Dagblaðið Vísir - DV - 04.12.1998, Page 25

Dagblaðið Vísir - DV - 04.12.1998, Page 25
Nú er komið nýtt íslenskt spil á markaðinn. Það heitir Hættuspil og er svona ekta fjölskytduspil sem verður ábyggilega jóiagjöfin í ár úti um allan bæ. Fókus fékk Spilafélagið Mána tii að spila þetta nýja spil og ieggja dóm sinn á það. í Mána eru sex ungir menn sem hafa spilað og spilað í tíu ár og gefa sig fýrír vikið út fyrir að vera sérfræðingar á sviði spilamennsku. Sem þeir líklega eru þótt þeir séu kunnir fýrir annað, eins og til dæmis hinn skeleggi Gísli Marteinn Baldursson fréttamaður, Rúnar Freyr Gíslason Grease-stjama og Pétur H. Marteinsson, besti vamarmaður Svíþjóðar í fótbolta. Rúnar, Óli, Gfsli, Viddi og Siggi. Á innfelldu myndinni er Pétur með húfu spilafélagsins en hann var fjarri góðu gamni þegar félagarnir tóku Hættuspilið út. Á húfunni er sérhannað merkí sem prýðir einnig stuttermaboli, gestabók, myndaalbúm og fleira. Spilafélagið Máni er rót- gróið féiag og einkar virðulegt að mati þeirra sem í því eru. Smágloppur „Þetta spil er mjög gott,“ segir Gísli. „Svona bland af Matador, Efnahagsspilinu og Bottom Line. Það eina sem hefði mátt vera betra eru leiðbeiningarnar. Þær eru reyndar mjög skýrt fram settar og greinilega mikið í þær lagt, eins og spilið í heild sinni, en það eru gloppur í þeim. Við lentum í nokkrum útfærsluvandamálum sem kostaði rökræður en við leyst- um þau með því að setja okkar eig- in reglur.“ Sigurður Kári tekur undir þessa athugasemd Gísla og bendir á að það hefði verið sniðugt að hafa í reglunum dæmispil. „Það er oft gott að vera með svona prufúleik til að fara eftir. Slík dæmi koma í veg fyrir misskilning og vafaatriði sem er mjög eðli- legt að geti komið upp þeg- ar um margþætt spil er að ræða. Svona prufuleiki sér maður í mörgum bestu spilum heimsins og þá sér- staklega á Norðurlöndun- um,“ segir Siggi. „Þetta spil er samt alveg rosalega skemmtilegt. Að mínu mati með því besta sem fmnst á Norðurlönd- unum,“ segir Rúnar og allir hinir Mánamennirnir eru sammála hon- um. „Það er kostur að það tekur ekki nema einn til þrjá klukkutíma að spila það. Það ér mjög mátulegur tími,“ segir Óli og nefnir sem dæmi að spil eins og History of the World geta tekið allt upp í átta klukku- stundir að spila. Það vilja menn meina að sé heldur langur tími. „Svo er líka hægt að ýmist lengja eða stytta þann tíma sem tekur að spila spilið með þvi að fjölga eða fækka þeim stigiun sem þarf að ná til þess að vinna. Það er mjög hent- ugt,“ segir Óli. Að hanna eða herma „Ég vil líka taka fram að þetta er mjög lifandi spil. Menn sitja ekki þegjandi meðan á því stendur held- ur ræða hlutina og þá myndast alltaf svo góð stemning," segir Siggi. Gísli bætir þá við að yfir spilinu svífi mikill húmor, í því séu skemmtilegar myndir, fyndin spjöld og s n i ð u g u r texti. Svona lítur Hættuspilið út og það er Tvihöfði sem prýðir það. Jón Gnarr er amman sem táknar hið góða en Sig- urjón Kjartansson skýtur upp kollin- um f hlutverki Sigga sýru sem er tákn hins illa. Hann er mjög varhuga- verður og getur jafnvel dregið spila- menn með sér í dópneyslu. Spilamönnum finnst Hættuspilið frábært framtak hjá strákunum í Loka margmiðlun, sem bjuggu það til og gefa það út, og gaman að sjá að þeir hafi hannað það alveg sjálf- ir en ekki bara þýtt það eða hermt eftir einhverju erlendu spili eins og gerðist hér um árið þegar Fimbul- famb kom út. Þá höfðu þeir í nokk- ur ár spilað annað spil sem var ná- kvæmlega eins, og var brugðið er þeir sáu eftirlíkinguna Fimbulfamb. „Það var reyndar þýsk útgáfa en hún er líka tii bresk. Sú þýska er samt best,“ segir Viðar og Siggi seg- ir ástæðuna vera þá miklu ná- kvæmni sem Þjóðverjar búi yfir. Meðlimir Spilafélagsins Mána hafa greinilega víðtæka sýn yfir spilaheiminn enda búnir að spila að meðaltali einu sinni i mánuði síðan þeir voru fimmtán ára. Um jólin tekur spilamennskan kipp hjá þeim og að kveldi jóladags er hefð fyrir þvi að spila fram undir morgun annars dags jóla. Þá fá Mánamenn sér sérri og hafa það gott. Hermifélög Mána Aðspurðir segjast þeir lítið hafa farið út í Roleplaying- spilamennsku. Hún taki of langan tíma. „Eins spila kærusturnar okkar stundum með og ef við værum í einhverju margra vikna spili gætu þær aldrei komið inn í það. Við viljum að þær geti verið með og byrjað á jafnréttisgrund- velli," segir Gísli. „Svoleiðis spil eru líka fyrir yngri spilamenn," segir Rúnar. „Já, einmitt. Við spiluðum þetta eitthvað aðeins á níunda áratugn- um. Erum hættir þessu núna,“ seg- ir Siggi rólega. Eins og fram hefur komið heldur Spilafélagið Máni upp á tíu ára af- mæli sitt um þessar mundir og toppurinn á þeim hátíðarhöldum verður Spánarferð í sumar. Á þess- um tíma hafa skapast ýmsar hefðir. Meðlimirnir senda þrjúhundruð valinkunnum vinum og aðdáend- um félagsins ævinlega nýárskveðju með mynd af sér, þeir halda árlegt þorrablót úti á landi og fara í árlegt jólahlaðborð svo eitthvað sé nefnt. Tvö hermifélög hafa verið stofn- uð. Annað heitir Spilafélagið Mani en meðlimir þess halda því þrálát- lega fram að það hafi verið stofnað á undan Mána. Mánamenn fussa yfir því og segja það algjöra vit- leysu. Hitt hermifélagið heitir Kap- alklúbburinn Manni og í honum er einn meðlimur. „Þessir menn hafa ekki æft nánd- ar nærri eins mikið og við,“ segir Siggi hneykslaður um hermikrák- umar. „Þeir spila í allt annarri og neðri deild en við,“ segir Viðar og er al- veg jafn hneykslaður. Það ættu að vera góðar fréttir fyrir aðstandendur Hættuspilsins og alla íslenska spilaáhugamenn, að reyndir spilamenn eins og þeir í Mána skuli mæla með því og hæla. -ilk Svona litu menn Mánans út skömmu eftir ab félagiö var stofnað seint á ní- unda áratugnum. Frá vinstri: Viddi, Gísli, Rúnar, Siggi, Óli og Pétur. Karlmenn kunna Hallgrímskirkja. Aöventutónleikar Hallgrímskirkju veröa á morgun og á sunnudag, kl. 17 báða dagana. Á efnisskránni verða fjölbreytt jólalög og hátíðarsöngvar, m.a. lög af nýút- komnum geisladiski kórsins. En kór- inn er enginn annar en Karlakór Reykjavíkur. Stjórnandi kórsins er Friðrik S. Kristinsson og hægt er að kaupa miöa í forsölu í verslunum Ey- mundssonar í Kringlunni og Ausur- stræti. Eins og gefur að skilja gat Pétur ekki verið með í Hættuspilinu. Hann býr nefnilega í Svíþjóð en fé- lögum sínum til ómældrar ánægju bar hann derhúfu Spilafélagsins Mána á myndum sem birtust fyrir tveimur vikum í DV, einmitt þegar Mánamenn spiluðu Hættuspilið. Aðrir meðlimir þessa spilafélags eru Sigurður Kári Kristjánsson lögfræðingur, Viðar Þór Guð- mundsson háskólanemi og Ólafur Örn Guðmundsson flugnemi. Það var Gísli Marteinn sem gerð- ist sjálfkjörinn stjóri í spilinu. Hann sá um að lesa reglurnar og kenna svo hinum. Gísli er mikill spilamaður og kappsamur. Vill hafa hlutina á hreinu og passar vel inn í hlutverk „bankastjórans". Söngsveitin Fílharmónía heldur sína árlegu aðventutónleika á sunnudag- inn í Langholtskirkju og hefjast þeir kl. 20.30. Síðan verða þeir endur- teknir á þriðjudag. Á tónleikunum verður hátíða- ogjólatónlist af ýmsu tagi. Einsöngv- ari með kórn- um verður Sig- rún „Diddú" Hjálmtýsdótt- ir. Þá nýtur kór- inn flutnings kammersveit- ar og er Rut Ingólfsdóttir fiðluleikari konsertmeistari hennar. Stjórnandi er Bernharöur Wilkin- son. Miðar að tónleikunum eru seld- ir hjá kórfélögum, í bókabúðinni Kilju við Háaleitisbraut, Bókabúð Máls og menningar á Laugavegi og við innganginn. Víöistaöakirkja. Á sunnudag kl. 17 heldur Kvenna- kórinn Kyrjurnar jólatónleika. Söng- stjóri kórsins er Slg- urbjörg Hv. Magnús- dóttir og píanóleikari er Sigrún Grendal. Efnisskráin sam- anstendur af íslensk- um sönglögum og að sjálfsögðu klassísk- um jólalögum. meira á. www.visir.is 4. desember 1998 f ÓkuS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.