Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.1999, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.1999, Blaðsíða 20
Lifid eft ir vinnu TiLBOÐ TilBOO 39,- 7a,- s ú k k u I a ð i TiLBQÐ 39, I 0* »117 olf,- Aliar tegundir TiLBOO 35, 5Ú,- TiLBQÐ H5, 3ú,- ' v' ■ s \ k; «i « m $ 11 w t fítBOÐ 189. töú, \ BÓNUSVIDEO} Leigan (þínu hverfi w __ anuaa Á sunnudag, kl. 17, verða í Neskirkju haldnir tónleikar með Sinfóníuhljómsveit áhugamanna. Einleikarar eru þær Áshildur Haraldsdóttir flautuleikari og Elísabet Waage hörpuleikari. Er ísland þaö lítiö aö engir tón- listarmenn hér á landi geti veriö annaö en áhugamenn? „Nei,“ segir Elísabet. „Við Ás- hildur erum ekki áhugamenn, við störfum við þetta. Auðvitað gerum við sumt af einskærum áhuga og þá ekki vegna þess að við fáum svo mikla peninga fyrir en í Sinfóníuhljómsveit áhuga- manna er áhugafólk sem kemur saman einu sinni i viku af ein- skærum áhuga.“ Og hvaö verður leikiö á sunnu- dag? „Konsert eftir Mozart. Þetta er eini konsertinn sem hann samdi með hörpu.“ Er Mozart ekki meö þeim popp- aöri í klassíkinni? „Laglínurnar eru alla vega mjög fallegar," segir Elísabet og bætir því við að margir kannist við helstu verk Mozarts. „Sér- staklega eftir bíó- myndina. Hún ýtti undir þetta Mozart- æði sem hefur verið viðloðandi í gegnum árin. En verkin hans eru yfirleitt mjög falleg og að minu viti er Moz- art einn mesti snillingur- inn í klassískri tónlist." Nú spilar þú á hörpu og harpan kannski einhvers konar framhald af sjálfri þér. Líkar þér vel við þessa framlengingu? „Já. Mér finnst þetta náttúrlega vera stórkost- legt hljóðfæri og valdi það þess vegna. Hér áður fyrr spilaði ég á píanó og skipti því maður er svo nálægt hörpunni. Þú heldur utan um hana og ert í náinni snertingu við hljóð- færið. Ekki skemmir að tónninn er mjög fallegur í hörpunni." Elísabet Waage hörpu- leikarl og Áshild- ur Haraldsdóttir flautulelkari spila með áhugamönnum á sunnudaginn. ✓ Möguleikhúsiö sýnir Hafrúnu, leikverk unn- ið upp úr íslenskum þjóðsögum, kl. 14. Vala Þórsdóttlr leikur en Krlstján Eldjárn leikur á gítar. Sími 562 5060. Borgarleiklhúsið. Pétur Pan er á stóra sviðlnu kl. 14 og skemmtir þar ung- um sem öldnum. Krókur kapteinn er þó miklu skemmtilegri eins og vondra manna er siður. Indlánar, hafmeyjar, krókódíll, draumar og ævintýr. Sími 568 8000. •fundir Málþingi Umhyggju um þjónustu við langveik börn og fjölskyldur þeirra verður framhaldið á Grand hóteli kl. 10 og stendur það til kl. 12.20 en þá mun aðalfundur Umhyggju taka við. Fyrirlesarar á þinginu eru starfsfólk barna- deilda spftalanna og foreldrar langveikra barna. Sunnudagur 28. febrúar • krár KK og félagi hans Maggi Eiríks spila úr söng- bókum sfnum fyrir gesti Gauks á Stöng. Ef maður þekkir þá félaga rétt þá verða þeir frem- ur blúsaðir. Gott fyrir þá sem voru hryggbrotn- ir um helgina. Bítlarnlr mæta á Glaumbar f kvöld og hafa frammi uppistand, leik og söng. Rut Reginalds sýnir að hún hefur engu gleymt á Kaffl Reykjavík f kvöld. Ómar Diðriksson og Halldór Halldórsson (ekki fýrrum ritstjóri Helgarpóstsins) halda uppi stemningunni á Kringlukránni og reyna jafnvel að fá fólkið á borðunum næst senunni til að taka undir með sér. Glen Valentine hvfslar Ijúfsár lög f eyru gesta Café Romance. € böl 1 Ásgarður. Sunnudagsball með Capri-tríólnu. Kjörið tækifæri fyrir þá sem dönsuðu of mikið um helgina að dansa sig aðeins niður. Einn tvo ræla og kannski nokkra skottísa. d j ass ✓ Múllnn. Djazz- Sólon Isunous leikum á Sóloni ís- landusi kl. 21. Það er tþf/TjZr/tvftT djasssveitin Skriödýra- "" búgalú sem mun seiða fram fríska sveiflu. eklassík Sinfónfuhljómsveit áhugamanna heldur tón- leika T Nesklrkju kl. 17. Stjórnandi á tónleikun- um er Ingvar Jónasson og einleikarar.á flautu og hörpu eru Áshildur Haraldsdóttir og Elísabet Waage. Á efnisskránni eru konsert fyrir flautu, hörpu og hljómsveit eftir Wolfgang Amadeus Mozart og sinfónfa nr. 9 eftir Antonin Dvorák, Frá nýja heiminum, eitt vinsælasta tónverk sin- fóníubókmenntanna. Aðgangseyrir er kr. 1000, frítt fyrir börn, nemendur og eldri borgara. Norræna húslð. Félagarnir Peter Verduyn flautuleikari og Frank Mol píanóleikari leika verk eftir samtfmatónskáld kl. 17. Aðgangur kr. 1.200. Tónlistarhús Kópavogs. Skólakór Kársness syngur sig umhverfis jörðina með viðkomu f vel völdum lögum frá ýmsum löndum kl. 20.30. Stjórnandi Þórunn Björnsdóttir. Á efn- isskránni eru 30 lög frá 25 löndum, allt frá sönglögum frumbyggja Ástralfu til nýrra fs- lenskra kórlaga og amerískra kúrekasöngva. ✓ Kammermúsíkklúbburinn heldur tónleika f Bústaðakirkju kl. 20.30. Á efnisskránni er strengjakvartett f g-moll op. 27 eftir Edvard Grieg og strengjakvartett í a-moll op. 132 eft- ir Ludwig van Beet- hoven. Strengjakvartett þennan samdi Beet- hoven þegar hann hafði náð sér að nokkru eftir þunglyndið sem hvolfdist yfir hann f kjölfar níundu sinfónfunnar. Þetta er þvf bæði lækningarmúsík og eitt af sfðustu stórvirkj- um Beethovens þvf þeg- ar hann hafði læknað hann af sálardrungan- um varð sálin svo létt að hún yfirgaf Ifkamann. Flytjendur kvartettanna eru þau Auður Haf- steinsdóttlr og Greta Guðnadóttir fiðluleikar- ar. Guðmundur Kristmundsson vfóluleikari og Bryndfs Halla Gylfadóttir sellóleikari. Sinfóníuhljómsveit Norðurlands heldur tón- leika f Glerárkirkju kl. 16. Þar verður frumflutt verkið Gletscherlied eftir Þorkel Slgurbjörns- son en auk þess tvö önnur verk; sinfónia nr. 7 eftir Beethoven og Konsert fýrir básúnu eftir Henry Tomasl. Einleikari er Jðn Halldór Finns- son en Guðmundur Óll Guðmundsson stjórnar hljómsveitinni sinni. leikhús Maður á mlslltum sokkum eftir Arnmund Backmann er á Smíðaverkstæð! Þjóðleik- hússins kl. 20.30. Þessi farsi gengur og geng- ur og því er uppselt f kvöld. Sfmi 551 1200 fýrir þá sem vilja panta miða á sýningu ein- hvern tfmann f framtíðinni. Sjá föstudag. Leikararnir f Sex í sveit fá salinn fyrir framan stóra svið Borgar- leikhússins til að grenja úr hlátri kl. 20. Sfminn er 568 8000 fýrir þá sem vilja vera með. Sjá föstudag. Áhugaleikhópurinn Hugleikur sýnir Nóbels- drauma Árna Hjartarsonar jarðfræðings f Möguleikhúsinu við Hlemm ki. 20.30. Sfmi 551 2525. Rommi er fýrir sunnan þetta kvöldið og Erling- ur og Guðrún Ásmundsdóttir verða f Iðnó kl. 20.30. Sfmi 530 3030. Svartklædda konan er f Tjarnarbió! kl. 21. Sfmi 561 0280. SJá laugardag. myndlist opnanir Ágústa Sigurðardóttir opnar ! dag, föstudag, málverkasýningu í Skotinu, sýningaraðstöðu aidraðra f Hæðargarði 31. Ágústa hefur sött myndlistarnámskeið fýrir aldraða og gerir enn. Auk málverka sýnir frú Ágústa kort og slæður. Þrjár sýningar verða opn- aðar í Listasafnl íslands á morgun, laugardag, kl. 15. í sal 1 verður opnuð sýning á verkum fjögurra frumherja f íslenskri mál- araiist; Þórarins B. Þor- lákssonar, Ásgríms Jóns- sonar, Jóhannesar Kjar- vals og Jóns Stefánsson- ar. f sal 2 hafa listfræö- ingar safnsins valið saman verk þeirra málara sem innleiddu hugmyndir móderismans f fs- lenska myndlist. Sökudólgarnir eru Gunnlaugur Schevlng, Jóhann Briem, Jón Engilberts, Snorri Arlnbjarnar, Nína Tryggvadóttlr og Þor- valdur Skúlason. í sal 3 verður opnuð sýning á gvassmyndum þýska myndlistarmannsins Slg- mar Polke og kallast sýningin Tónlist af óræð- um uppruna. Ómar Stefánsson, sá gamli djöfladýrkandi, opn- ar sýningu á málverkum sínum f Gallerí Fold við Rauðarárstfg kl. 15 á morgun, laugardaginn 27. febrúar. Verkin gefa innsýn f veröld Ómars, kynjaheim að hætti Hleronymusar Bosch. Þeim sem ekki líkar innlitið geta þakkað Guði fýrir alla þá myndlistarmenn sem búa til penari verk. Þrátt fyrir að Ómar sé aðaldriffjöður In- ferno 5 (sem kallast nú ekki lengur fjöllistahóp- ur eftir að Gusgus fór að nota það heiti heldur listamiðlun) þá muni þeir drengir ekki spila við opnunina - hverju svo sem það sætir. Magnús Kjartansson oþnar sýningu á mál- verkum sfnum f Galleríi Sævars Karls f eftir- miðdaginn á miðviku- daginn 3. mars - aðeins þremur dögum eftir að verk eftir hann voru tekin niður af sýningu Kára Stefánssonar í Gerðubergi. Það eru þó ekki sömu verkin sem fara á veggina hjá Sævari þvf Magnús á nóg af verkum. síöustu forvöö Menningarmiðstöðin Gerðubergi. Myndlistar- sýning Kára Stefánssonar, Þetta vil ég sjál, veröur tekin niður eftir sunnudaginn. Þeir sem vilja kynna sér myndlistarsmekk Kára og lesa úr honum hvernig karakter hann er ættu því að drffa sig. Hinir sem hafa gaman af fslensku málverkum ættu líka að skella sér. Nýlistasafnlð, Vatnsstfg 3b. Fjórar einkasýning- ar og ein safnsýning verða teknar niður eftir sunnudaginn. I Forsal safnsins er Kristján Stelngrímur með sinn sandblástur, í Gryfjunni Helga Þórsdóttlr, f Bjarta salnum Gunnar Straumland, ! Svarta salnum Jón Sæmundur Auöarson og f Súmsalnum verk úr eigu Nýlista- safnsins. Sýningin er opin kl. 14-18. Á Mokka sýnir G.R. Lúðvíksson „íslenskt veö- ur“ í febrúar en sem kunnugt er er sá mánuður aðeins 28 dagar og klárast þvf á sunnudaginn. Guðmundur Rúnar verður annars f Kringlu- kránni um helgina. Listakot, Laugavegi 70. Listamaður febrúar- mánaðar hefur verið Sigríður Helga Olgeirs- dóttlr leirlistarkona. Sýningin er opin virka daga kl. 12-18 og laugardaga frá kl. 11-16. aörar sýningar Gallerí Ingólfsstræti 8. ívar Valgarðsson opn- aði f gær sýningu sem stendur til 21. mars. ívar greip til þess ráðs að mála með Crayola-vaxlit- um beint á veggi gallerísins og sótti innblástur f nöfnin á litunum. Þetta er þvf sýning sem hæf- ir vel musteri minimalismans og konseptsins. Galleríið er opið fimmtudaga til sunnudaga milli kl. 14 og 18. Listasafn ASÍ, Freyjugötu 41. Þijár sýningar eru f safninu. í Ásmundarsal og á svölum sýnir Brynhlldur Þorgeirsdóttlr skúlptúra sfna. I gryfj- unni sýnir Steinunn Helgadóttir málverk. Og f Arinstofu eru ný aðföng Listasafnsins. Opið er á milli kl. 14 og 18 alla daga nema mánudaga. Sýningarnar standa til 7. mars. Kjarvalsstaðir, Flókagötu. Sýningin „Af trönum meistarans" með verkum frá sfðari æviárum Kjarvals. Meðal annarra verka er málverkið „Sjón er sögu ríkari" sem danska rfkið var svo hugulsamt aö lána til íslands. Sýningin stendur til 24. maí. Hallgrímskirkja. Málverk eftir Kristján Davíös- son eru uppi á veggjum f and- dyri kirkjunnar kirkjugestum til yndisauka. Listasafn Kópavogs, Gerðarsafn. Minningarsýn- ing um Svölu Þörisdóttur Salman myndlistar- mann. Hafnarborg, Strandgötu 34, Hafnarfi rði. Sænska textíllistakonan Gun Johansson er með sýningu á verkum sfnum. Slgurlaugur Elí- asson er með sýningu í Sverrissal Hafnarborg- ar á tréristum. Opið er milli kl. 12 og 18 alla daga, utan þriðjudaga - en þá er lokað. Stöðlakot, Bókhlöðustíg 6. Gunilla Möller sýn- ir olíumálverk og teikningar. Sýningin verður opin daglega kl. 14-18. Listhús Ófeigs, Skólavörðustfg 5, Reykjavfk. Sigurður Magnússon myndlistarmaöur með einkasýningu. Sýningin er opin á verslunartfma á virkum dögum en milli kl. 11 og 14 á laugar- dögum. Gallerí Hornið, Hafnarstræti 15. Alan James er með sýningu á olíumálverkum og verkum unn- um með blandaðri tækni. Sýningin stendur til 3. mars og verður opin alla daga kl. 11-24 en sérinngangur verður þó aðeins opinn milli kl. 14 og 18. Gallerí Geysir, Hinu húsinu. Sýningin Ljósbrot, myndir úr Ijósmyndasamkeppni Félags frétta- Ijósmyndara. Sýningin er opin frá kl. 8-22 virka daga og 12-18 um helgar. Kringlan. Sýning á grafík og grafíkvinnubrögð- um. Sýningin er f sýningarrými Gallerís Foldar og Kringlunnar á annarri hæð gegnt Hagkaupi. Galleri, Skólavörðustíg 8. Ásgelr Lárusson hef- ur opnað vinnustofu og gallerí og mun hann vinna þar að myndlist fram á vor en þá verður húsnæðið rifið. Opið alla daga kl. 13-18. sveitin Hótel Selfoss. I dag, föstudaginn 19. febrúar, opnar Gunnhlldur Bjömsdóttlr myndlistarsýn- ingu. Sýningin stendur f fjórar vikur. Slunkaríkl, ísafirði: Myndlistarkonan Anna Jóa sýnir sjö málverk sem lýsa mismunandi ásýnd fjalla, hugarástandi manna og tengslum þar á milli. 20 f Ó k U S 26. febrúar 1999

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.