Dagblaðið Vísir - DV - 04.12.1998, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 04.12.1998, Blaðsíða 20
fyrir börn Hið iit- og lærdómsrika leikrit Avaxtakarfan veröur sýnt á morgun klukkan tvö í Óperunni. Reyndar er uppselt en það er aldrei aö vita nema einhver sæti losni og þá er betra að hafa símann á hreinu: 551-1475. Leikritiö „Hvar er Ste kkjastau r? ” verður sýnt í Mögu- lelkhúsinu vlð Hlemm á sunnudag- inn. Þetta er sko leikrit sem kemur öllum börnum í jóla- skap og þar að auki er það pínulítið spennandi þar sem sveinarnir þrettán neita aö koma til byggða. Sýningin byrjar klukkan tvö og síminn er 562-2669. Enn eru nokkur sæti laus á leikritiö Bróðlr mlnn LJóns- hjarta sem verður sýnt á Stóra svlðl ÞJóðlelkhúss- Ins á sunnudaginn klukkan tvö. Það eru meira að segja líka laus sæti á sýn- ingu númer tvö þann dag- inn en hún byrjar klukkan fimm. Á sunnudaginn klukkan fjögur ætla Anna Pálína og Aðalsteinn Ásberg, sem eru að verða þekkt fyrir að vera alltaf ber- rössuð á tánum, að halda uppi miklu fjöri I Kaffileikhúslnu. Hún syngur, hann spilar á gítar og krakkarnir taka undir. Það er enn hægt að panta sæti. Síminn er 551-9055. Það verður erfitt að ákveða hvert á aö fara með börnin á sunnudaginn, svo mikiö er um að vera fyrir þessi litlu skinn. En þeir sem eiga eftir aö sjá Dlmmallmm geta gert það á sunnudaginn í Iðnó. Sýningin byrjar klukkan tvö og enn er hægt að krækja sér í sæti. Sím- inn er 530-3030. I ht S& I a.s.S.’CÞ: JU. Q. Q. www.visir.is Bjarni Ómar: Það er alkunna að Íslendíngar eru þjóða duglegastir við alls konar listsköpun. Fyrir þessi jól, eins og önnur, eru því margir óþekktir einyrkjar sem vilja pota sínu efni í svelginn og Fókus tékkaði á þremur. Megum við kynna Öllu Borgþórs, Gulla Falk og Bjarna Ómar. Erfitt 8o komast í stóra Alla Borgþórs: Fannst tími til k r'\£\P’0 |r\ ATtn UCI d (Jt?L Id undir þjóðina Aðalheiður Borgþórsdóttir kennir við Tónlistarskólann á Seyðisfirði þar sem hún hefur búið í tæp 30 ár. Hún gefur nú út sinn fyrsta sólódisk, „Brothætt", ágæta poppplötu í rólegri kantin- um. Alla söng á sínum tíma með landsbyggðarsveitinni Lólu sem sló i gegn 1982 með lagið „Forn- aldar hugmyndir". Alla segist ekki hafa meikað lætin og því hætti Lóla á barmi frægðarinnar. „Við spiluðum alltaf hart rokk þó að sveitavargurinn vildi ann- að,“ segir Alla. „Þegar allir voru orðnir fullir vildi fólk bara „Kokkinn" eða guð má vita hvað. Það var rosalegt sukk á okkur og svo fór að ég kúplaði mig út úr þessu ballharki." Hvað ertu svo búin að vera að gera í 16 ár? „Ég er búin að vera að kenna og að spila með ýmsum lókalbönd- um, syngja djass og með kirkjukómum. Það hefur alveg dugað mér að vera lókal þangað til núna.“ Hvernig skilgreinirðu þessa þörf fyrir að koma tónlist þinni frá þér? „Það liggur við að þetta sé eins og að fæða barn. Maður er búinn að ganga með þetta lengi, alveg að springa. Maður er búinn að vera einfari með tölvur og dót inni í herbergi og mig langaði til að klára þetta - fara alla leið.“ Hvernig skilgreinir þú tónlist- ina? „Þetta er einhver blanda en sjálfsagt bara popptónlist. Það er ekki mikið pönk eftir. Áhrif? Ég er algjör alæta, hlusta mikið á nýja tónlist með þessu gamla góða. Það nýjasta sem ég keypti er nýja PJ Harvey-platan, ég held mikið upp á hana. Það er svo mik- ið af tónlist að maður þarf að hafa sig allan við. Ég heyri mikið af nýrri tónlist í gegnum krakkana sem ég er að kenna, fór t.d. í gegn- um allan Metallica-pakkann með gítartöffurunum sem ég kenni á gítar.“ Finnst þér músíkheimurinn harður? „Já, mér finnst leiðinlegt hvað það þarf mikla peninga í auglýs- ingar til þess eins að komast í spilun. Fyrir manneskju eins og mig, sem hef ekki efhi á að taka þátt i þessu, er erfitt að komast í stóra pottinn. Ég held ég sé alveg að gera ágætishluti miðað við það sem ég heyri og því fannst mér tími til kominn að bera þetta und- ir þjóðina.“ Hvernig er að búa á Seyðisfiröi? (Þar búa 800 manns.) „Alveg megaflott. Ef fólk er að leita að stað til að búa á mæli ég með Seyðisfírði. Á sumrin breyt- ist þetta í mikinn menningarbæ og hér er aldrei neitt „status quo“. Maður hverfur auðvitað ekki í neinn fjölda en ef fólki líður vel í einveru þá er það ekkert mál hérna. Ég á það til að vera bara í fjarskiptasambandi við fólk svo vikum skiptir.“ Langar þig þá ekkert aö flytja í bæinn? „Ekki fyrir fimm aura. Stund- um hef ég þó kannski hugsað; vá, það væri gaman að vera í hring- iðunni, en svo hefur Seyðisfjörður alltaf orðið ofan á. Hér hefur mað- ur alltaf tíma til að sinna sínum hugðarefhum. Ég held að fólk hafi ranga mynd af llfl fólks úti á landi. MeðalSeyðfirðingur fer alla vega þrisvar á ári i bæinn til að drekka i sig menninguna. Þetta er ekki eins og það var þegar það var kannski ófært héðan svo vikum skipti." Þýðir ekkert að spila teknó á þorrablótum Stærsta poppstjarnan á Raufar- höfn heitir Bjarni Ómar Har- aldsson. Þrátt fyrir að hafa verið um árabil í spiliríinu er hann að gefa út fyrsta diskinn núna. Sá heitir „Annað líf‘ og hefur að geyma tólf frumsamin lög. Bjami vinnur sem hafnarvörður á Rauf- arhöfn „eftir að hafa verið í fram- haldsskólanum á Laugum með misjöfnum árangri, tvö ár á sjó og í áhaldahúsi Raufarhafnarhrepps. Nú er ég líka talinn nógu þroskað- ur til að kenna við tónlistarskól- ann hérna.“ Hvernig er poppferillinn þinn? „Á Laugum var ég í hljómsveit- inni Annexia sem komst í úrslit í Músíktilraunum Tónabæjar. Sú sveit tók líka þátt í hljómsveita- keppni á Melgerðismelum - F)ör '88 - og vann með glæsibrag. Þeg- ar maður fór að vinna hérna á Raufínni fór ég í ballhljómsveit- ina Kokkteil sem síðar fór að kalla sig Antik. Við erum mest að spila héma á horninu, nánast um hverja helgi.“ Hvernig tónlist ertu að gera á sólóplötunni? „Þetta einkennist dálítiö af því sem maður er að spila á sveita- böllunum. Þar þarf að spila valsa, marsa og hringdansa og svo færir maður sig út í harðara rokk. Það má því kannski segja að platan sé stefnulaus. Ég er hrifin af þungu rokki sjálfur og platan ber keim af því en svo fer hún líka út í léttara dægurpopp." Bjarni semur lögin sjálfur, utan eitt, sem hann semur með Ás- grími Angantýssyni. Bjarni sem- ur 6 texta en hina á hirðskáld staðarins (og Ríó tríósins), Jónas Friðrik; Oddur Bjami, sá sem er að setja upp Rocky Horror á Húsa- vík á tvo og Hinrik Jónsson frá SkagEifirði á einn texta. „Textinn hans er þó ekki mjög skagfirsk- ur,“ segir Bjarni. Var sólóplata búin að vera draumurinn lengi? „Já, þetta hefur alltaf blundað í manni og á endanum gerir maður þetta af þörfinni fyrir að koma sínum hugðarefnum á framfæri. Elstu lögin eru frá '87, frá Annex- íu- tímabilinu - það er Greifatónn í því efni þótt ég hafi reynt að þvo hann af. Yngsta lagið er tveggja mánaða gamalt því þegar konan mín fór yfir textana fannst henni þeir allir vera um gamlar kærust- ur. Ég samdi þvi eitt til hennar og bætti því við. Textarnir eru ann- ars um ástina, bæði spaugilegu hliðarnar og þær alvarlegu. Bæði Jónas og Oddur semja svo texta með alvarlegum sjálfsmorðsundir- tóni þótt þeir séu sjálfir engan veginn þunglyndir menn.“ Hvaö ertu að hlusta á sjálfur? „Ég get ekki sagt að ég hlusti mikið á músík. Hef mest gaman af fyrir '80-rokki - Deep Purple er í miklu uppáhaldi - og af íslensku er ekkert betra en Utangarðs- menn. Bubbi á alltaf eitthvað í mér, ég kaupi hann alltaf." Ekkert teknó? „Nei, ég er ekki hrifinn af því, en þó laumum við inn nokkrum lúpum á plötunni. Það þýðir ekk- ert að spila teknó á þorrablótun- um.“ Á svo að koma í höfuóborgina og kynna? „Það verður tíminn bara að leiða í ljós. Við tökum alla vega túr á Ákureyri, þar er minn markaður. Ég er búinn að selja hverri vísitölufjölskyldu á Raufar- höfn eintak.“ Hvernig er að búa á Raufarhöfn (þar búa 400 manns)? „Alveg frábært, rosalega gott. Hér er friðurinn og þægindin. Maður fer reglulega á 5 ára fresti til Reykjavíkur, hef annars ekkert þangað að sækja þótt vissulega vildi maður vera nær menning- unni, ég verð að viðurkenna það.“ Að lokum: Hvert er móttóiö þitt? „Það er bara: Meiri bjartsýni!" -glh f Ó k U S 4. desember 1998 20

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.