Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.1999, Side 9
FÖSTUDAGUR 5. MARS 1999
9
i>v Stuttar fréttir
Útlönd
Sprengdi sig til bana
Kúrdísk kona sprengdi sig í
gær til bana fyrir framan lög-
reglustöð í borginni Batman í
suðausturhiuta Tyrklands. Fjórir
vegfarendur særðust um leið.
Victoria orðin mamma
Kryddpían Victoria Adams
eignaðist í gærkvöld dreng sem á
að heita Brook-
lyn Joseph. Það
var eiginmaður
Victoriu, David
Beckham, sem
greindi frá tíð-
indunum ljóm-
andi af stolti. Nú
eru tvær
Kryddpíur orðn-
ar mæður. Mel B eignaðist dóttur
í febrúarlok sem heita á Phoenix
Chi.
Gripin fyrir jarðarför
18 ára piltur hefur sakað
sænska kvenprestinn, sem var
handtekinn þegar hann var á leið
til jarðarfarar, um að hafa mis-
notað sig er hann var drengur.
Konan gegndi þá ekki prestsemb-
ætti.
Uppgjör við Talebana
Bandarískir embættismenn
halda því fram að Osama bin
Laden, sem Bandaríkin saka um
stórfelld hryðjuverk, hafi lent í
harðvítugum deilum við Talebana
í Afganistan sem verið hafa gest-
gjafar hans.
Ofbeldi gegn börnum
Böm á dagheimili finnsks trú-
boðs i Taívan hafa verið beitt lík-
amlegu og andlegu ofbeldi. Börn-
in hafa einnig verið misnotuð
kynferðislega.
Loftárás á bóndabýli
irösk yfirvöld héldu því fram í
gær að bandarískar og breskar
herflugvélar hefðu gert loftárás á
bóndabýli á flugbannssvæðinu í
suðurhluta íraks.
Öcalan endurkjörinn
Abdullah Öcalan hefur veriö
endurkjörinn leiðtogi kúrdísku
PKK-samtak-
anna að því er
fulltrúi samtak-
anna greindi frá
í gær. Mannrétt-
indadómstóll
Evrópu hefur
hvatt tyrknesk
yfirvöld tU að
sjá um að réttar-
höldin yfir Öcalan verði réttlát og
að lögmenn hans fái að hafa eðlUeg
samskipti við hann.
Mikilvæg borg tekin
Lið uppreisnarmanna, sem í eru
hermenn sem þjónuðu Mobutu
Sese Seko, hafa tekið borgina
Bolobo í Kongólýðveldinu. Borgin
er sögð hemaðarlega mikUvæg.
Átök í Jakarta
Átök urðu í gær í Jakarta í
Indónesíu mUli námsmanna, sem
efhdu til mótmæla, og lögreglu.
Þúsundir Indónesa efndu til mót-
mæla í helstu borgum landsins.
Dómur mildaður
Dómstóll í Bandaríkjunum hef-
ur úrskurðað aö milda megi fang-
elsisdóminn yfir Manuel Noriega,
fyrrverandi einræðishema
Panama, úr 40 áram í 30 ár. Þar
með gæti Noriega losnað úr fang-
elsi árið 2007. Noriega var hand-
tekinn 1989 vegna fikniefna-
smygls og peningaþvotts.
Dole skrefinu nær
Elizabeth Dole, fyrrum ráð-
herra í stjórn
Bush Banda-
ríkjaforseta, ætl-
ar í næstu viku
að tilkynna
stofnun könnun-
arnefndar fyrir
hugsanlegt for-
setaframboð sitt
á næsta ári. Dole mun tUkynna
þetta í Des Moines í Iowa.
Þjóðverjarnir
gáfust upp
Þýska ríkisstjórnin hefur gefist
upp við að reyna að koma á um-
bótum í styrkjakerfi landbúnaðar-
ins í Evrópusambandinu vegna
mikUlar andstöðu Frakka.
Þetta varö ljóst eftir fund land-
búnaðarráðherra ESB í Bonn í
gær. Þjóðverjar vUdu að einstök
aðUdarlönd sambandsins tækju á
sig hluta styrkjanna sem bændum
eru greiddir til þess að hægt væri
að skera niður fjárútlát ESB.
„Við teljum ekki miklar líkur á
að af þessu verði,“ sagði Bodo
Hombach, einn nánasti aðstoðar-
maður Gerhards Schröders
Þýskalandskanslara, við frétta-
menn.
Jean Glavany, landbúnaðarráð-
herra Frakklands, sagði við kom-
una tU Bonn í gær að það yrði
stórt skref fram á við ef mál þetta
yrði tekið af dagskrá.
Elísabet Englandsdrottning og eiginmaður hennar heimsóttu leikhúsfólk í
London í gær og hér má sjá drottningarmann tala við flytjendur söngleiks-
ins Chicago í Adelphi-leikhúsinu.
Spænska veikin:
Veiran fundin
lifandi í Alaska
DV; Ósló:
Flensuveiran, sem oUi dauða aUt
að 40 miUjóna manna í spænsku
veikinni árið 1918, hefur verið lögð
inn á rannsóknarstofu í Bandaríkj-
unum þar sem þessa dagana er ver-
ið að rekja úr henni erfðagarnimar.
Það var Johan Hultgren, sænskur
meinafræðingur á eftirlaunum, sem
fann veiruna í lunga líks í kirkju-
garði indíánaþorpsins Brevik í
Alaska í sumar. Johan leitaði
veirunnar á sama tíma og grafir sjö
fórnarlamba spænsku veikinnar
voru opnaðar á Svalbarða í von um
að finna veiruna þcir.
Á Svalbarða höfðu líkin ekki ver-
ið grafin niður í sífrerann og því
voru sýni tekin þar rotnuð og ónýt.
í indíánaþorpinu voru líkin grafin
tvo metra í jörð niður og voru enn
freðin 80 árum síðar.
Johan pjakkaði upp gröf konu og
tók sýni úr lunga hennar án þess að
nokkuð væri hugað að smitgát. Á
Svalbarða var rannsóknarhópurinn
hafður i einangrun af ótta við að
spænska veikin gæti blossað upp
aftur um leið og veira kæmi upp úr
jörðinni.
Nú mun vera búið að rannsaka 30
til 40 prósent af erfðaefni veirunnar
sem Johan hafði með sér frá Alaska.
Það hefur vakið athygli að veiran er
af sömu ætt og svínaflensuveirurn-
ar sem reglulega ganga um heim-
inn.
Það vekur líka athygli að ekkert
hefur enn fúndist sem skýrt getur af
hverju flensuveiran frá 1918 var
banvænni en aðrar skyldar flensu-
veirur. Gátan um spænsku veikina
er því enn óleyst en rannsóknum á
veirunni er enn ekki lokið.
-GK
Bókin hennar Monicu rennur út:
Starr lagði gildru
lyrir Bill Clinton
góðu verði
Ragnar Björnsson ehf.
Dafshraunl 6, Hafnarfiröl, síml 555 0397, fax 565 1740
SOUTHERN Boröað i
FRIED á staðnum eða £
CHICKEN tekið með heím 1
Við hliðina á Svörtu Pönnunni v/Tryggvagötu • s. 551 6480 Ja
Monica Lewinsky segir í bók
sinni, sem kom i bókaverslanir í
gær, að saksóknarinn Kenneth
Starr hafi unnið á laun með lög-
mönnum Paulu Jones að því að
leggja gildru fyrir Bill Clinton
Bandaríkjaforseta vegna sambands
hans við lærlinginn fyrrverandi úr
Hvita húsinu.
í yfirheyrslu yfir Monicu á hótel-
herbergi í Washington í janúar 1998
var einn starfsmanna Starrs með
undir höndunmn eiðsvarna yfirlýs-
ingu frá Monicu sem hann gat að-
eins hafa fengið frá lögmönnum
Paulu Jones, konu sem hefur sakað
Clinton um kynferðislega áreitni.
Andrew Morton, höfundur bókar-
innar um Monicu, sagði við frétta-
mann Reuters í gær að allir sem
tengdust málinu mættu fjalla um
það nema Monica sjálf. „Áf hverju
kemur Starr í veg fyrir að Monica
Andrew Morton, höfundur bókarinn-
ar um Monicu, telur saksóknarann
Starr hafa eitthvaö að fela.
Lewinsky tali um reynslu sína?
Hvað hefur hann að fela? Við hvað
er hann hræddur?" sagði Morton.
Þótt Bandaríkjamenn segist vera
orðnir hundleiðir á öllu fjölmiðla-
fárinu um Monicu, létu þeir sig þó
hafa það að kaupa bók hennar í
stórum stíl í gær og nærri helming-
ur þeirra horfði á sjónvarpsviðtal
Barböru Walters við hana á mið-
vikudagskvöld. Bókin fór þegar í
stað í efsta sæti sölulista
netbókabúðarinnar Amazon.
Ffölskyldupakkar:
fviirtvo kr. 1.150,-
ÍYrirþrjá kr. 1.650,-
fyrir fjóra kr. 2.150,-
fyrír sex kr. 2.950,-
Komdu og njóttu þess að gæða þér á safaríkum
kjúklingabitum. Kjúklingurinn og kryddið er okkar vörumerki. ^