Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.1999, Blaðsíða 6
matur
AMIGOS ★★★ Tryggvagötu 8, s. 5111333.
„Erfitt er að spá fyrirfram í matreiðsluna, sem er
upp og ofan." Opiö í hádeginu virka daga
11.30-14.00, kvöldin mán.-fím. 17.30-22.30,
fös.-sun. 17.30-23.30. Barínn er opinn til 1 á
virkum dögum en til 3 um helgar.
AUSTUR INDÍAFÉLAGIÐ ★★★★ Hverfis-
götu 56, s. 552 1630. „Bezti matstaður
austrænnar matargerðar hér á landi." Opiö
kt. 18-22 virka daga og til kl. 23 um helgar.
ARGENTÍNA ★★ Barönsstíg lla, s. 551
9555. „Bæjarins besta steikhús hefur dalað."
Opiö 18-23.30 v.d., 18-3 um helgar.
ASÍA ★ Laugavegl 10, s. 562 6210. Opiö virka
daga 11.30-22 en 12-23 um helgar.
CAFÉ ÓPERA Lækjargötu 2, s. 522 9499.
CARPE DIEM Rauðarárstíg 18, s. 552 4555.
CARUSO **★ Þlngholtsstr. 1, s. 562 7335.
„Þvert á íslenska veitingahefð hefur hin
rustalega notalegi Caruso batnað með
aldrinum." Opiö 11.30-14.00 og 18.00-23.00
virka daga. Föstudaga 11.30-14.00 og
18.00-24.00, laugard. 11.30-24.00 og
sunnud. 18.00-24.00.
CREOLE MEX
★★★★ Lauga-
vegl 178, s. 553
4020. „Formúlan
er líkleg til árang-
urs, tveir eigend-
ur, annar í eld-
húsi og hinn í
sal.“ Opiö
11.30-14 og
18-22 á virkum
dögum en 18-23
um helgar.
EINAR BEN Veltusundi 1. 5115 090. Opiö
18-22.
GRILLIÐ ★★★★ Hótel Sögu v/Hagatorg, s.
5252 9960. „Glæsilegur útsýnissalur milli-
klassahótels með viröulegri og alúðlegri
þjónustu, samfara einum allra dýrasta matseðli
landsins." Opiö 12-14.30 og 19-22.30 virka
daga, 12-14.30 og 18-22 föstu- og laugardaga.
HARD ROCK CAFÉ ★★ Kringlunnl, s. 568
9888.
HÓTELHOLT ★★★★★ Bergstaðastræti 37,
s. 552 5700. „Listasafnið á Hótel Holti ber í
matargerðarlist af öðrum veitingastofum lands-
ins.“ Opiö 12-14.30 og 19-22.30 virka daga,
12-14.30 og 18-22 föstu- og laugardaga.
HÓTEL ÓÐINSVÉ ★★ v/Óðlnstorg, s. 552
5224. „Stundum góður matur og stundum ekki,
jafnvel í einni og sömu máltíð." Opiö 12-15 og
18-23 virka daga, 12-15 og 18-23.30 föstu- og
laugardaga.
HUMARHÚSIÐ ★★★ Amtmannsstíg 1, s.
561 3303. „Löngum og hugmyndarikum
matseðli fylgir matreiðsla i hæsta gæðaflokki
hér á landi" Opiö frá 12-14.30 og 18-23.
IÐNÓ ★★★ Vonarstrætl 3, s. 562 9700.
„Matreiðsla, sem stundum fer sínar eigin slóðir,
en nær sjaldan hæstu hæðum. Enginn réttur var
að neinu leyti misheppnaður, en fáir minnis-
stæðir." Opiö frá 12-14.30 og 18-23.
ÍTALÍA ★★ Laugavegi 11, s. 552 4630.
KÍNAHÚSIÐ ★★★★ Lækjargötu 8, s. 551
1014. „Kínahúsið er ein af helztu matarvinjum
miðbæjarins." Opiö 11.30-14.00 og 17.30-
22.00 virka daga, 16-23 taugardaga og 17-22
é sunnudögum.
KÍNAMÚRINN ★★★ Laugavegi 126, s. 562
2258
L A U G A - Á S
★★★★★ Laug-
arásvegl 1, s. 553
1620. „Franskt
bistró aö íslensk-
um hætti sem dreg-
ur til sín hverfis-
búa, sem nenna
ekki að elda i
kvöld, barnafjöl-
skyldur utan úr bæ
og feröamenn utan
af landi og frá út-
löndum." Opiö
11-22 og 11-21
um helgar.
Arnaldur Máni stundar mannfræðirannsóknir sínar
af elju, bæði í Reykjavík og New York. Nú tekur
III. h I u t i
hann fyrir kaffihúsaþjóna. Bera þeir þjóðleg ein-
kenni? Eru þeir allir eins, sama hvar þeir þjóna?
Osma Sheik
Ekki minn tebolli
Af hverju kaffihúsa-
þjónn?
Ég byrjaöi til að hafa eitt-
hvað að gera á meðan ég fyndi
eitthvað betra, síðan líkaði
mér það bara betur og betur
og ég fann ekkert annað.
Kanntu ekkert annað?
Það gleymist hægt og hægt.
Mundirðu viija gera eitt-
hvað annað?
Einu sinni vildi ég allt ann-
að en nú er ég sátt.
Kemur guð þér og starfi
þínu eitthvað við?
Hann er alltaf hjá mér.
Kemur pólitík þér og
starfi þínu eitthvað við?
Ég afgreiði alla jafnt, en
hvort allir líta á mig eins og
sig, mér er sama, því að það er
líf eftir þetta, með guði.
Áttu þér fyrirmyndir?
Martin Luther King og hans
frú.
Drekkurðu eða dóparðu
of mikið?
Ó, nei. Það er sko ekki minn
tebolli, vinur.
Hvað langar þig helst að
gera með elskhuga þínum?
Með manninum mínum
væri gaman að eignast
fleiri börn því að ég elska
bömin mín eins og manninn
minn.
Áttu þér mottó?
„It’s in His hands.“
Ein góð saga úr bransan-
um:
Desmond kemur enn á
hverjum morgni og fær sér
morgunkaffið hjá mér, spjallar
og er vinalegur þó að fyrir
þremur árum hafi hann unnið
3 milljónir dollara í lottóinu.
Sumir breytast aldrei.
Eric Ólafsson
Redda stadnunn
þvi konan hðetti
Af hverju kaffihúsa-
þjónn?
Ég er að redda staðnum
því að konan mín hætti
héma.
Kanntu ekkert annað?
Jú, jú, ég er rafvirki og hef
lært hagnýta grafík og ver-
ið verkamaður.
Mundirðu vilja gera
eitthvað annað?
Nei, ekki í bili.
Kemur guð þér og
starfi þínu eitthvað við?
Hann kemur mér náttúr-
lega við en ekki starfinu.
Kemur pólitík þér og
starfi þínu eitthvað við?
Hún kemur mér ekkert
við en hún er hjartans mál
kúnnanna hér á Prikinu.
Áttu þér fyrirmyndir?
Nei.
Drekkurðu eða
dóparðu of mikið?
Ekki lengur.
Hvað langar þig helst
að gera með elskhuga
þínum?
Skreppa til New York.
Áttu þér mottó?
Einn dag í einu.
Ein góð saga úr brans-
anum:
Ég er bara búinn að vera
að vinna hérna í viku.
veitingahús
Gerilsneyddur
glæsibragur
Engir dagsréttir eru á stuttum matseðli Perlunnar, ekki
einu sinni fiskur dagsins, enda mundu frávik sennilega
trufla einbeitingu í eldhúsi.
Dýrasti og glæsilegasti veitinga-
salur landsins býður vandaða, en
gerilsneydda matreiðslu. Engir
dagsréttir em á stuttum matseðli
Perlunnar, ekki einu sinni fiskur
dagsins, enda mundu frávik
sennilega trufla einbeitingu í eld-
húsi. í flókinni matreiðslu er lögð
meiri áherzla á glæsibrag en
bragðgæði. Sumir forréttir og eft-
irréttir eru listaverk að útliti, en
að öðra leyti ekki minnisstæðir.
Karíbahafssalat var fagurt blað-
salat, allt of mikið sítrónuvætt,
með góðri mangó- og lárperu-
blöndu í sérstakri skál. Meyrar og
bragðgóðar andabringu-ræmur
vora bezti forrétturinn, klæddar
sesamfræjum, bornar fram í
spínati, sem virtist sykrað. Gul-
rótakæfa með karsa, graslauk og
sýrðum rjóma var mild og hlut-
laus.
Góður var grillaður barri, en
skorti eðlisbragð, borinn fram á
pönnuköku, með fyrirtaks humri
og ágætum villispergli. Risa-
hörpuskel var eins góð og annars
staðar, með bragðsterku græn-
metismauki. Vel heppnaður var
ofnbakaður eldislax undir spergil-
þaki, borinn fram með mildri
engifersósu.
Lambahryggvöðvi var ekki
eins léttsteiktur og sagt var á
matseðli, of mikið kryddaður og
ekki nógu meyr, með steiktiun
grænmetisteningum, sveppum
og sinnepsblandaðri rósmar-
ínsósu. Andakjöt var gott, enda
einfalt, með grænpiparsósu,
andalifur og mauki mangós og
epla.
Vel heitt créme brúlée var
óvenjulega gott, með þunnri
skorpu og ekki of harðri. Heitt
súkkulaðifrauð var bragðsterkt,
fallegt og gott, með chartreuse-
líkjör og vanillukremi. Mangó-
krapís var sterkur og góður. Of
eindregið sítrónubragð var að
sítrónutertu. Kaffi var fyrsta
flokks, bæði pressukaffi og
espresso.
Öguð og fumlaus þjónusta veit
nákvæmlega hver pantaði hvað,
bezta þjónusta í landinu, laus við
óþarfa afskiptasemi eða ótíma-
bærar spurningar, sem tröllríða
íslenzkum veitingahúsum. Volgir
dúkar komu eftir aðalrétt. Þjóðleg
og rómantísk tónlist var of hávær
á köflum. Vínlisti er fjölbreyttur
og svo vandaður, að húsvínið er
fyrsta flokks. -
Perlan er heljarmikið og yfir-
þyrmandi geimskip, glæsilegt
leiksvið, þar sem góðærismenn og
erlendir gestir þeirra borða þrí-
réttað með kaffi fyrir 4.700 krónur
á mann, áður en kemur að víni.
Út um raufar milli gildvaxinna
gluggapósta má sjá borgarljós,
sem minna fremur á stjörnuþokur
en sorg og gleði borgarlífsins.
Þetta er ekki útsýnisstaður, held-
ur magnaður innsýnisstaður,
griðastaður þeirra, sem næga
hafa seðlana.
Jónas Kristjánsson
6
f Ó k U S 12. febrúar 1999