Dagblaðið Vísir - DV - 21.05.1999, Blaðsíða 20
Brjálaöar auglýslngaherferölr, t.d. þaö að fá
fólk til að kyssa bíl sem lengst eða að fá fólk til
að mæta nakið til að fá síma, hin heilbrigða
skemmtan að hlæja aö þorpsfíflinu er komin
aftur og er það vel. Við ættum að njóta þess á
meðan við getum, eða þangað til félagsfræðing-
arnir finna upp orð eins og „athyglisfíkn",
„sjálfsvirðingarbrestur" og „blygðunarskerðing"
og stimpla inn að það sé eitthvað að því að fólk
geri sig að fífli fyrir peninga. Þeir ættu að vita að
við erum öll hórur og gerum í sjálfu sér það sem
við gerum til að fá peninga til að gera það sem
við viljum, nema
þeir sem eru svo
heppnir að gera
það sem þeir vilja
í vinnutímanum.
Auðvitað ættu
frikuðum herferð-
um ekki að Ijúka
hér. Hvernig væri
t.d. runkum fyrir
utanlandsferð
þar sem sá sem
hefði mesta og
frjóasta sæðið
ynni utanlands-
ferð fyrir tvo
(skila þyrfti inn
„uppáhellingu"
í smokk),
mömmu-mara-
þon, þar sem þeir sem gætu borið mömmu
lengst, fengju hrærivél, eða jafnvel bólugrafn-
astl ungllngurinn sem fengi fjallahjól. Möguleik-
arnir eru ótæmandi. Verum með.
ú r f ó k u s
Tískutímarltin Elle, Vogue og bara öll þessa
kvennarit sem láta llmvatnsprufur fylgja með
blaðinu. Þessar prufur valda því að það er
hreinlega ógeöslegt ef ekki ógerlegt að lesa
tískutímarit fyrir konur. Á annarri hverri síðu er
einhver helvltis auglýsing frá ilmvatnsfyrirtæki
sem vill endilega hafa prufu með auglýsing-
unni. Og þessi prufa veldur því að blaðið ang-
ar af mismunandi ilmi. Hann blandast allur
saman og allir vita að tveir plúsar verða að
einum mlnus. Það er einmitt það sem gerist.
Það er ekki hægt að lesa tískutímarit öðruvísi
en með hönskum og helst heiftarlegu kvefl
svo maður finni ekki dauninn sem annars
veldur hrikalegum svima og hausverkl. Þessar
prufur eru alveg úti, svo ekki sé minnst á verð-
ið á þessum tímaritum. Eitt skitið blað, upp-
fullt af auglýsingum og ilmatnsprufum, kostar
hátt I þúsundkall. Og það er ekkert I þessum
blöðum nema fáeinar myndir og einhverja
skltagreinar sem er ekki hægt að lesa af því
að síðurnar eru svo flippaðar. Fókus er hlynnt-
ur flippi og öllu þvl en þarna er verið að skjóta
sig I fótinn, eða hreinlega I hausinn.
• F undir
Snýst kristin trú um eitthvaö annað og meira
en mannát og galdraþulutuö sem á að hafa
það að markmiði að friða ímyndaðan stóran
anda sem virðist haldinn mannlegum breysk-
leika á háu stigi? Kjalarnesprófastsdæml ætl-
ar að efna til málþings um kristna trú og önn-
ur trúarbrögð I Strandbergl, safnaöarhelmlll
Hafnarfjaröarkirkju. Kveikjan að þinginu er að
sögn hinar miklu breytingar sem orðið hafa
með auknum samgangi ólíkra menningar-
heima. Vandi hinna kristnu er sá hvort bera
eigi virðingu fyrir trú annarra eða reyna að
troða upp á þá eigin meiningum, en það hefur
löngum verið aðalsmerki kristinna að geta
ekki séð menningarsamfélög með aðra heims-
mynd I friði. Fyrirlesarar eru þrir. Séra Krlstlnn
Jens Sigurþórsson hefur umræöuna en séra
Þórhallur Helmlsson flytur síöan erindi sem
ber yflrskriftina „Hvern segið þið mig vera" og
fjallar um með hvaða augum ólíkir hópar líta
Krist. Loks kemur I pontu doktor Pétur Pét-
ursson og flytur erindið „Hugmyndir um annað
llf I þjóðfélagi fjölhyggju". Þetta hefst klukkan
13.30 og er öllum opið. Enginn aðgangseyrir.
•Sport
KÍukkan 14 hefst skákkeppni Skákfélags
Grandrokks og Kaffi Austurstrætis. Spenn-
andi keppni yfir bjórsopa á Grandrokk, frum-
legasta bar (slands.
Úrslitaleikurinn um íslandsmeistaratitilinn I
snóker fer fram á Snóker- og Poolstofunni,
Lágmúla 5, og hefst kl. 13.00. Til úrslita leika
Jóhannes B. Jóhannesson og Brynjar Valdi-
marsson.
•F erðir
IP'Ékki er nóg með að Feröafélagiö steðji á
hæsta tind islands heldur tekur hluti þess upp
á því að skreppa í þriggja daga ferð upp á
Snæfellsjökul. Gist verður að Görðum og kom-
ið heim á mánudaginn.
Og Feröafélagiö lætur ekki staðar numið held-
ur býður til ferðar I Þórsmörk og Langadal.
Gist verður I Skagfjörðsskála og komið heim á
mánudag. Húrra fyrir Ferðafélaginu! Brottför
klukkan átta eins og hjá Mannakornum.
Feröafélag Akureyrar er á leiðinni upp á Flat-
eyjardalshelöi, nánar tiltekið að Heiðarhúsum.
Þetta er skíðaferð. Brottför er klukkan níu og
ekið veröur að Þverá I Dalsmynni. Þaðan verð-
ur gengið á skíðum út Rateyjardalsheiði og
gist. Heim verður haldið sömu leið á morgun.
I/Gönguferð er fýrsta dagskráratriðið á sum-
ardagskránni I Viöey. Klukkan 14.15 veður
lagt af stað úr hlaði Viðeyjarstofu austur á
Sundbakka, þar sem Ijósmyndasýning verður
skoðuð, og um suðaustureyna. Viðeyjarferjan
fer frá Sundahöfn fer klukkan tvö.
Sunnudagur
23. maí
®K1úbbar
Leikhúskjallarlnn. Siggi Hlö. Slggi Hlö. Siggi
Siggi Siggi Hlö.
• Kr ár
Hálft í hvoru er eins og venjulega á Kaffi
myndlist
GJörningaklúbburinn - The lcelandic Love Cor-
poration er skipaður fjórum gullfallegum snót-
um. Þær flippa feitt við ýmis tækifæri og þykja
mjög frambærilegar af aldurhnignum blaða-
mönnum I listablöðum. Nú er gullfallegt flipp I
gangi hjá stelpunum, þær ætla að gjörningast I
nýju gallerii á sunnudaginn kl. 14. Galleriið heit-
ir Exhibition Place - Garöur Udhus Kuche og
er á þrem stöðum í heiminum. íslenska útibúið
er að Ártúni 3, heima hjá Hlyni Hallssyni. Frek-
ari upplýsingar um starfssemi nýja gallerísins
má finna á www.simnet.is/guk.
Elfat Guöni heldur ym
þessar muhdir sína 36.
eirikasýningu I Gimll®^
Stokkseyri. Hann sýrirr
olíu- og akrýlmálverk óg
málar raunsæjar myndir
af sjónum og annarri nátt-
úru. Opið er um helgar
milli 14 og 22, en virka hJtt’
daga frá kl 17 til 22. Sýn-
ingunni llkur á sjómanna-
daginn.
Góða skemmtun
Stendur þú
fynr emhverju?
Siimlu uji|>lýsinyar i
i; iniiii fökiMífðkU'JS / l;j/ fj'iO 'Ji'/O
Á Skólavörðustlg 22 C er galleriið Nema hvaö?
og þar hefst sýning sex textílnema á öðru ári
frá MHÍI dag kl. 14. Sýningin er opin um þessa
og næstu helgi milli 14 og 18, en I dag er opið
til 22. Allir velkomnir!
í Galler! Ingólfsstræti 8 korrar hljóðskúlptur
Finnboga Péturssonar til 13. júní.
í Geröubergi er sýning á munum úr Nýsköpun-
28
jr
Á Café Romance spilar ensk
kona að nafni Liz Gammon á pí-
anó um hverja helgi. Hún verið
að hamast þetta í einn tvo mán-
uði og ekkert fararsnið virðist
vera á henni. Fókus sló á þráðinn
og tók púlsinn á Liz. Hún reynd-
ist vera í baði er við hringdum og
kannski að viðtalið sé eilítið smit-
að þeirri athöfn.
Hvaö ertu búin aö vera á land-
inu lengi?
„Ég er búin að vera hér í eitt og
hálft ár,“ segir Liz.
Og alltaf aö spila?
„Já. Um allar helgar og ef það er
mikið að gera á virkum dögum.“
Hvernig tónlist spilaröu?
„Ég spila bara allt frá Frank
Zinatra yfir til Boyzone. En slag-
arar á borð við New York, New
York eru alltaf vinsælastir í
bland við Piano man. Ætli það
megi því ekki segja að ég sé eins
konar FM-píanó. En sýningin
mín á líka að vera fyndin og ég
geri létt grín að líðandi stund og
því sem er í gangi í íslensku sam-
félagi á hverjum tíma fyrir sig,“
segir Liz og augljóst að hér er um
að ræða fagmanneskju sem hefur
túrað um alla Evrópu.
Afhverju ísland?
„Ég festist í Amsterdam fyrir
nokkrum árum og fór að vinna
þar. En síðan stóð ég allt í einu
uppi frekar blönk fyrir einu og
hálfu ári og mér var boðið að
koma hingað og bara varð ást-
fangin af staðnum."
Eru íslendingar ekki hundleiö-
inlegar fyllibyttur?
„Ekki svo. Þið eruð í lagi svo
lengi sem maður spottar vand-
ræðagemsana áður en þeir verða
til vandræða. Annars eru íslend-
ingar frekar góðhjartaðir þegar
þeir eru drukknir," segir Liz og
íslenskar fyllibyttur geta örugg-
lega tekið undir þá væmni.
Liz Gammon situr
píanóvaktina á
Café Romance
allar helgar.
Reykjavík.
Merkilegt hvað
böndin hanga
á sömu stöö-
unum. Aldrei
sér maður
þetta band á
Gauknum eða
Rðringinn þarna inni. En það er kannski ágætt
að geta gengið að sínum böndum vlsum.
Á Gullöidinni skemmta Svensen & Hallfunkel
glööum gestum en þeir sem ekki nenna að
hlusta geta hangið I spilakössunum. Væri ekki
ráð að ná silfurpottinum af Franklín Steiner
svona einu sinni?
Á Glaumbar eru Bltlar. Þeir kunna að kæta.
Hver þeirra ætli sé fyndnastur? Bergur, VII-
hjálmur, Karl eða Pétur? Eru Bítlarnir fyndnari
en Röggi gáfaði?
Hlið sólarinnar opnast og Jesús labbar inn I
himnaríki klukkan 18, en Llz Gammon missir
af þvl, hún er að spila dinner á Óperu. Svo
færir hún sig yflr á Romance og fær sér
púrtvín með gestunum.
Blái fiðrlngurinn getur ekki hætt að vera brillj-
ant inni á Fógeta. Bjöggi Gisla er bjútífúl á gít-
arinn og Jónarnir fylgja fast á eftir.
Liflð heldur áfram á Gauknum og nú er það
stórgrúppan Á
mótl sól sem
sendir frá sér
lengdarbylgjur.
DJ Blrdy er á
Kaffi Amster-
dam sem
endranær.
Hver er ekki I stuði fyrir fugladansinn?
Poppers slá botninn I hvitasunnuhátíðina á
Grandrokkl. Þessi hljómsveit er að geta sér
gott orð fyrir góðan flutning og líflega sviðs-
framkomu.
Taktík heldur velli inni á Kringlukrá. Nú er
enginn I Leikstofunni.
• Sv eitin
Neskaupstaðarbúar eru þekktir fyrir þroskaða
félagslega hegðun og þeir taka örugglega vel
á móti Bergþóru þegar hún kemur askvaðandi
til að leika fyrir þá. Hún verður I Egllsbúð
klukkan 21.
Höröur G. Ólafsson leikur fyrir gesti I Hlööu-
felll og er yndislega út úr stll við öll glóðaraug-
un á gestunum. Hann mætir siðan I partl á
Garöarsbraut og segir sögur úr bransanum.
Siggi rekur Hótel Ólafsvík af röggsemi og Rún-
ar Þór verður I góðu yfirlæti þar, án þess þó að
fyllast yfirlæti.
Söldögg gengur I hringi á Inghóli, enda hvita-
sunnudagur. Selfyssingar ættu að mæta og
sjá hvað bandið er rosaþétt.
Sjalli Akureyrarbæjar hefur löngum þótt hin
ágætasta drykkjubúlla. Nú eru það Land & syn-
Ir sem hijóða ofan af sviðinu. Þeir eru nú engir
ingimar Eydal en það verður að hafa það.
arkeppni grunnskólanemenda. Þarna er alls
konar stórskemmtilegir hlutir og krakkarnir eru
alveg að springa úr sköpunargleði og frumleg-
heitum. Munina verður hægt að skoða i allt
sumar þvi sýningin stendur til 27. ágúst.
Leirlistakonan Guöný Hafsteinsdóttir sýnir I
Hafnarborg. Sýning Guðnýjar ber yfirskriftina Þá
- nú og er eins konar skýrskotun I söguna.
Páll S. Pálsson er með smáskúlptúra sína I
Llstmunahúsl Ófeigs, Skólavörðustíg 5. Sýning-
in er opin á almennum verslunartíma og lýkur
29. maí.
Listmálarinn Margrét Jónsdóttir sýnir I Hafnar-
borg. Á síðustu sýningu sinni fjallaði Margrét
um stöðu slna og annarra myndlistakvenna og
stóð ekki á gati, nú segir hún að ritmálið hafi
margar skúffur og eins sé með myndmálið.
Ræt on sister!
Dögg Guömundsdóttir iðnhönnuður sýnir I
Stöðlakotl við Bókhlöðustíg. Hún er menntuð
frá skólum I Mílanó og Kaupmannahöfn. Hún
gerði nýlega samning viö Ikea I Svíþjóð og hélt
sína fýrstu einkasýningu I Köben I fyrra. Kona á
uppleið. Opið er daglega á milli 14 og 18.
í Galleri Geysl við Aðalstræti sýnir listamaður-
inn Dante indjánalist. Maðurinn er ekta indjáni
og stoltur af því.
í safnahúsl Borgarfjaröar eru sýnd verk fyrsta
árgangs útskriftarnema úr PA&R, Printmaking,
Art & Research: Listgraflk á uppleið. Opið alla
daga frá kl. 13 til 18.
Kristján Davíösson, sýnirfrá og með sunnudeg-
inum ný ollumálverk I sýningarsal Sævars Karls
I Bankastrætinu. Ýmsar skoðanir eru uppi um
verkin hans Kristjáns, en þau eru allavega dýr.
Sýningin stendur til 27 maí.
Hópurinn Homo Graflkus sýnir I plötubúðinni
12 Tónum á horni Barónsstigs og Grettisgótu.
Sex meðlimir klúbbsins sýna þar karllæga graf-
Ik.
Bibbi alias Curver sýnir þessa dagana verkið
Megrunin. Nú er hann orðinn 77 kíló (var 80 I
byrjun). Bibbi notar Herballfe við gerð verksins.
I Nýló sýna Sol Lyfond. Kenneth G. Hay, Karin
Schlechter, Jyrki Siukonen, Peter Friedl og
Eggert Pétursson til 30. maí.
Þeir sem eru á leiðinni til útlanda geta skoðað
kristilega myndlist I Flugstöö Leifs heppna.
Sýningin er I tilefni af 1000 ára afmæli kristni
á íslandi. Þarna eru m.a. munir frá Þjóðminja-
safni íslands, mósaikmynd Nínu Tryggvadóttur
úr Skálholtskirkju, Ijósmyndir teknar af Ragnari
Th. Sigurðssynl og Rafni Hafnfjörö og eftir-
prentun af mynd Collingwoods frá Þingvöllum.
Danski hönnuðurinn Rikki Feltmann sýnir kjóla
I nýrri fatabúð á Laugavegi 48b. Búðin heitir
One 0 One Shopping og er með flott og ódýr
föt, meira fiftís en seventís. Búðin ætlar að
starfrækja galleri með fatasölu og lofa versiun-
areigendur spennandi sýningum. Opið á versl-
unartima.
í Listasafni Árnesinga, Selfossi, sýnir Pétur
Halldórsson verk sem eru samsett úr ýmsu
myndefni. Sýningin stendur tii 30 maí.
Nú stendur yfir Ijósmyndasýning á verkum
áhugaljósmyndara á árunum 1950 - 1970 I
anddyri Þjóöarbókhlööunnar. Sýningin stendur
til 28. maí.
Messíana Tómasdóttlr sýnir 18 klippimyndir
unnar á þessu ári á Mokka.
Þorri Hringsson sýnir I
Listasafni ASÍ. Þorri sýnir
málverk af mat og kon-
um. Hvað er betra?
I Norræna húsinu hefur
Halldór Carlsson sagn-
fræðingur og kvikmynda-
gerðarmaður safnað sam-
an nokkrum frummyndum
og Ijósritum eftir islenska
teiknimyndagerðarmenn.
Sögurnar vekja minningar, t.d. flgúran Böbbi
eftir maestro Sigmund.
Ein athyglisverðasta sýningin á landinu stendur
nú yfir I Listasafni Akureyrar. Hún nefnist
Jesús Kristur - Eftirlýstur! og þar sjá ýmsar
túlkanir á Jesúsi frá mörgum tímaskeiðum.
Sýndar eru eftirmyndir af mörgum góðum grip-
um en aðaláherslan er lögð á þrjú tímabil:
Rómanska stílinn, síðendurreisn á ítaliu og I
Þýskalandi og samtima. Hvernig var Jesús?,
hafa margir spurt sig I gegnum tlðina og á Ak-
ureyri má fá svör við þeirri spurningu, a.m.k.
nokkur svör.