Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.1999, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.1999, Blaðsíða 7
Andy Garcia Ágúst Ethan Hawke Ralph Fiennes Reynolds Leonardo Oi Caprio Mark Walberg Picasso Nicolai Thomas Ulrich Skeet Will Smith Páll Óskar Erum við góð í að segja til um hvað okkur vanhagar um? Er okkur hollt að elta drauma okkar? Þótt hryllilegt sé að segja frá því þá er niðurstaða lítillar könnunar Fókus sú að svo sé ekki. Þvert á móti. Ef væntingar okkar og draumar rættust myndum við steypast inn í martröð, elt uppi af skrímslunum úr huga okkar. Draumaprinsar WBm bölvaðir sSdfhælar Dagur Sigurðarson komst að því í kvæði að þrátt fyrir að það sé aumt að vera fátækur, mis- skilinn og einmana kall uppi á kvistherbergi þá væri það skömminni skárra en að vera stelpa sem ynni 1 saltfiski og væri komin upp á einhvem draumaprins sem reyndist síðan vera bölvaður skíthæll þegar á reyndi. Dagur vissi náttúrlega ekkert hvað hann var að yrkja um. Hann var súr i sinni kytm og var að stunda það sem skáldbróðir hans, Megas, orðaði seinna í allt öðru kvæði: Svo skal böl bæta að benda á annað verra. En draumaprinsar em samt stórlega gallaðir. Eins og annað úr draumaheimmn. Það mætti jafn- vel búa til kenningu um að engum sé hollt að teygja sig eftir því sem hann gimist. Tökum dæmi af borgarskipulagi. Karlar og konur stúdera borg- arskipulag árum saman og láta sig dreyma um hið fullkomna hverfi. Og, það sem verra er, stundum fær þetta fólk að framkvæma drauma sína. Án undantekninga verður til hverfi sem enginn vill búa i. En fólk neyðist til þess vegna þess að það er ekkert laust - ekki einu sinni kytra - í gömlu hverfunum sem urðu til fyrir slysni. Það er eins og fólki sé hollast að þiggja það sem að því er rétt í stað þess að vera sífellt að ímynda sér hvemig hlutunum væri betur fyrir komið. Það er ekki víst að hallærishippinn Steven Stills hafi átt við þetta þegar hann sagði að ef fólk gæti ekki verið með þeim sem það elskaði ætti það að elska þá sem það væri með. Líklega hefur hann bara verið að sannfæra einhverja stelpu um að hún ætti að gera sér hann að góðu. Hér á síðunni má sjá niðurstöðu könnunar sem Fókus gerði á draumheimum Margrétar Sigurðar- dóttur úr Kolkrabbanum. Hún var fengin til að raða saman í huganum hinum fullkomna karl- manni úr líkamshlutmn þekktra manna - eins kon- ar frú Frankenstein-leikur. Þórarinn Leifsson tók síðan að sér að framkalla drauminn. Og niðurstað- an er auðvitað hryllileg. Margrét er engu betri í því en við hin að segja til um hvað hana vanhagar um. I leit tönnum ifiPil ....„ - f J J c! augum Margrét Sigurðardóttir er 25 ára, á ekki kærasta, er bamlaus og býr í Garðabæ. Hún er einn um- sjónarmanna Kolkrabbans sem er þáttur fyrir ungt fólk í Sjónvarp- inu. Hún gekk í MR og lauk svo átta stigum í söngnámi og sjö stig- um i píanónámi, lærði leiklist og söng í Vín í fyrra og syngur þegar fólk nennir að hlusta. Þegar hún kom heim frá Vín gerðist hún sjón- varpskona þar sem hún fékk vinnu við Kolkrabbann. Framtíð hennar er óákveðin og hún segir lífið vera laust í annan endann. Það sem Margrét tekur fyrst eft- ir og metur mest við karlmenn eru tennurnar. Karlmaður með ljótar tennur á engan séns. Hún segist frekar myndu þiggja mann með gervitennur en illa tenntan mann. Svo skipta augun líka máli enda eru þau spegill sálarinnar. Þar sem Margrét er ekki búin að koma sér upp kærasta gefur að skilja að hún er með augun opin og lítur í kring- um sig í leit að fallegum augum og tönnum. Það skiptir hana líka miklu máli að maðurinn hafi kímnigáfu. Margrét var svekkt á Vínarbúum og segir þá vera ótrú- lega leiðinlega. „Það er ljótt að alhæfa en þeir eru það samt. íslenskir karlmenn eru mun skárri. Þeir eru yfirleitt voða huggulegir og góðir við dömuna." Hvernig stendur á því aö þú ert ekki búin aö finna þann eina rétta? „Ég er að vanda mig. Og er svo- lítið vandlát." 26. febrúar 1999 f Ókus 7

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.