Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.1999, Page 20
Meet Joe Black ★★
Áferöarfalleg og stundum
áhugaverð en frekar til-
gerðarleg kvikmynd um
viðskipti Dauðans við við-
skiptajöfur sem óskar sér
lengra lífs. Ein banda-
rískra kvikmynda sem
settar eru á markaðinn
um þessar mundir og eru alltof langar og það
fyrst og fremst gerir það að verkum að hún
virkarekki. -HK
f Ó k U S 19. febrúar 1999
Bíóhöllin / Saga-bíó
You've Got Mall ★★ Það fer að halla fljótt
undan fæti I þessari skritnu samsuðu og
þegar upp er staðið er myndin aðeins miðl-
ungsrómantísk gamanmynd. Á móti leiöinda-
sögu kemur þáttur Toms Hanks og Meg Ryan
sem, eins og við mátti búast, koma myndinni
upp á hærra plan með því að vera eitthvert
mest sjarmerandi leikarapar í Hollywood.
-HK
Ronln ★★★ Það er margt
sem gerir Ronin að góðri
afþreyingu. Til að mynda
eru í myndinni einhver
flottustu bílaeltingaratriði
sem lengi hafa sést og
liggur við að um mann fari
við að horfa á öll ósköpin.
Þá er leikarahópurinn
sterkur, með Robert DeNiro í hörkuformi, og
loks ber að geta þess að þrátt fyrir ýmsa van-
kanta í handriti gengur þessi flókna atburða-
rás að mestu leyti upp og dettur ekki niður í
lokin eins og oft vill verða. -HK
Enemy of the State ★★★ Virkilega vel gerð
spennumynd þar sem persónur veröa nánast
aukanúmer við hliðina á njósnatækni nútlm-
ans. Það er gífurlegur hraði í myndinni sem
gefur henni vissan trúverðugleika þegar
njósnatæknin er höfð í huga og þessi hraði
gerir það líka aö verkum að minna áberandi
verður tilviljanakennt handritið þar sem sam-
tölin bera oft þess merki að til að „plottið"
gangi upp verði að fara ýmsar vafasamar
leiðir. -HK
Star Kld ★★ Vonda skrimslið I Star Kid er
eins konar klóni úr Predator og einhverju
kunnuglegu úr eldri geimmyndum. Einhvern
veginn varð boðskapurinn sögunni ofviða og
þegar 1001. heilræðið sveif yfir skjáinn fór
ég að geispa. Ef það er eitthvað sem drepur
barnamyndir þá er það ofhlæöi áróðurs sem
gengur yfirleitt út á einhvern borgaralegan
heilagleika, samfara hefðbundnum kynhlut-
verkaskiptingum. -úd
Mulan irkirk Mulan er uppfull af skemmti-
legum hugmyndum og flottum senum, hand-
ritið vel skrifað og sagan ánægjulega laus við
þá yfirdrifnu væmni sem oft einkennir Disney.
Mikil natni er lögð I smáatriði eins og er við
hæfi I teiknimyndum og aukakarakterar, eins
og drekinn og litla (lukku)engisprettan, eru
svo skemmtileg að þau hefðu ein og sér ver-
ið efni I heila mynd. -úd
Háskólabíó
Pleasantvllle ★★★ Plea-
santville er ein af þessum I
myndum sem ætla sur af- ™
skaplega mikið en falla dálít N
ið á eigin bragði. Fyrri hlut- p
inn lofaði of góðu sem !TTB
seinni hlutinn uppfyllti ekki. ||
Þaö var einhvern veginn eins íMhUQhÍ
og þetta þyrfti allt að vera |
svo ánægjulegt og mætti ekki fara yfir eitt-
hvert ósýnilegt strik. -úd
Elizabeth -kick Shekhar Kapur vefur frá-
sögnina í expressjónísk klæði, skuggarnir
eru langir, salirnir bergmála og andi launráða
svífur yfir. Guðsblessunarlega heldur hann
sig langt frá hinni hefðbundnu nálgun
breskra búningamynda og skapar safarikt bíó
sem er þegar upp er staðið hin ágætasta
skemmtan. -ÁS
Festen -kkirk í kvikmynd Thomasar Vinter-
bergs, Festen, er það fýrst og fremst mögn-
uð saga sem gerir myndina að áhrifamikilli
upplifun en auðvitað verður heldur ekki kom-
ist hjá því að njóta þess einfaldleika sem hún
býður upp á með notkun hinnar dönsku
dogma-aðferðar. Þetta er kvikmynd sem læt-
ur engan ósnortinn. -HK
Egypskl prlnslnn kirki The Prince of Egypt
er tækniundur og sannkallað augnakonfekt.
Ef hægt er að tala um epíska teiknimynd þá
er þetta slík mynd. Með The Prince of Egypt
má segja að teiknimyndir sem gerðar eru
sem fjölskylduskemmtun taki breytingum.
Bandaríkin 1971, eitt versta ár í
sögu Bandaríkjanna. Þetta var
árið sem Nixon var enn í Hvíta
húsinu og Bandaríkin á fullu sem
þátttakendur í Víetnamstríðinu,
The Beatles voru nýhættir i árs-
byrjun og árið endaði með því að
Time Magazine valdi Richard Mil-
house Nixon, forseta Bandaríkj-
anna, mann ársins. Þetta var árið
þegar Gimme Sheltar var frum-
sýnd en hún fjallaði um konsert
sem Rolling Stones héldu rétt fyr-
ir utan San Francisco þar sem
svartur maður var drepinn af
Englum helvítis meðan þeir sungu
Sympathy for the Devils og á einu
ári (eða um það bil) létust af völd-
um eiturlyfja Jimi Hendrix, Jan-
is Joplin og Jim Morrison, öll 27
ára gömul. Sem sagt ameríski
draumurinn var að verða að
martröð. Þetta var einnig árið sem
Himter S. Thompson sendi frá
sér sjálfsæviskáldsögu sína, Fear
and Loathing in Las Vegas, þar
sem hann riQar upp villta ferð til
Las Vegas ásamt vini sínum.
Hvað rétt er og hvað tilbúning-
ur í hinni frægu skáldsögu
Hunters S. Thompsons, sem nú
hefur verið kvikmynduð af Terry
GiUiam, veit örugglega enginn
því höfundurinn veit það varla
sjálfur. Sjálfsævisagan, sem sögð
er í skáldsöguformi, hafði mikil
áhrif á sínum tíma og eignaðist
Thompson marga aðdáendur út á
hana. Aðalpersónurnar í mynd-
inni eru tvær, Raoul Duke
(Thompson) og Dr. Gonzo, félagi
hans í ólifnaðinum, en sú persóna
er byggð á Oscar Zeta Acosta,
lögfræðingi og áberandi persónu á
þeim árum sem myndin gerist og
er fylgst með þeim félögum á LSD
trippi í Las Vegas þar sem þeir
hættu mjög fljótlega að gera grein-
armun á hvað var veruleiki og
hvað ekki.
Greip tækifærið
Hinn kunni leikstjóri Terry Gilli-
am (Brazil.The Fisher King, 12
Monkeys) var ekki sá leikstjóri
sem framleiðendur myndarinnar
höfðu í huga. Þegar hver á eftir
öðrum hafði gefið verkið frá sér
var það nokkrum dögum fyrir
tökur að leitað var til Terry Gilli-
am, sem greip tækifærið fegins
hendi, enda segist hann lengi hafa
verið með hugann við þessa bók
og fékk i hendumar handrit að
Persónur og
Seikendur
Johnny Depp (blaöamaður sem telur sér trú
um að hann sé að skrifa reynslusögu sína).
Benlclo Del Toro (lögfræðingur sem komin
er langt út fyrir starfssvið sitt).
Ellen Barkin (þjónustustúlka á North Star
Café).
Gary Busey (lögreglumaður sem stöðvar fé-
lagana tvo).
Cameron Diaz (Ijóshærð sjóvarpsfrétta-
kona).
Flea (popptónlistarmaður í Matrix Club).
Mark Harmon (blaðamaður sem hittir þá fé-
laga í Mint 400).
Katherine Helmont (afgreiðslukona I Mint
Hotel).
Lyle Lovett (popptónlistarmaður í Matrix
Club).
Tobey Maguire (á puttanum).
Chrlstlne Riccl (Lucy).
Harry Dean Stanton (dómari).
bókinni fyrir tíu árum en var þá
upptekinn við annað. Sú áætlun
um kvikmyndum bókarinna fór
út um þúfur. Þótt tíminn væri
naumur hellti Gilliam sér út í
verkið og segir hann að það hafi
ekki verið verra að vera með
Johnny Depp í aðalhlutverkinu,
hann hafi tekið hlutverk sitt al-
varlega og verið gott að vinna
með honum.
Terry Gilliam er bandarískur en
Johnny Depp
Johnny Depp ætlaði sér að verða ríkur rokkari
en varð ríkur leikari. Hann gekk fimmtán ára
gamall í hljósmsveitina Rame og vann sér inn
25 dollara á kvöldi í hinum ýmsu klúbbum á
Florida. Þar sem allir meðlimir hljómsveitarinnar
voru mjög ungir breyttu þeir um nafn og kölluðu
sig Kids og náðu að verða upphitunarsveit fýrir
Iggy Pop áöur en hún lagði upp laupana. f dag
segir Depp: „Ég er gamaldags náungi sem blð
eftir þvl að verða gamall maður með Istru, sitj-
andi á bryggjusporði með veiðistöng I hendi."
Fæðlngardagur og ár: 9. júni, 1963.
Fæðlngarstaður: Owensboro, Kentucky.
Stjörnumerki: Sól I tviburum, tungl I steingeit.
Foreldrar: John, vélvirki og Betty Sue, gengil-
beina.
Systklnl: D.P., rithöfundur.
Elglnkona: Lori Anne, sminka
(skilin).
Kærustur: Sherilynn Fenn leikkona, Jennifer
Gray leikkona, Kate Moss fýrirsæta, Vanessa
Paradis leikkona/söngkona.
Kvlkmyndlr: A Nightmare on Elm Street, Pri-
vate Resort, Platoon, Cry-Baby, Edward Sciss-
orhands, What's Eating Gilbert Grape?, Ed
Wood, Nick of Time, Don Juan DeMarco, Dead
Man, Donnie Brasco, Fear and Loathing In Las
Vegas.
Hvað gerir uppfinningamaður
sem hefur
fengið 20 milljón
dollara í arf?
Stjörnubíó byrjar í dag að sýna
gamanmyndina Stjórnarformann-
inn (Chairman of the Board). Um er
að ræða farsa þar sem aðalpersónan
er rauðhærði sérvitringurinn Edi-
son (Carrot Top) sem dreymir um
að verða uppfmningamaður. Dag
einn þegar Edison er á leið niður á
strönd hittir hann fyrir verksmiðju-
eigandann Armand McMillan sem á
í erfileikum með bílinn sinn. Edi-
son er ekki lengi að koma bílnum í
gang og á meðan hann er að því
komast þeir að því að þeir eiga sam-
eiginlegt áhugamál, brimbretti. Vin-
átta tekst með þeim sem skilar sér
til Edison þegar Armand gefur upp
öndina og arfleiðir Edison að verk-
smiðju sinni sem er 20 milljón doll-
ara virði. Þar með er Edison orðinn
að stjórnarformanni í fyrirtæki.
Aðrir höfðu gert sér vonir um arf-
inn og það er skiljanlegt að ekki
ríki mikil ánægja í herbúðum
þeirra. í fyrstu lítur út fyrir að Edi-
son sé algjör aulabárður en sá rauð-
hærði leynir á sér.
Sá sem leikur aðalhlutverkið,
Carrot Top, er þekktur skemmti-
kraftur í Kanada og Bandaríkjunum
en hann hefur um nokkurt skeið
stjómað eigin sjónvarpsþáttum sem
bera nafn hans. Auk hans leika í
myndinni margir þekktir leikarar,
má þar nefna Courtney Thome-
Smith, sem sjónvarpsáhorfendur
kannast við úr Melrose Place, og
Ally McBeal, Larry Miller, Jack
Warden, M.Emmet Walsh og gömlu
kynbombuna Raquel Welch. Leik-
stjóri er Alex Zamm og er það
frumraun hans. -HK
hefur lengi búið í Englandi þar
sem hann hóf frægðarferilinn með
Monty Python hópnum. Monty
Python kvikmyndimar vom sam-
vinna hópsins en þar öðlaðist
Gilliam dýrmæta reynslu því það
kom oftast í hans hlut að leikstýra
myndunum og sjónvarpsþáttun-
um. Fyrsta kvikmyndin sem hann
leikstýrði upp á eigin spýtur var
Time Bandits. Sú mynd vakti at-
hygli fyrir fmmleik og fyndni, en
það var hans næsta kvikmynd,
Brazil, sem gerði hann einn
merkasta leikstjóra samtímans.
Brazil er löngu orðin klassísk og
er oft talin meðal bestu kvikmynda
sem gerðar hafa verið þegar slíkur
listi er birtur. -HK
Bíóborgin
Pöddulíf ★★★ Það sem
skiptir máli I svona mynd
er skemmtanagildið og út-
færslan og hún er harla
góð. Sama skemmtilega
hugmyndaflugiö sem gerði
Mulan svo ánægjulega er
hér enn á ferð og mörg at-
riðanna eru hreint frábær, bæði spennandi,
fýndin og klikkuö. -úd
Practlcal Maglc ★★★ Bullock og Kidman
hafa, held ég, aldrei verið eins góðar og njóta
sln vel I þessum klikkuðu hlutverkum og
Wiest og Channing skemmta sér greinilega
konunglega sem miðaldra nornamömmur.
Practical Magic tekur sig aldrei of alvarlega
og það er það sem gerir hana að þeirri
ánægjulegu skemmtun sem hún er. -úd
Johnny Depp og Benicio Del Toro leika Raoul Duke og Dr. Gonzo
sem eru á flippi í Las Vegas. f Las Vegas bragða þeir félagar
Duke og Gonzo á öllum þeim forboðnu ávöxtum sem í boði eru