Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.1999, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.1999, Blaðsíða 3
e f n i meömæli Aö sjálfsögðu rffæl- um við með því að karlmenn helðrl konurnar á sjálfan konudaginn og þetta á sérstak- lega við þá sem fðru eftir tilmæl- um Fókuss um að hunsa Valent- Já, sýnum konum gamaldagsvirðingu. Opnið dyr, lyftið þungum hlutum, haldið utan um þær í frostinu en ekki fara að detta það I hug að elda. Gefið henni heldur eitthvað sem vantar í eldhúsið ásamt blómvendi og kannski einhverja svona unaðsolíu. Savlor er eina almennilega myndin í bíó þessa dagana. Þetta er stríðsmynd sem lætur Saving Privat Ryan líta út fyrir að vera upphafningu á striði. Á þeirri mynd fær maður það á tilfinninguna að strið sé eitthvað sem mann langi til að kaupa ferð I með Samvinnuferðum á meðan Savior lætur fullvaxta karlmann fara að hágráta. Horfðu á Gettu betur í kvöld og reyndu að svara spurningunum. Þú getur að sjálfsögðu ekki svarað nema mjög takmörk- uðum og auð- veldum spurn- ingum og það þegar liðin eru búin að svara þeim. Þá færðu það á til- finninguna að þetta sé einhverft fólk sem man allt og þá líður þér vel uppi í sófa með popp, fjarstýringu og pínulítinn loftgang í maganum. Þú ert ekki nörd, þú ert manneskja. Stelpur, safnlð hári. Það stendur í öllum útlendu tískublöðun- um að það verði það heitasta í vor. Rökn eru að allar helstu stjörnurnar eru með sítt hár. Madonna, Alanis Morisette, Móa, öll súpermód- elin og meira að segja Björk er með sítt hár þó hún greiði sér skringilega. Tónleikar Gus Gus, Grindverks og Sigur- rósar annað kvöld eru vafalaust aðaltón- leikar helgarinnar og I Flugskýli 4 er skyldumæting. Á staðnum verða líka tveir plötu- snúðar frá Fat Cat merkinu I London, þeir Alex Knight og Dave C a w I e y . Þessir feitu kettir ætla líka að snúa plöt- unum á neðri hæðinni á Thomsen I kvöld. Þar verður þvl hægt að taka for- skot á sælu morgundagsins. Heiða og félagarnir í Unun öskra: Hey, þú lífsglaða æska! Unun heldur ball á Gauki á Stöng í kvöld og vinir okkar í Örkumli poppa í hléi. Já, það er ball með hinum rammíslensku rokkurum. Á balli er.bara fi m vnti cpiir Lentirðu í einhverju veseni á Isa- firði um síðustu helgi? „Nei. Viö vorum að vísu veður- teppt í tvo daga,“ segir Heiða í Unun og ekki er að heyra að hún sé eitt- hvað sár út af því. „ísafjörður er einn skemmtileg- asti staðurinn til að vera veðurteppt- ur á. Við skemmtum okkur mjög vel. Fengum okkur rjúpu, fórum í nudd, ljós og sund og gerðum bara allt sem hægt er að gera á ísafirði. Þetta var alveg frábært.“ Svo er það ball á Gauknum í kvöld: „Já. Og þar ætlar hin frábæra hljómsveit Örkiunl að vera gesta- hljómsveit. Við í Unun ætlum svo að halda uppi stuðinu á undan henni og eftir.“ Nú eruó þió ekki vön aó halda böll. Er meira stuð á balli en tónleikum? „Það er allt annar gír sem maður fer í. Á tónleikum er blandað saman rólegum gír og hröðum. En þegar maður er á balli þá er það bara fimmti gír og ekkert annað. Eins og á ísafirði. Þá keyrðum við bara stans- laust í tvo tíma. Tókum ekki einu sinni pásu og vorum í ótrúlegu stuði. Hljómsveitin var gjörsamlega tryllt og það lá við að maður félli í yfirlið á sviðinu því stuðið var svo mikið.“ En á Gauknum poppar Örkuml í hléi: „Já. Við tökum okkur smápásu í kvöld en hömumst bara þeim mun rneira." Hvaó ertu annars að gera þessa dagana? „Ég er í heimspekinni uppi í Há- skóla. í augnablikinu er ég annars að drekka te og var að koma úr rök- fræðitíma. Þar áður hélt ég fyrirlest- ur um Sören Kierkegaard," segir Heiða. Og það geta allir, sem séð hafa Unun á sviði, fullyrt að heim- spekinemar eru stuðboltar. Hún Heiða stekkur allavega ekki út í sal á miðju baili til að fá sér te og ræða um það hvort Kant tókst að réttlæta til- vist sína í þessum heimi eða sameina reynslu og vitneskju fyrir reynslu. Ég held að það sé óhætt að segja að hún rokki til að gleyma öllu þessu. Að þetta sé einhvers konar hugleiðslu- form stuðsins. Enda segir Heiða að þau lofi því allavega að vera í stuði í kvöld og restin sé bara undir gestum Gauks á Stöng komin. Fáum okkur meira stuð og fórum á ball á Gaukn- um í kvöld. -MT Brynhildur Þorgeirsdóttir er fyrrverandi pönkari og umboðsmaður Oxzmá, sveitastúlka og núverandi skúlptúristi. Fókus athugaði hvar hún væri stödd í lífinu „Sýningin verður opnuð klukkan flögur á morgun," segir Brynhildur Þorgeirsdóttir um nafnlausa sýn- ingu sína í Listasafhi ASÍ. „Þar verð ég að sýna skúlptúra úti um allt hús. Ég sýni skúlptúr í salnum, portrett frammi á gangi og uppi á þaksvölun- um verður geimsteinagarður." Ertu aó mýkjast eitthvað í þessu skúlptúrum? „Ég er nú ekkert viss um að að þetta sé neitt mýkra. Kannski er ég bara að verða flinkari. Annars er pönkið liðið undir lok og því er ég kannski ekki alveg jafnbeitt og áður.“ En miðað vió hversu oddhvassir skúlptúrarnir þínir voru hér áóur þá hélt maóur að þú vœrir oröin mjúk kona? „Ég er náttúrlega tíu kílóum þyngri en ég var fyrir fimmtán árum og það má vel vera að þetta fylgi líf- fræðinni eitthvað." Líturðu á þig sem skúlptúrista? „Það er náttúrlega vinnan mín. En ég er í rauninni bara gamaldags styttugerðarkona og það er einmitt það sem kallað er skúlptúr." En í gamla daga varstu umboös- maóur Oxzmá? Brynhildur vill ekkert full- yröa um aö hún hafi veriö einhver rosalegur pönkari á sínum tíma. „Já. Ég var það þegar pönkið var í algleymingi en ég var nú aldrei al- vörupönkari. Ég hef alla vega aldrei viljað viðurkenna þetta pönkaratal um mig.“ Þú tilheyrir samt kynslóó fyrrum pönkara? „Ég lít ekki þannig á sjálfa mig en þetta er allt spuming um lífstíl. Ég er líka úr sveit og þó ég sé ekki gam- all hippi þá hlustaði bróðir minn á Bítlana.“ Það má því túlka það sem svo að Brynhildur sé einhvers staðar þama á milli. En hún er að öllum líkindum meiri pönkari ef eitthvað er enda til- heyrir hún að öllum líkindum þeirri kynslóð. Hvað sem því líður þá stendur sýning Brynhildar til 7. mars og um að gera fyrir alla styttufskúlptúr á faglegu málijunn- endur að skella sér í Listasafn ASÍ til að kíkja á góssið. -MT Spilar á tónleikum á Islandi frá Danmörku: n Nágrannarnir láta örugglega kála mér Heppnasti maður á íslandi - býr með 7 nektar- dansmeyjum Hljómsveitin Blondie: q Jafnvel rifrildin eru skemmti- leg AUKamao um , „ fslensku 13-20 tónlistarverðlaunin Meðal-MR- ingurinn er nörd: 100 spurninga nördapróf 22- Rosalega 07 brjálaður?" - Páll Einarsson hugsuður Fear and ^ loathing in Las Vegas 28 33 pick-up- línur - hvað gerir pabbi þinn? Hvað er að gerast? Fyrir börnin...................4 Veitingahús..................6-7 Popp...........................8 Myndlist......................22 Klassík.......................22 Sjónvarp...................23-26 Leikhús ......................27 Bíó........................26-29 Hverjir voru hvar.............30 Fókus fylgir DV á föstudögum Forsíðumyndina tók Teitur af Hafdísi Huld. 19. febrúar 1999 f ÓkUS 3

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.