Dagblaðið Vísir - DV - 04.12.1998, Blaðsíða 10
200.000 Naglbítar - Ne-
ondýrln ★★★★ „Mikil-
vægari en D-vítamín. Ref-
ur fyrir rass. Perlur fyrir
svín.“ -ae
n
Bang gang - You ★*★ ,Ein-
v faldlega góð poppplata" -glh
Súrefni - Wide nolse ★*★
„Súrefni eru á góðu flugi og
þetta er flott plata." -glh
Mix master Mlke - Anti-theft device: ★★★
„Mér líkaði bara vel við diskinn og mæli með
Þjófavörn fyrir alla þá sem fíla tónlist af þessu
tæi." -ghg
Lögvlðljóð Diddu - Strok-
ið og slegið ★*★
„Maður þarf ekki að vera
víðbuxa unglingur til að
hafa gaman af gripnum."
-ae
Ensíml - Kafbátamúsík ★★★ „Enstmi er
ferskt band og þessi plata er lamin áfram af
greinilegum áhuga og ánægiu." -glh
Sigur Rós - Vonbrlgði ★*★
„Hér tekur íslenska
tölvu„dans“tónlistin stórt
skref fram á viö.“ -glh
Lhooq - Lhooq ★*★ „Lhooq er
virkilega kúl." -ps
Unun - Ótta ★*★ „Unun er rammíslensk og
kemur út öll sterkari." -ps
Rúnar Júlíusson - Farands-
skugginn ★★★ „Rokkari af
Guðs náð“ -ae
Bellatrix - g ★*★ „Samruni hefð-
bundinna rokklaga við teknóblæ-
brigði og útkoman er nokkuð mis-
jöfn." -ps
Ragnar Sólberg -
Uppllfun! ★*★
„Ágætis rokkplata
en ungæðisleg í
hugsun." -glh
Ný dönsk - Húsmæðragarðurinn ★* „Maður
hefði vonast til að eftir fimm ára fjarveru hefði
hljómsveitin upp á eitthvað nýtt að bjóða."
-ae
Ummhmm - Haust ★★ „Krakkarnir í Umm-
hmm eru á ágætu róli í slnu afmarkaða rauð-
vínsgutli" -glh
Sóldögg ★★ „Gott popp og
pirrandi miðjumoð" -glh :
Ýmsir flytjendur - Neistar ★* „Þetta eru
lyftulög unga fólksins" -glh
Ýmslr flytjendur - Popp í
Reykjavík ★★ „Bragðdaufar
eftirlíkingar af því sem þyk-
ir/þótti fínt úti i heimi."
-ae
Lög við Ijóð Steins Steinarrs - Heimurinn
og ég ★ „Algerlega laus við frumleika, áræði
eða nokkuð sem gæti lyft henni upp úr
flatneskjulegum útsetningum." -ae
Innan sama hússins rúmast Klassík FM,
Gull, Skratzið, Létt FM, X-ið og FM 957. 1
Fókus þótti forvitnilegt að athuga hvernig
þessar ólíku tónlistarstefnur rúmast í sama
húsinu. Allt hjá Fínum miðli og fínum móral.
Eða hvað? Þorkell Máni Pétursson á X-inu
og Flalldór Flauksson á Klassík FM samþykktu
að glíma um hvað vaawi<foöfua tónlist.
Menn þreytast aldrei á
aö rífast um góöa tónlist.
Halldór á Klassík FM er
hér að hafa Mána á X-inu
undir í sjómanni.
Er klassísk tónlist œöri en
þungarokk?
„Þetta er alla vega sú tónlist
sem hefur lifað lengst," segir
Halldór Hauksson á Klassík FM.
„Kannski mun Dylan lifa í tvö
hundruð ár og verða klassískur.
Ég myndi segja að klassísk tónlist
væri mjög göfug tónlist."
Er þá til ógöfug tónlist?
„Jú, auðvitað er til ógöfug
tónlist. Micheal Bolton og
Richard Clyderman eru gott
dæmi um ógöfuga tónlist.“
Þorkell Máni Pétursson er X-
maður sem gengur oft undir
nafninu Sonur Satans. Hann er
örugglega sammála Halldóri hvað
Bolton og Clyderman varðar. En
hann spilar að mestu leyti harðan
metal, hip hop massive og bara
allt hard core. Halldór spilar aftur
á móti öll þekktustu verkin í
klassíkinni, aðallega frá 17., 18. og
19. öld.
„Tónlistin sem ég er að spila er
náttúrlega miklu göfugri en
klassikin," fullyrðir Máni.
„Tónlistin sem ég spila er lifandi.
Klassísk tónlist er dauð en er af
einhverjum ástæðum haldið
lifandi með ríkisstyrkjum. Til
dæmis er íslenska hard core
hljómsveitin Mínus ekki
ríkisstyrkt og það er annað en
fokking sinfónían."
En Halldór, hvað er haröur
metal?
„Virkilega góð tónlist til að
hreinsa á sér heilann. Ég gæti
ekki spilað þessa tónlist. Frekar
væri ég vís til að spila djass en
það verður að viðurkennast að
það er mikil gróska i rokkinu."
Er þetta tónlist djöfulsins?
„Það er verið að daðra við
djöfladýrkun og svona en það er
bara í kjaftinum á þeim hérna á
X-inu því í hjartanu eru þessir
strákar sunnudagaskólapiltar."
„Nei. Ég er ekki
sunnudagaskólapiltur, “ segir
Máni þá. „Þjóðkirkjan er uppfull
af heiðingjum og útvarpsmenn X-
ins eru ekki á leiðinni í
sunnudagaskólann. Við erum
allir góðir strákar og þurfum ekki
á neinum skóla að halda til að
vita það.“
Þaö eru samt sumar
hljómsveitir að dýrka djöfulinn.
„Það er bara ein hljómsveit að
dýrka djöfulinn og það er Marylin
Manson. 95% af því sem ég spila
er eftir strangkristið fólk.“
Það er nokkuö víst aó klassísk
tónlist er aö megninu til samin af
fólki sem er löngu dautt. Ertu ekki
bara náriöill, Halldór?
„Langt því frá. Bara á síðustu
árum hafa menn verið að
enduruppgötva tónverk fyrri alda.
Það er því mikil gróska í
klassíkinni."
Flokkast þaö bara ekki undir að
grafa upp ný lík?
„Ég skal alveg viðurkenna að
þeir sem eru að hlusta á klassík
einblína oft um of á eldri og
klassískari verk. En allir sem eru
eitthvað inni í tónlist eru opnir
Ýmsir flytjendur - Neistar:
ijjjgíj i.újjzaJjj a
plötudómur
Neistar er safnplata með níu
böndum og einstaklingum sem
vinna ellefu lög með hjálp forrita.
Þetta er tölvuplata og fílingurinn
er frekar dinglaður (chillaður).
Vissulega má dingla sér með
hjálp þessarar plötu en þrátt fyrir
nafnið er hér lítið um áberandi
neistaflug. Sé plötunni skellt á rís
maður aldrei upp við dogg og
hugsar; vá, þetta var frábært lag.
Öll lögin eru í svipuðum dingl-gír
- flæðandi, fljótandi, sumt krydd-
að með stofupoppselementum -
og ekkert af þeim kemur á óvart,
hér er engin gargandi snilld.
Þetta er samt ekkert drasl. Það
hefur bara enginn látið af hendi
neitt verulega gott og það eru eig-
inlega allir að gera það sama; að
kreista úr græjunum þolanlega
og þægilega baktjaldatónlist,
sniðna til þess að láta gutla und-
ir, helst þegar maður er að gera
eitthvað annað en að hlusta á
músík: lesa, vinna á tölvuna,
halda matarboð.
Grúfið er hægt, sándið kunnug-
legt, filingurinn niðri á jörðinni:
þetta eru lyftulög unga fólksins.
Margt er ósungið, Chico (Arnþór
Sævarsson) á ágætisinnlegg,
mjúka kvoðu, Dirty Bix (Birgir
Sigurðsson) er meiri töffari í sínu
innleggi, hægt að skaka hausnum
hraöar við hans djössuðu rispu.
Lhooq mixar „Vafning" Óskars
Guðjónssonar, besta lag Neista.
Þar er helst að eitthvað komi á
óvart og hinn djassaði fílingur
bræðist vel við taktana sem
Lhooq leggur til málanna og út-
koman er glettilega svöl.
Hassbræður voru hráir og
skemmtilegir á Sigur Rósar-end-
urvinnslunni en hér hverfa þeir
einum of mikið í reykjarsvæluna
og dingla sér langt út fyrir vel-
sæmismörk í gömlu lagi eftir Jó-
hann G. Jóhannsson.
Franski snillingurinn Dimitri
from Paris krukkar í Móu-smell-
inn „Joy & Pain“ og útkoman er
djassað stofudiskó. Páll Óskar
syngur með Northern Light
Orchestra, regnhlíf þeirra
tölvugúrúa Bjarka og Birkis.
„Loverboy" heitir lagið en ekki
tekst að gera eftirminnilegt popp-
lag þrátt fyrir ágæta tilraun til
þess.
Monotone nefnist tölvuband
sem á hér tvö lög. Tónlistin er
ágæt, vel krukkað tölvurokk, en
söngurinn skemmir aðeins fyrir
því textarnir leka út úr söngvar-
anum, sem hljómar eins og hann
sé við það að sofna. Barði úr
Bang gang leiðir saman sinn
tölvuhest við tölvuhesta Bjarka
og Birkis og brokkað er saman á
poppaðan berjamó. Dæmið heitir
fyrir nútímaklassík og
framúrstefnudjassi og jafnvel
sumu sem er að gerast í
þungarokkki."
Máni, nú segist Halldór ekki
geta hugsaö sér aö spila
þungarokk, en geta ekki allir
hlustað á Klassík FM? Rólegt og
þœgilegt?
„Ég er ekki með 100,7 á
minninu í bílnum. Það eru hvort
eð er bara mamma og pabbi hans
Halldórs og Kontrapunktsgengið
eins og það leggur sig sem hlusta
á hann. En ég get samt hlustað á
einstaka klassískt verk. Þá bara
eftir töffara á borð við Beethoven
og Shostakovítsj. Það eru líka
þungarokkarar. Dauðir
þungarokkarar að vísu og því er
það pínulítið eins og að ríða líki
að hlusta á þessa kauða."
Við látum það verða lokaorðin í
þessari eilífðarumræðu um hvað
sé göfugt og hvað sé ógöfugt.
-MT
Grúfið er hægt, sándið kunnug-
legt, fílingurinn niðri á jörðinni:
þetta eru lyftulög unga fólksins.
Amin og söngkonan Rósa B. ís-
feld syngur skemmtilega ofan á
tölvubrokkið. Lagið er þó einum
of laust við grípandi melódíu til
að verða annað en ágætt hliðar-
spor. Það sama má kannski segja
um plötuna alla; þetta er ágætt
hliðarspor en allir ílytjendurnir
ættu að geta gert betur.
Gunnar Hjálmarsson
10
f ÓktlS 4. desember 1998
FOKUSMYND: i