Dagblaðið Vísir - DV - 08.01.1999, Page 6

Dagblaðið Vísir - DV - 08.01.1999, Page 6
m a t u r AMIGOS ★★★ Tryggvagötu 8, s. 5111333. .Erfitt er at> spá fyrirfram í matreiösluna, sem er upp og ofan. Ostgrilluö guesadilla var vel bókuö og hörö." Op/ð í hádeginu virka daga 11.30-14.00, kvöldin mán.-fím. 17.30-22.30, fös-sun 17.30-23.30. Barinn er opinn til 1 é virkum dögum en til 3 um helgar. ARGENTÍNA ★★ Barónsstíg lla, s. 551 9555. „Bæjarins besta steikhús hefur dalaö." Opiö 18-23.30 v.d., 18-3 um helgar. CAFÉ ÓPERA Lækjargötu 2, s. 522 9499. CARPE DIEM Rauöarárstíg 18, s. 552 4555. CREOLE MEX ★★★★ Laugavegl 178, s. 553 4020. „Formúlan er líkleg til árangurs, tveir eigendur, annar f eldhúsi og hinn f sal, og fókusinn á matreiösluheföum skilgreinds svæðis, í þessu tilviki suöurstrandar Banda- rfkjanna, Louisiana, Texas og Nýju-Mexikó.“ Opiö 11.30-14 og 18-22 á virkum dögum en 18-23 um helgat. EINAR BEN Veltusundl 1. 5115 090. Opiö 18-22. GRILLIÐ ★★★★ Hótel Sögu v/Hagatorg, s. 5252 9960. „Glæsilegur útsýnissalur milli- klassahötels meö viröulegri og alúölegri þjónustu, samfara einum allra dýrasta matseðli landsins." Opiö 12-14.30 og 19-22.30 virka daga, 12-14.30 og 18-22 föstu- og taugardaga. HARD ROCK CAFÉ ★★ Krlnglunnl, s. 568 9888. HÓTEL HOLT ★★★★★ Bergstaöastrætl 37, s. 552 5700. „Listasafnið á Hótel Holti ber í mat- argerðarlist af öörum veitingastofum landsins. Þar fara saman frumlegir réttir og nærfærin mat- reiðsla, sem gerirjafnvel baunir aö Ijúfmeti." Opiö 12-14.30 og 19-22.30 virka daga, 12-14.30 og 18-22 föstu- og taugardaga. HÓTEL ÓÐINSVÉ ★★ v/Óölnstorg, s. 552 5224. „Stundum góöur matur og stundum ekki, jafnvel í einni og sömu máltfð." Opiö 12-15 og 18-23 virka daga, 12-15 og 18-23.30 föstu- og laugardaga. IÐNÓ ★★★ Vonarstrætl 3, s. 562 9700. „Matreiðsla, sem stundum fer sinar eigin slóð- ir, en nær sjaldan hæstu hæöum. Enginn réttur var að neinu leyti misheppnaöur, en fáir minnis- stæöir." Opiö frá 12-14.30 og 18-23. ÍTALÍA ★★ Laugavegl 11, s. 552 4630. KÍNAHÚSIÐ ★★★★ Lækjargötu 8, s. 551 1014. „Margt er það, sem dregur, matreiðsla, verðlag og andrúmsloft, sem samanlagt gera Kínahúsiö aö einni af helztu matarvinjum miö- bæjarins." Opiö 11.30-14.00 og 17.30-22.00 virka daga, 16-23 laugardaga og 17-22 á sunnudögum. KÍNAMÚRINN ★★★ Laugavegl 126, s. 562 2258 LAUGA-ÁS ★★★★★ Laugarásvegi 1, s. 553 1620. „Franskt bistró aö íslenskum hætti sem dregur til sín hverfisbúa, sem nenna ekki aö elda í kvöld, barnafjölskyldur utan úr bæ og feröamenn utan af landi og frá útlöndum." Opiö 11-22 og 11-21 um helgar. LÆKJARBREKKA ★ Bankastrætl 2, s. 551 4430. MADONNA ★★★ Rauöarárstíg 27-29, s. 893 4523 „Notaleg og næstum rómantfsk veitingastofa meö göðri þjónustu og frambæri- legum Ítalíumat fyrir lægsta verö, sem þekkist hér á landi." Opiö virka daga 11.30-14.00 og 18.00- 23.00 og 17-23.30 um helgar. MIRABELLE ★★★ Smlöjustíg 6, s. 552 2333. „Gamal-frönsk matreiðsla alla leiö yfir í profiteroles og créme brulée." Opiö 18-22.30. PASTA BASTA ★★★ Klapparstíg 38, s. 561 3131. „Ljúfir hrísgrjónaréttir og óteljandi til- brigði af góöum pöstum en Iftt skólað og of upp- áþrengjandi þjónustufólk." Opiö 11.30-23 virka daga og 11.30-24 um helgar. Barinn er opinn til 1 virka daga og til 3 um helgar. LA PRIMAVERA ★★★★ Austurstrætl 9, s. 5618555. „Sjálfstraust hússins ergott og næg innistæða fyrir því.“ Opiö 12.00-14.30 og 18.00-22.30 virka daga og um helgar frá 18.00-23.30. RAUÐARÁ Rauöarárstíg 37, s. 562 6766. REX ★★★★ Austurstræti 9, s. 511 9111 „Rex kom mér á óvart með góöri, fjölbreyttri og oftast vandaöri matreiðslu, meö áherzlu á ein- föld og falleg salöt, misjafnt eldaðar pöstur og hæfilega eldaöa fiskrétti." Opiö 11.30-22.30. SKÓLABRÚ ★★ Skólabrú 1, s. 562 4455. „Matreiðslan er fögur og ffn, vönduö og létt, en dálítið frosin. Þjónustan er kurteis og hófsöm." Opiö frá kl. 18 alla daga. TILVERAN ★★★★★ Unnetsstíg 1, s. 565 5250. „Þaö eru einmitt svona staðir, sem viö þurfum fleiri af til aö fá almenning til aö lyfta smekk sínum af skyndibitaplani yfir á fyrstu þrep almennilegs mataræðis." Opiö 12-22 sunnudag til fimmtudags og 12-23 föstudag og laugardag. VIÐ TJÖRNINA ★★★★ Templarasundl 3, s. 551 8666. „Nú viröist Tjörnin endanlega hafa gefið forystuna eftir og raunar annaö sætiö líka, gerir oftast vel, en ekki alltaf og mistekst raunar stundum." Opiö 12-23. ÞRÍR FRAKKAR ★★★★★ Baldursgötu 14, s. 552 3939. „Þetta er einn af hornsteinum ís- lenskrar matargeröarlistar og fiskhús landsins númer eitt." Opiö 12-14.30 og 18-20 virka daga og 18-22 um helgar en til 23 föstu- og laugardag. [meira á.| www.visir.is Er Reykjavík ekki hluti af New York? Eða öfugt, New York hverfi í Reykjavík? Er heimurinn allur ekki orðinn sami drullupollurinn þar sem sams konar fólk svamlar um, bablar og drukknar? Arnaldur Máni gerði könnun á þessu, ræddi við fólk hér heima og í New York, og afraksturinn birtist hér og í næstu heftum Fókuss. Jón Sæmundur Auðarson myndlistarmaður: * Damien Jón Sæmundur Auðarson mynd- listarmaður seg- Ir að pólitíkin skipti verk hans stundum máii. Af hverju myndlist? „Af hverju ekki? Það fer mér best.“ Kanntu ekkert annaö? „Er ekki allt myndlist? Ég bara hugsa allt í myndlist, því miður.“ Mundiröu vilja gera eitthvaö annaö? „Nei, ég er frekar sáttur.“ Kemur guð þér og starfmu eitt- hvaö viö? „Hann hefur gert það en hann kemur mér frekar við núna sem föður.“ Kemur pólitík þér og starfinu eitthvaö viö? „Stundum." Áttu þér fyrirmyndir? „Ekki beint. Maður notar bara besta mögulega krydd á hverjum tíma og það er ekki endilega það dýrasta." Drekkuröu/dóparöu of mikiö? „Nei, en ég hef átt mínar „góðu“ stundir." Hvaö langar þig helst til aö gera meö elskhuga þínum? „Ég gef mér engar forsendur og læt það sem gerist bara koma mér skemmtilega á 6vart.“ Áttu þér mottó? „The world says: Now / Hvað þarf til?“ Ein góö saga úr bransanum: „Ég hitti Damien Hirst einu sinni í útlöndum og benti svona á peysuna hans og sagði „heyrðu, það er eitthvað kusk á peysimni þinni.“ Hann sem sagt leit niður og, þú veist, ég potaði í nefið á honum.“ Catherine Jane Chesters myndlistarmaður: _______ Fékk sér kékaín i milli vKHmIi Af hverju myndlist? „Ég þarf að tjá mig. Og það virðist vera besta leiðin fyrir mig til þess að tjá mig án þess að nota orð, skilurðu? Eins og þú sérð á ég ekkert mjög auðvelt með að orða þetta.“ Kanntu ekkert annaö? „Ég get sortérað baunir á færibandi í fallbyssuverksmiðju á miðnætti!" Mundiröu vilja gera eitthvaö annaö? „Æ, ég er aldrei ánægð og vil alltaf komast hærra, lengra.“ Kemur guö þér og starfmu eitthvaö viö? „Nei.“ Kemur pólitík þér og starf- inu eitthvaö vió? „Hún hefur örugglega mjög mikil áhrif á það hvaða ímyndir ég nota.“ Áttu þér fyrirmyndir? „Ég á mér margar fyrir- myndir en þær eru flestar sprottnar úr hversdagslíflnu. Ég hef áhuga á fólki og það er til mjög mikið af fallegu og kúl fólki þama úti.“ Drekkuröu/dóparöu of mik- iö? „Ég held ég drekki ekki of mikið, þótt ég hafí stöðugar áhyggjur af því. Og þessa stund- ina held ég að það sé frekar þaí að ég dópi ekki nógu mikið.“ Hvaö langar þig helst til ai gera meö elskhuga þínum? „Ég er mjög rugluð í þessu með ástina og lífið núna, svo mér dettur ekkert í hug. Kannski bara það að vera dálítið meira með honum.“ Áttu þér mottó? „Njóttu hvers dags líkt og hann væri sá síðasti. Og allar kanínurnar ættu að hoppa, tvisvar." ~\,JNle,waY0/k Ein góö saga úr bransanum: „Ég var að gera svona tísku- dótarí um daginn og þurfti að velja einhver voða voða módel í Catherine Jane Chesters myndlistarmaður er helst innspíruö af öllu fallega og kúi fólkinu sem gengur um götur New York-borgar. auglýsinguna. Svo að á milli borðanna þar sem ég og Tom Swift sátum og stúlkumar vora leiddar inn til okkar voram við með kókaín til þess að fá okkur á milli viðtalanna, til að halda okkur í tískuskapinu." veitingahús Asía: k Fókus fyrirfinnst ekki „Ofan á þessa þverstæðu leggst svo meiri þverstæða, sem felst í daðri við japanskar skreytingar og japanskan kafla í matseðli, þótt japönsk matreiðsla sé enn fjarlægari Thailandi en hin kínverska." Matreiðslan á Asíu er mér ekki minnisstæð. Ef ég hefði ekki skrif- aö allt niður á staðnum, myndi ég tæpast eftir neinu. Maturinn var hvorki góður né vondur, enda stað- urinn út úr fókusi matreiðslu- hefða. Það bezta við hann var raun- ar rösk og vingjarnleg þjónusta ís- lenzkrar ættar. Innbú er að mestu í kínverskum stíl, en matreiðslan að mestu aust- urindísk, mun feitari og þykkri en hin kínverska. Ofan á þessa þver- stæðu leggst svo meiri þverstæða, sem felst í daðri við japanskar skreytingar og japanskan kafla í matseðli, þótt japönsk matreiðsla sé enn fjarlægari Thailandi en hin kínverska. Inn af inngangi er hvítur og kald- ur og skyndibitalegur básakimi, en vinstra megin er gengið fram hjá skenki í pagóðustíl inn í hlýlegan og rauöan Kínasal með miklu af potta- blómum, kínverskum ljósakrónum, korkgólfi og virðulegum borð- stofustólum. Japanskar sushi-aug- lýsingar stinga í stúf við stílinn. Rækjuflögur komu úr pakka og voru bragðlausar. Krabbasúpa með spergli hafði daufan spergilkeim. Blaðlauks- og kjúklingasúpa var betri, kínverskrar ættar. Vorrúlla var vel gerð úr þunnu deigi, en með nánast engu innihaldi. Rækjur staðarins voru smávaxn- ar dósarækjur. Djúpsteiktar voru þær bragðlausar, en hvorki ofhúð- aðar né ofeldaðar. Snöggsteiktar á pönnu að thailenzkum hætti vora þær betri, vel kryddaðar, bornar fram með góðu grænmeti. Steiktar eggjanúðlur meö rækjum og græn- meti vora bezti aðalrétturinn. Bragðsterkt var seigt svínakjöt á spjóti, borið fram með gúrku- og laukhlunkum og þykkri hnetusósu. Betra var pönnusteikt svínarif í sterkri sambal-sósu að víetnömsk- um hætti. Steiktur kjúklingur var hálfþurr, borinn fram með ind- verskum kasjú-hnetum og ostrusósu. Skemmtilega anískrydd- að, en of seigt var fimmkryddað lambakjöt, borið fram í kínversk- um leirpotti. Ferskir ávextir voru frambæri- legur eftirréttur, sennilega sá eini, sem ekki fól í sér ís. Kaffí var líka frambærilegt. Meðalverð þriggja rétta með kaffí er 3.000 krónur. Engu síðri eru margrétta veizluseðlar, sem fara niður í 1.600 krónur. í hádeginu er meðal- verð tveggja rétta 1.200 krónur og ódýrt og ómerkilegt hlaðborð úr hitakössum kostar 875 krónur. Asía reynir að vera sitt lítið af hverju frá þessari stóru heims- álfu. Þegar menn reyna að vera bæði-og, verður útkoman stund- um hvorki-né. Fókus fyrirfinnst ekki. Jónas Kristjánsson 6 f Ó k U S 8. janúar 1999

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.