Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.1999, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.1999, Blaðsíða 14
\ \ \ Janis Joplin t bíó Tvær blómyndir, byggbar á ævi Janis Joplin, hafa verið á teikniboröinu í Hollywood í langan tima og nú virðist önnur þeirra vera komin á flug. Brittany Murphy, sem frægust er fyrir að tala fyrir Luann f teiknimyndaþáttunum King of the Hill og að leika vinkonu Aliciu Silverstone í Clueless, mun leika Janis í myndinni Piece of My Heart sem leikstýrt er af Gary Fleder (Kiss the Girls), Myndin hefur verið í vinnslu í þrjú ár og á tímabili var rokksöngkonan Melissa Etheridge orðuð við aðalhlutverkið. Hinni Janis-myndinni sem í bígerð hefur verið átti Nancy Savoca (Dogfight) að leikstýra og þar hafði Lili Taylor verið nefnd í aðalhlutverk- ið. Af þessari mynd verður þó líklega ekki þó það hafi nú svo sem gerst í Hollywood aö margar myndir með sama söguþræðinum komi út á sama tíma. Piece of My Heart rekur ævi Janis frá uppvaxt- arárum hennar I smábæ í Texas, f gegnum stjörnuflugið allt þar til hún sþrautaði sig f hel með herófni árið 1970, 27 ára gömul. Brittany mun syngja sum eða jafnvel öll lögin sjálf. Tök- ur hefjast f San Francisco f lok sumars. Með Last Days of Disco lokar leikstjórinn Whilt Stillman tríólógíu sinni um næturlífið og unga fólkið ngt folk i kreppu Sam-bíóin frumsýna í dag banda- rísku kvikmyndina Last Days of Disco, sem leikstýrt er af Whit Stillman, en hann hefur leikstýrt tveimur kvikmyndum, Metropolit- an og Barcelona sem vakið hafa at- hygli. Með Last Days of Disco lokar Stillman tríólógíu sinni um ungt fólk og næturlífið. Eins og í fyrri myndunum kemur unga fólkið frá millistéttarfjölskyldum og er í til- vistarkreppu sem svo oft einkennir fólk sem er að klára skóla en veit varla hvað tekur við. Aðalpersón- urnar eru Alica og Charlotte, tvær nýútskrifaðar stúdínur sem vinna hjá bókaútgefanda. Þær búa þröngt í lítilli íbúð á Manhattan ásamt þriðja leigjandanum, Holly. Kvöld eitt fara þær stöllur saman á vin- sælt diskó í New York, lenda eins og aðrir í biðröð, ákveða að taka sénsinn á bakdyrunum, komast inn og dansinn byrjar. í aðalhlutverkum eru Kate Beckinsale, Chlöe Sevigny, Tara Subkoff, Robert Sean Leonard og Mackenzie Astin. Bandaríski hryllingsmyndaiðn- aðurinn er merkilegur bransi. Hann hefur upplifað sínar hæðir og lægðir og þróast talsvert með árun- um. Eiginlega má segja að grunn- urinn fyrir hryllingsmynd nútím- ans hafi verið lagður á áttunda ára- tugnum þegar formúlan um geð- sjúka morðingjann var tekin í fulla notkun. Flestar helstu hrollvekj- umar fjalla um geðsjúka morð- ingja, Halloween, Friday the 13th, The Texas Chainsaw Massacre og svo náttúrlega Nightmare on Elm- street myndirnar, þó að þær teljist að vísu líka til draugamynda. Auð- vitað er líka allt morandi í skrímslamyndum, draugamyndum, visindaskáldsskaparhryllingi, splattermyndum og fleiru og fleiru. En manían að ofsækja lauslátar táningsstúlkur er oftast tilfellið þegar hryllingsmynd er annars vegar. Upp úr þessum jarðvegi spratt myndin Scream sem var í senn ádeila á fáránleika formúlunnar á bak við hrollvekjumar og einnig hugleiðing um það sem getur gerst þegar menn eyða of miklum tíma fyrir framan skjáinn og missa tengslin við raunveruleikann. Þrátt fyrir góðan vilja virkaði hún ekki alveg hvað raunverulegar af- leiðingar morða varðaði en ádeilan á formúlumyndirnar var nokkuð skemmtileg. Því þótti mér sorglegt að sjá framleiðendurna gera Scream 2 á svo til engum tíma og falla þar með í sömu gryfju og þeir höfðu sjálfir deilt á. I know what you did last sum- mer varð feikna vinsæl þegar hún kom í bíó og kom það mér því ekki á óvart þegar maður heyrði að framhald hennar væri á leiðinni. í þetta sinn er frægt nýstirni í popp- Enn einum morðóða geð- sjúklingnum verður sleppt á unglings- stúlkur í framhalds- myndinni Ég veit enn þá hvað þú gerðir síðastliðið sumar! sem Stjörnubíó frumsýnir í dag. ftillkun um sumari Þrátt fyrir breytt útlit og hvers kyns tækniframfarir eru hryllingsmyndirnar svo til óbreyttar. Ennþá er stúlka á hlaupum undan moröingja, einhverra hluta vegna snýr hún alltaf viö þegar hún heldur aö hann sé farinn og alltaf er ákveöinn fjöldi unglinga drepinn. bransanum, Brandy, með í fartesk- inu og tvær persónur úr fyrri myndinni. Sjálfsagt á þetta eftir að smala inn þónokkrum áhorfendum og er það framleiðendunum í hag. Myndin gerist þegar dálítill tími er liðinn frá morðunum í fyrri mynd- inni og söguhetjan Julie er búin að koma sér vel fyrir í skóla og eign- ast nýja vini. En það er einmitt þá sem maðurinn með krókinn lætur á sér kræla. Kevin Williamson, sem skrifaði handritið að Scream 1 og 2 og I know what you did last summer, færðist undan því að skrifa I still know what you did last summer. Menn vilja meina að það sé vegna þess að hann telji framhaldsmynd ekki eiga möguleika á markaðinum nú á þessum síðustu og verstu tím- um er allt flýtur í sorpi. En hvers vegna skrifaði hann þá Scream 2? Það var framhaldsmynd sem hefði alveg mátt sleppa að hugsa um, hvað þá framleiða. Ef til vill fannst honum nafnið I still know 2 óþjáUa heldur en Scream 2 sem var stutt og laggott. Eða kannski nennir hann þessu bara ekki lengur, löngu orðinn ríkur á skrifum sínum og sestur í helgan stein. Þrátt fyrir breytt útlit og hvers kyns tækniframfarir eru hryllings- myndirnar svo til óbreyttar. Enn þá er stúlka á hlaupum undan morðingja, einhverra hluta vegna snýr hún alltaf við þegar hún held- ur að hann sé farinn og alltaf er ákveðinn fjöldi unglinga drepinn. Það sem breytist helst er tónlistin og tíðarandinn. Gervileg moog-tón- list heyrir sögunni til. Auglýsing- arnar verða æ tónlistarmyndbands- kenndari og þulsraddirnar í þeim dýpri og dýpri. Og handritin á stöð- ugu undanhaldi. Ari Eldjárn ífisr og DeVito saman a I síðustu myndinni sem Kevin Spacey og Danny DeVito léku saman I, meistaraverkinu LA Confidential, biðu þeirra grimm örlög. Þrátt fyrir það eru þeir nú komnir saman afturí nýrri mynd, Hospitality Suite, sem nýlega er byrjað að filma. Myndin er drama og mun breyta um titil áður en hún verður frumsýnd. Hún er um þrjá sölumenn, tvo reynda (Kevin og Danny) og einn nýjan (Peter Facinelli), sem eru staddir I Wichita á verksmiðjusmurningarráðstefnu. Þetta hljómar kannski ekki mjög spennandi enda gerist megnið af myndinni í hðtelsvítunni þar sem sölumennirnir þrír dvelja. Þeir ræða málin og smám saman kemur þeirra grugguga einkalif í Ijós. Handritið skrifar Roger Rueff sem byggir það á eigin leikverki en leikstjórinn er John Swandeck sem stýrði verkinu á sviði. Hospitality Suite er fyrsta kvikmyndin sem John stjórnar. Matt Dillon leikur gígaló í Hollywood fer vændi aldrei úr tísku. River Phoenix og Jon Voigt hafa báðir leikið gígalóa og nú ætlar Matt Dillon að feta í fótspor þeirra í nýrri mynd sem er í btgerð. Sú heitir Pony Rides og líklegur leikstjóri er talinn vera Bruce Beresford sem slðast stýrði spennumyndinni Double Jeopardy. Hinn unglegi Matt (sem þó er orðinn 35 ára) leikur ungan mann sem er al- inn upp til þess að ganga inn I „fjölskylduiðn- ina“ - að vera leikfang fyrir rlkar konur. En fol- inn vill út úr gígalóastéttinni og finnur loks ást- ina á óvæntum stað. Matt sýndi slðast frá- bæra gamantakta I There’s Something about Mary en nýja myndin er dramatísk og þvl líkari þeim myndum sem Matt er frægastur fyrir. 14 f Ó k U S 26. febrúar 1999

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.