Dagblaðið Vísir - DV - 08.01.1999, Page 19
Margan dreymir um
að vera sjálfstæður
atvinnurekandi, ráða
sér og tíma sínum
sjálfur, eiga sjálf-
stætt líf án yfirboð-
ara. Fyrir fjórum
árum hætti Ólafur
Einarsson á sjónum
og fór að selja gam-
alt dót á Óðinsgöt-
unni í „Sérverslun
safnarans11. Hann
segir að búðin sé
eins konar þjóð-
minjasafn og kallar
klámið, sem hann
selur í bland með
gömlum plötum,
bókum og frímerkj-
um, vera nauðsyn-
lega fagurfræði og
fullorðnisfræðslu.
„Ég er búinn að koma víða við,“
segir Ólafur, „hef stundað sjó-
mennsku, útkast og hönnun. Ég
byrjaði með búðina þegar ég var
búinn að fá leiða á öllu öðru. Ég
átti smálager sem ég hafði sankað
að mér. Draumurinn var að gera
eitthvað annað en að sitja bara ein-
hvers staðar fyrir smápening og
eiga svo varla fyrir strætó þegar
maður fékk útborgað. Aðaltak-
markiö með búðinni var að ég ætti
fyrir kafii og sígarettum. Nú er ég
hættur að reykja þannig að þetta
hefur aldrei gengið betur! Ég hef
alltaf haft mikinn áhuga á tónlist
og bíómyndum - fór eiginlega í
gegnum tvær vídeóleigur einu
sinni - og því var eðlilegt að ég
færi út í þetta. Mig langaði til að
vera utan í áhugamálunum. Núna
er ég kominn með æði fyrir tölvum
og ætla að mennta mig í sambandi
við þær.“
Hver er nú verðmœtasti hlutur-
inn í búöinni?
„Það er platan „Magic Key“ með
Náttúru, engin spuming. Svo eru
ýmsir aðrir gullmolar sem kannski
eru ekki orðnir jafnveraldlega
verðmætir. Maður er alltaf að
rekast á hluti sem maður hefur séð
áður á ákveðnum tímabilum í 'lífi
sínu. Þannig fara hlutir úr því að
vera gamalt dót í að verða verð-
mæti, fólk langar til að eignast aft-
ur eitthvað sem hefur gildi fyrir
það í minningunni. Hingað kemur
fólk að leita að einhverju og ég fer
á stúfana og reyni að aðstoða það.
Maður getur eytt öllum tíma sínum
i þessum bransa."
Nú eru a.m.k. þrjár aörar svipaö-
ar búöir í bœnum. Er hörö sam-
keppni á milli ykkar?
„Nei, þetta er allt í miklu bróð-
emi. Mér kemur ekkert við hvað
aðrir em að gera. Það veitir ekkert
af öllum þessum búðum, hér er svo
gífurlega miklu kastað og það er
bara brot sem lendir hjá okkur.“
Gamla vinylplatan, sem geisla-
diskinum tókst næstum því að út-
rýma, lifir enn góðu lífi í sérversl-
un Ólafs. „Menn eru með alls kon-
ar komplexa yfir rispum og koss-
um á plötunum. Kannski má segja
að plötumar hafi að geyma lífs-
hlaup fólks, það man eftir fitubletti
sem kom á í einhverju partíi fyrir
áratugum síðan. Ég var t.d. að
finna plötur sem kveikja hjá mér
minningar um horfið og gleymt
tímabil. Það er eins og fara aftur á
bak í tímann að setja á ákveðin lög.
Svo er auðvitað miklu betra „sánd“
á vinylnum, það vita allir.“
Háaloftsdramatík
Það er lítið launungarmál að
sala á klámspólum og -blöðum er
hluti af lífsviðurværi safnarabúð-
anna í bænum. Ólafur sér enga
ástæðu til að draga fjöður yfir það.
„Klám er bara svo ljótt orð,“ segir
hann. „Það er ekki hægt að segja
við fallega stúlku að hún sé klám,
ég vil því kalla klám fagurfræði.
Það er ekkert klámfengið við stór-
glæsilegar stúlkur."
Er Jagurfrceöin“ stór hluti af
veltunni?
„Nei, þetta fylgir bara. Ég sel
myndbönd og svona myndbönd
fljóta ósjálfrátt með. Menn vilja
safna þessu líka og ég er bara að
sinna eftirspum. En ég get ekki
sagt að ég sé einhver fyrsta klassa
pomóbúlla, það em aðrir staðir i
bænum með miklu meira úrval. Og
ég gef mig ekki heldur út fyrir að
vera með þetta efni. Þetta kemur
bara alltaf með. Ef ég segðist bara
vera með rokkplötur kæmu alltaf
einhveijar diskóplötur með. Svona
búlla er hálfgert þjóðminjasafn.
Flóruna í samfélaginu er að fmna
hér i öllum myndum og það er ekki
hægt að loka augunum fyrir því að
fagurfræðin er partur af menning-
unni, þetta tengist allt. Menn koma
hingað inn og sjá gömul blöð og þá
rifjast upp fyrir þeim einhver háa-
loftsdramatík sem þeir áttu með
sjálfum sér fyrir löngu.“
Ekki gamiir
slefandi karlar
Eru þaö þá aðallega karlar sem
sœkja í þetta efni?
„Nei, alls konar, pör og allt
bara, ekki bara gamlir slefandi
karlar. Fólk er orðið svo opið fyr-
ir þessu í dag, enda árið 2000 aö
koma. Fólk er hætt að láta aðra
ákveða hvað það má horfa á. Það
er fáránlegt að klám skuli vera
bundið við eitt kynfæri. Það þýðir
að við karlmenn erum alltaf að
klæmast þegar við erum einir á
klósettinu. í orðabókum þýðir
klám eitthvað Ijótt en typpið á mér
er ekkert ljótt og ekki heldur stelp-
urnar í myndunum hjá mér.“
Hvaö er klám fyrir þér?
„Það er bara einhver níðings-
skapur. Einhvers staðar verður að
setja mörkin, býst ég við. Einu
sinni voru til klámmyndir með
gömlum kerlingum, grænum í
framan af málningu, sem voru
pissandi hver á aðra, og ég kvitta
kannski undir að það geti kallast
klám. Þessar amerísku myndir í
dag eru þó langt í frá einhverjar
klámmyndir. Bill Clinton er miklu
meira klám en allar þessar mynd-
ir til samans. Þetta er ekki fyrir
neinum í dag. Femínistar eru
m.a.s. hættir að rífa niður þær
kynsystur sínar sem eru í þessum
bransa. Hér i Reykjavík er þessi
bransi að opnast með öllum þess-
um nektarstöðum. Ég veit ekki al-
veg hvar spólumar koma inn í
dæmið. Þær skilja í rauninni ekk-
ert eftir sig nema plássið í skápn-
um, eða hvar sem þær eru geymd-
ar.“
Finnst þér vera oróinn minni
tepruskapur í þjóðfélaginu? Finnst
þér fólk t.d. eiga auöveldara meö aö
biöja um og kaupa þessar myndir í
dag?
„Já, ekki spuming, og það vita
orðið allir hverjar em flottustu
drottningamar. Fólk kemur og bið-
ur um Jennu Jameson, eða hvað
þær heita. Leikarar hefja líka oft
sín fyrstu spor í þessum bransa,
t.d. Stallone. Ekki er hann perri,
hlaupandi um með nammipoka í
Hollywood, svo ekki hefur þessi
reynsla eyðilagt hann.“
Hvaöan kemur efniö sem þú sel-
ur?
„Aðallega frá Ameríku en sumt
frá Evrópu. Svo kemur þetta bara
með Pétri og Páli. Lögin sem
banna sölu og dreiflngu á þessu
eru frá 1920 eða eitthvað en þar
segir að fólk megi eiga klám.
Hvernig er hægt að eiga svona
spólur ef hvergi má kaupa þær?
Ha? Það segir sig sjálft að þetta er
mjög asnalegt."
Góð mynd af
samfélaginu
I fornbókabúðunum skapaðist oft
sérstakt samfélag þegar karlar með
tóbakshom fóm að venja komur
sínar þangað. Þar rorruðu þeir í
loftleysinu með gárungsskap á lofti.
Nú fækkar fornbókabúðunum ört en
safnarabúðir eins og búð Ólafs
halda enn velli. Ólafur segir kúnna-
hópinn stóran og einnig séu margir
fastakúnnar sem koma til að spjalla
og fá sér kaffi. „Þetta er alls ekki
bara fólk sem er að leita að klám-
myndum," segir hann, „ég vil að það
komi fram. Þetta er bara alls konar
fólk með alls konar áhugamál."
Hékkst þú sjálfur í safnarabúó-
um áöur en búöin þín kom til?
„Já, ég þurfti oft að leita á náðir
svona búða þegar mig vantaði eitt-
hvað úr fortíðinni. Þessar búðir
gefa góða mynd af samfélaginu og
mörg söfn gætu bara verið ánægð
ef þau ættu jafhmikið um samfélag-
ið og ég.“
Ertu sanngjarn í viöskiptum?
„Já, alltof sanngjarn. Ég borga
stundum vel fyrir hluti sem mér
finnst sjálfum stórmerkilegir og
spennandi og langar til að fá inn í
búðina. Ég reyni að láta fólk flnna
fyrir því að það sé ekki að henda
hlutunum heldur sé að fá eitthvað
fyrir þá. Ég vil nota tækifærið og fá
að segja að ég er alltaf að leita að
góðu efni, og þá rokki meira en
öðru. Ég vil halda í þá línu, og þá
meira af gömlu rokki en nýju.“
-glh
eild
greglunnar
Kannski
stöndum
við okkur
ekki nógu vel
%
R3 er sú deild innan lögreglunn-
ar sem fæst við ofbeldismál, og á
hennar könnu er þvi lika að halda
uppi lögum í því sem snýr að
klámi - klám er jú ofbeldi, að
sumra mati. Þegar myndbanda-
leigur og safnarabúðir borgarinn-
ar eru „böstaðar" er það yfirleitt
vegna þess að einhver klagar í
lögguna - kærir eða tilkynnir - og
eftir að lagt er hald á myndböndin
fer fram rannsókn þar sem stál-
heppnir rannsóknarlögreglumenn
hraðspóla yfir góssið og ákvarða
hvort um klám er að ræða eða
ekki. Talsmaður R3, sem ekki
fannst nauðsynlegt að láta nafn
síns getið, segir að klám sé sam-
kvæmt lögunum þegar kynfæri '
karls og konu snertast, sem sagt
„ganga hvort að öðru“, m.ö.o. þeg-
ar samfarir eru sýndar í návígi.
Tilli og píka ein og sér eru svo
sem i lagi, en hitt er klám sam-
kvæmt lögunum.
„Það er spurning hvort lögin
eru nógu skýr í þessum máli," seg-
ir talsmaðurinn, „þetta er allt á
hálfgerðu gráu svæði. Kannski
stöndum við okkur ekki nógu vel
í að leggja hald á þetta efni.“
í dag eru nokkur mál í gangi
þar sem klámspólur koma við
sögu, en þau snúa fremur að höf-
undarrétti en klámi. Þau klám-
myndbönd sem hægt er að leigja
og kaupa á íslandi eru í hverfandi
tilfellum lögleg heldur „kóperuð"
eintök með litljósrituðum umslög-
um, og sagði einn Hrói höttur í
bransanum að það væri gert til að
myndirnar væru á viðráðanlegu
verði fyrir kúnnann. Ef ætti að
fara að lögum yrðu því nánast all-
ar klámspólur á landinu gerðar
upptækar, en sem betur fer er
skilningur á því innan löggæsl-
unnar að vera ekki að vasast í því
hvað klámáhugafólk horfir á í frí-
tíma sínum. Það er heldur enginn
umboðsmaður erlends kláms á
landinu sem hefur hag af því að
kæra sölu eða leigu á myndum,
sem eru ólöglegar samkvæmt höf-
undarréttarlögunum. Líklega fær
sú saklausa iðja að skaffa þurf- '
andi klámhundum eitthvað til að
horfa á því að slampast óáreitt
áfram án teljandi afskipta ríkis-
valdsins.
Dýrgripur búöarinnar er
platan „Magic Key“ með
Náttúru. Hún er metin
á 60 þúsund krónur.
8. janúar 1999 f Ókus
19