Dagblaðið Vísir - DV - 08.01.1999, Page 20

Dagblaðið Vísir - DV - 08.01.1999, Page 20
b í ó John Malkovich leikur hættulegasta pókerspilarann í New York, Rússa sem gengur undir nafninu Teddy KGB. Mike veit af hefur hann ánetjast spilaflkninni á þann veg sem hann hafði aldrei ætlað sér. Tveir af vinsælustu ungu leik- urunum i Hollywood, Matt Damon og Edward Norton, leika pókerfélagana. í hlutverki kær- ustu Mikes er ung leikkona, Gretchen Mol. John Malkovich leikur pókerspilarann sem allir þrá að vinna, John Turturro leik- ur Joey Krish sem kennt hefur Mike kúnstina, Martin Landau leikur háskólaprófessor, kenncira Mikes, sem tekur eftir því að eitt- hvað angrar piltinn og Famke Janssen leikur Petru, eiganda pókerklúbbs. Leikstjóri Rounders er John Dahl sem hefur á undanfórnum árum vakið mikla athygli fyrir sterkar og áhrifamiklar kvikmynd- ir. Er hann í dag talinn í fremstu röð þeirra leikstjóra sem fylgja film noir-stefnunni sem stífast og bera allar myndir hans þess merki að þangað sækir hann í leiðsögn. Það var Sigurjón Sighvatsson og félagar hans hjá Propaganda Film sem gáfu Dahl fyrst tækifæri í Kill Me again sem fjallar um vafasama þrenningu sem er á höttunum eftir Soldier * Enn fljúga til okkar jólasteikur alla leió frá Ameríku. Soldier er ein af þessum flötu eftirlíkingum sem yfirleitt rata rétta boö- leið á vídeó. Það er ekkert sem nær að lyfta þessari mynd upp í meðalmennskuna. Sagan og allar persónur eru fullkomnar klisjur án þess að nokkurs staðar sjáist örla á íróníu, æ æ. -úd Mulan ★★★★ Mulan er uppfull af skemmti- legum hugmyndum og flottum senum, handrit- ið vel skrifað og sagan ánægjulega laus við þá yfirdrifnu væmni sem oft einkennir Disney. Mikil natni er lögð I smáatriði eins og er við hæfi í teiknimyndum og aukakarakterar, eins og drekinn og litla (lukku)engisprettan, eru svo skemmtileg að þau hefðu ein og sér verið efni í heila mynd. Gó sí. -úd Bíóhöllin/Saga-bíó Practical Magic ★★★ Bullock og Kidman hafa, held ég, aldrei verið eins góðar og njóta sín vel í þessum klikkuðu hlutverkum, og Wiest og Channing skemmta sér greini- lega konunglega sem miðaldra norna- mómmur. Practical Magic tekur sig aldrei of alvarlega og það er þaö sem gerir hana skommtun sem hún er. -úd l'll Be Home for Christmas ★★ Klisjukennt léttmeti ætlað unglingum og sker sig Iftið frá slíkum meðalmennskumyndum, nema ef vera skyldi að aðalpersónan erijólasveinabúningi. Það sem bjargar myndinni frá því að vera al- gjcrt „fíaskó" eru margar skondnar persónur sem aðalpersónan hittir á leið sinni heim. Táningastjarnan Jonathan Taylor Thomas þarf að gera betur ef hann á að halda velli. -HK Star Kid ★★ Vonda skrímslið í Star Kid er eins konar klóni úr Predator og einhverju kunnug- legu úr eldri geimmyndum. Einhvern veginn varð boðskapurinn sögunni ofviða og þegar 1001. heilræðið sveif yfir skjáinn fór ég að geispa. Ef það er eitthvað sem drepur barna- myndir þá er það ofhlæði áróðurs sem gengur yfirleitt út á einhvern borgaralegan heilagleika samfara hefðbundnum kynhlutverkaskipting- um. -úd Can’t Hardly Wait ★★ Þessi unglingamynd sver sig í ætt við gleðimyndir á borð við Gre- ase að þvf leyti sem hún fjallar um útskriftar- árgang menntaskóla, paranir og afparanir. Þarna er á ferðinni tilraun til að vinna með þetta menntaskólalokaballs-form en þessi sjálfsmeðvitund gengur því miður ekki nógu langt og klisjurnar hlaðast æ hraðar upp eftir þvf sem Ifður á myndina. -úd Háskólabíó Egypski prinsinn ★★★★ The Prince of Egypt er tækniundur og sannkallað augna- konfekt. Ef hægt er að tala um epfska teiknimynd þá er þetta slfk mynd. Með The Prince of Egypt má segja að teiknimyndir sem gerðar eru sem fjöl- skylduskemmtun taki breytingum. Ekki er verið að beina sérstaklega augunum að börnum heldur einnig komið til móts við þá sem eldri eru og þroskaðri. -HK Tímaþjófurinn ★★★ Bullock og Kidman hafa held ég aldrei verið eins góðar og njóta sfn vel í þessum klikkuðu hlutverkum og Wiest og Channing skemmta sér greinilega konunglega sem miðaldra nornamömmur. Practical Magic tekur sig aldrei of alvarlega og það er það sem gerir hana að þeirri ánægjulegu skemmt- un sem hún er. What Dreams May Come ★★★ What Dreams May Come er sérstök kvikmynd sem er á yfir- borðinu mjög falleg og gefandi og Robin Willi- ams og Annabella Sciorra innileg og sannfær- andi f leik sínum en myndin nær aldrei al- mennilegri festu heldur verður kvikmynd með mörgum fallegum og vel geröum atriðum. -HK Taxi ★★★ Taxi er farsakennd spennumynd þar sem tekst að ná upp skemmtilegri stemningu með góöum húmor, sérstaklega fyrri hluta myndarinnar, og þótt samtöl virki stundum sem eintómur ruglingur þá er Taxi skemmtileg tilbreyting frá amerísku hasarmyndaflórunni sem við þurfum að lifa við. -HK Out of Slght ★★★ Maurar ★★★ Breska kvikmyndin Velvet Goldmine hefur vakið mikið umtal að undanförnu. Myndin gerist á áttunda áratugnum og er aðalpersónan byggð á David Bowie. Kvikmyndaveísla fram undan Á bak við Rounders, sem Regn- boginn frumsýnir í dag, er neðan- jarðarveröld þar sem póker er spil- aður og mikið er lagt undir. Und- irbúningsvinna fyrir handritið að myndinni var mikil því tveimur árum áður en tökur hófust fóru Brian Koppelman og David Levien að stunda pókerklúbba til að fá yfir sig spenninginn og and- rúmsloftið og skrifuðu handritið meðfram því sem þeir sjálfir öðl- uðust reynslu í að spila póker. Rounders gerist í New York og segir frá lögfræðinemanum Mike McDermott sem hefur allt sitt líf verið snjall í spilum. Honum geng- ur vel í skólanum, á fallega kær- ustu en telur réttilega að það vanti spennu í líf sitt. Hann fer því á stúfana á kvöldin og sækir litla pókerklúbba þar sem spilað er upp á peninga en aldrei háar upphæð- ir. Þetta breytist þegar fyrrum fé- lagi hans, sem gengur undir nafn- inu Worm, birtist. Sá er nýkominn úr fangelsi. Worm segir að spila- mennska Mikes sé barnaleikur miðað við það sem hann geti kom- ið honum í kynni við. Upp frá þessu snýst líf þeirra félaga um póker og er spilað á ýmsum vafasömum stöðum og áður en miklum peningum. í aðalhlutverk- um voru Val Kilmer, Joanne Whalley Kilmer og Michael Madsen. Næstu mynd, Red Rock West, gerði John Dahl einnig fyrir Propaganda. í Red Rock West segir frá frekar lánlausum náunga sem Nicholas Cage leikur. Hann er tekinn i misgripum fyrir at- vinnumorðingja. Mynd þessi vakti litla athygli í fyrstu en fékk góða dóma. Hún hefur síðan vakið mikla hrifningu og er að mörgum talin klassísk í dag. Með þriðju mynd sinni, The Last Seduction, komst John Dahl á blað. Þessi frá- bæra sakamálamynd, sem í fyrstu átti aðeins að sýna í sjónvarpi, fór sigurfór um heiminn og var það ekki síst vega frábærs leiks Lindu Fiorentino sem sýndi í myndinni heldur betur klærnar í viðskiptum sínum við karlmenn. Fjórða kvikmynd Johns Dahls, Unforgettable, ber kannski nafn með réttu, því þar gerði hann mestu mistök sín og er hún best geymd í glatkistunni. Rounders er fimmta kvikmynd hans og þrátt fyrir að hún hafi fengið mjög góða dóma og skarti einvalaliði leikara var aðsókn að henni einhverra hluta vegna mjög lítil í Bandaríkj- unum. -HK Eftir viku hefst Kvikmyndahá- tíð i Reykjavík og sem fyrr verð- ur flaggað mörgu af því merki- legasta sem hefur verið að gerast í kvikmyndagerð í heiminum á undanförnum misserum. Opnun- armyndin er danska myndin Festen sem hefur verið að fara sigurför um allan heiminn og stutt er síðan kvikmyndagagn- rýnendur í New York völdu hana bestu erlendu kvikmynd- ina. Leikstjóri Festen er Thom- as Vinterberg. Hann verður ekki viðstaddur frumsýninguna heldur koma sem sérstakir gest- ir, aðalleikari myndarinnar Ul- rich Thomsen og Valdís Ósk- arsdóttir, sem klippti myndina en hún starfar í Danmörku. Önn- ur dönsk kvikmynd verður á há- tíðinni, sem ekki hefur vakið minni athygli en Festen, er það nýjasta kvikmynd Lars Von Tri- ers, Idioterne. í heild verða sýndar um það bil tuttugu kvikmyndir á hátíð- inni og sem fyrr verður Regn- boginn aðalvettvangur hátíðar- innar en sýningar verða í fleiri kvikmyndahúsum í Reykjavík. í næstu viku fylgir aukablað með Fókus þar sem allar kvikmynd- imar á hátíðinni verða kynntar. -HK Setiö viö spilaboröiö í The Rounders. John Malkovich og Matt Damon í hlutverkum tveggja spilafíkla. Bíóborgin Holy Man ★★ Hvað Eddie Murphy hefur séð við hlutverk hins „heilaga manns" er erfitt að koma auga á. Kannski hefur hann hugsað sem svo að þarna væri tækifæri fyrir hann að losna úr ýktum gamanhlutverk- um. Murphy hefur samt ekki erindi sem erfiði, þrátt fyrir að hann beiti kjaftinum lítið. Til þess er persónan of veikþurða og Murphy ekki nógu sterkur á svell- inu. -HK Stjömubíó tekur til sýningar í dag nýjustu kvikmynd Johns Carpenters, Vampírur (Vamp- ires). Eins og nafnið bendir til em þær nokkrar, blóðsugurnar, í myndinni. Eins og vænta mátti frá John Carpenter, sem á að baki frá- bærar hryllingsmyndir, brýtur hann upp hina hefðbundnu ímynd blóðsugunnar. Vampírur Carpenters sofa ekki í kistum og þær bíta ekki endilega i hálsinn, auk þess sem fómarlambið breyt- ist ekki umsvifalaust í blóðþyrsta vampim. Það tekur það heila fimm daga að umbreytast. Dracula gamli hafðist yfirleitt við í Rúmen- íu og flæktist um í Evrópu en þess- ar vampirur hafa hreiðrað um sig I í Nýja-Mexíkó og má segja að myndinni svipi í allri uppbyggingu til blóðugs vestra í anda Sams Peckinpah. John Carpenter er einn þeirra kvikmyndaleikstjóra sem ekki hafa ánetjast tölvugrafík- inni og segist vera af gamla skólan- um þegar kemur að gerð hroll- vekju- og spennumynda og því leggur hann mikið upp úr förðun og sviðsetningum og ef þarf til að Valek yfirvampíra ásamt liöi sínu tilbúinn Helstu kvikmyndir James Woods: The Way We Were 1973 • The Gambler 1974 @ Night Moves 1975 @ The Choir Boys 1977 ® The Onion Fields 1979 • The Black Marple 1980 ® Eyewitness 1981 n Split Image 1982 © Fast Walking 1982 @ Videodrome 1983 © Once upon a Time in America 1984 • Against All Odds 1984 • Joshua then and now 1985 ® Cat’s Eye 1985 ® Salvador 1986 O Promise 1986 ® Best Seller 1987 • The Boost 1988 © Cop 1988 • True Believer 1989 © The Hard Way 1991 © Straight Talk 1991 0 Diggstown 1992 © Chaplin 1992 • The Specialist 1994 • The Getaway 1994 • Nixon 1995 0 Killer: A Journal of Murder 1995 • Casino 1995 • Ghost of Mississippi 1996 • For Better or Worse 1996 © Contact 1997 O Vampires 1998 © Fear and Loathing in Las Vegas 1998 C 20 f Ó k U S 8. janúar 1999

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.