Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.1999, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.1999, Blaðsíða 3
meömæli e f n i ‘rsaukaeyði (Paine- ■ne) sem fæst í flestum ótekum. Þetta er tæki m líkist einna helst stór- 1 kúlupenna og skýtur slum í gegnum húðina .ar þrýst er á topp penn- . Þeir sem hafa reynt a þennan risapenna n á vöðvaflækjur og ■a kirtla. Hins vegarverk- in ekki á sálarflækjur. er vel í vasa og árangur í Ijós á tveim til fimm n.Varað er við því að fólk gangráð noti pennann einnig er þannað að ;a honum í augun. Penn- inn er uansKur. Túrtöppum og vodka; sérstaklega fyrir konur. Túrtappinn er vættur vel í vodka og síðan kom- ið fyrir á sínum stað. Á þennan hátt geta kon- ur verið undir áhrifum áfengis án þess að nokkur lykt finnist af þeim. Þetta er sérstak- lega hentugt í vinnunni, svo og heima fyrir framan sjónvarpið þar sem fjölskyldan er sam- an komin. Gæta þarf þess að skipta reglulega um tappa og væta vel í vodka á milli. Hallmark sjónvarpsstöðinni á Fjölvarpinu. Þar eru sýndar sjónvarpsmyndir allan sólarhring- inn sem hafa það fram yfir venjulegar bíó- myndir að vera styttri. Tímann sem sparast má nota í annað. C-vítamínplllur í uppleysanlegu töfluformi. Ýmsar bragðtegundir gera það að verkum að þú hefur á tilfinningunni að verið sé að drekka svaladrykk með tilgangi. Setja ísmola út I. Kókinu á American Style hamborgarastaðn- um t Skipholti. Þar kaupir þú eitt kókglas og mátt drekka eins mörg og þú vilt. Fjögurra manna fjölskylda drakk 24 kókglös þar um daginn og varð ánægð. OFrétta- ^ stofu Sjon- varpsins ef I þú vilt koma ein- hverri vöru á framfæri. Hafa sam- band við Helga H. Jónsson og þá birtist vörukynningin á skjánum. Skiptir ekki máli hvort þú ert með hundahótel eða hárgreiðslustofu - Helgi er lið- legur. SJONVARPIÐ Gleðisveitin Plútó er með blandaða músík og heldur risaball í Ráðhúsinu á sunnudaginn. ð smitum frá okkur Síðustu vikurnar hefur Ævin- týraklúbburinn staðið fyrir lista- sýningu þroskaheftra og fjölfatl- aðra í Ráðhúsinu. Á sunnudaginn kl. 15 verður haldinn dansleikur og mun hljómsveitin Plútó sjá um stuðið. Plútó er skipuð sex söng- konum, einum söngvara, trommara, ásláttarleikara og gítar- leikara. Fjórir tónmenntakennarar aðstoða bandið eftir þörfum og ýmsir gestasöngvarar og dansarar stíga á stokk, þ. á m. vistmaður af Sólheimum sem hermir eftir Ladda með miklum stæl. „Við erum búin að starfa saman í þrjú ár,“ segir Hildigunnur, ein af söngkonunum. „ Við spilum blandaða tónlist, lög eins og Úti á stoppistöð, Tvær úr Tungunum og bara rokklög ails konar, aðallega íslensk, en eitt útlenskt, Kvandala- mera.“ Hildigunnur á engan sérstakan uppáhaldstónlistarmann og segist hafa gaman af öllu, blönduðum lög- um aðallega. „Við fáum öll jafn- mikið að syngja og stundum syngj- um við lika öll í einu. Ég er ekkert feimin við að koma fram og við lif- um okkur inn í þetta. Fólk er alltaf mjög ánægt með okkur enda erum við heilmikil gleðisveit. Við smit- um út frá okkur." Haraldur Viggó er trymbill Plútós. „Ég er búinn að spila á trommur í þrjú ár, síðan bandið byrjaði," segir hann. „Ég er með helvíti stórt trommusett og það má skipta því niður til helminga. Mað- ur þarf að hafa svolitla krafta í kögglum til að spila á trommur. Við erum með blandað efni, frá rokki upp í léttmeti, en mér finnst Bítlarnir, Shadows og Hljómar frá Keflavík bestir." Fœröu útrás meö því aö spila á trommur? „Já, mjög mikla. Sérstaklega eft- ir að það komu svona margar stelp- ur í bandið, þær lyfta manni upp. Við vorum færri þegar við byrjuð- um.“ Hvaö finnst þér skemmtilegt ann- aö en aó tromma? „Ýmislegt, svona. Við förum stundum út að borða með Ævin- týraklúbbnum, málum myndir og förum í bíó. Mér finnst samt skemmtilegast að spila með Plútó.“ „Ég ætla að búa til stað þar sem fólk getur komið og heyrt hvað í öðru þegar það talar sam- an,“ segir Guðmundur Ingi Kristinsson, veitingamaður á Vitabar á Bergþórugötu, sem hef- ur nú fært út kvíarnar og lagt japanska veitingastaðinn Samurai í Ingólfsstræti undir sig. Nýi staðurinn mun væntanlega heita: Vitabar II: Hinir heppnu deyja fyrst. Á Vitabar á Bergþórugötu hef- ur Guðmundur Ingi sérhæft sig í hamborgurum sem löngu hafa getið sér gott orð í höfuðborginni. Koma menn langar leiðir til að kaupa hamborgara á Vitabar og á það jafnt við um ellilifeyrisþega sem táninga - og allt þar á milli. Sem dæmi má nefna að þekktur lögmaður í Reykjavík treystir sér ekki í dómssal án þess að fá sér Vitaborgara fyrst. „Á Vitabar II ætla ég að vera með matseðil sem fólk getur lesið og pantað eftir án þess að vera með háskólapróf," segir Guð- mundur Ingi sem reyndar er vel að sér í bókmenntum þar sem afi hans, Ingólfur Jónsson, þýddi Tarsan-sögurnar fyrstur manna yfir á íslensku. „Gestir mínir spanna allt litróf þjóðfélagsins. Hjá mér fá allir að vera í friði og það þýðir ekkert fyrir kerlingarn- ar að hringja og spyrja eftir körlunum. Ég svara því alltaf til að ég hafi ekki séð þá svo mánuðum skiptir. Veitingamaðurinn þarf að eiga traust gest- anna.“ - Ekki fara menn í kven- mannsleit á Vitabar eitt og tvö? „Samræður á Vitabar hafa oftar en einu sinni endað með giftingu þannig að ég útiloka ekki neitt," Guðmundur Ingi. 5 milljóna króna rnara- 'poníónleikar Gradualekór Langholtskirkju verður með maraþontónleika á laugardaginn og hefjast þeir klukkan 10 fyrir hádegi. Verður sungið til klukkan 19.00 sama dag. „Við erum að safna fyrir Kanadaferð kórsins sem farin verður næsta smnar,“ segir Jón Stefánsson, kórstjórnandi í Lang- holtinu. „Kórinn hefúr þegið boð um að syngja á alþjóðlegri tónlist- arhátíð, Niagara Falls International Music Festival, í júlí. Þetta er dýrt ferðalag, kostar kórinn um fimm milljónir." Kórfélagar hafa sjálfir staðið í fjáröflun vegna þessarrar ferðar, sungið á elliheimilum og hjá klúbbum og selt uppþvottalög og salemispappír þess á milli. Ömmustelpa í erótík: Hvað segir amma um litla stripparann sinn? Vinna-borga- vinna-borga - Dagur í lífi Tómasar og Dúnu Gísli Sigurðsson fyrirsæta um tískuheiminn: Naomi er tík! 7 Besta listin 8-9 er matarlystin — fimm listamenn á besta aldri ræða lífið og listina Lykilorðið er 10 ferskleiki - ryþmaparið Sly og Robbie á fullu Sölvi í Quarashi segir ótrúlega ferðasögu: Kókaín, *o_\3 fótbolti, 1 tarantúlur Vaski grísinn Baddi 2 og endurgerð Psycho — ásamt Cameron Diaz og South Park-gæjunum Bringuhár — hvar eru þeir nú? ^ ^ Lifid eftir vmnu Fegurðardrol lco Saccari með Pucc snnimir hennar Nínu Taka tii í herber www.hairybears.e rsur úr Kóngsinsgötu Fókus fylgir DV á föstudögum Forsíðumyndina tók ÞÖK af Gísla Sigurðssyni. 5. mars 1999 f ÓkUS 3

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.