Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.1998, Blaðsíða 18
18
MIÐVIKUDAGUR 30. DESEMBER 1998
Mirmisstæðustu atburðir á árinu 1998
Olga Færseth:
Titillinn og leik-
maður ársins
„Það sem stendur uppúr er sigur
okkar KR-inga á íslandsmótinu í
knattspyrnu. Okkur tókst að veija tit-
ilinn eftir mikla baráttu og úrslitaleik
í lokin. Þá var mér sýndur mikill
heiður þegar ég var valin leikmaður
ársins í lok mótsins og slíku gleymir
maður að sjálfsögðu aldrei.
Á komandi ári er engin spuming
að aðal markmiðið er að vinna bæði
íslandsmótið og bikarkeppnina með
KR. Annað kemur ekki til greina, við
KR-ingar sættum okkur ekki við
minna.“ -VS
Guðjón Þórðarson:
Frábær umgjörð
gegn Frökkum
„Ég er ánægðastur með framþró-
un landsliðsins í knattspymu. Sigur-
inn á Rússum var góður endir á ár-
angursriku ári en þó stendur jafii-
teflið við Frakka upp úr. Sá leikur er
eftirminnilegur í alla staði, ekki síst
vegna þess hve öll umgjörð um hann
var frábær. Þá var skemmtilegt að
synir mínir þrír skyldu allir koma
saman sem atvinnumenn hjá sama
félaginu, Genk í Belgíu.
Væntingar til næsta árs era í hófl
en ég vona að hægt verði að byggja á
þvi sem er að baki. Það sást i ár að
hægt er að gera góða hluti með mik-
illi vinnu og vonandi náum við að
halda áfram á þeirri braut.“ -VS
Lilja Ólafsdóttir:
Aðförin gegn
Bandaríkjaforseta
„Þetta var ótrúlega viðburðaríkt
ár. Það var náttúrulega allt í háa-
lofti í heiminum og það sem er
kannski minnisstæðast er þessi
ótrúlega heift í bandarískri pólitík
og aðforin gegn Bandarikjaforseta.
Svo vom þau óneitanlega mjög
minnisstæð þessi nýju viðhorf í
kvótamálunmn.
Á nýju ári vænti ég þess að menn
fari að ná betri áttum og nálgist við-
fangsefni með lausnir í huga. Þaö er
ekki hægt að leysa mál með niður-
rifi, þau þarf að leysa á annan hátt.“
-hb
Halldór Ásgrímsson:
Kosningabarátt-
an er tilhlökkun-
arefni
„Ferðalag sem ég fór til nokkurra
landa Afríku er mér minnisstæðast
alls á árinu sem er að líða. Þangað
hafði ég ekki komið fyrr og ekki
gert mér nægilega í hugarlund
hvaða aðstæður vom þar,“ segir
Halldór Ásgrimsson utanríkisráð-
herra. „Ég hef lengi haft áhuga á því
að við gætum eflt aðstoð við fátæk
riki í Afríku. Þarna sá ég betur en
ég hafði gert mér i hugarlund hvað
við getum gert mikið fyrir lítið fé.“
Halldór segir að hann hafi átt
nokkra ánægjulega sumarleyfisdaga
á Hornströndum sem verði sér og
sínum minnisstæðir.
„Árið 1999 leggst vel í mig.
Framundan er kosningabarátta. Því
fylgir að hitta mikið af góðu fólki og
þessu fylgir tilhlökkun. Ég hef gam-
an af að fara um og hitta fólk og nýt
mín vel við slíkar aðstæður," sagði
Halldór Ásgrímsson. -JBP
Pétur Björnsson:
Slælegt réttarfar
„Það sem er minnisstæðast frá ár-
inu sem er að líða era þessu dómar
sem hafa fallið erlendis þar sem
Hæstiréttur íslands hefur verið leið-
réttur. Mér finnst slæmt að réttar-
farið héma heima skuli ekki hafa
batnað. Við emm lítið betri eða
verri eftir því sem árin líða.
Ég vona svo sannarlega á nýju ári
að við komumst loksins til jarðar-
innar og foram með Jóni Steinari
Gunnlaugssyni í fararbroddi til að
bæta ásýnd íslensks réttarkerfis."
Magga Stína:
Eins og rússíbani
„Síöasta ár held ég að sé eitt það
fjölbreyttasta sem ég man eftir,
bæði uppi á veraldlega planinu og
því andlega. Það var dálítið eins og
rússíbani! Það var gott að prófa all-
an skalann.
Ég vænti einskis þannig séð af
nýju ári. Ég meina, ég geri að
minnsta kosti engar kröfur nema
hugsanlega kannski inn á við og þá
er það strax hætt að vera samræðu-
hæft.“ -SJ
Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir.
Sigur Reykjavík-
urlistans
„Eftirminnilegasti atburður árs-
ins er tvímælalaust kosningasigur
Reykjavíkurlistans sem var miklu
stærri en sigurinn vorið 1994 af
þeirri einfoldu ástæðu að þetta var
uppskera fjögurra ára starfs í Borg-
arstjóm Reykjavíkur. Fyrri sigur-
inn byggðist á væntingum en sá sið-
ari á störfum og stefnu. Mín eigin
upplifun af sigrinum var sterkari og
gleðin óblönduð," segir Ingibjörg
Sólrún Gísladóttir borgarstjóri.
„Ég er alltaf bjartsýn á komandi
ár og tel mér sífellt trú um að
framundan séu rólegri tímar þó að
hingað til hafi það reynst sjálfs-
blekking. Ég leyfi mér að vona að
það dragi til tíðinda í lands-
málapólitíkinni á komandi ári, fé-
lagshyggjuöflin styrkist og á þá ósk
heitasta landsmönnum til heilla að
Sjálfstæðisflokkurinn fái ekki
hreinan meirihluta á Alþingi. Það
væra ógnvænleg örlög.“ -aþ
Ágúst Guðmundsson:
Friðarsamningar
á írlandi
„Friðarsamningar á Irlandi vora
gleðilegustu fréttir ársins. Ég hafði
ekki þá trú að svo stutt væri í
breiða samstöðu um „vandræðin á
írlandi" eins og Bretar vora vanir
að kalla ástandið þar en líklega hafa
allir verið orðnir bardagamóðir og
hvíldinni fegnir. Það stórkostleg-
asta við samningana er að þeir virð-
ast ætla að endast. í minni litlu til-
vera í heiminum verður fhnnsýn-
ingin á Dansinum náttúrlega há-
punkturinn. Þetta er mynd sem
helst þarf að sjá á stóra tjaldi og
ekki spillir að hafa 500 manns í
salnum. Að horfa á bíómynd er ekki
sú einkaupplifun sem fólk heldur al-
mennt. Það skiptir miklu máli
hverjir eru í kringum mann og
hvemig þeir bregðast við myndinni.
Mér leið afar vel á þessari frumsýn-
ingu. Á næsta ári óska ég þess að
skynsamleg niðurstaða fáist á mál-
um sem tengjast nýtingu hálendis-
ins og þá án þess að náttúraundrum
verði sökkt í vatn. Það er ekki að-
eins ferðamannaþjónustan sem á
hér hagsmuna að gæta.
Kvikmyndafyrirtæki gera I stór-
um stíl út á náttúra landsins. Hún
er þar útflutningsvara í formi lif-
andi mynda."
Huldar BreiðQörð
rithöfundur:
Á hringveginum
„Liðið ár hefur verið fjölbreytt,
skemmtilegt og annasamt. Ég ók
umhverfis ísland og bjó tvo mánuði
í Lapplander, skrifaði kvikmynda-
handrit og skrifaði fýrstu bók mína
í Portúgal. Þegar frá líður mun ég
sjálfsagt helst minnast árásar á
írak, vandræða Clintons, láts Hall-
dórs Laxness og þess að hafa séð
magnaö loftsteinahrap í Hrútafirði
sem breytti svartamyrkri í skær-
grænt hádegi. Þá er árið 1998 árið
sem ég kenndi Snæbirni Bjarka
Amgrímssyni að tefla.
Næsta ár vænti ég að verði mikið
kvikmyndaár. Vinir mínir mimu
hefja tökur á fyrstu mynd sinni,
Fíaskó, auk þess sem við munum
halda áfram að koma handritinu
mínu, Villuljósi, á koppinn." -SÁ
Katrín Hall:
Jaröskjálfti á
danssýningu
„Ætli minnisstæðasti atburðurinn
sé ekki þegar jarðskjálfti skók sviðið
í Borgarleikhúsinu í sumar. Þetta
gerðist í miðri sýningu og útlendu
danshöfundamir, Jiri Kylian, Jorma
Uotinen og Jochen Ulrich, höfðu
aldrei upplifað það áður að náttúran
tæki öll völd á frumsýningu. Við vor-
um sammála mn það eftir á að
skjálftinn hefði gefið verkinu aukið
vægi,“ segir Katrín Hall, listdans-
stjóri Islenska dansflokksins.
„Árið var í alla staði gott fyrir
dansflokkinn sem náði góðmn ár-
angri á erlendri grand. Nú er bara
að halda áfrarn og vonandi náum við
enn lengra á næsta ári.“ -aþ
Kristinn Guðnason:
Þrjú barnanna
stúdentar
„Frá árinu er mér það minnis-
stæðast að þrjú af bömum mínum
náðu þeim áfanga að verða stúdent-
ar. Þá er mér einnig minnisstætt að
á árinu tók ég við nýju starfi sem
formaður Félags hrossabænda. Á
nýju ári vonast ég til að sjá íslenska
hestinn njóta aukinnar virðingar og
ég óska eftir að sjá öfluga markaðs-
sókn fyrir hans hönd erlendis. Ég
óska þess einnig að sjá sameiginlegt
átak hestamanna til batnandi hags
og hagsældar." -SÁ
DV
Tinna Gunnlaugsdóttir:
Lífið batnar með
hverju árinu
„Árið sem er að líða er árið sem
pabbi dó. Hann lenti í bílslysi í
byrjun árs, barðist hetjulega í
marga mánuði en var loks sigrað-
m. - En pabbi lifir áfram, hann á
eftir að vera síkvikur í huga mér
og hjarta - ævinlega. Sjálfri finnst
mér lífið batna með hverju árinu -
ekki það að það hafi nokkum tím-
ann verið slæmt! Ég sé fram á ótal
verkefni, stór og smá, sem bíða
min á næsta ári, og ég hlakka til að
takast á við. Eitt er þó öðra frem-
ur kvíðvænlegt en það er sú
ábyrgð sem fylgir því að vera í for-
svari fyrir BÍL, Bandalag íslenskra
listamanna, og stundum dettur al-
veg yfir mig; hvað er ég eiginlega
búin að láta hafa mig út í?“
Mínar helstu vonir og væntingar
era ef til vill þær að gott samstarf
náist við hin ýmsu listamannafé-
lög og okkur takist í sameiningu
að þoka málefnum eitt hænufetið
enn. I beinu framhaldi má ég til
með að fagna nýgerðum samningi
við viðkomandi ráðuneyti um efl-
ingu íslenskrar kvikmyndagerðar
og ætla svona í lokin að stinga upp
á því að menningarborgin Reykja-
vík komi sér upp Tónlistarhúsi ...
taki að minnsta kosti fyrstu
skóflustunguna á árinu, svona til
að sýna vilja til að standa undir
merkjum." -HK
Páll Óskar Hjálmtýsson:
1998 - Árið
aftur á bak
„Ég hef upplifað árið 1998 sem
mikið afturhaldsár í umhverfi
mínu. Allt að fara aftur á bak. Eng-
inn er ánægður með að vera það
sem hann er. Svertingjar, eins og
Will Smith og Puff Daddy, rappa
„attitúd“-lausa „Miami“-texta (les-
ist: þeir vilja vera hvítir). Stelpum
finnst ljótt að vera graðar og vilja
vera hreinar og aftur hreinar (les-
ist: kaþólsk sektarkennd). Ungt fólk
heldur að pólitík sé að lenda í kröfu-
göngu sem er stöðvuð af lögreglunni
með táragasi (lesist: þau langar í
eitthvert „ástand"). Og hommar era
famir að stunda smokkalaust,
hættulegt kynlíf í blekkingunni um
lækningu við alnæmi (lesist: þeir
halda að 1975 sé komið aftur). En
málið er að 1975 er búið. 1998 er
búið. Framtíðin er NÚNA!
Persónulega var þetta ár mjög
gott fyrir mig. Það var yndislegt að
vinna með hljómsveitinni „Casino",
gaman að vera dr. Love á Mono fm
87,7, frábært að kynnast pabba mín-
um upp á nýtt og mikil og góð sjálfs-
þerapía í gangi - með aðstoð góðra
vina sem ég þakka Guði fyrir að
eiga.“ -HK