Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.1999, Blaðsíða 19
veigrar sér ekki við að svara
spumingum um lífið og alheiminn.
ros<
„Bókin kom út á Þorláks-
messu,“ segir Páll Einarsson um
Engil afkimans og bætir því við
að Englinum sé ætlað að hafa
gildi allt árið um kring en ekki
bara á jólunum eins og oft vill
verða með íslenskar bækur.
Og hvernig bók er þetta?
„Þessi bók er samansafn efnis
sem ég byrjaði að safna fyrir níu
árum. Þetta efni var fyrst sett
fram í ljósritum sem ég gaf fólki
sem var að glíma á einhvern hátt
við vímuefhavandann. Ljósritin
voru síðan bara orðin svo mörg
og eftirspumin það mikil að ég
þurfti að selja þau til að hafa upp
í kostnað. Þess vegna sló ég bara
til og ákvað að gefa út bók um
þetta efni.“
En hvað kom til aö þú safnaöir
þessum upplýsingum saman?
„Já. Kveikjan að þessu öllu
saman er íslendingaspjall Hall-
dórs Laxness sem kom út 1969,“
svarar Páll og vitnar beint í sjálf-
an kónginn: „íslendingar þjást af
sjúkdómi [alkóhólisma] sem er
verri en hungursneyð," segir Páll
og bætir því við að það sé þessi
setning sem bókin byggist utan
um.
Alkar öfugir sjúklingar
Páli er mikið niðri fyrir og aug-
ljóst að hann hefur hreint út sagt
ótrúlegt minni. íbúðin hans er
hlaðin bókum og alls kyns mynd-
ir, nánast óskiljanlegar, hanga
uppi um alla veggi. Sjálfur er Páll
eins og postuli, stendur með prik
og útskýrir allt skilmerkilega og
hefur þann kost að einfalda hlut-
ina þannig að leikmaður geti full-
komlega skilið það sem hann á
við.
„Vandamálið við alkóhólis-
mann,“ útskýrir Páll, „er að hann
er öfugur sjúkdómur sem var ekki
hægt að rannsaka eða leysa fyrr
en búið var að fínna sjálfa lækn-
inguna."
En hversu mikið plagar þessi
sjúkdómur okkur íslendinga?
„Sem dæmi þá var talið þegar
AA kom fyrst fram á sjónarsviðið,
una
Páll Einarsson er
fyrrum flugmaður
og núverandi
hugsuður með
meiru. Hann var
að gefa út bók,
Engil afkimans,
sem fjaliar um
alkóhólisma,
meðferð,
AA-samtökin
og auðvitað
mannsheilann.
Auk alls þessa
er Páll annað
hvort geðveikur
eða snillingur
sem leyst hefur
lífsgátuna
- nema hvort
tveggja sé
- en það er
nokkuð sem hver
og einn verður
að gera upp
við sig.
ýlaður
sanna
allt
verið þannig að eðlisfræðingar og
þessir miklu hugsuðir hafa getað
séð fyrir hver næsta uppgötvun
yrði án þess að geta sannað hana
sem slíka. Dimitry
Mendelyev, sá sem fann upp
lotukerfið, fann til dæmis
ekki öll efnin í kerfið en gat
séð fyrir hvar hann ætti að
koma þeim fyrir og hvaða eigin-
leika þau hefðu áður en hann gat
sannað hver þau yrðu. En við vit-
um öll að lotukerfið er ennþá
kennt í skólum og nýtist efnafræð-
ingum um allan heim.
1935, að um fimm prósent væru
ánetjuð vímuefnum en nú er þessi
tala komin upp í 25%. Sjúkdómur-
inn hefur fimmfaldast og skiptist
þannig að 15% eru alkar, 5% háð-
ir ólöglegum götulyfjum og önnur
5% tengjast misnotkun á lækna-
lyfjum. Þessi sjúkdómur er aug-
ljóslega bráðsmitandi og andleg
smit rosaleg. Þegar ég segi andleg
smit á ég við þá aðstandendur
sem sjúkdómurinn bitnar á. En
það hefur viss margföldunaráhrif
inn í samfélagið og við verðum að
fara að gera okkur grein fyrir því,
áður en það verður of seint, að við
erum að tapa stríðinu við fíkn-
ina.“
Frá þessum pælingum rýkur
Páll yfir í að útskýra tilraunir
sem gerðar hafa verið á rottum og
öpum. En þeim hefur verið gefið
brennivín og dóp til að athuga
hvort dýrin myndu sækjast í það
aftur. Aðeins viss hluti dýranna
sótti í vímuna á ný en hinir vildu
ekki sjá það. Það gæti merkt að
hluti manna sé móttækilegir fyrir
sjúkdóminum og ánetjist strax á
fyrsta sopa. En í samfélagi eins og
okkar eru bara aðrar aðstæður
fyrir hendi og því myndast marg-
földunaráhrif sem við getum ekki
séð fyrir endann á. Þetta gæti þess
vegna endað þannig, ef segjum
okkur að baráttan sé töpuð, að eft-
ir einhver ár verði annar hver
maður alkóhólisti. Eða það er
kenningin, sem sannast kannski
sé litið til þess að sjúkdómstilfell-
in hafa fimmfaldast á sextíu og
fimm árum, sem haldið hefur ver-
ið fram á undangengnum árum.
Kenningin um allt
Svo hefur heyrst sú saga aö þú
sért að vinna aö annarri bók?
„Já. Ég er að skrifa kenninguna
um allt. Það hefur verið áhugamál
í þó nokkur ár,“ segir Páll.
En fyrir þá sem ekki vita þá er
kenningin um allt viðurkennd
sem möguleiki af öllum vísanda-
mönnum. Hér á íslandi er hún
rædd nánast sem staðreynd uppi í
háskóla. En það hefúr yfirleitt
Mengin komu að notum
Nú hefur kenningin um allt ver-
iö eitthvaö sem enginn hefur leyst
hvernig reikna skuli út. Hvernig
ferö þú aö því?
„Það sem ég fann út er að það
verður að nota mengi til að reikna
þetta út,“ segir Páll og glottir.
Við þekkjum öll mengi og höf-
um hlustað á merkustu menn
segja okkur að það sé lítið gagn í
að læra þau. En þá bendir Páll á
að tölvan byggi á reikningsaðferð
sem var talin úrelt og ónothæf
með öllu.
„Stærðfræðin nær ekki út fyrir
allt. Hún er takmörkuð án
mengja. Hún getur alls ekki, ein
og sér, reiknað út Miklahvell, svo
dæmi séu tekin. Hvað þá að hún
geti reiknað út kenninguna um
allt.“
Ertu þá aö segja aö án mengja
séu útreikningar stœröfrœöinga
bara óendanlegar jöfnur?
„Já. Og það albilaðasta við alla
þessa stærðfræðinga sem ætla að
reikna út Miklahvell er að jafnan
inniheldur ekki áhorfandann. En
sá reikningur sem ég nota gerir
ráð fyrir áhorfanda og mengið
inniheldur hann. Einstein sagði
einmitt að það yrði að vera fegurð
í jöfnunni því annars myndi hún
ekki standast."
Geturöu tekiö dœmi um hvernig
þetta virkar?
„ Já, en þetta er kannski of flók-
ið til að útskýra í lítilli blaða-
grein. En svo ég útskýri alla vega
hverju mengin valda þá er sannað
að heilahvelin skiptast í stærð-
fræðilegu hliðina og þá sem vinn-
ur úr myndum og öðru slíku. En
með þvi að nota mengi nærðu að
sameina bæði heilahvelin þvi það
er ekki hægt að horfa á raunveru-
leikann með öðru heilahvelinu.
Það er vænlegra til árangurs að
nota allt heilahvelið."
Þú áttar þig á aö þetta hljómar
allt svolítiö geöveikt?
„Já. Annað hvort er ég rosalega
brjálaður eða að ég er búinn að
sanna kenninguna um allt,“ segir
Páll og augljóst að honum stendur
á sama um hvort fólk heldur.
-MT
1 g i k h ú s
I hádeginu í dag sýnir eöa sýndi (eftir því hvenær
þú lest Fókus) Iðnó leikritiö Leltum aö ungrl
stúlku klukkan tólf. Þaö verður framhald á sýn-
ingum á þessu verðlaunaleikriti eftir Kristján
Þórö Hrafnsson. Síminn er 530 3030 fyrir þá
sem vilja panta miða.
Skemmtihúslö, Laufásvegi 22. Bertold Bercht
- elnþáttungar um 3. ríklð, veröur leikið annað
kvöld og þriðjudagskvöld kl. 20. Miöapantanir
eru ! Iðnó í síma 530 3030.
Loftkastallnn sýnir leikritiö Mýs og menn kl.
20.30 á sunnudaginn. Ekkert vit er í ööru en að
fara og sjá Hilmi Snæ leika á móti Jóhanni Sig-
urðarsyni. Pottþétt saga eftir Steinbeck og um
að gera að kíkja á Lenny og George. Simi 552
3000.
íslenska óperan.
Hommaleikritið Hlnn
fullkomnl jafnlngi er
eitthvað sem enginn
ætti að láta fram hjá
sér fara. Alíslenskt leik-
rit um menningarafkima
sem flestir þekkja ekki
vel. Örugglega fróðlegt
og næsta sýning er einmitt á sunnudagskvöld
kl. 20, örfá sæti laus. Slmi 5511475.
Borgarleikhúslð. Horft frá brúnnl leikið á stóra
sviðinu kl. 20 í kvöld, örfá sæti laus. Pottþéttur
Arthur Miller-tryllir. Hann klikkar alveg örugglega
ekki og ekki fræðilegur möguleiki að kvöldstund
með Miller verði eyðilögð. Sími 568 8000.
Þjóöleikhúslð. Á stóra sviði kl. 20 er Brúðu-
helmlli Ibsens i fuliu fjöri á sunnudagskvöld. 19.
aldar orgía í orðum og leik. Það eru víst nokkur
sæti laus fyrir þá sem hringja í síma 5511200.
Borgarleikhúslð. Búa
saga veröur leikin á
litla sviðinu í kvöld kl.
20. íslenskt verð-
launaleikrit sem fær
ansi misjafna dóma.
Þeir sem ekki hafa
hælt því hafa hreint út
sagt ælt yfir það. Sími
568 8000.
Abel Snorko býr einn á litla sviði Þjóðlelkhúss-
Ins kl. 20 í kvöld og á fimmtudagskvöldið. En
hann er víst ekki alveg einn þvi það er uppselt á
báðar þessar sýningar. Sími 551 1200.
Borgarlelkhúslð. islenski dansflokkurinn ham-
ast á stóra sviðinu og dansar Vlvlng eftir Rui
Horta, Flat Space Moving eftir Rui Horta og
Kæra Lóló eftir Hlíf Svavarsdóttur. 3. sýningin er
á sunnudagskvöldið og fólk er eindregið hvatt til
að gera eitthvað nýtt. Sætir og stæltir kroppar í
góðri lýsingu klikka alveg örugglega ekki. Sími
568 8000.
ÞJóðlelkhúsið. Á stóra sviðinu eru Örn Árna og
Hilmir Snær Tvelr tvöfaldir alla helgina en það
er alveg hræðilega uppselt. Eini möguleikinn til
að fá miða á næstunni er að hringja í síma 551
1200 og panta sér miða á sýningu sem verður
á fimmtudagskvöld.
TJarnarbíó. Svartklædda konan verðu leikin i
kvöld og annað kvöld kl. 21. Viðar Eggerts er
kominn í staðinn fyrir Arnar Jónsson og því um
aö gera fyrir þá sem sáu sýninguna fyrir áramót
að fara og sjá hana aftur. Sími 561 0280.
KafflLeikhúslð. Hótel Hekla verður leikin og
sprelluð í kvöld og annað kvöld, laus sæti. Sími
551 9055.
Á Smíðaverkstæðl
ÞJóðlelkhússlns kl.
20.30 verður Maður í
mlslltum sokkum upp-
seldur alla helgina.
Þetta er spútnikleikrit
ársins og sérstaklega
fyrir þá eldri og vitrari.
Sími 551 1200 fyrir
þá sem vilja tryggja
sér miða einhvern tíma
Bing Dao-Rennlverkstæðlð, Akureyri. Rommí
verður leikið í kvöld og á fimmtudagskvöld. Sími
461 3690.
Lelkfélag Menntaskólans við Hamrahlíð sýnir
Náttúruóperuna kl. 20 ! köld, annað kvöld og á
sunnudagskvöldið. Stmi 5811861.
íslenska óperan. Verzló með setu leikur og
syngur Dlrty Dancing í kvöld og það er uppselt.
S!mi 551 1475.
Mögulelkhúsið v/Hiemm. Leikfélag eldri borg-
ara frumsýnir annað kvöld. 1 forrétt eru Maðkar
í mysunnl eftir Mark Langham en í aðalrétt og
ábæti nýtt íslenskt verk, Ábrystir meö kanel eft-
ir Sigrúnu Valbergsdóttur.
Iðnó sýnir leikritið ÞJónn í súpunni í kvöld en því
miöur er uppselt. Sími 530 3030.
íslenska óperan. Hell-
isbúlnn er að sjálf-
sögðu uppseldur og
ekki láta ykkur dreyma
um að fá miða á
næstunni. En fyrir þá
sem plana lífið sitt
langt fram í tlmann er
síminn 5511475.
Borgarlelkhúsið. Uppselt á Sex I svelt á stóra í
kvöld. Sími 568 8000.
Iðnó sýnir leikritiö Rommí annaö kvöld og
sunnudagskvöld kl. 21, örfá sæti laus. S!mi
530-3030.
meira á-1
www.visir.is
19. febrúar 1999 f Ókus
27