Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.1999, Qupperneq 7
matur
Sigríður Júlíusdóttir
spáir í bolla og hendur
en þó aðallega í spil.
Kaffi Setrið er örugg-
lega með íslenskari
veitingastöðum á
íslandi. Þar er ekki
bara hægt að fá
rammíslenskan mat,
alþýðlegt viðmót, kaffi
í krús og brennivín
heldur skartar staður-
inn líka einu stykki af
spákonu. Þetta vita
þeir sem gengið hafa
niður Laugaveg og
rekið augun í hand-
málað skilti sem á
stendur: Spákona!
Hlýtt viðmót og opnir armar er
það sem bíður gesta Kaffi Seturs-
ins. Þú gengur inn og María
Guðnadóttir, annar eigandi stað-
arins, býður þig velkominn. Skil-
ur ekki alveg hvað ég er að gera
með ljósmyndara og allt sem því
fylgir. Er síðan himinlifandi þeg-
ar ég kynni mig og segi henni að
ég vilji vita ailt um spákonuna
sem auglýst er í glugganum.
„Við erum með hana héma á
daginn. Hún heitir Sigríður Júll-
usdóttir og er utan af landi,“ seg-
ir María og ég fæ líka að vita að
hún og maðurinn hennar, Ingólf-
ur Karl Sigurðsson (kallaður
Kalli), hafa rekið staðinn í rúm
tvö ár. Það er bullandi gangur og
þetta er fólk sem kannast við
blessað góðærið.
Hver á hugmyndina aö því að
vera meö spákonu?
„Ég fékk þessa hugmynd. Við
byrjuðum á þessu í fyrra og svo
fór hún í leyfi í sumar. En þessu
var svo vel tekið af kúnnunum að
þeir voru alltaf að spyija um hana
þannig að við fengum hana til að
koma aftur. íslendingar era líka
mjög forvitnir að eðlisfari. Þetta
þykir spennandi og það er alltaf
fullt að gera hjá henni."
Spákonan okkar er að vísu ekki
mætt enn þá. Hún kemur ein-
hvers staðar að handan. Býr ekki
í Reykjavík og það er þessi dular-
fulli blær yfir öllu sem henni
tengist. Matarlyktin á staðnum
verður meira að segja mystísk
þegar maður veit að eitt stykki
spákona er væntanleg, sem eftir-
réttur.
En hvaö er í aöalrétí?
„Við erum alltaf með íslenskan
heimilismat í hádeginu og svo
erum við með þessa skyndibita,
hamborgara og samlokur, það er
alltaf mjög vinsælt. Réttur dags-
ins í dag er til dæmis smokkfísk-
ur en þetta er annars mjög breið
lína sem við erum með. Ég held
að það séu ekki margir staðir í
bænum sem eru með íslenskan
heimilismat og hvað þá heldur
spákonu."
Galdrar
„Það eru sumir sem sitja alveg
eftir sig héma þegar hún er búin
að spá fyrir þeim,“ segir Maria,
aðspurð hvort spákonan hafi ein-
hverja hæfileika. „Mér finnst hún
mjög mögnuð."
Hvaö kostar spáin?
„Fimm hundruð krónur kortér-
ið og svo er hægt að fá sér lengri
tíma.“
Við köllum það bara ábót fyrir
lítinn pening.
„Hún spáir bæði í spil og bolla
og lófana en aðallega þó á spil. Og
það sem er magnað við þetta er að
við höfum ekkert verið að auglýsa
þetta heldur spyrst þetta alveg
ótrúlega út.“
Og auðvitað flokkum við það
undir galdra og í sömu andrá
bendir María mér á hvar hún sit-
ur, spákonan. í homi staðarins er
borð þar sem hægt er að draga
fyrir og loka að sér. Það er vand-
lega merkt með dularfullum
myndum og það dimmir á staðn-
um. Það sem við sjáum ekki er
þar sem við erum, það sem við
erum og það sem spákonan sér er
ofar okkar skilningi. Kannski
bara frat eins og sumir segja mn
Jesúm. Kannski óbiblíulegt eða
algjörlega kristilegt. Það skiptir
líklega engu málið. Við lifum ekki
lengur í Palestínu eða Júdeu eða
hvað sem þessi biblíska veröld
kallast. Við erum á Laugavegi
númer 103 og getum fullvissað
okkur um að spámaðurinn og
galdrakarlinn, sonur guðs, Jesús
Kristur, vissi ekki hvar ísland
var. Hann hafði ekkert kort frá
Leifi heppna eins og Kristófer
Kólumbus. Hann var bara, við
erum bara, ég er bara og því sest
ég inn í myrkrið og læt segja mér
hluti sem ég einn vil vita. Satt eða
ósatt. Mér er sama. Kafflð var gott
og kortérið þess virði. -MT
LÆKJARBREKKA ★ Bankastrætl 2, s. 551
4430.
MADONNA ★★★ Rauöarárstíg 27-29, s. 893
4523 .Notaleg og næstum rómantísk veitinga-
stota með góðri þjónustu og frambærilegum Ital-
íumat fyrir lægsta verð, sem þekkist hér á landi."
Opiö virka daga 11.30-14.00 og 18.00- 23.00
og 17-23.30 um helgar.
MIRABELLE ★★★ Smlðjustíg 6, s. 552
2333. .Gamal-frönsk matreiðsla alla leið yfir í
profiteroles og créme brulée." Opiö 18-22.30.
PASTA BASTA ★★★ Klapparstíg 38, s. 561
3131. „Ljúfir hrisgrjónaréttir og óteljandi tilbrigði
af góðum pöstum en lítt skólað og of uppáþrengj-
andi þjónustufólk." Opiö 11.30-23 virka daga og
11.30-24 um helgar. Barinn er opinn til 1 virka
daga og til 3 um heigar.
U PRIMAVERA ★★★★ Austurstrætl 9, s.
5618555. .Sjálfstraust hússins er gott og næg
innistæða fyrir því.“ Opiö 12.00-14.30 og
18.00-22.30 virka daga og um helgar fré
18.00-23.30.
RAUÐARÁ Rauðarárstíg 37, s. 562 6766.
REX ★★★★ Austurstrætl 9, s. 511 9111.
„Rex kom mér á óvart með góöri, fjölbreyttri og
oftast vandaðri matreiðslu, með áherzlu á ein-
föld og falleg salót, misjafnt eldaðar póstur og
hæfilega eldaða fiskrétti." Opiö 11.30-22.30.
SHANGHÆ ★ Laugavegi 28b, s. 551 6513.
Opiö virka daga 11.30-22 en 12-23 um helgar.
SKÓLABRÚ ★★ Skólabrú 1, s. 562 4455.
„Matreiðslan er fögur og fin, vönduð og létt, en
dálítið frosin." Opiö fré kl. 18 alla daga.
TILVERAN ★★★★★ Llnnetsstíg 1, s. 565
5250. „Það eru einmitt svona staöir, sem við
þurfum fleiri af til að fá almenning til að lyfta
smekk sínum af skyndibitaplani yfir á fýrstu þrep
almenniiegs mataræðis." Opiö 12-22 sunnudag
til fímmtudags og 12-23 föstudag og laugardag.
\ <V.
•.wvjyý,-*
VIÐ TJÖRNINA ★★★★ Templarasundl 3, s.
551 8666. „Tjörnin gerir oftast vel, en ekki alltaf
og mistekst raunar stundum." Opiö 12-23. .
ÞRÍR FRAKKAR ★★★★★ Baldursgötu 14,
s. 552 3939. „Þetta er einn af hornsteinum ís-
lenskrar matargerðariistar og fiskhús landsins
númer eitt." Opiö 12-14.30 og 18-20 virka
daga og 18-22 um helgar en til 23 föstu- og
laugardag.
meiraá
www.visir.is
!|SÍ NINTEfHQO.64
• Einföld í notkun (Barnavæn)
• Aflmikil - 64 bita
• Rauntíma - þrívídd
• Enginn biðtími.
(Allt að 15 mín i ððrum leikjatölvum)
• Allt að 4 spilarar
• Besta leikjatölvan '98 í einu
o\\iUJi
&&■
* Golden Eye 007, hæst dæmdi
leikurinn 1998 (98%)
* Margföld ending leíkja
* Um 80 leikjatitlar
i—i BRÆÐURNIR
ípORMSSON
Lágmúla 8 • Simi 533 2800
UMBOÐSMENN
Reykjavík: Hagkaup, smáranum. Elko, BT-tölvur, Heimskringlan, SAM-tónlist, Japis, Vesturland: Málningarþjónustan, Akranesi. Hljómsýn,
Bolungarvík. Straumur, Isafiröi. Norðurland: Kf. Húnvetninga, Blönduósi. verslunin Hegri, Sauðárkróki. Hljómver, Akureyri. Bókval, Akureyri.
Selfossi. Rás, Þorlákshöfn. Reykjanes: Ljósboglnn, Keflavik. Samkaup, Keflavík.
Akranesi. Kf. Borgfirðinga Borganesi. Vestfirðir: Geirseyjarbúðin, Patreksfirði. Rafverk,
Hagkaup Akureyri. Öryggi, Húsavík. Suðurland: Arvirkinn, Selfossi. Kf. Árnesinga,
□ KRAFTMESTA OG HRAÐVI
LEIKJATOLVAIHEIMI □
12. febrúar 1999 f Ókus
7