Dagblaðið Vísir - DV - 04.12.1998, Page 29

Dagblaðið Vísir - DV - 04.12.1998, Page 29
 Hrafn lýkur vtð erótíska gamanmynd tyrir ^énwarp Upptökum á sjónvarpsmynd- inni Þegar það gerist, sem Hrafn Gunnlaugsson leikstýrir, lauk í Laugarnesi í síðustu viku. Sag- an er um ungan dreng, kraft- mikinn karlmann, fagra konu og kynþokkafullan stóðhest. Þegar það gerist er flokkuð af kvikmyndafræðingum sem „erótísk gamanmynd fyrir alla fjölskylduna og ólíka aldurs- hópa“. Myndin segir frá ungum borgardreng sem dvelur í sveit hjá Bjarna, þekktum hrossa- ræktarráðunauti á tamninga- stöð úti á landi. Drengurinn ungi lærir margt um lífið og dularkrafta ástarinnar þegar Bjami ráðunautur hittir fyrir tilviljun draumadis glans- myndablaðsins á landsmóti hestamanna og býðst til að sýna henni sérstaklega einn frægasta graðhest landsins, sem er notað- ur til undaneldis á tamninga- stöðinni, ekki langt þar frá sem mótið er haldiö. Drengurinn fylgist með Bjarna þegar hann sýnir konunni sín sérstöku handtök við stóðhestinn og þeim óvæntu afleiðingum sem sú sýning hefur. Hossaræktarráðunautinn Bjarna leikur Pálmi Gestsson, draumadísina fögru leikur Unn- ur Steinsson og drenginn unga Steinar Torfi Vilhjálmsson. Stjórn kvikmyndatöku önnuð- ust Ari Kristinsson og Þórarinn Ágústsson. Hong Kong-leikstjórinn Tsui Hark leiöbeinir Van Damme við gerð Knock Off. hafa náð lítilli aðsókn og hefur hann fallið í skuggann á snögg- um frama Jackie Chan, eins og reyndar Steven Seagal. Jean- Claude Van Damme fæddist 18. október 1960 í Belgíu og ólst upp verkin stækkuðu jafnt og þétt. Mikið hefur gengið á i einkalíf- inu hjá Van Damme; hann á að baki fjögur hjónabönd og er skemmst að minnast að í síðasta skilnaðarmáli sleppti hann sér í Jean Claude Van Damme leikur CIA-útsendara í Knock Off. Fyrir utan að tvær nýjar kvikmyndir hófu göngu sína á kvikmynda- hátíðinni Vetrarvindar í gær þá er aðeins ein kvikmynd frumsýnd í bíói á höfuðborgarsvæðinu í dag, Knock Off með belgíska vöðva- fjallinu Jean-Claude Van Damme í aðalhlutverki. réttarsalnum og hótaði öllu illu. Hann sagði eitt sinn i viðtali: „Ég er gamaldags þegar kemur að konum. Ég vill að eiginkonan sé heima fyrir mig. Ég er ánægður þegar þær eru í eldhús- inu og ég finn matarlyktina. Gallinn við nútímakonur er að þær kunna ekki að elda alvöru- mat.“ -HK í myndinni leikur hann CIA- njósnarann Marcus Ray, sem hefur aðsetur í Hong Kong, þar sem hann stundar viðskipti með demanta. Marcus Ray stundar ljúfa lífið grimmt þar til hann fær veður af samsæri um að rússneska mafian hafi tekið upp samstarf við kínversku stjórn- ina um sölu á öflugum míkrósprengjum til hryðju- verkamanna. Ray veit að þessi vopn gætu haft hroðalegar af- leiðingar komist þau í hendur hryðjuverkamanna, enda er sprengjan svo lítil að hægt er að koma henni fyrir i reiknitölvu og því auðvelt að smygla henni um borð í flugvélar. Ray grunar hver eigi að sjá um söluna. Hann fer því á stúfana og kemst brátt að því fullkeyptu, að hann á ekki í höggi við neina aukvisa. Jean- Claude Van Damme hefur á und- anfórnum árum sent frá hverja hasarmyndina á fætur annarri og hafa þær verið misgóðar. Á tímabili komu úr smiðju hans nokkrar ágætar myndir, ,en eitt- hvað hefur honum farnasi illa á frægðarbrautinni að undan- fömu því síðustu myndir hans í Brussel. Upprunalegt nafn hans er Jean-Claude Van Varen- berg. Ekki varð mikið úr skóla- námi hjá honum. Hann hætti í skóla sextán ára gamall og sneri sér að vaxtarrækt og karate. Van Damme var undir tvítugu þegar hann varð Evrópumeist- ari í milliþungavigt í karate. Með titilinn í vasanum hélt hann á vit frægðar í Hollywood árið 1981 þar sem hann tók upp nafnið Frank Cujo. Hann sá fljótt að hann kæmist ekki langt í kvikmyndabransanum mál- laus á enska tungu og því byrj- aði hann á því að setjast á skóla- bekk. Frægðin lét á sér standa og vann Van Damme fyrir sér í ýmsum störfum, meðal annars var hann um tíma bílstjóri, teppalagningamaður, pitsusend- ill, karateþjálfari og útkastari. Van Damme mátti eiga það að hann var duglegur við að koma sér á framfæri og þetta erfiði hans borgaði sig að lokum; hann fór að fá lítil hlutverk í ódýrum slagsmálamyndum. Fljótlega sýndi hann mikla tækni í slags- málum og það ásamt góðu útliti gerði það að verkum að hlut- Helstu kvikmyndir Jean-Claude Van Damme Bloodsport • 1987 Kickboxer • 1989 Deaíh Warrant • 1990 Lionheart c 1991 Ðoubie Impací • 1991 'Jniversai Soldier • 1992 The Last Action Hero c 1993 Mowhere To Run * 1993 Last Action Hero c 1993 Harc’ Target ■ 1993 Timecop • 1994 Street Fighter 1994 Sudden Ðeath • 1995 The Quest • 1996 ?>lax:mum Risk c 1996 Double Team 1997 Knock Off 1998 4. desember 1998 f ÓkUS 29

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.