Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.1999, Page 10
26
HÚS & GARÐAR
MIÐVIKUDAGUR 5. MAÍ 1999
Vanda þarf til verks
þegar klippa á tré
Tré og runna getur verið vandasamt að klippa en það
þarf þó að gera reglulega. Auðvitað er gott að fá fag-
mann í verkið, sérstaklega ef um miklar klippingar er
að ræða eða gömul og verðmæt tré eiga í hlut. Fyrir
þá sem vilja spreyta sig á verkinu fylgja hér nokkrar
leiðbeiningar um klippingar.
Aðalklippingartími trjáa er á
meðan gróður er í hvíld, þ.e. á vet-
uma. Þaö þýðir ekki að trén séu
ekki snert á öðrum tímum því þau
þarf oft að snyrta og laga. Margir
garðeigendur sumarklippa limgerð-
in hjá sér, sérstaklega ef um
víðilimgerði er að ræða. Passa þarf
upp á að fjarlægja brotnar greinar
strax og skaðinn uppgötvast.
Birki, elri og hlynur eru tegundir
sem flokkast undir blæðara, þ.e.
mikill safi lekur úr þeim ef klippt er
þegar safaþensla er mikil. Þessar
plöntur ætti ekki að klippa seinna
en um miðjan apríl. Birkilimgerði
þola þó alveg snyrtingu á ársvexti
en ef til stendur að mjókka það eða
klippa i gamlan við ætti að gera það
fyrir áðumefndan tíma.
Hvað ber að fjarlægja?
Mikilvægt er að skoða tréð úr fjar-
lægð áður en hafist er handa og átta
sig á því hvaða greinar á að fjar-
lægja. Fyrsta skrefið er að fjarlægja
dauðar greinar. Öll rótarskot em
einnig klippt í burtu. Greinar sem
vísa inn í miðju trésins skal fjar-
lægja og einnig greinar sem vaxa
samhliða stofni trésins.
Ef tvær eða fleiri greinar vaxa í
kross og nuddast saman þarf að
fækka þeim þar til ein grein er eftir.
Garðastál • Bárustál • Garðapanill
Barustal, sigilt form á þöl< og veggi, hefur
sannað yfirburði sína við íslenskar aðstæður.
Garðastál, 4 gerðir á þök og veggi.
Garðapanil, glæsileg vegg- og loftaklæðning.
Allar gerðir til í lituðu og A-L-C Alúsink.
Til notkunar jafnt úti sem inni.
Möguleikar eru á ýmsum frágangsaðferðum,
með tilliti til útlits og hagkvæmni.
OKEYPIS KOSTNAðARAÆTLANIR
RÐASTÁL
Stórási 4-210 Garðabæ - Sími 565 2000 - Fax 565 2570
Mikilvægt er að skoða trén aðeins úr fjarlægð áður en þau eru klippt til þess
að átta sig betur á hvaða greinar skuli fjarlægja.
Gott er að hafa í huga að betra er
að mynda fá stór sár en mörg lítil.
Mikilvægt er að sárin séu á réttum
stað og varast ber að skerða grein-
arhálsinn. Greinarhálsinn er þykk-
ildi sem situr neðst á greininni. I
honum eru náttúruleg efni sem
hamla gegn roti og sveppasýkingu
og er því mikilvægt að hann sé ekki
sniðinn burt. Sárið þarf þó að vera
ansi nálægt honum því annars er
hætt við að skildir verði eftir stubb-
ar. Leitast skal við að hafa sárin
sem minnst.
Mismunandi vaxtarlag
Stærri greinar er gott að taka í
áfóngum. Fyrst er sagað upp í grein-
ina nokkuð frá greinarhálsinum, síð-
an er greinin söguð af aðeins fjær og
endað á því að saga stubbinn í burtu.
Með þessari aðferð er komið í veg fyr-
ir að þung greinin rífi börkinn og
myndi ljótt sár.
Tré eru með mismunandi vaxtarlag
að upplagi og einstaklingsmunur á
þeim. Sum birkitré verða ekki falleg
einstofna og sama má segja um reyn-
inn og margar aðrar tegundir.
Skrautrunnar
Þegar skrautrunnaplanta eldist
þarf í flestum tilvikum að fjarlægja
eldri greinar svo þær yngri og kraft-
meiri fái aukið rými. Við klippingu
skrautrunna þarf að taka mið af
blómgunartíma þeirra. Það má
skipta þessum runnum í þrjá eftir-
farandi flokka:
1. Runnar sem bera blóm í toppi
fyrraárssprota. Blómhnappamir
myndast síðsumars og plönturnar
blómstra fyrri part sumars. Að
blómgun lokinni eru visnir blóma-
klasar fjarlægðir til að hjálpa til við
myndun nýrra blómhnappa.
2. Runnar sem blómgast á stutt-
um sprotum eldri greina. Þeir eru
klipptir síðvetrar og fram á vor,
áður en brum opnast.
3. Runnar sem blómgast á árs-
sprotum. Þessir runnar eru ýmist
klipptir alveg niður og látnir endur-
nýja sig eða elstu greinamar fjar-
lægðar.
Fáar og kraftmiklar greinar
Hvað berjarunna varðar er betra
að hafa fáar og kraftmiklar greinar
sem em um tveggja til fimm ára
gamlar en stóra og mikla plöntu.
Berjarannar á fyrrgreindum aldri
gefa mestu uppskeruna. Eftir það
taka greinamar til sín mikla nær-
ingu án þess aö skila uppskem.
Eldri greinar em ívið dekkri en þær
yngri og þvi nokkuð auðþekkjanleg-
ar. Til að fá sem besta uppskeru em
eldri greinamar sneiddar burt og
einnig er reynt að stuðla að opnum
vexti runnans og sneiða greinar
sem liggja neðarlega og jafnvel niðri
í jörðinni burt. Greinar sem ganga í
gegnum runnann og særa aðrar
greinar era fjarlægðar, sem og
brotnar greinar. -gdt
# BOSCH
21.820,-
16.433,
0 BOSCH
87.800,
/bosch Garoypkjusumar i hjarta borgarinnar
8.030,- bræðurnir
Sláttuorf J Æ €? 0/\K T
Lágmúla 9 • Sími: 533 2800 • Fax: 533 2820
BOSCH verslunin aðkeyrsla frá Háaleitisbraut
□