Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.1999, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.1999, Blaðsíða 6
m a t u r AMIGOS ★★★ Tryggvagötu 8, s. 5111333. .Erfitt er aö spá fyrirfram f matreiösluna, sem er upp og ofan." Op/'ð í hádeginu virka daga 11.30-14.00, kvöldin mán.-fim. 17.30-22.30, fös.-sun. 17.30-23.30. Barinn er opinn til 1 á virkum dögum en til 3 um heigar. AUSTUR INDÍAFÉLAGIÐ ★★★★ Hverfis- götu 56, s. 552 1630. .Bezti matstaöur austrænnar matargerðar hér á landi." OpiD kl. 18-22 virka daga og til kl. 23 um helgar. ARGENTÍNA ★★ Barónsstíg lla, s. 551 9555. „Bæjarins besta steikhús hefur dalað." OpiD 18-23.30 v.d., 18-3 um helgar. ASÍA ★ Laugavegl 10, s. 562 6210. OpiD virka daga 11.30-22 en 12-23 um helgar. CAFÉ ÓPERA Lækjargötu 2, s. 522 9499. CARPE DIEM Rauöarárstíg 18, s. 552 4555. CARUSO Þingholtsstr. 1, s. 562 7335. „Þvert á íslenska veitingahefð hefur hin rustalega notalegi Caruso batnað með aldrinum." OpiD 11.30-14.00 og 18.00-23.00 virka daga. Föstudaga 11.30-14.00 og 18.00-24.00, laugard. 11.30-24.00 og sunnud. 18.00-24.00. CREOLE MEX ★★★★ Laugavegl 178, s. 553 4020. „Formúlan er líkleg til árangurs, tveir eigendur, annar í eldhúsi og hinn f sal.“ OpiD 11.30-14 og 18-22 á virkum dögum en 18-23 um heigat. EINAR BEN Veltusundi 1. 5115 090. OpiD 18-22. GRILLIÐ ★★★★ Hótel Sögu v/Hagatorg, s. 5252 9960. „Glæsilegur útsýnissalur milli- klassahótels með virðulegri og alúðlegri þjónustu, samfara einum allra dýrasta matseðli landsins." Opiö 12-14.30 og 19-22.30 virka daga, 12-14.30 og 18-22 föstu- og iaugardaga. HARD ROCK CAFÉ ★★ Kringlunni, s. 568 9888. HÓTEL HOLT ★★★★★ Bergstaðastrætl 37, s. 552 5700. „Listasafnið á Hótel Holti ber í matargerðarlist af öðrum veitingastofum lands- ins.“ OpiD 12-14.30 og 19-22.30 virka daga, 12-14.30 og 18-22 föstu- og laugardaga. HÓTEL ÓÐINSVÉ ★★ v/Óðlnstorg, s. 552 5224. „Stundum góður matur og stundum ekki, jafnvel í einni og sömu máltíð." OpiD 12-15 og 18-23 virka daga, 12-15 og 18-23.30 föstu- og iaugardaga. HUMARHUSIÐ ★★★★ Amtmannsstíg 1, s. 561 3303. „Löngum og hugmyndaríkum matseöli fylgir matreiðsla í hæsta gæöaflokki hér á landi" OpiD frá 12-14.30 og 18-23. IÐNÓ ★★★ Vonarstræti 3, s. 562 9700. „Matreiðsla, sem stundum fer sínar eigin slóðir, en nær sjaldan hæstu hæðum. Enginn réttur var að neinu leyti misheppnaður, en fáir minnis- stæðir." OpiD frá 12-14.30 og 18-23. ÍTALÍA ★★ Laugavegl 11, s. 552 4630. KINAHCiSIÐ ★★★★ Lækjargötu 8, s. 551 1014. „Kínahúsið er ein af helztu matarvinjum miðbæjarins." OpiD 11.30-14.00 og 17.30- 22.00 virka daga, 16-23 iaugardaga og 17-22 á sunnudögum. KÍNAMÚRINN ★★★ Laugavegl 126, s. 562 2258 LAUGA-ÁS ★★★★★ Laug- arásvegl 1, s. 553 1620. „Franskt bistró að íslenskum hætti sem dregur til sín hverfisbúa, sem nenna ekki að elda í kvöld, barnafjöl- skyldur utan úr bæ og ferðamenn utan af landi og frá út- löndum." OpiD 11-22 og 11-21 um heigar. LÆKJARBREKKA ★ Bankastrætl 2, s. 551 4430. MADONNA ★★★ Rauðarárstig 27-29, s. 893 4523 „Notaleg og næstum rómantísk veitinga- stofa með góðri þjónustu og frambærilegum Ital- íumat fyrir lægsta verð, sem þekkist hér á landi." OpiD virka daga 11.30-14.00 og 18.00- 23.00 og 17-23.30 um helgar. veitingahús Arnaldur Máni veltir enn fyrir sér hvort greina megi einhvern mun á Reykjavík og New York. Er fólkið að hugsa um það sama? Sér það veröldina með sömu augum? Nú tekur hann fyrir þá sem vinna í félagslegri þjónustu, eina reykvíska stúlku og aðra frá New York, og leggur fyrir þær sínar útspekúleruðu spurningar. Potturinn og pannan: Silfurverðlaun í verðlagi í listafríi Af hverju félagsleg þjón- usta? Einhver verður að sjá um heimaþjónustu fyrir aldr- aða. Kanntu ekkert annað? Júúú, auðvitað. Myndirðu vilja gera eitt- hvað annað? Ef ég myndi vilja vera að gera eitthvað annað í vinnunni, þá væri ég ekki þar. Kemur Guð þér og starfi þínu eitthvað við? Já, hann kemur öllum störfum við, það eru bara ekki allir sem þekkja „vinnuveitanda" sinn. Kemur pólitík þér og starfi þínu eitthvað við? Allur nið- urskurðurinn kemur auðvit- að niður á manni því við erum svo miklir peningaþræl- ar. Áttu þér fyrirmyndir? Ég fæddist inn í mína fjölskyldu og þar með er mamma min skipuð fyrirmynd mín, því miður, væru englar ekki mik- ið betri fyrirmyndir. Drekkurðu eða dóparðu of mikið? Neeheii! Hvað langar þig helst að gera með elskhuga þínum? Fyrst ætla ég nú að finna hann, síðan get ég fariö að láta mig dreyma. Áttu þér mottó? Mottóið mitt verður ekki fest í orð. Ein góð saga úr bransanum: Ég var einu sinni að ryksuga hjá svolítið skrýtnum manni sem fer aldrei út. Ég stóð þarna I svona indverskum buxum og bjóst þannig séð við hverju sem er. Og í þann mund sem ég beygði mig nið- ur til að kveikja á ryksugunni heyrist mér hann segja „voða- lega eru þetta tælandi buxur“. Æ, þú veist, en hann sagði bara „eru þær frá Tælandi þessar buxur?“ Einn af ódýrustu alvörustöðum borgarinnar býður eitt bezta og fers- kasta salatborðið, með fallegum og hæfilega þroskuðum sveppum, rauð- lauk og eggjum, blaðlauk, tvenns konar papriku og ýmsu öðru góðu hráefni, svo og margs konar brauði, en litlu af blönduðu gumsi. Þar voru líka ávextir handa þeim, sem ekki kæra sig um ís og niðursoðna ávexti með sykursósum í eftirrétt. Að kvöldi var reyktur og grafinn lax á borðinu. Alþýða og útlendingar hafa löng- um hallað sér að Pottinum og pönn- unni, sem næst gengur sögufrægum Lauga-ási að hófsemi í verðlagi. Sal- atborð með súpu og kafii kostar 890 krónur. Með aðalrétti að auki fer verðið í 1.600 krónur og má þá velja milli sjö rétta. í hádeginu voru heitir réttir inni- faldir í verði salatborðsins, flestir fremur vondir, einkum þurr fiskur og þurrt kjöt. Ætar voru kartöflur, saltkjöt og eggjakaka með skinku. Súpurnar voru frambæriiegar hveitisúpur, með miklu af blómkáli, spergli eða hverju því innihaldi, sem gaf súpunni nafn hverju sinni. Brauð var undantekningarlaust gott og smjörið í snyrtilegum kúlum, en ekki vafið í álpappír að hætti flugfé- laga. Hveiti og egg voru óspart notuð í sósur og mikið magn notað af klass- ískum sósum, svo sem hollandaise og bearnaise, sem skafa má af til að gera matinn lystugri. Algerlega staðl- að meðlæti, hvort sem snæddur var fiskur eða kjöt, var bökuð kartafla með smjörklípu og fjölbreytt græn- meti, hóflega pönnusteikt. Griliaður karfi var merkilega mjúk- ur, betri en víða annars staðar í bæn- um, borinn fram með möndlubland- aðri hveitisósu bragðsterkri. Rauð- spretta var einnig ágætlega elduð, með hvítlaukssósu. Fiskiþrenna með rauð- sprettu, skötusel og hörpudiski var nokkru lakari, svo sem venja er um slíkar þrennur. Tvær gerðir af sósu í miklu magni runnu hvor í bland við hina og spilltu réttinum. Alþýða og útlendingar hafa löngurn hallað sér að Pottinum og pönnunni, sem næst gengur sögufrægum Lauga-ási að hófsemi í verðlagi. Grillaður lambavöðvi var hæfilega eldaður, meyr en bragðlaus, svo sem títt er um íslenzkt lambakjöt. Gamal- kunn bearnaise-sósa og fallegir sveppir bættu réttinn. Hægt var að tína saman góðan eftirrétt úr melónu, graskeri og döðlum af salat- borði. Kaffi var frambærilegt. Innréttingar staðarins hafa verið óbreyttar frá ómunatíð, en eru ekki þreytulegar, því að viðhald er í lagi og snyrtimennska til sóma. Staður- inn er vel hannaður og notalegur, með salatborð sem þungamiðju. Gest- ir sitja sumpart á bekkjum í tiltölu- lega þægilegum básum og sumpart á góðum stólum úti á gólfl. Gegnheil viðarborð eru dúklaus, vatnsglös á fæti eru fin, en pappírsþurrkur rytju- legar. Þjónusta var öflug og ágæt, en dá- lítið kammó, þegar karlar á sextugs- aldri voru kallaðir „strákar" upp á amerísku. Og dósatónlistin var stundum hátt stillt. Jónas Kristjánsson Magdalena O’Doon hægt ef Clinton verður ekki bolað burt. Áttu þér fyrirmyndir? Þú hélst kannski að ég ætlaði að segja Móð- ir Teresa eða Lafði Díana en nei, það eru ýmsar konur að gera það gott sem listamenn, þær sem hafa öðlast viðurkenningu eiga hana skilið, en það eru enn margar eftir í skugga meðalmennskukarla sem eiga peninga. Drekkurðu eða dóparðu of mik- ið? Nei, nú er ég einmitt að „hugsa mitt ráð“. Hvað langar þig helst að gera með elskhuga þínum? Ná honum útúr hausnum á mér og hafa hann fyrir framan mig af holdi og blóði. Og ferðast þá öðruvísi en í huganum. Reykjavik Áttu þér mottó? Sjálfsmorð er bara heim- spekilegur möguleiki, því að þú gætir alltaf unnið í lottói á morgun. Ein góð saga úr bransanum: Það er einn róni sem kemur og fær stundum mat hjá okkur niðri við Thomkins Square Park. Hann er kallaður Kúreki. í fyrradag tók hann Oregano-stauk uppúr vasan- um og kryddaði spagettíið sem við vorum að gefa honum aðeins auka- lega. Þegar við fórum að hlæja að honum kallaði hann „damn you all lousy cooks“. Inga Björk Ingadóttir: VJi) íJjjJ 3'Jo rrjj.IfJj-r' _p BflfkásjzlþfíBhif Af hveiju félagsleg þjónusta? Það er heiðarleg og mannbætandi vinna að hjálpa þeim sem geta ekki hjálp- að sér sjálfir. Kanntu ekkert annað? Jú, ég tók mér bara frí frá „listalífinu" til að hugsa mitt ráð. Myndirðu vilja gera eitthvað annað? Æðisgengilegheitin geta beðið aðeins lengur eftir mér, ég veit að þau fara ekki neitt. Kemur Guð þér og starfi þínu eitthvað við? Nei, en fólk kemur mér við. Kemur pólítík þér og starfi þínu eitthvað við? Já, launin eru lág og við sem veitum þjónustuna erum undirmönnuð og hún því ófullnægj- andi. En þvi verður breytt hægt og IV. h I u t i 6 f Ó k U S 19. febrúar 1999

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.