikhússins einleikurinn Gamansami harm- leikurinn. Viðtökur voru mjög góð- ar og var hann sýndur fram á sum- ar. Sýningar eru hafhar aftur á þessu vinsæla verki og er næsta sýning á Litla sviðinu annað kvöld. Örn Ámason er eini leikar- inn í verkinu og félagi hans í Spaugstofunni, Sigurður Sigur- jónsson, leikstýrir. Höfundar eru Eve Bonfanti og Yves Hunstad sem bæði era leikarar og hafa einnig fengist við að semja og leikstýra. Friðrik Rafnsson þýddi verkið og Gretar Reynisson gerði leikmynd. Leikhús Gamansami harmleikurinn lýsir á hnyttinn hátt glímu leikarans við hlutverkin, áhorfendur og sjálf- an sig. Áhorfendum er boðið um stund inn í heim leikhússins, spáð er í liflð, ástina, gleðina, vonina. Sólheimar í Grímsnesi. Dekurdagar á Sólheimum Dekurdagar á Sólheimum verða helgina 6.-8. nóvember og er það ætl- að þeim sem finna orðið fýrir skammdeginu og vilja láta sér líða betur. Ábyrgð á eigin heilsu er fyrir- lestur sem Þorsteinn Njálsson lækn- ir heldur og þá er boðið upp á tveggja daga jóganámskeið með Ás- laugu Höskuldsdóttm- jógakennara, gistingu í tvær nætur, fallegar gönguleiðir, líkamsræktaraöstöðu og grænmetisrétti. Nánari upplýsingar er að fá á Sólheimum í Grímsnesi. Samkomur Kvikmyndaklúbbur Alliance Francaise í kvöld kl. 21 verður sýnd í Aust- urstræti 3 kvikmyndin Les Paimes de M. Schutz eftir Claude Pinoteau, en hún segir frá Pierre og Marie Curie, sem uppgötvuðu radíumið. í aðalhlutverkum eru Charles Berling og Isabella Huppert. Samtök psoriasis- og exemsjúklinga Fræöslufundur verður i kvöld kl. 20 á Grand Hóteli við Sigtún. Helgi Valdimarsson flytur erindi um arf- gengi psoriaris, Kristján Erlendsson um miðlægan gagnagrunn og Jón Hjaltalín Ólafsson húðsjúkdóma- læknir svarar fyrirspurnum. ITC-deildin Melkorka Fundur verður í Menningarmið- stöðinni Gerðubergi í kvöld kl. 20. Fundurinn er öllum opinn. Staða kvenna í háskóla- samfélaginu í hádeginu á morgun milli kl. 12 og 13 verður Þorgerður Einarsdóttir gestur á rabbfundi Rannsóknastofu í kvennafræðmn í stofu 201 í Odda. Yfirskriftin er Staða kvenna í há- skólasamfélaginu - norrænn saman- burður. Sveim í svart/hvítu Á Unglistahátíðum undanfarinna ára hefur ávailt verið boðið upp á Sveim í svart/hvítu og er engin undantekning í ár. Sveim í svart/hvítu verður í Loftkastalan- um í kvöld kl. 20 og er ffítt inn. Sýndar verða tvær svart/hvítar kvikmyndir við undirleik rafrænn- ar tónlistar. Kvikmyndimar sem í kvöld verða sýndar eru Pandoras Box frá árinu 1928, leikstýrð af G.W. Pabst, undírleikarara Nóva og Múm og Siegfried (Sigurður Fáfhisbani), sem er hluti af Die Nibelimgen ffá 1924, leikstýrð af Fritz Lang, undir- leikarar Biogen og Hilmar Jensson. Skemmtanir Hunang á Gauknum Lifandi tónlist er í kvöld sem og öll kvöld á skemmtistaðnum Gauki á Stöng í Tryggvagötunni. Síðastlið- in tvö kvöld hefur ný hljómsveit, Interstate, skemmt gestum á Gaukn- um með fönkaðri „instrumental" tónlist og í kvöld er komið að gaml- reyndum kempum í hljómsveitinni Hunang að halda uppi fjörinu á Gauknum. Hunang er gleði-popp- sveit sem leikur tónlist sem aúir geta sætt sig við með vinsæla er- lenda tónlist í bland við frumsamið. Hunang mun einnig skemmta ann- að kvöld á Gauknum. Kaffi Reykjavík Dúettinn Rut Reginalds og Birgir Birgis skemmtir á Kaffí Reykjavík í kvöld, Næsu þrjú kvöld mun svo hin vinsæla hljómsveit Sixties skemmta gestum á Kaffi Reykjavík. Hunang leikur á Gauki á Stöng í kvöld og annað kvöld. Veðrið í dag Hiti fyrir ofan frostmark í dag verður norðlæg átt, kaldi og sums staðar stinningskaldi, en þó hægviðri norðan- og norðaustan- lands fram eftir degi. Smáél norð- vestan- og vestanlands og einnig austast á landinu, en annars úr- komulaust og á Suðurlandi er áfram gert ráð fyrir bjartviðri. Norðvestan stinningskaldi með snjókomu norð- an- og norðaustanlands í nótt. Sums staðar talsvert frost í innsveitum, en hiti vfðast ofan frostmarks á lág- lendf yfir miðjan daginn. Á höfuðborgarsvæðinu verður norðan- og norðvestangola eða kaldi, skýjað með köflum en úr- komulaust. Norðaustankaldi og létt- ir til síðdegis. Hiti 1 til 3 stig, en um eða undir ffostmarki í nótt. Sólarlag í Reykjavík: 17.25 Sólarupprás á morgun: 09.00 Síðdegisflóð í Reykjavík: 24.16 Árdegisflóð á morgun: 00.16 Veðrið kl. 6 i morgun: Akureyri léttskýjaö -4 Akurnes alskýjaö 2 Bergsstaöir húlfskýjaö -2 Bolungarvík rigning 1 Egilsstaöir -2 Kirkjubœjarkl. léttskýjaö 0 Keflavíkurfl. skýjaö 2 Raufarhöfn snjóél -1 Reykjavík skýjað 2 Stórhöföi léttskýjaö 1 Bergen skúr 4 Kaupmhöfn alskýjaö 8 Algarve heiöskírt 15 Amsterdam skúr 14 Barcelona heiöskírt 12 Dublin skýjaö 7 Halifax skýjaö 8 Frankfurt rign. ú síö. kls. 12 Hamborg rigning 9 Jan Mayen skýjaö 3 London rigning 13 Lúxemborg rigning 11 Mallorca léttskýjaö 9 Montreal léttskýjaö 10 New York Nuuk skýjaö -3 Orlando París rigning og súld 15 Róm léttskýjaö 11 Vín skýjaö 8 Washington Winnipeg heiöskírt -2 Vegir víðast færir Snjór eða snjóþekja er á vegum þar sem snjóað hefur mikið, þá leynist víða hálka eða hálkublettir, að öðru leyti eru þjóövegir færir. Lágheiði er ófær og þegar austar dregur eru Öxarfjarðarheiði, Hell- Færð á vegum isheiði eystri og Mjóafjarðarheiði einnig ófærar. Á leiðinni Reykjavík-Akureyri er víða snjóþekja og hálkublettir og svo er einnig á Hellisheiðinni og í Þrengslum þegar farið er frá höfuðborginni. Skafrenningur m Steinkast E) Hálka 0 Vegavinna-aögát 0 Öxulþungatakmarkanir H Þungfært (§) frært fjallabflum C^) Ófært * m Astand vega v* Björn Grétar Á myndinni eru systk- inin Guöný Ellen, fjög- urra ára gömui, og Björn Grétar. Hann fæddist 2. júní síðastliðinn kl. 8.07 á Barn dagsins Fjórðungssjúkrahúsinu í Neskaupstaö. Bjöm Grét- ar var 4720 grömm og 57 sentímetra langur. For- eldrar þeirra eru Svan- hildur Agnarsdóttir og Sveinn Brimir Björnsson og er fjölskyldan búsett á Eskifírði. Leslie Nielsen fær ýmíslegt lánaö úr öörum kvikmyndum. Hér er hann kominn f kunnuglegar stell- ingar úr The Fugitive. Kærður saklaus Hinn óborganlegi Leslie Niel- sen leikur aðalhlutverkið i Kærð- ur saklaus (Wrongfully Accused) sem sýnd er í Sam-bíóunum og Regnboganum. Nielsen er í mikl- um ham sem fiðlusnillingurinn Ryan Harrison sem flækist í vef fagurrar konu sem skilur hann eftir í súpunni þegar hún hefúr vafið vef sinn. Söguþræöinum má lýsa í einni setningu: „Hveraig fer heimsfrægur fiðluleikari aö að sanna sakleysi sitt eftir að kyn- þokkafull og glæsileg kona ásamt einhentum, einfættum og eineygð- um hryðjuverkamanni hefur kom- ið því svo fyrir að hann er ákærð- ur fyrir að hafa myrt framkvæmdastjóra ////////, Kvikmyndir Sameinuðu þjóðanna. Leslie Nielsen er einn reyndasti leikarinn í brans- anum, hefur leikið í yfir sextíu kvikmyndum og komið ffarn og leikið í yfir fimmtán hundruð sjónvarpsþáttum. Þetta hafði hann í rauninni allt gert áöur en hann hlaut verðskuldaða frægð fyrir leik sinn í Airplane, þá kom- inn á sjötugsaldurinn. Nýjar myndlr 1 kvtkmyndahúsum: Bióhöllin: Kæröur saklaus Bíóborgin: A Perfect Murder Háskólabíó:Primary Colors Háskólabíó: Smáir hermenn Kringlubíó: Fjölskyldugildran Laugarásbíó: The Truman Show Regnboginn: Halloween: H20 Stjörnubíó: Vesalingarnir Krossgátan 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 16 16 17 18 19 Lárétt: 1 ljósker, 5 áköf, 8 ávöxtur- inn, 9 snemma, 10 forsögn, 11 menn, 12 konunafn, 13 afhenti, 14 jata, 16 skóli, 17 skarða,18 tré, 19 tröll. Lóðrétt: 1 tínir, 2 eðlis, 3 kjötkássa, 4 gekkst, 5 látbragð, 6 grama, 7 hindrun, 12 æsa, 13 jarðsprungu, 15 þroskastig, 16 skraf. Lausn á síðustu krossgátu: Lárétt: 1 hjaðna, 7 ló, 8 flagg, 10 art, 11 ómak, 13 unun, 15 æti, 16 párar, 17 ós, 18 aða, 20 riða, 21 ei, 22 ræðin. Lóðrétt: hlaupa, 2 jór, 3 aftur, 4 nam, 5 agat, 6 og, 12 kisan, 14 náði, * 15 ærið, 17 óði, 19 ar. Gengið Almennt gengi LÍ 28. 10. 1998 kl. 9.15 Eininq Kaup Sala Tollnenqi Dollar 68,930 69,290 69,600 Pund 115,480 116,070 118,220 Kan. dollar 44,670 44,950 46,080 Dönsk kr. 10,9800 11,0380 10,8700 Norsk kr 9,3340 9,3860 9,3370 Sænsk kr. 8,8050 8,8530 8,8030 Fi. mark 13,7230 13,8040 13,5750 Fra. franki 12,4500 12,5210 12,3240 Belg. franki 2,0227 2,0349 2,0032 Sviss. franki 51,4200 51,7000 49,9600 Holl. gyllini 37,0100 37,2300 36,6500 Pýskt mark 41,7500 41,9700 41,3100 ít. lira 0,042400 0,04266 0,041820 Aust. sch. 5,9320 5,9680 5,8760 Port. escudo 0,4069 0,4095 0,4034 Spá. peseti 0,4911 0,4941 0,4866 Jap. yen 0,587100 0,59070 0,511200 irskt pund 103,900 104,540 103,460 SDR 96,930000 97,51000 95,290000 ECU 82,1300 82,6300 81,3200 Simsvari vegna gengisskráningar 5623270

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.