Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.1998, Blaðsíða 27
MIÐVIKUDAGUR 30. DESEMBER 1998
27
Myndirnar hér að ofan og til hægri eiga að mestu að tala
fyrir sig sjálfar. Þær eru allar teknar f hringiðu móts sem
þessa þar sem krakkarnir fá að að njóta sfn. Hér má sjá
harða baráttu í leik, rekistefnu um hvort liðið eigi að byrja
með boltann, öflugan varnarvegg, ráðleggingar frá
þjálfurum sem eru alltaf nauðsynlegar ef ná á
lokatakmarkinu sem er að sjálfsögðu að hampa
bikarnum í mótslok. Það er svo ekki óvinsælt að leika sér
með verðlaunapeninginn í leiksklok að hætti þeirra stóru,
hér fyrir neðan. DV-myndir ÓÓJ
Umsjón
Óskar Ó. Jónsson
Unglingasíðan heim-
sótti 6. ílokks umferð
drengja í Víkinni á dögun-
um eins og fram hefur
komið á síðunni.
Keppnisandinn og
metnaðurinn svifu þar
yfir vötnum og komust
aðeins fáeinar myndir
af mörgum til skila í
blaðið í umfjölluninni
um mótið. Það er því ætlunin að
bæta aðeins úr því hér og birta
myndaseríu sem er þó að mestu lát-
in standa sjálf. Myndimar segja
meira en þúsund orð, eins og spak-
mælið segir, enda má á þessum sjö
myndum greina þá innlifun og
ánægju sem þátttaka í íþróttum gef-
ur krökkum á öllum aldri. Það er
ekki aðeins spurning um að vinna
heldur líka að hreyfa sig, fá útrás og
bara
komast inn í sterkt félagslíf sem
jafnan fylgir íþróttaiðkun. Krakk-
arnir fá þ£ima að njóta sín og ekki
getur spillt fyrir að þau finni að það
sé verið að fylgjast með þeim og að
þau hafi stuðning til að halda
áfram. íþróttaiðkun bama og ung-
linga er margstaðfest baráttuvopn
gegn því aö krakkarnir viilist af leið
og einnig hlýtur gott líkamlegt form
að styrkja heilsu og bæta fas.
Samtaka á nýju ári
Nú þegar nýtt ár er að
nálgast er ekki úr vegi að
nota tækifærið og hvetja
þessa drengi, sem og ann-
að ungt íþróttafólk sem
hefur att kappi á íþrótta-
gólfum og völlum lands-
manna á árinu, til að
halda uppteknum hætti og
bæta sig enn á næsta ári.
Fyrir hönd unglingasíð-
unnar vil ég þakka góðar
viðtökur og ábendingar og
vonast eftir áframhaldi á
góðu samstarfi við móts-
haldara, þjálfara og síðast
en ekki sist krakkana
sjáifa á árinu 1999 sem nú
fer í hönd. Gleðilegt nýtt
ár og hittumst heil -ÓÓJ
Það jafnast ekkert á við þá til-
finningu að vinna erfiðan leik,
hvað þá að tryggja sér og
sínu liði sigur í erfiðu móti.
ÍR-ingurinn Hafþór Sindri Sig-
urðsson sést hér fagna inni-
lega sigri ÍR í þessari umferð
í A-liðum í Víkinni á dögun-
um. DV-mynd ÓÓJ
Unglingameistara-
mót TBR á næstunni
TBR heldur sitt unglinga-
meistaramót í badminton í hús-
um TBR helgina 9. til 10. janúar
næstkomandi. Keppt verður í öll-
um greinum í A-flokkum ung-
linga og koma meðal annars 15
keppendur frá Svíþjóð sem taka
þátt í keppni tveggja elstu flokk-
anna.
Reykjavíkur-
mót yngri
flokka
Reykjavíkurmót yngri flokka í
innanhússknattspyrnu stendur
nú yfir áramótin. Mótið hófst á
sunnudaginn og lýkur næstkom-
andi sunnudag. Leikið er bæði í
Laugardalshöll og íþróttahúsinu
í Austurbergi.
handbolti?