Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.1999, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.1999, Blaðsíða 4
Islenska óper- an. Leikritiö með skemmti legu lögunum og fyndnu persón- u n u m , Ávaxtakarfan, veröur leikið og sungið kl. 14, örfá sæti laus. Þetta er vinsælt leikrit sem kenn- ir börnunum að einelti sé vont og að þau eigi að vera góð hvert við annað. Sími 551 1475. Hllmar O'f) vnrfnir níla fðfk' annáfi kvólil |>r.(t^i Uflnci vi-rk iljiiH.int á lím Inlkiiin j ringskyli. Þú ert bara aö fara aö konsertast um helgina: „Já. Ég mun sitja kyrr á sama stað en verð samt að spila á ís- landi,“ segir Hilmar Örn símleiðis í gegnum sæstreng frá kóngsin Köbenhávn en þar hefur Hilmar búið undanfarin ár. Tónleikarnir sem um ræðir verða haldnir í risastóru flugskýli og þar verðu hljómsveitin Grind- verk í stuði með hjálp Mark Bell (tæknisnillirinn hennar Bjarkar). Grindverk skipa þeir Hilmar Öm og Einar Öm en með þeim verður einnig Sigtryggur „Bogomill“ Sykurmolason trommari. Þetta er með framúrstefnulegri hljómsveit- um landsins og því gera þeir hið ómögulega annað kvöld. „Það sem ég geri er að ég tek ný lög og set þau í nýjan búning svo þau komi strákunum aðeins á óvart,“ segir Hilmar. „Svo sendi ég það til íslands á átta rása stafrænu bandi. Mark Bell tekur við þessu í gegnum mixerinn sinn og sér um að breyta þessu eitthvað. Sigtrygg- ur og Einar verða síðan að bregð- ast við þessu öllu saman. Ég ætla að koma þeim á óvart og á rás fimm og sex verður til dæmis alltaf eitthvað vírd sjitt í gangi. Þær verða svona vírd sjitt rásimar og ég mun líka senda dularfullar takt- breytingar til að láta Sigtrygg vera á nálum.“ Hafiði gert svona áöur? „Nei, í rauninni ekki. Þetta er akkúrat svona það dularfyllsta sem ég hef gert. En við Einar höfum að sjálfsögðu verið að fikta með eitt- hvað í likingu við þetta í gegnum árin. Þó ekki á þennan hátt og hvað þá á tónleikum. Það liggur við að ég laumi mér til íslands og verði þarna aftast í salnum í Ála- foss-úlpu bara til að sjá og heyra hvemig þeir fara með þetta á svið- inu.“ Nú hafiö þiö í Grindverki starfað saman í nokkur ár, ekki satt? „Jú. Samvinna okkar nær langt aftur og hún hefur verið mjög far- sæl.“ Er plata vœntanleg? „Já. Það er komin tólf tomma út í Bretlandi og stór plata væntanleg með vorinu eða þá fyrripart sum- ars.“ Hvaö á hún aö heita? „Við eram enn að rífast um það.“ Nú feröast danski leikstjórinn Lars Von Trier sjaldan eöa aldrei. Ertu aö verða jafn geöveikur og hann þarna úti? „Já. Ætli maður sé ekki búinn að umgangast hann of mikið og kominn með einhverja Lars Von Trier veiru. Farinn að halda tón- leika án þess að mæta á staðinn," segir Hilmar og hlær. Og þaö er nóg aö gera hjá þér í kvikmyndatónlistinni: „Jú, það er fínt. Ég er búinn að vera alveg á fullu undanfarið. Var að klára tvær myndir á sama tíma og það tekur soldið á.“ Hvaöa myndir? „Eina júgóslavneska stríðsmynd og aðra færeyska sem er algjört masterpís.“ Hvaö ertu búinn að vera útlœgur lengi? „Ég er búinn að búa hérna í fjög- ur og hálft ár og er kominn með al- veg nóg af Danmörku. Enda hef ég aldrei enst svona lengi í útlöndum. Hef yfirleitt komið vælandi heim aftur eftir nokkrar vikur og það er því kominn tími til að fikra sig heim.“ Hvenœr? „Bara með sumrinu." Er það góóœrið sem heillar? Hilmar hlær og svarar ekki spurningunni heldur segir: „Stemningin er bara miklu betri á íslandi núna. Meira um að vera í kvikmyndagerð en þegar ég fór. Svo er farið að líta öðrum augum á íslenska kvikmyndagerð.Það er hætt að líta á það sem þetta séu bara einhver fullorðin böm að leika sér. Tæknin hefur sömuleiðis tekið vissum breytingum og ég býst við aö ég geti haldið þeim verkum sem ég hef verið að gera fyrir útlendinga þó ég sé heima á íslandi." Þaö er sem sagt ekki gaman í Danmörku: „Nei. Lífið hérna, allavega í hverfinu mínu þar sem allir eru um fimmtugt, gengur út á garð- skála, hunda og að klippa limgerði. Og ég á ekki hund og kann ekki að snyrta limgerði. Minn garður er mikil skömm fyrir götuna og ég á rétt eins von á því að nágrannar mínir fái sér leynimorðingja og láti kála mér fljótlega. Það er því ekk- ert annað að gera en að koma sér heim sem fyrst,“ segir Hilmar og við taka tregar kveðjur. Hann biður að heilsa öllum á klakanum og sér ykkur með dularfullum hætti á tón- leikum annað kvöld. -MT /f Iðnó sýnir leikritiö Dimmalimm kl. 16 á sunnu- dag og tekur fram að sýningum fari fækkandi. Þess er því ekki langt aö bíða að þær hætti. Áhugasamir og aðrir barngóðir ættu því að tryggja sér miöa í síma 530 3030. Mögulelkhúslð sýnir Hafrúnu á sunnu- daginn kl. 17. Leik- ritið byggist á ís- lenskum þjóðsögum og er þetta því meö því þjóðlegra sem er í boði fyrir börnin þessa helgina. Sími 562 5060. Borgarlelkhúslð. Ævintýrið um Pétur Pan, drenginn sem neitaði aö fullorðnast, verður leikið á stóra sviðinu á morgun kl. 14 og eru örfá sæti laus og á sunnudag kl. 14 en þá er uþþselt. Þó dóm- ar hinna fullorðnu hafi verið misjafn- ir hafa börnin vægast sagt gam- an af þessum æv- intýraheimi og tæknibrellurnar eru frábærar. Sími 568 8000. Á stóra sviði Þjóðlelk- hússins verður skáld- saga Astridar Lind- gren leikin á sunnu- daginn kl. 14, nokkur sæti eru laus. Um er að ræða Bróður mlnn Ijónshjarta og er slm- inn 5511200. Möguleikhús- Ið. Snuðra og Tuðra verða I feiknastuði á sunnudag kl. 14. Síminn I miðasölu er 562 5060. Aðaltónleikar vetrarins eru annað kvöld. Gus gus hljómsveitin og fjölleikahúsið heldur heljarinnar partí í flugskýli og það má með sanni fullyrða að fólk hafi beðið eftir þessum konsert Þeir sem hita upp eru meðal annars hljómsveitin Grindverk. En það er með frumlegri böndum landsins. Fókus hringdi í Hilmar Örn til Danmerkur en hann verður bæði á tónleikunum og í Danmörku annað kvöld. Nágranna áta öru kála m fljótlega ÍTTIÆ& "i Á I «&» JL, Ö>. Ci I www.visir.is f Ó k U S 19. febrúar 1999

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.