Dagblaðið Vísir - DV - 21.05.1999, Qupperneq 4

Dagblaðið Vísir - DV - 21.05.1999, Qupperneq 4
! I i ' „Þetta er nákvæmlega platan sem okkur langaði til að gera,“ full- yrðir Jóhann. „Þetta er skrýtið og poppað í senn. Það höfum við ekki gert áður,“ botnar Sigtryggur. Plötunni á að fylgja eftir með tónleikahaldi. Fyrsta uppákoman verður 28. maí þegar Dip spilar á undan Wayne Horvitz og Zony Mash í Loftkastalanum. Þá verður fjölmenni á sviðinu, 6 manna band, en Dip-arar segjast geta spilað í smærri einingum. „Við getum hent græjum í bíl og haldið tónleika hvar sem er með mjálmandi ketti á bak við okkur," segir Sigtryggur. Hvít þrælasala Er Lhooq-hópurinn hœttur, Jói? „Nei. Við erum að vinna nýtt efni núna og munum gera plötu á árinu. Dip er þó það sem ég er að einbeita mér að eins og er. Það er alltaf gott að hafa mörg járn í eld- inum.“ Enn eitt járnið hjá Jóhanni er svo að hann er að gera sándtrakkið fyrir myndina „Óskaböm þjóðar- innar“, sem Jóhann Sigmarsson leikstýrir. Hvaö meö þig, Sigtryggur. Er Bogomil Font dauður? „Nei, hann stundar ballspila- - ég hef lagst með ávöxtum Sykurmolinn Sigtryggur Bald- ursson og Lhooq-arinn Jóhann Jóhannsson em Dip. Dip-platan „Hi Camp Meets Lo-fi“ kemur út á næstu dögum. ,,“Camp“ þýðir eiginlega að setja sér háleit markmið en mistakast með stæl,“ segja strákarnir að- spurðir hvort titillinn lýsi hljóm- sveitinni. „Það er dálítið við.“ Hyernig byrjaói Dip? „Ég hjálpaði Sigtryggi við að gera lög á Diddu-plötuna“, segir Jó- hann, „og þetta þróaðist út í alþjóð- legt samstarf." Hver er konan og hver er maöur- inn í sambandinu? „Ég held við séum báðir konurn- ar. Við erum að rækta okkar innri lesbíur," segir Sigtryggur og stekk- ur ekki bros. Hvernig tónlist er þetta? „Þetta er tónlist sem þróast upp úr bítpælingum. Ég sit og tromma og Jói tekur upp á samplerinn sinn og gerir ljótt við það.“ Jóhann samþykkir það: „Þetta er samsuða af bíti og hljóðpælingum w „Og svo er skessulegt söng- leikjagarg ofan á,“ klárar Sigtrygg- ur. Mjálmandi kettir Það eru eðalskessur sem syngja Dip gæti orðið senuþjófur popp- sumarsins 1999. Metnaðarfull og froðufeliandi popptónlist sem Sigtryggur Baldurs- son og Jóhann Jó- hannsson færa landsmönnum á silfurfati. En popp- lífið á sínar skuggahliðar. á plötunni. Sara úr Lhooq og Em- ilíana Torrini syngja tvö lög hvor, Ásgerður Júníusdóttir (eldri syst- ir Móu) og Magga Stína fá að skessast sín á hvoru laginu og full- trúi tröllkarla er Jónsi úr Sigur- rós. Lögin eru samtals fjórtán og nokkur ósungin. Skyldi þetta vera mjög frábrugðið fyrri afrekum fé- laganna? mennsku til að afla mér tekna svo ég geti gert artsí-fartsí-krapp. Þetta er eins konar hvít þrælasala á karl- inum.“ Ávextir Með artsí-fartsi-krappi á Sig- tryggur við Dip og hin mörgu verk- efni sem hann rótast í. Hann hefur verið að vinna með Howie B að verkefni sem kallast Daddy Long- legs og Pussyfoot-merki Howies gefur út bráðlega, hann spilaði inn á nýjustu plötu Les Negres Vertes sem Howie hljóðvann, og svo er hann i sígaunahippafonkbandinu Reptile Palace Orghestra sem starf- andi er í Madison, Wisconsin. Sig- tryggur og konan hans eru einmitt búsett í Madison en Sigtryggur er alltaf á flandri og eðlilegt að maður hafi áhyggjur af kynlífi hans. „Jú, það er satt,“ segir hann, „kynlífið er í rúst. Ég hef lagst með ávöxtum." Það er nú í lagi eins lengi og það er ekki grænmeti. Þegar menn eru í jafnmörgu og Sigtryggur spyr maður sig um geðheilbrigðið. Er geðklofi í ættinni, Sigtryggur? „Nei, bara manía," segir hann, sviptir sig klæðum og hleypur froðufellandi í átt að Keili. Stórtíðindi í veit- ingabransanum: - og Kaffi List flytur Bíóbarinn er hættur og ná- granni hans, Kaffi List, er líka á förum. Reiðarslag fyrir íhaldssam- ar fyllibyttur á íslandi en gleðilegt fyrir nýjungagjarnt úthverfa- hyski. Ástæðan sem gefin er upp fyrir þessari umturnun á reyk- vísku skemmtananalífi er að leigusamningar þessara tveggja staða eru runnir út. Eigandi hús- næðisins, Kristján Knútsson, ætlar að opna þar stóran veitinga- og skemmtistað í júlí. Hægt verð- ur að ganga á milli húsnæða Kaffi Listar og Bióbarsins og garðurinn í portinu verður stækkaður og snurfusaður. Nýi staðurinn á að heita Klaustrið og auðvitað verð- ur svakastuð þar. Bara vonandi að þetta verði ekki eins og gamla Ing- ólfskaffi. Það vill enginn sjá aflit- aða Selfyssinga né aðra úr út- hverfunum hanga inni á Kaffi List. Kaffi List ætlar þó aldeilis ekki að leggja upp laupana strax. Það mun flytja á Laugaveg og verður beint á móti Hljómalind. Húsnæðið þar er stærra en hið gamla en að öðru leyti verður staðurinn í sama anda og áður. Hvað Bíóbarinn varðar þá er sögu hans lokið. Guðjón Þór Péturs- son, sem rekið hefur staðinn, ætl- ar að hætta því og einbeita sér að hinum fyrirtækjunum sínum, Net- mynd og Allt milli himins og jarð- ar, enda er hann orðinn fjöl- skyldufaðir og nennir ekki lengur að standa í barrekstri á kvöldin. Stendur þú fyrir einhverju? Sendu upplýsingar í e-mail fokus@fokus.is / fax 550 5020 f ó k u s 21. maí 1999 I

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.