Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.1999, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.1999, Blaðsíða 7
matur MIRABELLE ★★★ Smiðjustíg 6, s. 552 2333. „Gamal-frönsk matreiðsla alla leið yfir f profiteroles og créme brulée." Opið 18-22.30. PASTA BASTA ★★★ Klapparstíg 38, s. 561 3131. „Ljúfir hrísgrjónaréttir og óteljandi tilbrigði af góðum pöstum en lítt skólað og of uppáþrengj- andi þjónustufólk." Opiö 11.30-23 virka daga og 11.30-24 um helgar. Barinn er opinn til 1 virka daga og til 3 um helgar. PERLAN ★★★★ Öskjuhlíö, s. 562 0200. „Dýrasti og glæsilegasti veitingasalur landsins býðurvandaða, en gerilsneydda matreiðslu" Opiö 18.00-22.30 virka daga og til 23 um helgar. RAUÐARÁ Rauöarárstíg 37, s. 562 6766. Eftir að hafa gengið upp tröppur í ónefndu húsi í ónefndri götu kemst ég loksins upp á efstu hæð. Stiga- gangurinn er annars eins og eitthvað úr Pulp Fiction. Enda er þetta allt svolítið þannig. Ég er að fara til ná- unga sem býr með sex erótískum dönsurum og hika þess vegna ekki við að hringja. Julietta opnar hurðina, brosir og hleypir mér inn. Ég kynni mig háif asnalega og veit ekki alveg hvernig ég á að haga mér. Á báða vegu eru herbergi og sýnist mér vera þrjú rúm í hverju. Hvít rúmföt og hlýjar dúnsængur ásamt alls konar kven- legu dóti. Taska uppi í rúmi en ann- ars er allt mjög snyrtilegt. íbúðin er samt gömul en það er þó varla ryk- korn að sjá. Golli, Ingólfur Jensson, fram- kvæmdastjóri Club Clinton, birtist í eldhúsgættinni og heilsar. Eitthvað af stelpum stendur inni í eldhúsinu og eru eitthvað að fást við mat, eins og sagt er. Golli rekur mig inn í stofu og við hlömmum okkur í sófann. Ein af stelpunum kemur á sömu stundu með kaffi handa okkur og ekki um neitt annað að ræða en hella sér út í pínupons viðtal við heppnasta mann íslands. Hvernig kom það til að þú fórst að búa með sex dönsurum? „Þær eru héma til að dansa hjá okkur og það var mjög erfitt að frnna viðunandi húsnæði fyrir þær í Reykjavik og við vildum líka að þær hefðu góða aðstöðu héma miðsvæðis. Eva og Angel glugga í fagtímarit. Sofie er í bakgrunni. Þess vegna fluttu þær bara inn til min en það er nú tímabundið því ég er að leiðinni í nýtt húsnæði sjálfúr.“ Og ertu vanur að búa meö kven- fólki? „Já, já,“ segir Golli og maður sér á honum að hann er líka þannig týpa. „Ég á þrjár systur og er því öllu van- ur. Svo bjó ég líka með yngstu systur minni í þrjú ár og sú sambúð gekk mjög vel.“ Aldrei borðað súpu Þá kemur ein stúikan aiit í einu með disk handa honum Golla sínum. Á diskinum er eggjakaka og steiktar kartöflur. Golli brosir og þakkar fyr- ir sig og ég sé eitthvað á milli þeirra. Ó, nei, það er langt frá því að vera það sem þeir fávísu myndu halda. Þetta er bara væntumþykja eða það sem að öllu jöfnu er kallað vinnátta. Þessi fyrrum sendibíl- stjóri er ömgglega sið- asti maðurinn sem myndi gera nokkuð á hlut þessara stúlkna og það er kannski ástæðan fyrir því að þær dekra við hann. „Rússnesk ommel- etta,“ útskýrir Golli og hlær lítillega. „Það er dekrað við mann héma.“ Þú ert sem sagt enginn þrœll hérna? „Nei, ég fæ ekki að gera neitt fyrir þær. Það er rétt að ég fæ að fara út með ruslið. Allt annað sjá þær um.“ Og hvernig smakkast eggin? „Mjög góð. Þær eru alveg ótrúleg- ar í eldamennskunni og geta galdrað hvað sem er úr nánast engu. Þvílík nýtni í þessum stelpum. Það mættu margar íslenskar konur læra hag- sýni af þesum konum því þær kunna sko að elda. Ég hef til dæmis aldrei borðað súpu en eftir að ég smakkaði súpumar sem þær búa til borða ég súpu á hverjum degi.“ Það hefur sem sagt einhverjar breytingar í för meö sér að búa með sex konum? „Já. Og útlitið á snúrunum héma hefur svo sannarlega breyst," segir GoUi í sama umhyggjutóninum sem einkennir þennan mann sem á þrjár systur og er í augnablikinu dekraður af sex konum. Nágrannarnir hafa ekkert kvart- að? „Nei. Það hefur ekkert heyrst í þeim. Enda em þær mjög tiUitssam- ar, stelpumar." En nú hefur oft veriö kvartað yfir gamla Duus-húsi í Fishersundi, geng- ur sambúðin við nágrannana jafn vel þar? „Já. Hún gengur mjög vel núna, enda era nágrannarnir að átta sig á því að við erum í raun góðir og til- litssamir nágrannar." Vindlar og Clinton „Þetta era alþýðustúlkur úr borg- um,“ segir GoUi um stúlkurnar sem hann býr með og bætir því við að þær séu frá Litháen og Ungverja- landi. „Þær eru mjög skemmtUegar og fyndnar, þessar stelpur. Hér er mikið flflast og hlegið." En hvernig ganga tjáskiptin? „Ágætlega. Við tölum saman á ensku. Þær era að vísu misjafnar í enskunni en hinar þýða þá bara fyr- ir þær sem era með minnstu kunn- áttuna." Og hvernig kunna þœr við sig hér á landi? „Þær kunna mjög vel við ísland og Islendinga. Nema kannski að þeim finnst landið helst tU of dýrt en það finnst manni sjálfum líka,“ segir GoUi og hlær. Stelpumar era núna farnar að dreifa sér um íbúðina. Einhverjar þurfa að snyrta sig inni á baði, aðrar hlamma sér inn í herbergin sín tU að lesa og einhverjar setjast inn í stofu tU okkar. Þær kinka koUi þegar ég spyr þær hvort þeim líki við ísland og svo bera þær GoUa vel söguna. Segja að hann sé alveg einstakur og mjög heiðarlegur maður. Við GoUi vindum okkur þá yfir í að ræða um nafnið á bamum og hvort hann sé ánægður með sýknunina hans Clint- ons. GoUi segist að sjálfsögðu vera í skýjunum yfir henni. En er það satt að þið séuð með ein- hverja mjög sérstaka vindla á boðstólum? „Já, á Monicu-barnum og eins Stulkurnar fara vandlega yfir atvinnutækin og athuga hvort þau hafi skaðast eitthvað kvöldiö áður. Ingólfur Jensson, framkvæmdastjóri Club Clinton í Fishersundi, er að öllu jöfnu kallaður Golli. Þetta er góðlegur náungi og rétt skriðinn yfir þrítugt eins og sést á myndunum. Einíiverjhv^’ myndu segja að hann væri heppn^s-tf maður á íslandi þar sem haprfrekur erótískan klúbb sen^ér fullur af fáklæddu kvenfólki o^ékki nóg með það heldur bý.rhann hjá þessu sama'faklædda kvenfólki. REX ★★★★ Austurstræti 9, s. 511 9111. „Rex kom mér á óvart með góðri, fjölbreyttri og oftast vandaðri matreíðslu, með áherzlu á ein- föld og falleg salöt, misjafnt eldaöar pöstur og hæfilega eldaða fiskrétti." Opiö 11.30-22.30. SHANGHÆ ★ Laugavegi 28b, s. 551 6513. Opiö virka daga 11.30-22 en 12-23 um helgar. Julietta og Sofie að fíflast inni á baðherbergi. stendur til í sumar að vera með kokkteilboð í tilefni af komu Hillary til landsins. Já, já. Við ætlum okkur að halda viðhafnarveislu." Og við gæfum öll mikið fyrir að sjá Hillary mæta í þá veisluna og hvað þá ef Clinton kæmi með henni. En eins og allir vita þá eru erótískir staðir jafnvinsælir hjá báðum kynj- unum. Svo er aldrei að vita nema- Hillary vilji fá sér vindil á Monicu- barnum. En ég stend upp og kveð Golla. Stelpumar eru að fiflast eitt- hvað í sófanum og ræða sín mál. Það er líf í þessu húsi og hann Golli kast- ast með diskinn sinn inn í eldhús og ég skil heppnasta mann íslands eftir með sínum ástvinum. -MT mBBm Golli ásamt stelpunum í eldhúsinu. Hann segir þær vera ótrúlega nýtnar og að sömuleiðis hafi þær fengið hann til að taka upp á því að borða súpur. VIÐ TJÖRNINA ★★★★ Templarasundl 3, s. 5518666. „Tjörnin gerir oftast vel, en ekki alltaf og mistekst raunar stundum." Opiö 12-23. ÞRlR FRAKKAR ★★★★★ Baldursgötu 14, s. 552 3939. „Þetta er einn af hornsteinum ís- lenskrar matargerðarlistar og fiskhús landsins númer eitt." Opiö 12-14.30 og 18-20 virka daga og 18-22 um helgar en til 23 föstu- og laugardag. SKÓLABRÚ ★★ Skólabrú 1, s. 562 4455. „Matreiðslan er fögur og fín, vönduð og létt, en dálítið frosin." Opiö frá kl. 18 alla daga. TILVERAN ★★★★★ Llnnetsstíg 1, s. 565 5250. „Það eru einmitt svona staðir, sem við þurfum fleiri af til að fá almenning til að lyfta smekk sínum af skyndibitaplani yfir á fyrstu þrep almennilegs mataræðis." Opiö 12-22 sunnudag til fimmtudags og 12-23 föstudag og laugardag. Imeira á. j www.visir.is 19. febrúar 1999 f Ókus 7

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.